Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987
fclk í
fréttum
Nokkrir
Vestmanna-
eyingar
léttir í lund,
enda búnir
aðelda
„þjóðarrétt-
inn“.
Lunda-
veislaá
Suður-
nesjum
Það er oft haft á orði að Vest-
mannaeyingar séu sérstakur
þjóðflokkur, og víst er að þeir eiga
sér „þjóðarrétt" þar sem lundinn
er. Þó að margir Eyjapeyjar og
-meyjar hafí flutt upp á „meginl-
andið", sérstaklega eftir gos, þá
gleyma menn ekki endilega göml-
um siðum, til dæmis hefur Félag
Vestmannaeyinga á Suðumesjum
boðið til lundaveislu á hveiju ári
síðan um gos.
Þegar búið
er að inn-
byrða
lundann,
er gjarnan
spjallað
samanyfir
kaffibolla.
Þessar veislur hafa verið geysi-
vel sóttar, enda hafa menn komið
alls staðar að frá Suðumesjum
og af höfuðborgarsvæðinu til þess
að snæða lunda og hitta skemmti-
legt fólk. Hið árlega lundaball,
sem einnig er árshátíð Vest-
mannaeyingafélagsins, verður
haldið í kvöld, laugardaginn 3.
október, í félagsheimilinu í Garði,
og er að þessu sinni boðið upp á
þá nýbreytni að hafa rútuferðir
til og frá Reykjavík, Garðabæ,
Hafnarfírði, og Suðumesjum. Þeir
sem hafa áhuga á að skella sér í
Iundaveislu og ball á eftir geta
hringt í Bjama í síma 92-13167,
eða í Eirík í síma 92-46648. Við
birtum héma myndir af síðustu
lundaveislu, sem þótti takast mjög
vel, og er ekki að efa að hátíðin
í kvöld mun takast vel líka.
Af baðvenjum
Micliaels Jacksons
Michael Jackson hefur heldur
betur baðað sig í sviðsljósinu
að undanfömu, en hann þarf líka
að baða sig í vatni eins og annað
fólk, jafnvel þó að fegrunarsérfræð-
ingar ýmiskonar séu búnir að
krukka svo oft í hann að efast
megi um hvort að nokkur líkams-
hluti á honum sé upprunalegur og
þvottekta. Michael óttast hins vegar
mikið gerla allskonar og örverur,
og hann var dauðhræddur um að
heill herskari af þessum ósýnilegu
óvinum hans hefðust við í hitaveitu-
vatninu í Japan, þar sem hann var
í hljómleikaferð, eins og frægt er
orðið.
Nú voru góð ráð dýr, en Michael
á hins vegar sand af seðlum, og
hann notfærði sér það til að leysa
vandamálið við að skola af sér svi-
tann án þess að leggja sig í bráða
lífshættu. Söngvarinn lét senda sér
§óra kassa af átöppuðu drykkjar-
vatni frá Bandaríkjunum upp á
hvem einasta dag, og vildi ekkert
annað en fínasta ölkelduvatn.
Hugsanlega veit Michael ekki að
Japanir verða - ásamt okkur íslend-
ingum - allra manna elstir, og því
getur kranavatnið þeirra varla verið
bráðdrepandi, þó að það geti verið
að þeir séu orðnir ónæmir fyrir eitr-
iriu í aldanna rás. En Michael fínnst
aldrei vera of varlega farið, og er
ekki annað vitað en að hann ætli
að halda áfram að sofa í súrefnis-
kassa og lauga sig úr. ölkelduvatni
úr flöskum til að halda sér ungum.
Og hver er kominn til með að ségja
að þetta sé einhver vitleysa hjá
poppstjömunni? Michael er nú orð-
inn 29 ára gamall, en lítur - eins
og allir geta séð - út fyrir að vera
15 ára.
Michael Jackson tók
gælusjimpansann sinn,
Bubbles, með í boð hjá
borgarstjóranum í
Ósaka-borg í Japan, og
þáðu þeir félagar grænt
te þar. Michael lætur
apann smakka teið fyrst,
enda er aldrei of varlega
_________________farið.
Orðhákurinn Terence
Trent D’Arby lætur flest
flakka.
Eger
snillingur
- fullyrðir Terence Trent D’Arby
Terence Trent D’Arby hefur
slegið rækilega í gegn í Bret-
landi og víðar með fyrstu plötu
sinni, og það er engin tilviljun, að
minnsta kosti ef marka má hann
sjálfan. „Ég er alveg einstakur, ég
er snillingur,” segir Terence án
þess að blikka augunum, „og ég læt
það sem vind um eyru þjóta ef ein-
hver dregur það í efa, eða segir að
ég sé hrokafullur."
Hvort sem Terence meinar þetta
í fúlustu alvöm, eða ekki, þá er ljóst
að hinn 25 ára gamli söngvari hef-
ur alveg efni á því að láta ýmislegt
flakka um eigið ágæti. Ifyrsta plat-
an hans, „The Hardline According
to Terence Trent D’Arby" - sem
kom út fyrir aðeins þremur mánuð-
um síðan - stökk upp í efsta sæti
breska breiðskífulistans, og gagn-
rýnendur hafa keppst um að hæla
honum, og margir vilja líkja honum
við Prince. Terence sjálfur vill held-
ur líkja sér við Jimi Hendrix.
Terence er fæddur og uppalinn
í New York, en flutti til Englands
fyrir tveimur árum, fullviss að þar
biðu hans fé og frami. Hann hafði
greinilega hárrétt fyrir sér, en hitt
er ekki víst að framhald verði á
ferlinum, að minnsta kosti ef marka
má það sem veltur upp úr þessum
lítilláta Ijúflingi. Hann segist nefni-
lega vera að gæla við þá hugmynd
að gefa ekki út fleiri plötur, en
hverfa burt úr öllu veraldarvafstri
og setjast að í afskekktum fjalla-
kofa. „Það er dásamleg tilhugsun
að einhvemtíma í framtíðinni verði
fólk að fletta í gegnum sígildar
poppskífur í fornplötubúðum, og
fínni þar 27 Bítlaplötur, 56 með
Elvis Presley, en aðeins eina eftir
mig.