Morgunblaðið - 07.01.1988, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 07.01.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988 5 Þijú skip með loðnu ÞRJÚ loðnuskip fengu I gær- morgun fullfermi norður og norðaustur af landinu. Það er fyrsta loðnan, sem veiðist frá því fyrir jól. Skipin fengu afla sinn á svæð- inu við Kolbeinsey og austur eftir, norðaustur af Langanesi. Sigurður RE fór til Vestmannaeyja^ með 1.400 tonn, Guðmundur Ólafur ÓF til Ólafsfjarðar með 600 og Erling KE fékk 650 tonn, en hafði ekki ákveðið löndunarstað síðdegis í gær. V estmannaeyj ar Fiskmarkað- ur Vestmanna- eyja hf. í gang Stjórn Fiskmarkaðar Vest- mannaeyja hf. hélt fund í gær. Var á fundinum ákveðið að markaðurinn yrði formlega opnaður næstkomandi þriðju- dag. Markaðurinn verður bæði fjar- skiptamarkaður og einnig verður fískur boðinn upp á staðnum. Hann verður til húsa í þurrkhúsinu Stakki. — Bjarni Skattlagning lán- töku erlendis: Undanþágur verða bundnar vörum en ekki fyrirtækjum SEÐLABANKI íslands hefur gert tillögu um það til fjár- málaráðuneytisins að undan- þága vegna skatts á erlendar lántökur til kaupa hráefnis til útflutnings- og samkeppnisiðn- aðar verði bundin vörum en ekki fyrirtækjum, eins og nú- gildandi reglugerð mælir fyrir um. Fjármálaráðuneytið hefur fallist á þessa tillögu og má búast við að breyting verði gerð á reglugerð þar að lút- andi á næstunni. Verzlunarráð íslands mótmælti fyrr í vetur að undanþágur væru bundnar við fyrirtæki og ítrekaði þau mótmæli með bréfi, dagsettu þriðjudaginn 5. janúar. I bréfiriu segir að listinn, sem Seðlabankinn gaf út vegna þeirra fyrirtækja sem undanþágu nytu, hefði verið mið- aður við vöruskrá iðnaðarins, en sá listi er á vegum Félags íslenskra iðnrekenda. A listanum séu um 500 fyrirtæki, þar af um 200 utan FÍI. Engin skylda sé hins vegar að vera á vöruskránni og óeðlilegt að binda undanþágu frá skattlagn- ingu við það hvort fyrirtæki eru á slíkri skrá eða ekki. í bréfinu segir ennfremur að ljóst sé að núverandi fyrirkomulag feli í sér óeðlilega mismunun milli fyrirtækja og Verzlunaráðið telji æskilegast að undanþágan gildi almennt fyrir innflutning á vörum með viðkomandi tollskrárnúmer- um. Beint áætlunarflug tii Orlando þrísvar í viku Dæmi: 11 dagar: Quality Inn, Orlando í 3 nætur og Colonial Gateway Inn, St. Petersburg Beach í 7 nætur. Verð 25.090 kr.* 21 dagur: Quality Inn, Orlando í 6 nætur og Colonial Gatewáy Inn, St. Petersburg Beach í 14 nætur. Verð 29.610 kr.* FLUGLEIÐIR -fyrirþig- Innifalið í verði: Gisting og morgunverður á Quality Inn, Orlando og Colonial Gateway Inn, St. Petersburg Beach. Einnig er boðið upp á fríar áætlunarferðir frá Orlando-flugvelli til St. Petersburg Beach. Komdu til okkar og ræddu málin, það eru ótal aðrir möguleikar sem þú getur valið um. ‘Verðið er meðalverð fyrir tvo fullorðna og tvö börn (2-11 ára) saman í herbergi og gildir til 31. jan. ’88. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingasími 25 100. P.S. Þú gengur að sólinni vísri en farðu ekki á mis við DISNEY WORLD - CYPRESS GARDENS - SEA WORLD og CAPE CANAVERAL. GERVIHNATTASJONVARP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.