Morgunblaðið - 02.03.1988, Síða 70

Morgunblaðið - 02.03.1988, Síða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 SVISS Gunnar og Sigríður sigursæl Gunnar Sigurðsson, GR, og Sigríður Flygering, GR, voru sigursæl á púttmóti, sem fram fór í Kringlunni um helgina. Leiknar voru 36 holur í karla- og kvenna- flokki með og án forgjafar og sigr- aði Gunnar í keppni karla án for- gjafar á 96 höggum. Hann fékk einnig sérstök verðlaun fyrir flestar holur í höggi og önnur fyrir að fara flestar holur á pari eða á betra skori. Sign'ður sigraði bæði með og án forgjafar í flokki kvenna. Hún fór á 137 höggum án forgjafar og 77 höggum án forgjafar. Kristín Eide, NK, hafnaði í öðru sæti á 141 og 95 og Jóhanna Jóhannsdóttir, NK, varð þriðrja á 165 og 105 höggum. Jón Asgeir Eyjólfsson, NK, sigraði í keppni karla með forgjöf, fór á 62 höggum, en hann varð annar án forgjafar á 100 höggum. Jens Jensson, GR, fór á 104 höggum í keppni án forgjafar og hafnaði í þriðja sæti, en Sigurbjöm Theódórs- son, NK, varð í sama sæti í keppni með forgjöf, fór á 71 höggi. SssvarJónsson Sævar er eini atvinnu- maðurinn hjá Solothum jr Eg kann vel við mig hér í Sviss," sagði Sævar Jóns- son, landsliðsmaður í knatt- spymu úr Val, ser.i er nú leik- maður með svissneska 2. deild- arfélaginu Solothum. „Við höf- um leikið nokkra æfíngaleiki, en fyrsti alvöruleikurinn verður 13. mars í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar." Sævar sagði að hann léki sem aftasti vamarmaður liðsins, sem þokkalegt. „Ég reikna ekki með að vera áfram hjá félaginu eftir þetta keppnistímabil," sagði Sævar, sem er eini atvinnu- maðurinn hjá Solothum. Woolridge var sektaður um kr. 970 þús. fyrir kókainneyslu New York Nets og aðstoðarþjálfari Atlanta. Blrdfórákostum Larry Bird, leikmaðurinn sterki hjá Boston Celtic, fór á kostum þegar félagið lék átta útileiki í röð á dög- unum - sjö á vesturströndinni og einn á austurströndinni. Bird skor- aði alls 285 stig í leikjunum átta, eða 35.6 stig að meðaltali í leik. Hann tók 93 fráköst, eða 11.6 frá- köst að meðaltali í leik. Bird skor- aði fímmtán þriggja stiga körfur og þá skoraði 58 stig úr 64 vítaskot- um sem hann tók, sem er 90% nýt- ing. Þess má geta að hann nefbrotnaði í leik gegn Denver og skoraði að- eins 13 stig í leiknum og tók 10 fráköst. Aðeins tveimur dögum eft- ir leikinn í Denver lék hann nef- brotinn gegn Portland. Skoraði þá 40 stig og tók 13 fráköst. ORLANDO Woolridge, fram- herji og lykilmaður New York Nets, hefur verið sektaður af félagi sínu, um 970 þús. ísl. kr. Woolridge var sektaður fyrir notkun á eiturlyfjun, eftir að hann týdist í tvo daga. Hann fannst á hótelherbergi og sagðist hafa lent í bílslysi. Forráðamenn New York Nets létu Woolridge í lyfjapróf og kom þá í ljós að hann væri kókain- neytandi. Hann var strax settur í læknismeðferð og sektaður. Það er mjög slæmt fyrir New York Nets að missa Woolridge, sem er einn af aðalmönnum liðsins. Þær fréttir bárust svo úr herbúðum félagsins í gær, að búið væri að reka þjálfarann Dave Wohl. Við hans starfí tekur gamla kempan Willis Reed, fyrrum leikmaður með Larry Blrd, sýndi og sannaði að hann er einn besti körfuknattleiksmðaur Bandaríkjanna. Hann setti 285 stig í átta leikjum og tók 93 fráköst. Þá hitti hann úr 58 af 64 vítaskotum. Guðbjörg íþrótta- maður Rangæinga GUÐBJÖRG Viðarsdóttir frjáls- fþróttakona úr Ungmennafá- laginu Dagsbrún hlaut sœmd- arheitið fþróttamaður Rangœ- inga 1987 á fundi hjá Kiwanis- klúbbnum Dfmoni á Hvolsveili síðastliðinn miðvikudag, 10. febrúar. Þetta er í sjöunda sinn sem Kiw- anisklúbburinn tilnefnir íþróttamann Rangæinga. í ávarpi formanns íþróttanefndarinnar kom fram að íþróttagreinum fjölgar ár frá ári sem stundaðar eru í sýsl- unni og árangur fer stöðugt batn- andi. Sig. Jóns. Guðbjörg Viðarsdóttir, Iþróttamaður Rangæinga. KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN GOLF / PÚTTMÓT í KRINGLUNNI VIÐURKENNING SUND Hörð keppni framundan hjá Tryggva í Bandaríkjunum Tryggvl Helgason, sundmaður frá Selfossi. TRYGGVI Helgason sundmað- ur frá Selfossi, sem dveiur við háskólanám og œfingar f Bakersfield f Kalifornfu í Bandarfkjunum, náði dögunum lágmörkum til að komast f nftján manna sundlið skólans sem keppir 9.-13. mars í 2. deild bandarfska háksólamóts- ins f sundi. Bakersfíeld skólinn sigraði aðra deildina í fyrra og var Tryggvi í sigurliðinu en hann hefur verið í liðinu síðustu þijú ár, keppt 1 HBHBBHB bringusundi og boð- Sigurður sundi. Bakersfíeld Jónsson liðinu er spáð sigri skrifar ■ og ef svo fer verður það þriðji sigurinn í röð en Ijóst er að Oakland háskólinn mun veita þeim mjög harða keppni. Þjálfarínn þar er gamall sundkappi úr Bakersfíeld liðinu. Tryggvi synti 100 yarda bringusund á 59,2 sek., 200 yarda bringusund á 2:10,8 mín. og 200 yarda fjórsund á 1:57,7 mín. Hann var í boðsund- sveit í 4 x 100 yarda fjórsundi og synti ^ bringusundsprettinn á 58,5 sek. Á mótinu setti þessi sveit laug- armet í boðsundinu. Gangi Tryggva vel á meistaramót- inu gerir hann sér vonir um að taka þátt í stærsta sundmóti Banda- ríkjanna, „Senior Nationals", bandaríska meistaramótinu, sem haldið verður í Orlandó í Florida fyrstu vikuna í aprfl. Þá kemur saman allt besta sundfólkið úr há- skólum, menntaskólum og klúbbum og þar sem nú er Olympíuár verður mótið haldið í 50 metra laug og þá gefst lgörið tækifærí til að reyna við ólympíulágmörkin. Tiyggvi hef- ur ekki keppt í 50 metra laug í góðu formi síðan á ólympíuleikun- um 1984. Til þess að komast á þetta mót þarf Tryggvi að bæta tíma sinn á háskólamótinu um tvö brot í 100 yarda bringu, á best 57,7 sekúnd- ur. f 200 yarda bríngusundi þarf hann að synda á 2:05,9 en á best 2:07,32 mín. „Það leggst nokkuð vel í mig að ná þessum tímum. Ég hélt þetta yrði léttara um helgina að ná lágmörkunum, eins og marg- ir aðrir, en það kom í ljós að maður var ekki nógu hvíldur. Ég ætla að synda stfft núna næstu fjóra daga og taka það síðan létt og ná úr mér þreytunni," sagði Tryggvi og ennfremur að ef vel gengi á há- skólamótir.u og bandaríska meist- aramótinu ælaði hann að halda áfram að synda í sumar og reyn að komast á Olympíuleikana. SKAUTAR Van Ginnip vel fagnað við heim- komuna Hollensku skautadrottning- unni Yvonne van Gennip, sem vann þrenn gullverðlaun á Ólympíuleikunum f Calgary, var vel fagnað er hún kom til Holl- ands í gær. Van Gennip vann gullverðlaun í 1.500, 3.000 og 5.000 m skautahlaupi og setti jafnframt heimsmet f 3.000 og 5.000 metr- unum. Hún er þjóðhetja í hei- malandi sfnu þar sem skauta- íþróttin er vinsælust vetrar- íþrótta. „Ég bjóst við góðum móttökum við heimkomuna, en ekki eins miklum og þessum," sagði Ginnip við heimkomuna. „Ég fór til Calgary til að vera með og bjóst ekki við að vinna þrenn gullverðlaun. Þetta er ótrúlegt - ég er agndofa." „Við höfum ekki séð aðrar eins móttökur sfðan Bítlamir heim- sóttu Holland upp úr 1960,“ sagði einn hollensku blaða- mannanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.