Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
Bankar íslands
eftir Vilhjálm
Bjarnason
í því landi íslandi, þar sem dugir
að hafa eitt af öllu, þar vilja flestir
hafa tvennt eða þrennt af öllu. Eitt
á ríkið að eiga, eitt eiga hinir og
þessir að eiga og eitt á SIS að eiga.
Á grundvelli þessarar röksemda-
færslu fer fram merkileg umræða
um bankamál á þessu hausti. Hafa
hinir og þessir viljað gjalda fyrir
hugsjón sína með kr. 760 milljónum
á aprílverðlagi til að halda ímynd-
uðu jafnvægi. Einn af forystumönn-
um hinna og þessara orðaði hugsjón
sína þannig, að það yrði að koma
í veg fyrir kaup SIS á Útvegs-
bankanum, því það gæti verið
eitthvað í málinu sem SÍS sæi en
þeir ekki.
Hins vegar hefur lítil skynsamleg
umræða átt sér stað um hagræð-
ingu í bankakerfínu. Samhliða
aukinni tæknivæðingu þar hefur
starfsfólki fjölgað og einnig útibú-
um. Þannig starfa nú þijár banka-
stofnanir á Patreksfírði, en
kaupfélagið og_ sláturhúsið lepja
dauða úr skel. Á Akureyri eru tíu
afgreiðslustaðir bankastofnana og
einn hinum megin fjarðar. Á Sel-
fossi eru fjórir bankar með af-
greiðslur. Eg sé ekki samhengið
milli fjölda bankastofnana og vel-
megunar.
Samkeppni í millilandasiglingum
„Með opnun gjaldeyris-
deilda í Búnaðarbanka
og Iðnaðarbanka fóru
^eir viðskiptavinir frá
Utvegsbankanum, sem
áttu sér undankomu-
leið. Bankinn hefur því
orðið undir í samkeppn-
inni. Það ber því brýna
nauðsyn til þess að
horfið verði frá þeirri
lausn, sem bankastjórn
Seðlabankans taldi þá
lökustu af þeim valkost-
um, sem fyrir lágu á
liðnum vetri.“
fékk snöggan endi á árinu 1985. Á
árinu 1980 störfuðu 1.050 manns
hjá Eimskip og 200 manns hjá
Hafskip. í dag starfa um 850 manns
hjá Eimskip með lejguskipum. Um
starfsmannahald SÍS er mér ekki
kunnugt. Ég hef engan hitt, sem
tekið hefur eftir því, að það hefur
fækkað um 400 manns í flutninga-
starfsemi.
í bankamálaumræðu haustsins
hefur eitt skynsamlegt komið fram.
Það er að SÍS ætlaði að sameina
Vilhjálmur Bjarnason
Útvegsbanka og Samvinnubanka.
Og hvað er svona snjallt við það?
Frá bæjardyrum SÍS séð, þá er
augljóst, að skjóta verður stoðum
undir rekstur Samvinnubankans.
Til að bankinn uppfylli skilyrði við-
skiptabankalaganna þarf hann á
nýju hlutafé að halda, sem nemur
200—300 milljónum. Greiðslubyrði
SÍS af Útvegsbankakaupunum er
svipuð og af hlutafjáraukningu í
Samvinnubankanum fyrstu 3 árin
en síðan meiri út fímmta árið.
Vandamál Samvinnubankans er
það, að bankinn er rekinn á um 20
stöðum í mjög smáum einingum,
en í sambýli við tryggingafélag.
Einn af forystumönnum SIS hefur
sagt, að bankinn yrði ekki rekinn
með tapi, því bankinn væri í sam-
býli og það væri þá hægt að milli-
færa frá tryggingafélaginu. Nú
þurfa tryggingafélögin einnig að
gæta aðhalds í rekstri og þetta er
því ekki hægt í sama mæli og áður.
Og bankamir hafa fengið sam-
keppni. Verðbréfasjóðir hafa tekið
til starfa. Vaxtamunur hjá þeim er
u.þ.b. 2% en 8—9% hjá bönkum.
Sparifjáreigendur borga ekki enda-
laust fyrir vitleysuna frekar en
tryggingafélög.
Á liðnu sumri voru rekstrarskil-
yrði banka óvenju góð, vaxtamunur
mikill og lausaíjárstaða banka
heppileg. Þessir tveir þættir hafa
afgerandi áhrif á afkomu banka,
þar sem þjónustugjöld eru alltof lág
hér á landi. Afkoma bankastofnana
batnaði frá 1. ársþriðjungi. Ekki
dugði það þó til að tryggja afkomu
10 af 14 afgreiðslustöðum Útvegs-
banka íslands hf. Þrír afgreiðslu-
staðir, ísafjörður, Siglufjörður og
Vestmannaeyjar skiluðu hagnaði
sem nam 50—60 milljónum, en það
er einmitt rekstrarhagnaður bank-
ans á 2. ársþriðjungi þessa árs.
Viðskiptavinir bankans á þessum
stöðum geta ekki endalaust staðið
undir rekstri bankans. Umboðs-
menn eigenda hans, stjómmála-
menn, verða að taka afstöðu í þessu
máli hið fyrsta, því ella lenda þeir
í öðrum og stærri vanda á árinu
1990.
Með opnun gjaldeyrisdeilda í
Búnaðarbanka og Iðnaðarbanka
fóru þeir viðskiptavinir frá Út.vegs-
bankanum, sem áttu sér undan-
komuleið. Bankinn hefur því orðið
undir í samkeppninni. Það ber því
brýna nauðsyn til þess að horfið
verði frá þeirri lausn, sem banka-
stjóm Seðlabankans taldi þá lök-
ustu af þeim valkostum, sem fyrir
lágu á liðnum vetri. Valkostimir eru
nú:
1. Sameining Iðnaðar-, Útvegs-
og Verzlunarbanka. Sú leið er vart
fær á meðan Iðnaðar- og Verzlunar-
banki koma sér ekki saman um
sameiningu eða samvinnu.
2. SÍS kaupi Utvegsbanka og
sameini hann Samvinnubanka. Á
því er augljós ókostur. Hann er sá
að stærstu viðskiptavinir Útvegs-
banka á Siglufírði og í Vestmanna-
eyjum hafa mikil hagsmunatengsl
við samkeppnisaðila SIS í ákveðinni
grein og sætta sig vart við að verða
viðskiptavinir samvinnuhreyfíngar-
innar. ísfirðingar og aðrir geta farið
annað, ef þeir eru óánægðir. Mætti
því undanskilja Siglufjörð og Vest-
mannaeyjar og selja öðmm. En
hvað er þá verið að selja?
3. Sameining og endurskipulagn-
ing Búnaðar- og Útvegsbanka. Þar
þarf eigandinn að semja við sjálfan
sig- .
4. Áframhaldandi rekstur Út-
vegsbanka íslans hf. í óbreyttri
mynd til ársins 1990 en þá neyðast
fulltrúar eigenda til að glíma við
afturgenginn vanda.
Það er skoðun mín, að valkostir
nr. 2 og 3 séu þeir einu raunhæfu
og að öðrum hvomm þeirra beri að
vinna.
Höfundur er viðskipt&fræðingur
og starfar l\já Kaupþingi hf.
Krístni frá Bárð-
arbúð svarað
eftirSturlu
Böðvarsson
Kristinn Kristinsson frá Bárðar-
búð, nú kennari á Hellissandi,
sendir frá sér hálfgert skáldverk á
siðum Morgunblaðsins í tilefni af
skrifum undirritaðs um vegamál 26.
september sl. Grein Kristins ber
nokkum keim af leikþáttagerð og
hefur mig óverðugan í aðalhlut-
verki. í anda nútíma skáldverka er
hinn „nærsýni bæjarstjóri", svo sem
hann kallar greinarhöfund, vondur
maður, sem vill standa gegn byggð
á Nesinu öllu. Auðvitað er hér af
ágætum manni skotið nokkuð yfír
markið í tilfínningahita og mikilii
Jólabasar Hús-
mæðrafélagsins
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
heldur sinn árlega jólabasar að
Hallveigarstöðum sunnudaginn
8. nóvember.
Allur ágóði af jólabasamum
rennur til góðgerðarstarfsemi.
Vamingurinn á þessum basar hefur
allur verið unninn af félagskonum
og er í tengslum við jólin. Einnig
eru ýmsar pijónavörur til vetrarins.
Basarinn hefst kl. 14.00.
„Hugmyndir mínar
byggjast á þeirri meg-
inforsendu að tengja
byggðirnar saman á
öllu Nesinu og styrkja
þannig byggðina.“
nærsýni.
Erfítt er að sjá að hugmyndir
mínar um uppbyggingu vegakerfís-
ins á Snæfellsnesi gangi gegn
hagsmunum eins né neins enda
þótt ég hafi þá skoðun að tengja
eigi byggðimar með vel uppbyggð-
um og ömggum fjallvegum og
stytta vegalengdir svo sem kostur
er milli staða. Eg nefni ekki Útnes-
veg án þess að hafa ætlað þeim
vegi annað hlutverk en eðlilegt er.
Hugmyndir mínar byggjast á þeirri
meginforsendu að tengja byggðim-
ar saman á öllu Nesinu og styrkja
þannig byggðina. Flutningar innan
'svæðisins eru vaxandi og þjóna
mikilvægum hagsmunum á sama
hátt og það er nauðsynlegt að bæta
vegakerfíð í Breiðuvík og fyrir Jök-
ul, sem ég tel þó vera aftar í röðinni
en ýmis önnur verkefni í vegagerð.
Tillögumar sem ég setti fram eru
ekki eingöngu mínar. Vegagerðin
hefur kynnt þær og fært fyrir þeim
fullgild rök. Ráðamenn hafa hins
vegar ekki viljað koma af stað
Sturla Böðvarsson
umræðu um þessar tillögur, ef til
vill af ótta við viðbrögð á borð við
grein Kristins.
Sem innfæddir Snæfellingar tel
ég að við Kristinn höfum jafnan
rétt til þess að dásama Jökulinn við
sem flest tækifæri þrátt fyrir það
að við höfum flutt okkur um set á
Nesinu og erum nú báðir á því norð-
anverðu. En ég hika ekki við að
segja, að á meðan vegakerfíð er
eins og það er í milli þéttbýlisstað-
anna er óeðlilegt að hefja stórfram-
kvæmdir við veginn fyrir Jökul. Að
vísa á veginn um Heydal og Útnes-
veg er óraunhæft og ófullnægjandi
lausn á samgöngumálum okkar og
mun leiða til þess, að byggðin sunn-
anfjalls klofni endanlega frá þeirri
þjónustu og viðskiptum, sem eðli-
legt er að komi frá þéttbýlinu
norðanfjalls.
Kristinn varar við mínum ráðum
enda þótt þau hafí í einhveijum
öðrum málum dugað, svo sem hann
lætur liggja að, og telur „nærsýni"
mína beinast að því að skara eld
að köku okkar Hólmara ef ég skil
hann rétt. Það þykir væntanlega
einhveijum einkennileg hagsmuna-
gæsla fyrir Hólmara að leggja til
að Fróðárheiði verði byggð upp.
Ég er hins vegar viss um að Krist-
inn fær fáa Ólsara til þess að falla
frá því að byggja upp heiðina og
aka fyrir Jökul.
Hinsvegar er öllum ljóst sem
þekkja til þróunar byggðarinnar í
Breiðuvík og aukningar í ferða-
mannaþjónustu á svæðinu að bæta
verður Ötnesveginn.
í umræðum um vegamál og röð-
un framkvæmda á landsbyggðinni
hættir' mönnum mjög til þess að
láta tilfinningar ráða afstöðu sinni.
Grípa menn þá til ráða eins og
Kristinn gerir, að þyrla upp mold-
viðri, gera mönnum upp skoðanir
og beina umræðunni frá aðalatrið-
um málsins. Kristinn ætlar mér,
vegna skoðana minna í vegamálum,
einhveija sérstaka andstöðu við hin-
ar „veiku" byggðir. Slíkur málflutn-
ingur veikir ekki einungis einstakar
byggðir heldur landsbyggðina og
Akranesi.
SAMNINGUR liggur nú fyrir
milli félagsmálaráðuneytisins og
Akraneskaupstaðar um að reisa
húsnæði fyrir verndaðan vinnu-
stað á Akranesi og dagvistun
fyrir fatlaða.
Vonast er til að byggingarfram-
kvæmdir hefjist nú í nóvember og
er áætlað að framkvæmdum verði
lokið f lok næsta árs eða byijun árs
1989. Byggingin verður til afnota
fyrir vemdaðan vinnustað eins og
áður segir og einnig fyrir svæðis-
stjóm um málefni fatlaðra á
skaðar málflutning einlægra lands-
byggðarmanna eins og Kristinn er.
Það hafa verið unnin stórvirki í
vegagerð á Nesinu þó að við viljum
ná betri árangri. Þar vil ég nefna
veginn fyrir Búlandshöfða, sem
reyndar þarfnast endurbyggingar,
og Ennisveginn. Ekki minnist ég
þess að Hólmarar hafí ráðist gegn
þeim sjálfsögðu framkvæmdum.
Núna telja þeir hins vegar vera
komið að því að gera átak á fjallveg-
unum af ástæðum, sem ég rakti í
fyrri grein minni. Þess vegna geri
ég tillögur vegagerðarinnar að
minni um að leggja veg um Dufgus-
dal. í þessu máli er það raunsæi í
stöðunni að leggja til að vegurinn
um Fróðárheiði verði jafnframt
byggður upp. Hann getur þó vegna
hæðar aldrei orðið eins öniggur og
vegurinn um Dufgusdal. Ég tek það
ekki nærri mér þó Kristinn telji
mig nærsýnan og mun á meðan ég
starfa sem bæjarstjóri hiklaust
vinna að hagsmunamálum Stykkis-
hólms, sem reyndar falla saman við
hagsmuni héraðsins.
Uppbygging vegakerfísins er
sameiginlegt hagsmunamál allra
Snæfellinga. Deilur um röð fram-
kvæmda mega ekki draga úr krafti
okkar eða sundra okkur. Það mun
einungis tefja og skaða. Um það
veit ég að við Kristinn erum sam-
mála og snúum því bökum saman.
Höfundur er bæjnrstjóri
í Stykkishólmi.
Vesturlandi. Reiknað er með að
vinnuaðstaða verði fyrir 20 manns
og með tilkomu hennar verði mikil
breyting á atvinnumálum fatlaðra.
Ákraneskaupstaður og nokkur
félagasamtök á Vesturlandi standa
að vemduðum vinnustað og ríkis-
sjóður greiðir laun forstöðumanns
og hluta af öðrum rekstrarkostn-
aði. Nýr forstöðumaður hefur
nýlega verið ráðinn og er það Einar
Guðmundsson kennari á Akranesi
og hefur hann nú þegar tekið til
starfa.
Bjóddu vetrinum byrginn með
JnwuESTunE
undir bílnum!
Yerndaður vinnustað-
ur byggður á Akranesi
- JG