Morgunblaðið - 02.03.1988, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.03.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 5 10 tonn af gol- þorski Hann er stór þorskurinn sem Hafsteinn Garð- arsson skipstjóri á togaranum Kross- nesi, Grundarfirði, heldur á en hann fékk 10 tonn af þessari stærð i einuhalioglOO tonn eftir 4 daga útivist. Morgunblaðið/Bœring Cecilsson Prófastar þinga HINN árlegi prófastafundur fer fram í Kirkjuhúsinu í Reykjavík 2.-4. mars og hefst með guðs- þjónustu í Dómkirkjunni f dag, miðvikudag, kl. 10.30 Tveir nýir prófastar verða þá settir inn í embætti, þeir sr. Guðni Þór Ólafsson á Melstað, prófastur Húnvetninga, og sr. Flosi Magnús- son á Bíldudal, prófastur Barð- strendinga. Meðal umræðuefna á prófasta- fundi er hin nýja löggjöf um sókn- ar- og kirkjugarðsgjöld og jöfnunar- sjóð kirkjunnar, sem sr. Jón Einars- son kynnir. Sr. Ólafur Skúlason fjallar um veitingu prestakalla og tilnefningu prófasta og sr. Birgir Snæbjömsson ræðir um nýju skattalögin með tilliti til hjóna- bandsins. Þá verður fjallað um kristinfræði í skólum og einnig um íslensku kirkjuna og SADCC-lönd- in, en það eru grannlönd Suður- Afríku og hafa Norðurlönd ákveðið mikla þróunaraðstoð við þjóðir þeirra landa. Prófastafundinum lýkur með alt- arisgöngu í Dómkirkjunni kl. 17 föstudaginn 4. mars. Breiðdalsvík: Framtíð byggð- arlagsins í hönd- um stjómvalda - segir Lárus Sigurðsson, oddviti Ollu starfsfólki Hraðfrysti- húss Breiðdælinga á Breið- dalsvík hefur verið sagt upp störfum vegna rekstrarerfið- leika fyrirtækisins. Frystihúsið er langstærsti vinnuveitandi á staðnum. Morgunblaðið hafði samband við oddvita hreppsnefndar á Breið- dalsvík, Lárus Sigurðsson, og innti hann eftir fréttum af ástandinu. Hann tók undir það sem fram hefur komið í fréttum að byggðarlagið stæði og féili með rekstri frystihúss- ins og sagði Breiðdælinga vera enn háðari því nú en áður. Meginástæða þess væri að í fyrra var skorið nið- ur fé hjá nokkram bændum þar í sveitinni, vegna riðuveiki og hafa bændumir að verulegu leyti haft afkomu sína af vinnu í frystihúsinu síðan. Lárus sagði að hreppsnefnd hefði þegar á fimmtudaginn þann 18. febrúar, eða daginn áður en upp- sagnimar tóku gildi, samþykkt ályktun til allra þingmanna Austur- lands og sent þeim. Þar var þeim gerð grein fyrir hvemig byggðar- lagið er statt vegna erfiðleika hrað- frystihússins og þeir hvattir til að vinna að lausn málsins.Láras kvað menn þar vonast til, að í dag eða á morgun skýrðust línur og niður- stöður fengjust um ráðstafanir stjómvalda og hvort þær dygðu til. Eignaskattur: Tilkynning- ar um fyrir- framgreiðslu TILKYNNINGAR um fyrirfram- greiðslu eignaskatts eru nú að berast fólki, sem gert er að greiða slíkan skatt. Samkvæmt upplýsingum frá fulltrúa ríkis- skattstjóra er hér um að ræða sama fyrirkomulag og verið hef- ur í gildi undanfarin ár varðandi greiðslu eignaskatts. Reglan undanfarin ár hefur verið sú að eftir að álagning hefur farið fram er greiðslum jafnað niður á fímm mánuði, það er ágúst, sept- ember, október, nóvember og des- ember. Eftir áramót hefur hins veg- ar verið tekið ákveðið hlutfall í fyrir- framgreiðsiu og jafnað niður á fímm mánuði, febrúar, mars, apríl, maí og júní. Síðan kom álagning um sumarið, fyrirframgreiðslan dregin frá og afgangnum skipt niður á fímm mánuði. Þegar þú borgar í stöðumæli stuðlar þú að áframhaldandi fjölgun bílastæða í borginni. 1. mars tóku starfsmenn Reykjavíkurborgar aö sér eftirlit með stöðu- mælum og stöðubrotum. Allar tekjur af stöðumælum og stöðubrotum renna í bílastæðasjóð borgarinnar. Verkefni bílastæðasjóðs er að eiga og reka stöðumæla við götur borgarinnar og reka sérstök bílastæði. Sjóðnum er einnig ætlað að standa undir byggingu og rekstri bílastæðahúsa og bílskýla fyrir almenning. Markmið borgarinnar er að fullnægja þörfinni eftir bílastæðum í öllum borgarhverfum. Auknar kröíur verða gerðar um bílastæði fyrir nýbyggingar í gömlum hverfum þannig að ekki verði skortur á bíla- stæðum með tilkomu þeirra. Nú hefur verið hert á innheimtuaðgerðum vegna stöðu- brota. Ef ökumaður greiðir ekki í stöðumæli eða leggur bifreið sinni ólöglega þarf hann að greiða aukastöðu- gjald eða stöðubrotsgjald. Sé gjaldið ekki greitt innan 2ja vikna hækkar það um 50%. Síðar verður gert lögtak í bflnum til greiðslu skuldarinnar. Fjölgum bílastæðum Borgum í stöðumælana ósarfsiA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.