Morgunblaðið - 04.11.1987, Side 53

Morgunblaðið - 04.11.1987, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987 53 Saga Akra- ness gefin út Stefnt ad útgáfu á 50 áraafmæli kaupstaðarins 1992 Akranesi. Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum fyrir skömmu að ráðast í það verkefni að láta rita sögu Akra- ness og stefna að útgáfu fyrsta bindis þess á 50 ára afmæli kaupstaðarins 1992. Samþykkt var að gera verksamning við Jón Böðvarsson fyrrverandi skólameistara um ritun sögunar og jafnframt var skipuð ritnefnd fimm manna. Sagan mun ná yfir tímabilið frá landnámi til okkar daga. Inn í þá sögu mun fléttast að nokkru leyti saga nágrannabyggðanna. Til að byija með verður mest um gagna- söftmn að ræða. Þess vegna er mikið í húfi að allir þeir sem hafa undir höndum eða vita um skjöl og önnur gögn er varða sögu kaupstaðarins láti vita að því. Ritnefnd sem skipuð er Gísla Gíslasyni bæjarstjóra, Valdimar Indriðasyni, Halldóri Jörgensyni, Gunnlaugi Haraldssyni og Hrönn Ríkharðsdóttur hefur nú þegar hafið störf og að sögn Gísla Gísla- sonar bæjarstjóra verður það hlutverk nefndarinnar að afla gagna og fara yfír þau og fylgja verkinu eftir. Gísli sagði að Ólafur B. Bjömsson hafí á sjötta ára- tugnum hafíð ritun sögu Akraness en ekki enst ajdur til að ljúka henni. í því verki væri margt sem gerði starf Jóns og ritnefndarinn- ar auðveldara þó svo verulegt verk væri fyrir höndum. Á und- anfömum árum hafa verið gefnar út nokkrar bækur um Akranes, meðal annars fyrmefnd saga Akraness, saga knattspymunnar á Akranesi, í sumar var svo gefín út litmyndabók um Akranes og nágrenni og nú síðast saga skól- anna á Akranesi í 100 ár. Allar þessar bækur gefa mjög góða mynd af mannlífí á Akranesi fyrr og nú. - JG Þrjú hjól uiidir vagiii í Regn- bog'anum REGNBOGINN hefur haf- ið sýningar á ensku gamanmyndinni Þijú hjól undir vagni. I aðalhlut- verkum eru George Co- stigan, Michelle Holmes og Siobhan Finneran. Leikstjóri er Alan Clarke. Myndin fjallar um Bob sem á ljómandi konu og bam, en þar sem Bob er mjög upp á kvenhöndina notar hann tækifærið þegar hann keyrir bamapíumar Ritu og Sue heim. Þær eru bráðþroska stúlkur og til í tuskið. Frúin kemst að öllu sam- an og þá færist heldur betur fjör í leikinn, segir í frétt frá kvikmyndahúsinu. Hvað hrekkur krónan langt ? London París Róm Madríd Brussei Vín Munchen Genf Reykjavík Akureyri Leigubíll kr. 180 kr. 179 kr. 159 kr. 125 kr. 206 kr. 244 kr. 279 kr. 233 kr. 225 kr. 225 Þriggjakmferð 2,80 pund 28 frankar 5.500 lirur 380 pesetar 200 belg. frank. 80 skildingar 13mörk 9 svissn. frank. Dýrt hótel kr. 11.254 kr. 13.803 kr. 12.864 kr. 11.976 kr. 7.416 kr. 10.675 kr. 7.837 kr. 11.632 kr. 5.500 kr. 3.400 Tveggja manna herbergi í eina nótt, án morgunveröaren með sölusk. og þjónustu 175pund Ritz 2.152frankar Crillon 443.600 lirur Hassler-Villa Medisi 36.400 pesetar Villa Magna 7.200 belg.frank. Hilton 3.500 skildingar Palais Schwarzenberg 365mörk Vier Jahreszeiten 450 svissn. frank. Hotel Richmond Hótel Saga (m. morgunv.) HótelKEA Hótel f miðflokki kr. 4.373 kr. 3.819 kr. 3.770 kr. 3.128 kr. 2.575 kr. 5.795 kr. 4.251 kr. 3.231 kr. 3.500 kr. 3.700 Tveggja manna herbergi i eina nótt, með morgunverði, sölusk. og þjónustu (nema annað sé tekið fram) 68 pund Wibraham 595 frankar Roblin 130.000 lirur Scalinata di Spagna 9.508 pesetar HotelAlcala 2.600 belg.frank. HotelArgus 1.900 skildingar Hotel Biedermaier 198mörk Drei Löwen ;125svissn. frank. Hotel Candelier HótelÓöinsvé Hótel Stefania Kvöldverður kr. 2.829 kr. 3.082 kr. 2.464 kr. 2.632 kr. 2.395 kr. 3.050 kr. 4.294 kr. 3.878 kr. 4.000 kr. 5.610 Þríréttuð máltíð fyrir tvo með vinflösku, sölusk. og þjónustugj. 44 pund Wheeler's 480frankar La Coupole 85.000 lírur Bolognese 8.000 pesetar Restaurante LaParra 2.325 belg. frank. LaVigne 1.000 skildingar Zum Novak 200 mörk KáferSchánke 150 svissn. frank. Auberge du Uond’Or Torfan Fiðlarinn á þakinu í NÝLEGU tölublaði The New York- Times gaf að líta töflu yfir verðlag í átta evrópskum borgum. Tekið var mið af verði stuttrar ferðar í leigubíl, tveggja manna herbergi á hóteli í hæsta gæðaflokki, hóteli miðflokki og kvöld- verði. Morgunblaðið aflaði áþekkra upplýsinga í Reykjavík og á Akureyri, lesendum blaðsins til glöggvunar. Nýtt bifreiðaverk- stæði í Reykjavík NÝTT bifreiðaverkstæði hefur hafíð rekstur og nefnist það Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur að Armúla 20. Á verkstæðinu er boðið upp á allt almennt viðhald nýlegra bif- reiða, ljósastillingar, vélastillingar auk sérstakrar þjónustu á Saab- bifreiðum. Eigendur verkstæðisins eru Amar Theodórsson og Margrét Eyjólfsdóttir. Starfsmenn em Hjörleifur Hilmarsson og Sigurður K. Sveinsson. I M . KL. 9-18 AGA KL. 9-19 AGA KL. 10-16 AUSTURSTRÆT114, S. 12345.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.