Morgunblaðið - 04.11.1987, Side 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Craig Johnston í
landsliðshópinn
Lawrenson til Man. United?
Craig Johnston, miðvallarleik-
maður frá Liverpool, var í gær
valinn í enska landsliðshópinn fyrir
leikinn gegn Júgóslövum í Evrópu-
■■^■H keppni landsliða,
FráBob sem verður í Júgó-
Hennessy slavíu á miðviku-
/ Englandi daginn í næstu viku.
Englandi nægir
jafntefli til að sigra í riðlinum.
Johnston hefur leikið með enska
U-21 landsliðinu. Hann fæddist í
Suður-Afnku, er með ástralskan
ríkisborgararétt og á ættir að rekja
til Englands, Skotlands, írlands og
Wales. Johnston, sem verður 27 ára
í næsta mánuði, hefur ekki leikið
a-landsleik, en fyrmefndar þjóðir
hafa allar viljað fá hann í sínar
raðir og sjálfur hafði hann helst
áhuga á að leika fyrir Skotland.
Lawrenson til United?
írski landsliðsmaðurinn Mark Law-
renson, sem er 30 ára og á eftir
þrjú ár af samningi sínum við
Liverpool fór í gær fram á sölu.
Liverpool keypti þennan sterka
vamarmann frá Brighton 1981 fyr-
ir 900.000 pund, en hann meiddist
á síðasta keppnistímabili og hefur
ekki náð að festa sig í liðinu síðan.
Nokkur félög hafa sýnt honum
áhuga en Manchester United vill
greiða 700.000 pund fyrir hann og
sleppi Liverpool honum, virðist
United lfklegasti kaupandi.
Wark til Le Havre?
John Wark gæti einnig verið á för-
um frá Liverpool. Franska iiðið Le
Havre hefur boðið 125.000 pund í
skoska landsliðsmanninn. Liverpool
greiddi Ipswich 450.000 pund fyrir
Wark, sem er 30 ára, í mars 1984,
en hann hefur ekki komist í hópinn
lengi. Wark hafði áhuga á að fara
aftur til Ipswich, en Le Havre býð-
ur honum svipuð laun og hann hefur
hjá Liverpool og því boði getur
reynst erfítt að hafna.
KNATTSPYRNA
Ámií
Leiftur
Ami Stefánsson, vamarmað-
urinn sterki úr Þór á
Akureyri, mun leika með nýliðum
Leifturs frá Ólafsfírði næsta sum-
■■■■■■ ar í 1. deildinni í
FróReyni knattspymu. Ámi
Eiríkssy ákvað þetta í gær
áAkureyri 0g sagJ)j j samtali
við Morgunblaðið
að hann myndi skrifa undir fé-
lagaskipti síðar í vikunni.
Ámi hefur verið fastamaður í
Þórsliðinu undanfarin ár. Hann
er 28 ára að aldri og á að baki
101 leik í 1. deildinni með Akur-
eyrarliðinu og hefur skorað flögur
mörk í þeim. Ámi á alls 234 leiki
að baki með meistaraflokki Þórs;
hann lék sinn 200. leik sumarið
1986, gegn Víði í Garði.
Ámi er annar leikmaður liðsins
frá þvf í sumar sem hættir, Sigur-
bjöm Viðarsson hefur ákveðið að
leggja skóna á hilluna.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Aml Stefánsson spymir frá marki f leik með Þór. Til hægri er Sigur-
þjöm Viðarsson, sem lagt hefur skóna á hilluna.
FRJÁLSAR / HEIMSAFREKASKRÁ || KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
Vésteinn 10. í
kringlu og Einar
12. íspjóti
Vésteinn Hafsteinsson, HSK,
náði 10. bezta afreki ársins í
kringlukasti í heiminum á
þessu ári og Einar Vilhjálms-
son, UÍA, 12. bezta heimsaf-
rekinu í spjótkasti, samkvœmt
heimsafrekaskrá í frjálsíþrótt-
um, sem miðuð er við 4.
október sl.
Vésteinn kastaði kringlunni sem
kunnugt er 67,20 metra á
móti í Klagshamn í Svíþjóð 17. júlí
sl. og bætti fj'ögurra ára gamalt
íslandsmet sitt um 1,60 metra.
^ Bezta afrekið í heiminum í ár er
72,08, en það vann Bandaríkjamað-
urinn John Powell, einnig í Klags-
hamn. Powell er með langlengsta
kastið því næstur er Svfinn Stefan
Femhoim með 69,80 metra.
Vésteinn er rétt á eftir afreksmönn-
um á borð við Ólympíumeistarann
Rolf Dannenberg, V-Þýzkalandi, og
heimsmeistarann frá 1983, Tékk-
ann Imrich Bugar. Náði hann þriðja
bezta afreki Norðurlandabúa og er
t.d. með rúmlega meters lengra
kast en Norðmaðurinn Knut Hjelt-
nes, <em kastaði 69,62 metra í
hitteðfyrra.
Gamla met Vésteins, 65,60 metrar,
var 77. bezta afrek í kringlukasti
frá upphafí, miðað við síðustu ára-
mót. Vésteinn færði sig talsvert upp
þann lista í ár, því nú er hann kom-
inn í 42. sæti á lista yfír beztu
kringlukastara heims frá upphafí.
Einar Vilhjálmsson setti sem kunn-
ugt er Norðurlandamet í spjótkasti
er hann kastaði 82,96 metra á
Landsmóti UMFÍ á Húsavík 11.
júlí. Er það 12. bezta afrekið í heim-
inum í ár. Norðurlandametið missti
Einar hinsvegar til Finnans Seppo
Raty, en til þess að ná því dugði
Raty ekki minna til en verða heims-
meistari í spjóti á HM f Róm.
Árangur Einars í spjótkastinu er
jafnframt 14. bezta afrekið með
nýja spjótinu frá upphafí. Sem
kunnugt er voru gerðar breytingar
á spjótinu fyrir tveimur árum er
höfðu veruleg áhrif á árangur í
greininni. Einar á 23. bezta afrekið
frá upphafi með eldra spjótinu,
kastaði 92,42 í Texas vorið 1984.
Einn maður hafði kastað spjótinu
yfír 100 metra.
Síðsumars var Sigurður Einarsson
í 18. sæti á heimsafrekaskránni í
spjótkasti, en hann er ekki á listan-
um frá 4. október. Sigurður kastaði
80,84 metra í sumar og samkvæmt
upplýsingum FRÍ er það 20. bezta
afrekið í heiminum í ár. Á listanum
frá 4. okt. er að fínna Suður-Afríku-
mann með 82,06 metra. Árangur
Suður-Afríkumanns er hins vegar
ekki viðurkenndur þar sem Suður-
Afríku hefur verið úthýst úr Al-
.þjóðafrjálsíþróttasambandinu og
öðrum íþróttasamböndum vegna
aðskilnaðarstefnu stjómvalda.
Ásgelr ásamt Arie Haan, þjálfara Stuttgart.
Ásgeir með Stutt-
gart gegn Bayem
„Eg er allur að koma til. Hef
æft á fullu undanfarna tvo
daga. Fór á tvær erfiðar æfing-
ar í gær og svo aftur í dag.
Þetta er allt að koma. Nú vant-
ar aðeins ieikæf inguna," sagði
Ásgeir Sigurvinsson, fyrirliði
Stuttgart, í viðtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. Ásgeir hefui
verið frá vegna meiðsla, í læri,
undanfarnar vikur.
Asgeir sagði að hann myndi
ekki leika með Stuttgart gegn
Dortmund um næstu helgi. „Arie
Haan, þjálfari okkar, vonast eftir
því að ég verði tilbúinn í slaginn
gegn Bayem hér í Stugttgart 14.
nóvember," sagði Asgeir.
Margir leikmenn Stuttgart hafa
meiðst að undanfömu og ekki getað
leikið. Ásgeir sagði að þeir Karl
Allgöver og markvörðurinn Eike
Immel væru tilbúnir að leika gegn
Dortmund. „Vellimir hér eru famir
að þyngjast. Það er stutt í jólafrí
knattspymumanna. Síðasta um-
ferðin í ár verður leikin 21.
nóvember," sagði Asgeir.
FIMLEIKAR
Guðjón
fimleika-
maður
ársins
GUÐJÓN Guðmundsson úrÁr-
manni hefur verið valinn
fimleikamaður ársins. Fim-
leikasamband íslands útnefndi
hann sem slíkan á ársþingi sínu
9.-10. október sl.
Arsþinginu var ekki lokið á
framangreindri helgi og verð-
ur því aukaþing haldið 7. nóvember
í íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Á þinginu var ákveðið að efna til
svonefnds Reykjavíkurboðsmóts
annað hvert ár og bjóða til þess
keppendum frá 7-10 löndum. Mót
af þessu tagi var haldið í marz sl.
og þótti takast vel.
Þá var ákveðið að sækja um að fá
að halda hér á landi Norðurlanda-
meistaramót fullorðinna og Norður-
landamót drengja. Norðurlandamót
í nútímafímleikum verður haldið hér
á landi árið 1989.
Á ársþinginu var Rannveigu Guð-
mundsdóttur veittur styrkur úr
minningarsjóði Áslaugar Einars-
dóttur. Rannveig stundar nám við
íþróttaháskólann í Köln í Vestur-
Þýzkalandi. Lokaverkeftii hennar
fjallar um sálfræðilegan undirbún-
ing fimleikamanna.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Pyrsti Akureyrarslagurinn í 1. deild!
Akureyrarliðin Þór og KA mæt-
_ ast í fyrsta skipti í 1. deildar-
keppninni f handknattleik á
Akureyri í kvöld.
Það má fastlega reikna með að leik-
ur þeirra, sem hefst kl. 20, verði
spennandi og flörugur og ekki er
að efa að bæjarbúar fjölmenna í
íþróttahöllina. Það má því búast við
góðri stemmningu. í vetur leika
' ' félögin í fyrsta skipti saman f 1.
deildinni. Þór kom upp í vor, en
KA hefur leikið í deildinni í nokkur
ár.
Fjórir aðrir leikir verða í kvöld. KR
leikur gegn Stjömunni í Laugar-
dalshöllinni kl. 20.15 og strax að
honum loknum verður boðið upp á
stórleik. Meistarar Víkings leika
gegn Val kl. 21.30. IR mætir Fram
í Seljaskóla kl. 20.15 og á sama
tíma leikur FH gegn Breiðablik í
Hafnarfírði.
Baráttan á toppi deildarinnar er nú
að verða mjög spennandi og allt
getur greinilega gerst. FH-ingar
em enn á toppnum eftir 5 umferð-
ir, þrátt fyrir að hafa tapað sínu
fyrsta stigi í vetur um helgina, er
þeir gerðu jafntefli við KA á Akur-
eyri. Þeir hafa 10 stig. Valsmenn
em í öðm sæti með 9 stig, Víking-
ar hafa 8, Breiðablik og Stjaman
6, KR og ÍR em með 4 stig, KA
2, Fram 1 en Þórsarar em enn án
stiga og sitja því á botninum.
Markahæstu leikmenn 1. deildar
karla í handknattleik eftir sex
umferðir eru þessir:
Hans Guðmundsson, UBK.....43/14
Þorgils Óttar Mathiesen, FH..41
Júlíus Gunnarsson, Fram...40/11
Konráð Olavson, KR........38/8
Valdimar Grímsson, Val.......37/2
Sigurpáll Aðalsteinsson, Þór..37/21
Héðinn Gilsson, FH.............35
Skúli Gunnsteinsson, Stjömunni .35
Karl Þráinsson, Víkingi......30/5
Sigurður Gunnarsson, Víkingi .30/5
Stefán Kristjánsson, KR......29/8
Guðmundur Þórðarsonm ÍR......28/3
Júlfus Jonasson, Val........27/11
Óskar Helgason, FH...........26/8
Ólafur Gylfason, ÍR..........25/7