Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987
45
Islenskir ungtemplarar:
Avarp í tilefni alþjóða-
ungtemplaradagsins
FRÁ árinu 1954 hafa ungtempl- samtök bindindismanna legðu alla hörundslitar eða kynþáttar og hafði
arar um heim allan haldið 3. menn að jöfnu án tillits til kynferð- sigur. Á þessum grundvelli vinna
október hátíðlegan í minningu is, íjárhags, þjóðfélagsstöðu, trúar- ungtemplarar að umburðarlyndi og
dánardægurs John B. Finch sem skoðana, stjómmálaskoðana, friði milli þjóða með höfuðáherslu
iést þann dag árið 1887, aðeins
35 ára gamall.
John Finch barðist fyrir því að ‘------
á sjálfsákvörðunarrétt og tjáningar-
frelsi.
Annað meginverkefni ungtempl-
ara er bindindisstarf. Telja þeir að
menning án víniuefna sé eitt af því
sem leiði til framfara og þjóðar-
heilla. Því hafna ungtemplarar
neyslu vímuefna og reyna að vinna
þeirri lífsstefnu fylgi, einkum meðal
ungs fólks.
Samfélag sem reiðir sig á og við-
urkennir neyslu vímuefna er í
þröng. Því hefur mistekist að rækta
með þegnum sínum hæfileikann til
samskipta og upplifunar og að gera
veruleikann eftirsóknarverðan.
Félagsbundnir ungtemplarar sem
eru nú á aðra milljón, þar af um
hundrað þúsund á Norðurlöndun-
um, eiga sér að markmiði vímuefna-
laust samfélag, laust við stríðsótta
og félagslegt og fjárhagslegt ör-
yggisleysi, samfélag þar sem
athafnir manna miðast við og virða
mannleg verðmæti, samfélag sem
grundvallast á gagnkvæmu trausti
og virðingu þegnanna þar sem tján-
ingarfrelsi og trúfrelsi er virt.
Ungtemplarar beita sér gegn
þeim ógnum mannkyns sem engar
vísindalausnir eru á, styijöldum og
vímuefnaneyslu. Þeir vilja nota
þennan dag til að hvetja alla þá er
unna lífinu og mannlegri reisn að
fylkja liði svo að mannlíf megi enn
dafna og þroskast.
Undirskriftasöfnun
Flokks mannsins:
Askorun um
viðskipta-
bann á Suð-
ur-Afríku
FLOKKUR mannsins stendur um
þessar mundir fyrir undir-
skriftasöfnun, þar sem er skorað
á ríkisstjórn Islands að setja lög
um viðskiptabann á Suður-
Afríku.
í fréttatilkynningu frá Flokki
mannsins segir að með þessu vilji
flokkurinn sýna siðferðilegan
stuðning við mannréttindabaráttu í
Suður-Afríku. Allir helstu leiðtogar
Afríska þjóðarráðsins, þar á meðal
Nelson Mandela og Desmond Tutu,
hafí hvatt til alþjóðlegs viðskipta-
banns á Suður-Afríku. Samskonar
aðgerðir standa nú yfir í um 50
löndum.
Undirskriftalistum verður dreift
til verkalýðsfélaga, fyrirtækja og
skóla og mun söfnunin standa yfír
næstu vikur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarf kl. 11 í umsjá Sigfríðar
Sigurgeirsdóttur. Messa kl. 14.
Sungnir verða nýir norskir sálmar
(þýddir). Organisti Gróa Hreins-
dóttir. Stuttur fundur með foreld-
rum fermingarbarna eftir messu.
Sr. Þorv. Karl Helgason.
KEFLAVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið
skólabílinn. Verið með frá byrjun.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.
Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra. Sóknarprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA:
Sunnudagskóli kl.11. Börnin fá
möppur og myndir með verkefn-
um. Söngur, sögur o.fl. Messa kl.
14. Væntanleg fermingarbörn og
foreldrar þeirra sárstaklega boðið
til messunnar. Fundur að messulo-
kinni um fermingarstarfið og verða
veitingar bornar fram í boði safn-
aðarins. Þriðjudagskvöld: Fyrir-
bænasamkoma, í beinu framhaldi
af henni hefst Biblíufræðsla og
þurfa þátttakendur að hafa með
sér Biblíuna. Umræður og skoð-
anaskipti yfir kaffisopa. Sr. Örn
Báður Jónsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guösþjónusta
kl. 14. Kiwanismenn taka þátt í
messunni. Organisti Esther Ólafs-
dóttir. Sr. Hjörtur Magni Jóhanns-
son.
HVALSNESSÖFNUÐUR: Fyrsti
sunnudagaskólinn á haustinu
verður í grunnskólanum í Sand-
gerði kl. 11. Nýtt efni. Sr. Hjörtur
Magni Jóhannsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
messa kl. 11, Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli litlu
barnanna í dag, laugardag kl.
10.30. Barnasamkoman sunnudag
í kirkjunni kl. 11. Kvöldbænir verða
kl. 21. Organisti Jón Ólafur Sig-
urðsson. Sr. Björn Jónsson.
NQTAÐU KORNAX
IBAKSTURINN
KORNAX hveitið er svar við breyttum kröfum í
íslenskri matargerð. Þetta nýja íslenska gæða-
hveiti er ávallt ferskt og mýmalað. Það er unnið
úr úrvals hráefnum í hinni fullkomnu hveitimyllu
KORNAX hf. við Sundahöfn.
Nú getur þú glatt fjölskylduna með brauði og
kökum úr fersku gæðahveiti. Og jafnframt sparað
heimilispeningana því að KORNAX hveitið er á
mjög góðu verði!
Reyndu einnig KORNAX rúgmjöl í baksturinn
og við sláturgerðina. Það gefur ferskan keim.
KORNAX - nafn sem bragðlaukarnir leggja á minnið
KORNAX
KORNGARÐI 11 124 REYKJAVÍK SÍMI 688750