Morgunblaðið - 03.10.1987, Síða 52

Morgunblaðið - 03.10.1987, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987 Minning: Guðmundur Krisijánsson bæjarstjóri, Bolungarvík Fæddur 21. nóvember 1923 Dáinn 23. september 1987 í dag fer fram út för Guðmundar Kristjánssonar, bæjarstjóra, frá Hólskirkju í Bolungarvík. Guðmundur fæddist í Bolung- arvík 21. nóvember 1923 og voru foreldrar hans Benedikta Guð- mundsdóttir, húsmóðir í Bolung- arvík, og Kristján Bergsson, bóndi að Ytri-Búðum í Bolungarvfk, en > föður sinn missti hann ungur að árum og giftist móðir hans síðar Jóni Elíassyni, sem var formaður í Bolungarvík um áratuga skeið og er enn á lífí, háaldraður. Guðmundur Kristjánsson stund- aði nám við Héraðsskólann í Reykholti á árunum 1942—44 og nokkrum árum síðar fór hann til verslunamáms til Danmerkur og var þar í eitt ár, 1949—50. Hann gerðist skrifstofumaður hjá Hóls- hreppi 1945—1948 og hjá Einari Guðfínnssyni hf. í Bolungarvík 1951—56, en þá gerðist hann skrif- stofustjóri á skrifstofu Hólshrepps og gegndi því starfí til 1972 er hann varð sveitarstjóri Hólshrepps 1972—74, en þá fékk Bolungarvík kaupstaðarréttindi og var Guð- mundur kjörinn bæjarstjóri 1974 og hefur hann gegnt því starfí óslit- ið síðan. Hann átti sæti í hreppsnefnd 1954—66 og var í stjóm Sparisjóðs Bolungarvíkur frá 1962. Hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörf- um fyrir Bolungarvíkurkaupstað og í sveitarstjómarmálum, m.a. var í yfírfasteignamatsnefnd og í yfír- kjörstjóm Vestfjarðakjördæmis, - safnaðarfulltrúi og í svæðisstjóm um málefni öryrkja og þroska- heftra. Guðmundur kvæntist 1952 Guð- rúnu Pálmadóttur, sjómanns í Bolungarvík Karvelssonar, og Jónínu E. Jóelsdóttur. Þau hjón eignuðust fimm böm. Elstur var Benedikt, sem lést af slysförum 1961, en hin eru Pálmi Ámi, Krist- ján Jón, Jónína og yngstur er Bergur Ingi. Guðmundur Kristjánsson var traustur maður og öruggur í öllum störfum. Hann var ekki fyrir að láta bera á sér, en hann setti sig vel inn í allar greinar sveitarstjóm- armála, sem er mikill og víðfeðmur málaflokkur. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Guðmundi fyrir mörgum ára- tugum og var samstarf okkar alltaf með miklum ágætum. Mér fannst hann stundum sækja æði hart fram í málefnum heimabyggðar sinnar, en hann var ætíð sanngjam þegar rætt var við hann um skiptingu á fjármunum milli byggðarlaga og hann skildi að það þurfti að líta á málefnin frá fleiri en einni hlið. Leiðir okkar lágu mjög oft sam- an, bæði á fundum og á stundum þegar unnið var að málefnum Vest- fjarða og ekki síst að málefnum Bolungarvíkurkaupstaðar. Guðmundur Kristjánsson var einn þeirra manna sem tók þátt í að móta og byggja Bolungarvíkur- kaupstað upp, sem sveitarstjómar- maður og borgari í kaupstaðnum. Hann sá Bolungarvík breytast úr fátæku fískiþorpi í fallegan og blómlegan kaupstað. Þetta hefur verið mikið starf og ánægjulegt, bæði fyrir hann og aðra, að sjá þessa gjörbreytingu á þeim fallega bæ sem Bolungarvík er. Og þegar við kveðjum hinstu kveðju mann eins og Guðmund Kristjánsson ber- um við ósjálfrátt saman það sem , var og það sem er. Þegar ég fyrst kom til Bolungarvíkur, rétt fyrir seinna stríð, var bærinn, eins óg flest önnur fískikauptún landsins, fátæklegur, húsin lítil og léleg og afkoma fólksins að sama skapi. Eftir því sem kauptúninu óx ásmeg- in og brautryðjendur framfara hófu merkið hátt á loft, birti jrfír staðnum og samvinna var góð milli manna við uppbyggingu, hver svo sem stjómmálaskoðun þeirra var. Þetta hefur verið lán Bolvíkinga á liðnum árum og áratugum og þess vegna er árangurinn jafngóður og raun ber vitni. Það er mikill skaði að missa mann í fullu starfsfjöri og með þá gífurlega miklu reynslu og hæfí- leika sem Guðmundur Kristjánsson átti í ríkum mæli. En enginn má sköpum renna; hann er horfínn frá okkur og við söknum hans sem góðs vinar og mikils framkvæmda- manns, sem naut trausts og virðing- ar samborgara sinna, sem best kemur fram í því að ávallt var hann kjörinn bæjarstjóri, hvemig svo sem hinar pólitísku línur skárust í Bol- ungarvík. Það er því mikið skarð fyrir skildi er tiann nú hverfur af sjónarsviðinu. Ég er sannfærður um það að Bolvíkingar, allir sem einn, munu sakna þessa ágæta manns. Ég þakka honum að leiðarlokum vináttu, tryggð og drengskap á liðn- um áratugum. í mínum huga lifír minningin um góðan og gáfaðan dreng, sem alltaf vildi gera sitt besta og rétta. Guðs blessun fylgi Guðmundi Kristjánssyni í nýjum heimkynnum. Ég sendi konu hans, bömum, öldruðum fósturföður og öðmm aðstandendum innilegar samúðar- kveðjur. Matthías Bjarnason Sviplegt og ótímabært fráfall Guðmundar Kristjánssonar, bæjar- stjóra, kom sem reiðarslag yfír okkur Bolvíkinga. Guðmundur var nýkominn úr sumarfríi sínu, endur- nærður og fullur starfsorku. Mörg og stór verkefni vom framundan. Það átti vel við Guðmund, hann naut sín í starfínu. Seinnipart þriðjudags áttum við tal saman vegna fundar sem fyrir- hugaður var daginn eftir. Af þeim fundi varð ekkert. Á þriðjudags- kvöld gekk Guðmundur til náða án þess að kenna sér meins, Morgun- inn eftir var hann allur. Mikið skarð hefur nú verið högg- við í raðir Bolvíkinga. Mætur maður fallinn langt um aldur fram. í ára- tugi helgaði hann Bolungarvík og Bolvíkingum starfskrafta sína. Nú þegar leiðir skilja er okkur þakk- læti efst í huga. Guðmundur Kristjánsson var fæddur 21. nóvember 1923, sonur hjónanna Benediktu Guðmunds- dóttur og -Kristjáns Bergssonar, bónda að Ytri-Búðum í Bolung- arvík. Hann var því á sínu 64. aldursári er hann lést. Föður sinn missti Guðmundur þegar hann var aðeins nokkurra mánaða gamall. Bergur bróðir Guðmundar, sem lést 1986 var árinu eldri. Móðir Guð- mundar giftist síðar Jóni Kr. Elíassyni fyrrverandi skipstjóra, sem lifír fósturson sinn. Hálfsystir Guðmundar Sigríður býr í Reykjavík, en hálfbróðir hans, Elías í Hafnarfírði. Guðmundur stundaði sjó- mennsku á sínum yngri árum. En að afloknu tveggja vetra námi í héraðsskólanum í Reykholti, hóf hann störf á skrifstofu Hólshrepps, 22ja ára að aldri. Það eru því liðn- ir rúmir fjórir áratugir frá því Guðmundur fór fyrst að vinna að málum Bolungarvíkur. En hugur Guðmundar stefndi til frekara náms. Það mun hafa verið að tilstuðlan Axels heitins Tuliníus- ar f.v. lögreglustjóra í Bolungarvík, að Guðmundur innritaðist í verslun- arskóla í Kaupmannahöfn árið 1949 og stundaði þar nám í einn vetur. Þessi vetrardvöl var honum eftir- minnileg. Því kynntist ég vel sl. vor er við ferðuðumst saman til Dan- merkur. Guðmundur gjörþekkti miðborg Kaupmannahafnar, og hafði mikla ánægju af að riQa upp liðinn tíma og segja frá því er á daga hans dreif fyrir tæpum fjörtíu árum. Þegar Guðmundur kom heim frá Kaupmannahöfn árið 1950, var hann ráðinn til starfa á skrifstofu Einars Guðfínnssonar. En á árinu 1956, var hann fenginn til að taka að sér skrifstofuhald Hólshrepps, þar sem hann var öllum hnútum kunnugur frá fyrri tíma. Auk þess átti hann þá þegar sæti í hrepps- nefnd fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þar sat hann þriú kjörtímabil, frá 1954-1966. Árið 1972 tók Guðmundur síðan við starfí sveitarstjóra og varð fyrsti bæjarstjórinn í Bolungarvík, þegar kaupstaðarréttindi fengust árið 1974. Því starfi gegndi hann til dauðadags. Árið 1952 gekk Guðmundur að eiga eftirlifandi eiginkonu sína, Guðrúnu Pálmadóttur, Karvelsson- ar sjómanns í Bolungarvík og k.h. Jónínu Jóelsdóttur. Þau eignuðust fímm böm og eru fjögur þeirra á lífí. Elstur var Benedikt, en hann lést af slysförum tæplega fímmtán ára gamall. Pálmi Árni býr í Dan- mörku ásamt sambýliskonu sinni Lene Vestergaard. Kristján Jón býr í Bolungarvík. Sambýliskona hans er Drífa Gústafsdóttir og eiga þau tvær dætur. Jónína Elva býr einnig í Bolungarvík með Jóni Bjama Páls- syni. Þau eiga eina dóttur. Yngstur er Bergur Ingi sem er þroskaheft- urog dvelur að mestu í Skálatúni. Guðmundur og Unna, eins og Guðrún er jafnan kölluð, vom eink- ar samhent hjón. í erilssömu og vandasömu starfí Guðmundar veitti Unna honum mikinn stuðning. Bæði unnu þau mikið að málefn- um kirkjunnar, enda mikið trúfólk. Saman sýndu þau ótrúlegan styrk þegar erfíðleikar steðjuðu að. Og nú þegar heimilisfaðirinn er burtu kallaður án fyrirvara, er æðmleysi og sálarró Unnu og fjölskyldunnar allrar aðdáunarverð. Guðmundur var borinn og barn- fæddur Bolvíkingur. Hann þekkti því af eigin raun þá hörðu lífsbar- áttu sem hér var háð og þann þrönga kost er fólk bjó við á þriðja og fjórða tug aldarinnar. í þessari- elstu verstöð landsins, sem byggðist fyrst og fremst vegna nálægðar við gjöful fiskimið, var nær algjört hafnleysi. Sjósókn var því erfíðari en víðast hvar annars staðar. Líkt og í öðmm sjávarplássum höfðu hús verið sett niður á óskipulegan hátt. Flestir íbúanna bjuggu í verbúðum, sem margar hveijar höfðu verið í eigu bænda úr ekki reisulegur bær. íbúar staðarins vom 643 árið 1940. Síðan hafa orðið miklar breytingar. Mikil uppbygging hefur átt sér stað. Það er ekki aðeins að Guðmund- ur Kristjánsson hafí munað hér tímana tvenna. Heldur tók hann vegna starfa sinna virkan þátt í þeirri umbyltingu sem orðið hefur á ótrúlega skömmum tíma. í sumar töldust íbúar Bolungarvíkur í fyrsta skipti yfír 1.300. I þau 31 ár sem Guðmundur starfaði á vegum bæjarfélagsins samfleytt, starfaði hann aðeins með tveimur oddvitum, utan tveggja ára. Jónatan Einarsson gegndi starfí oddvita frá árinu 1958 til 1974, að Ólafur Kristjánsson varð forseti bæjarstjómar, en hann hefur gegnt því starfí síðan. Mestan hluta þess tíma er Guð- mundur gegndi starfi skrifstofu- stjóra Hólshrepps, háttaði því þannig til að starfandi sveitarstjóri var jafnframt lögreglustjóri. Þegar þessi embætti vom bæði orðin það viðamikil að ekki þótti rétt að sami maðurinn gegndi þeim, var Guð- mundur ráðinn fyrsti sveitarstjórinn í fullu starfí, árið 1972. Hann var því framkvæmdastjóri bæjarfélags- ins í 15 ár. Guðmundur sinnti starfi sínu af stakri prýði. Hann var samvisku- samur með afbrigðum og góð regla var á öllum hlutum. Óll meðferð fjármuna var til mikillar fyrirmynd- ar. Guðmundur var mikill Bolvíking- ur. Hann var góður málsvari og ötull baráttumaður, þegar um hags- muni Bolungarvíkur og Bolvíkinga var að tefla. Vegna áratuga starfsreynslu sinnar, bjó Guðmundur yfír mikilli þekkingu á þeim sviðum er snerta starfsemi sveitarfélaganna í landinu. Þessi mikla þekking Guð- mundar var oft ómetanleg í starfí- bæjarstjómar, enda báru kjömir fulltrúar mikið traust til Guðmund- ar alla tíð. Það sýnir best sú staðreynd, að eftir femar bæjar- stjómarkosningarvar Guðmundur valinn bæjarstjóri án mótatkvæða. Guðmundur naut ekki síður trausts þeirra er hann átti viðskipti við fyr- ir höndb æjarins. Það traust var yfírfært á Bolungarvíkurkaupstað og hefur verið mikils virði þegar unnið er að málefnum kaupstaðar- ins. Af þeim málaflokkum sem Guð- mundur fjallaði um í starfí sínu, taldi hann hafnarmálin einna þýð- ingarmest. Enda var hann sem bæjarstjóri jafnframt hafnarstjóri Bolungarvíkurhafnar. I áratugi hef- ur það verið eitt aðalviðfangsefni bæjaryfírvalda í Bolungarvík, að byggja upp þá lífæð, sem höfnin verður að teljast í byggðarlagi, þar semallt byggist á fiskveiðum og vinnslu. I hafnargerðinni hafa margir áfangasigrar unnist. Sá síðasti nú nýverið. Það var Guð- mundi mikið ánægjuefni þegar bygging brimvamargarðs norðan núverandi brimbijóts var komin á hafnaráætlun. Þegar Bolvíkingar fyrir fáum árum kynntu hugmyndir sínar um byggingu slíks garðs, með heimatilbúinni teikningu Guðmund- ar, þóttu þær hreinir draumórar. Ekki leikur nokkur vafí á, að jafnframt því að vera aðalstarf Guðmundar, var það hans helsta áhugamál að vinna að heill Bolung- arvíkur. Tími til annarra tómstund- arstarfa var því ekki mikill. Guðmundur var þó áhugamaður um argt og fjölfróður. Hann var mikill náttúruunnandi og stundaði fjall- göngur og útilíf, sérstaklega á sínum yngri árum. Guðmundur var einlægur lis- tunnandi. Þau Unna höfðu mikið yndi af tónlist. í áratugi sungu þau saman í kirkjukór og Guðmundur var alla tíð virkur karlakórsfélagi. Þá lék Guðmundur ágætlega á harmonikku og píanó, og samdi jafnvel lög á góðri stund. Málaralistina fékkst Guðmundur einnig við með ágætum árangri. Guðmundur kveið ekki aðgerðar- leysis í ellinni. Auk þess sem hér hefur verið nefnt, var hann mikill áhugamaður um sögu Bolungarvík- ur. Miklar væntingar höfðu verið gerðar til hans í þeim efnum. Guðmundur Kristjánsson sóttist ekki eftir metorðum. Vegna hæfi- leika sinna og at orku voru honum falin margvísleg trúnaðarstörf. Guðmundur sat í stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur í tvo áratugi. Hann var um langt árabil í yfírkjörstjóm Vestfjarðakjördæmis. Þá sat hann í svæðisstjóm um málefni öryrkja og þroskaheftra á Vestfjörðum frá árinu 1980. Guðmundur sat í bygg- ingamefnd Fjórðungssjúkrahússins á ísafírði og var safnaðarfulltrúi Hólssóknar frá árinu 1972. Auk þess sem að framan greinir sinnti Guðmundur fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum á sviði sveitar- stjómar- og félagsmála. I Bolungarvík er nú skarð fyrir skildi. Einn af bestu sonum kaup- staðarins verður til moldar borinn í dag. Söknuður eiginkonu og fjöl- skyldu er sárastur. Minningin um góðan dreng er þó huggun harmi gegn. Bæjarstjórn Bolungarvíkur og Bolvíkingar allir senda ástvinum öllum samúðarkveðjur. Einar Jónatansson Vinur minn og gamall starfs- félagi, Guðmundur Kristjánsson í Bolungarvík, er látinn um aldur fram. Á árunum 1963—1966 störf- uðum við daglega saman fyrir Hólshrepp, sem nú er kaupstaður- inn Bolungarvík. Hann var varaodd- viti og skrifstofustjóri, ég hélt sveitarstjóri. Við hentum stundum gaman að því, hvor væri í raun yfírmaður hveiju sinni. En aldrei reyndi á þetta. Með Guðmundi var gott að starfa sem jafningja, þótt hann væri mér langtum fremri um alla þekkingu og reynslu á högum og þörfum Bolvíkinga. Auk þess veiddum við stundum saman silung og lax og fórum eilítið á skíði. Nú hefði ég viljað ganga með Guð- mundi á golfvellinum þeirra. Þar er einnig gott að eiga stundir með góðum vinum. Árin í Bolungarvík eru okkur hjónum dýrmæt. Gaman var að starfa fyrir þróttmikið byggðarlag og sjá sumar framtíðarsýnir frum- heijanna rætast. Dýrmætara var að kynnast öllu því góða og dug- mikla fólki, sem þar býr. Og þar var Guðmundur í fremsta flokki. Þótt langt sé liðið frá því að dag- legu samstarfí okkar lauk rofnaði sambandið aldrei. Þótti mér alltaf vænt um, þegar Guðmundur lagði leið sína til mín á ferð í höfuð- borginni, og við áttum saman góðar skrafstundir um bæjarmálin, sem báðum voru hugleikin, eða gamla tíma og vini fyrir vestan. Guðmund- ur var að eðlisfari hlédrægur og barst lítt á, en skapgerðin var traust og viðhorf hans til manna og mál- efna athugul og einlæg. Guðmundur Kristjánsson var fæddur í Bolungarvík 21. nóvember 1923. Foreldrar hans voru hjónin Benedikta Guðmundsdóttir og Kristján Bergsson, bóndi á Ytri- Búðum, en fósturfaðir Guðmundar er Jón Kr. Elíasson, skipstjóri. Guðmundur stundaði nám við Héraðsskólann í Reykholti og síðar verslunarnám í Danmörku. Um nokkurt árabil vann hann á skrif- stofu Hólshrepps og síðan hjá Einari Guðfinnssyni, en óslitið frá 1956 starfaði hann fyrir sveitarfé- lagið, fyrst sem skrifstofustjóri, frá 1972 sem sveitarstjóri og síðan bæjarstjóri eftir að Bolungarvík varð að kaupstað 1974. Um 12 ára skeið átti hann sæti í hreppsnefnd Hólshrepps og gegndi mörgum öðr- um trúnaðarstörfum á þessum vettvangi. Sveitarfélagið naut starfskrafta Guðmundar í um 34 ár og síðustu 15 árin var hann framkvæmdastjóri þess. Starf bæjarstjóra er oft eril- samt og vandasamt og verksviðið nær yfir alla þætti, sem tengjast stjóm bæjarins og starfsemi hans, þótt umsjón með fjármálum vegi oftast þyngst. Bæjarstjórinn er einnig náinn samstarfsmaður bæj- arfulltrúa um öll mál, sem til úrlausnar þeirra koma. Þekking Guðmundar á bæjarmálefnum varð víðtæk og yfirgripsmikil á svo löng- um starfsdegi í þágu Bolungarvíkur og tillögur hans og ráð jafnan mik- ils metin. Fyrir þessi störf eiga Bolvíkingar Guðmundi Kristjáns- syni ómælda þökk að gjalda. Guðmundi var eflaust nóg að vita, að hann hafði innt mikilvægt starf sitt vel af hendi og sjá árangur þess koma fram í þróttmiklu bæjar- félagi, sem hann hefur átt svo stóran þátt í að móta. Við Sigurlaug sendum eiginkonu Guðmundar, Guðrúnu Pálmadóttur, bömum þeirra og fjölskyldunni allri, innilegustu samúðarkveðjur. Jón G. Tómasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.