Morgunblaðið - 02.03.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
37
ftergi Útgefandi mftbifeifr Árvakur, Reykjavík
, Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 60 kr. eintakið.
Efnahagsaðgerðir
ær ráðstafanir, sem ríkis-
stjómin hefur kjmnt í
efnahagsmálum koma fáum á
óvart, en hins vegar kunna
að vakna spumingar um það,
hvort þær skili einhverjum
árangri að ráði.. Það hefur leg-
ið ljóst fyrir um skeið, að ríkis-
stjómin kæmist ekki hjá því
að lækka gengi krónunnar að
einhverju marki m.a. vegna
eindreginnar kröfu frá físk-
vinnslunni. En eins og Morg-
unblaðið hefur áður vikið að
hefði ekki verið óeðlilegt að
gera jafnframt kröfu til þess,
að fiskvinnslan sjálf hefði
frumkvæði að víðtækri endur-
skipulagningu í þeirri atvinnur
grein. Það er ekki að sjá, að
ríkissijómin hafí sett fram
slíka kröfu.
Auk gengisbreytingarinnar
beitir ríkisstjómin sér fyrir
öðrum aðgerðum til þess að
létta undir með fískvinnsl-
unni. Þær aðgerðir þýða
ákveðið peningastreymi til
fískverkenda, sem mun laga
greiðslustöðu þeirra eitthvað
fyrst í stað. Hitt fer ekki á
milli mála, að frystihúsin
verða eftir sem áður rekin
með tapi, þótt það verði minna
en verið hefur. Þess vegna
hljóta menn að spyija, hvenær
fiskvinnslan kemur á nýjan
leik og óskar eftir aðgerðum
til þess að tryggja reksturinn.
Þrátt fyrir þessar efna-
hagsaðgerðir verður við-
skiptahallinn mikill. Þorsteinn
Pálsson, forsætisráðherra,
segir, að hann verði um 10
milljarðar og bendir á, að svo
mikill viðskiptahalli sé ekki
viðunandi til lengdar. Stein-
grímur Hermannsson sagði
einnig í umræðum á Alþingi
í fyrradag, að þessi viðskipta-
halli væri svo mikill, að við
gætum ekki þolað hann lengi.
Jón Baldvin Hannibalsson,
flármálaráðherra, telur hins
vegar, að viðskiptahallinn
verði ekki nema rúmlega 8
milljarðar en engu að síður
er ljóst, að hér er um óleystan
vanda að ræða.
Það er mat ríkisstjómarinn-
ar, að þessar efnahagsráð-
stafanir og þeir kjarasamn-
ingar, sem nú hafa verið gerð-
ir, muni leiða til þess að verð-
bólgan minnki úr u.þ.b. 25%
á síðasta ári í 15-16% á þessu
ári. Ef tekst að ná þessu
markmiði er auðvitað miklum
áfanga náð og þá ekki sízt
fyrir launafólk. Sá litli at-
kvæðamunur, sem var á
Dagsbrúnarfundinum og
raunar einnig í Keflavík þegar
lg'arasamningamir voru bom-
ir upp til samþykktar sýnir,
að það er mikil ólga undir
jrfírborðinu meðal launþega.
Það er sjaldgæft, að slík átök
verði á Dagsbrúnarfundi um
það, hvort samþykkja eigi
nýgerðan kjarasamning, sem
stjóm félagsins leggur til að
verði samþykktur. En þessi
litli atkvæðamunur sýnir líka,
að forystumenn verkalýðs-
hrejrfíngarinnar eiga við um-
talsverða erfíðleika að etja í
samningagerð. Það þarf kjark
til þess að skrifa undir samn-
inga við þessar aðstæður og
bera þá upp til samþykktar.
Mesta kjarabótin, sem
launþegar geta fengið er sú,
að verðbólgan minnki veru-
lega. Þá hættir lánskjaravísi-
talan að æða upp, en hún er
nú þjmgsta bjrrði launafólks.
Þess vegna eiga launamenn
meira undir því að takast
megi að draga enn frekar úr
verðbólgunni en nokkrir aðrir.
Það verður hins vegar að segj-
ast eins og er, að flestir munu
líklega ekki trúa fyrr en þeir
taka á því, að verðbólgan
lækki svo mikið á þessu ári,
sem að er stefnt. Það er hins
vegar ríkisstjómarinnar að
sýna að hún geti staðið við
þau orð.
Fólk deilir endalaust um
kaup og Igor. Á því verður
engin breyting. En verst er,
ef efnamunur verður svo mik-
ill í okkar fámenna þjóðfé-
lagi, að þeir sem búa við minni
eftii, geti ekki til lengdar þolað
að horfast í augu við mikil
flárráð hluta þjóðarinnar. Það
hefur verið eitt af aðalsmerkj-
um okkar samfélags, að
launamunur væri minni hér
en í flestum öðmm löndum.
Þetta hefur verið að breytast
á þann veg á nokkrum und-
anfömum ámm og líklega á
einum og hálfum áratug óða-
verðbólgu, að efnamunurinn
hefur aukizt vemlega. Þegar
til lengdar lætur er fátt hættu-
legra okkar þjóðfélagi en það
sundurljmdi, sem af því mun
leiða.
Atkvæðatalningin á Dagsbrúnar-
fundinum hefur verið kærð til ASI:
Kærandinn telur
niðurstöðu taln-
ingar falsaða
PÁLL Arnarson verkamaður í Dagsbrún kærði í gær til miðstjómar
Alþýðusambands íslands atkvæðajrreiðslu þá sem fram fór á félags-
fundi Dagsbrúnar sl. mánudag. Oskar Páll eftir þvi að talningin
verði úrskurðuð ólögleg og nýr fundur haldinn um samningana.
í bréfi sem Páll sendi ASÍ í fundinum. Ásmundur sagði að ekki
gær, segist hann telja að niður-
staða talningar atkvæða hafi verið
fölsuð þannig að talningarmenn
og eða fundarstjóri hafí gefið upp
rangar tölur. Vísar Páll til þess
að hátt í 700 manns hafi setið
fundinn, en aðeins 460 atkvæði
hafí komið fram, og segist hann
telja líklegt að sjónvarpsupptaka
af fundinum muni sýna að talning
hafí verið röng.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ sagði Morgunblaðinu að hann
hefði átt samtal við Pál í gær og
farið yfir það hvað gerst hefði á
virtist vera ágreiningur um það
að ekki hefðu komið fram tillögur
um skriflega atkvæðagreiðslu, og
ágreiningslaust væri að ekki hefðu
verið lögð fram nein formleg mót-
mæli við fundarstjóra um val á
talningarmönnum eða um talning-
arform. Ágreiningurinn hefði því
komið upp eftir að niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar lá fyrir og það
væri fullyrðing þess sem kærir að
atkyæðatölur hefðu verið falsaðar.
Ásmundur sagði að næsti fund-
ur í miðstjóm ASÍ væri á fimmtu-
dag og þetta mál yrði væntanlega
tekið fyrir þá.
Munurinn hefði orðið meiri
í ski'iflegri atkvæðagreiðslu
- segir Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar segir að ef
atkvæðagreiðsla um kjarasamningana á félagsfundi Dagsbrúnar
hefði verið skrifleg, hefði munurinn verið mun meiri en raun varð á.
í fundarsalnum hefðu vinnufélagar setið saman og mjög erfitt sé
að greiða atkvæði gegn meirihluta í slikum hópi, sé hann á móti.
Guðmundur segist einnig telja að á Dagsbrúnarfundinn hafi aðal-
lega mætt þeir sem voru óánægðir með samningana en hinir sem
sættu sig við þá hafi setið heima. Hann segir það þó sársaukalaust
af sinni hálfu þótt gremja yfir launamisréttinu í landinu hafi komið
fram á fundinum og eftir hann með ýmsum hætti.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Guðmund vegna kæru, sem lögð
hefur verið fram vegna talningar
atkvæða á fundinum, sagði Guð-
mundur að tilkynnt hefði verið af
fundarstjóra að menn ættu að
ganga í salinn til atkvæðagreiðslu
og menn síðan beðnir að fá sér
sæti. „Það er áratuga hefð hjá
Dagsbrún að greidd eru atkvæði
með handauppréttingu. En ef ósk-
að er eftir skriflegri atkvæða-
greiðslu er skylda að verða við því
og við vorum tilbúnir með at-
kvæðaseðla.
Það var engin gerð athugasemd
við handauppréttingar. Fundar-
stjóri valdi fjóra óumdeilda heið-
ursmenn til að telja sem hafa allir
góða þjálfun í að fara með tölur.
Það var engin athugasemd gerð
við teljarana og engin tillaga kom
um að tjöiga þeim. Það kom engin
tillaga um skriflega atkvæða-
greiðslu. Teljaramir skiptu síðan
salnum í 4 parta og báru síðan
saman, lögðu svo saman tölur og
fóru með þær til fundarstjóra. Ég
hafði enga hugmynd um hvort
samningamir yrðu samþykktir eða
felldir fyrr en fundarstjóri las upp
tölumar. Þá braust út gífurleg
óánægja yfir að tölur hefðu verið
falsaðar og atkvæðagreiðslan hefði
átt að vera skrifleg," sagði Guð-
mundur.
Hann sagðist telja orsakir þess-
arar óánægju tvíþættar. Annars-
vegar hefðu mismunandi hækkanir
á mönnum hjá svipuðum fyrirtækj-
um skapað ríg, en reynt hefði ver-
ið að taka þá sem voru neðstir og
hækka þá mest. Hinsvegar væri
ákaflega mikið ergelsi í mönnum
vegna matarskatts, gengisfelling-
ar, hækkunar á tryggingagjöldum
bíla og lágs kaups yfírleitt.
Guðmundur sagðist hafa verið
tilbúinn með tillögu um verkfalls-
heimild ef samningamir hefðu ver-
Þröstur sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki vita betur en
staðið hafí verið löglega að öllu á
fundinum og hann viti raunar ekki
til að öðruvísi hafi verið staðið að
atkvæðagreiðslu áður á Dags-
brúnarfundum. Hann tók síðan
fram að stjóm félagsins hefði ver-
ið skyldug til að dreifa atkvæða-
seðlum til fundarmanna ef tillaga
hefði komið um skriflega atkvæða-
greiðslu en slík tillaga kom ekki.
„Það gerði enginn athugasemd
við atkvæðagreiðsluna, talningar-
menn voru skipaðir á fundinum og
enginn gerði athugasemd við þá
ið felldir á fundinum. „En það er
þó mitt mat að þá hefði verkfallið
orðið töluvert langt og útkoman
hefði orðið ennþá meiri og stærri
gengisfelling, með tilheyrandi af-
leiðingum. Fjöldi frystihúsa var í
þeim hugleiðingum að loka, t.d.
munaði sáralitlu að öll Sambands-
frystihúsin lokuðu, og raunar hafa
sum þegar gert það. Önnur biðu
eftir verkfalli svo þau þyrftu ekki
að loka. Þetta skapaði mjög slæma
stöðu í samningunum en hinsvegar
er margt í Dagsbrúnarsamningun-
um sem felur í sér lúmskar hækk-
anir og þeir eru ekki allir þar sem
þeir eru séðir við fyrstu yfirsýn."
heldur. 1 atkvæðagreiðslunni voru
taldir fyrst þeir sem voru með og
engin athugasemd var gerð við það
þegar talningarmenn komu með
þá niðurstöðu inn til fundarstjóra.
Það er síðan ekki fyrr en úrslit
voru ljós, sem þeir, sem vildu fella
samningana, gátu ekki sætt sig
við þau úrslit. Það er því ekkert
rangt sem gert er og enginn reng-
ir neitt fyrr en eftir að úrslit eru
birt. Það var var því erfitt fyrir
okkur að standa öðruvísi að þessu
og einnig erfítt að fara að lýsa
atkvæðagreiðsluna ógilda eftir að
niðurstaðan lá fyrir," sagði Þröst-
—Þessi rök fluttir þú á fundinum
en færð ekki betri undirtektir en
raun ber vitni. Ert þú að missa
tökin á Dagsbrún?
„Fundurinn var ákaflega heitur
og þá bíta rök oft illa. En ég myndi
segja að í upphafí fundar hafí ver-
ið mikill meirihluti á móti samning-
unum. Ég held að ýmsir þeir sem
voru ánægðir með samningana
hafí ekki mætt en þeir sem voru
óánægðir fjölmenntu. Og það er
engin uppgjöf í mér vegna þessa
fundar," sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dagsbrúnar
og Verkamannasambands Islands.
Hann sagði ljóst að menn hefðu
verið mismunandi sáttir við þessa
samninga, eins og stjóm félgsins
hefði raunar vitað. „En við treyst-
um okkur ekki til að halda samn-
ingunum áfram án þess að fá nið-
urstöðu og ef þeir hefðu verið felld-
ir hefðum við farið fram á verk-
fallsheimild og boðað verkfall
strax. En ég hef trú á að eitthvað
af þessu hafí byggst á misskiln-
ingi. Það gafst ekki nægilega góð-
ur tfmi til að kynna þessa samn-
inga áður, sérstaklega sérsamn-
ingana og menn gerðu sér ekki
grein fyrir hvað í þeim fólst fyrr
en um seinan. Það hefur verið
hringt hingað mikið í morgun og
þá hefur komið í ljós að þeir sem
voru hvað harðast á móti höfðu
mis8kilið sum ákvæðin," sagði
Þröstur ólafsson.
Engin athugasemd gerð
fyrr en úrslit lágu fyrir
- segir Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri Dagsbrúnar
ÞRÖSTUR Ólafsson framkvæmdastjóri Dagsbrúnar segir að enginn
hafi gert athugasemd við atkvæðagreiðslu á félagsfundinum á mánu-
dag þar sem atkvæði voru greidd um kjarasamninga Verkamannsam-
bandsins við vinnuveitendur. Enginn hafi heldur gert athugasemd
við þá talningarmenn sem voru skipaðir á fundinum eða aðferðina
sem höfð var til að te^ja atkvæðin, fyrr en niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar varð ljós.
ur.
Samband íslenskra sveitarfélaga:
RQdsstjórnin sparar ekkert
-segir Sigurgeir Sigurðsson formaður
Efnahagsáðstafanir ríkisstjóra-
arinnar gera ráð fyrir að frestað
verði fram til áramóta, fyrri
áformum um breytta verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga. Með
þeirri ráðstöfun er talið að ríkis-
sjóður styrkist um 260 milljonir
króna frá því sem gert er ráð
fyrir í fjárlögum ársins 1988. Sig-
urgeir Sigurðsson formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga,
segir að breytt verkaskipting haf i
auk þess gert ráð fyrir 140 miUj-
óna krónar framlagi til sveitarfé-
laganna. Með þessari ráðstöfun
dregur rikið til baka 400 milljóna
króna framlag til sveitarfélag-
anna, sem þau gerðu ráð fyrir við
gerð fjárhagsáætlana í janúar og
febrúar.
„Ríkisstjómin sparar ekkert með
þessari ráðstöfun," sagði Sigurgeri.
„Þetta eru tvö ólík mál, breyting á
verkaskiptingu og sú fjárhæð sem
ríkið tekur úr jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga. Jöfnunarsjóðurinn hefur verið
skertur síðan árið 1984 og sett á
hann ákveðið hámark en i sjóðinn á
að renna 8% af 20 söluskattstigum
auk hlutdeildar í aðflutningsgjöldum.
Sjóðurinn hefur því ekki að fullu
notið góðs af þeirri þennslu sem ver-
ið hefur í þjóðfélaginu."
Sigurgeri sagði að skerðing jöfn-
unarsjóðs á þessu ári hafi verið áætl-
uð 520 milljónir króna og var gert
ráð fyrir að ríkið bætti sveitarfélög-
unum það að hálfu og greiddi til
þeirra 260 millj. Fyrri hluti samnings
um breytta verkaskiptingu, sem
koma átti til framkvæmda var met-
inn á um 230 millj. Sú fjárhæð lækk-
aði við afgreiðslu fjárlaga á Alþingi
og varð 140 millj. til þeirra verk-
efna, sem sveitarfélögin áttu að taka
yfir. Má þar nefna bygigngu dagvist-
arheimila, félagsheimilasjóð, húsfrið-
un, vatnsveitur og landshafnir.
muljómr, sem ríkið ætlar að spara
sér, sé tengt verkaskiptingunni eru
hrein ósannindi," sagði Davíð. „Það
sem um er að ræða, er að ríkið ætl-
aði áður að leiðrétta skerðingu jöfn-
unarsjóðs Sveitarfélaga að nokkru
og skila að hluta því fé, sem ríkið
hefur haft af sveitarfélögunum. Nú
gerir ríkið það ekki.
Það sem felst í þessari ákvörðun
er að ríkð sker framkvæmdir sveitar-
félagana niður um 260 milljónir, en
eigin framkvæmdir aðeins um 300
Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga
eru flestar afgreiddar í ianúar eins
og lög gera ráð fyrir. I þeim var
gert ráð fyrir breyttri verkaskiptingu
og hærra framlagi til framkvæmda
úr ríkissjóði. „Náttúrlega dregur
verulega úr framkvæmdum hjá sveit-
arfélögum við þessar aðgerðir," sagði
milljónir. í framhaldi af þessu er
síðan talað um að ræða við sveitarfé-1
lögin um sérstakan niðurskurð. Það
er ekki boðlegt að kynna málið með
þessum hætti og er ég mjög undr-
andi á því að slíkt skuli vera gert.
Flest sveitarfélög hafa þegar afgreitt
sínar Qárhagsáætlun sem nú þarf
að skera niður."
Engar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar um niðurskurð framkvæmda hjá
Reykajvíkurborg en ljóst er að til
þeirra þarf að grípa. Framkvæmdafé
til vegamála hefur verið skorið niður
Sigurgeir. „Þótt 260 milljónir þyki
ekki há upphæð hjá ríkinu þá er það
mikið fé í okkar augum. Þessi að-
gerð kippir fótunum undan stórum
hluta þess, sem fyrirhugað var að
framkvæma. Það er því búið að taka
af okkur ómaki með að draga úr
framkvæmdum."
og sagði Davíð að engar upp lýsing-
ar fengjust um hvað yrði um fyrir-
hugaðra úrbætur í Reykjavík.
„Framlag jöfiiunarsjóðs minnkar um
100 milljónir og einhvem veginn
verðum við að skera niður til að
mæta því. Ekki rekum við borgina á
lánum eins og ríkið gerir hjá sér,“
sagði Davið. „Að ríkið sé að reyna
að kenna sveitarfélögunum um
þennslu er fyrir neðan allar hellur
þegar ríkið ætlar sjálft að standa
fyrir efnahagspólitík, sem leiðir af
sér 10 milljarða króna viðskiptahalla
sem §ármagnaður er með lántökum.
Lántökum sem eru upphafið og end-
irinn á þessari þennslu. Bygging veit-
ingahúss á hitaveitugeymunum
skiptir þar ekki nokkm máli hvað
varðar þennslu í þjóðfélaginu. Sú
framkvæmd kostar 100 milljónir á
ári næstu þijú árin."
Ríkið sker framkvæmdir
sveitarfélaga niður um 260
milljónir en eigin um 300
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„ÞESSI framsetning efnahagsaðgerða ríkisstjómarinnar hvað sveitar-
félögin varðar, nær ekki nokkurri átt,“ sagði Davið Oddsson borgar-
stjóri, en efnahagsráðstafanimar gera ráð fyrir að fyrirhugaðri verka-
skiptingu milli ríkis og sveitarfélaga verði frestað. Þá er þeim tilmæl-
um beint til sveitarstjóma og annarra framkvæmdaaðila að dregið
verði úr framkvæmdum.
„Að halda því fram að þær 260
Herferð Grænfríðunga í Bretlandi gegn hvalveiðum Islendinga:
Grípa til aðgerða gegn
tveimur fyrirtælqum
London, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
GREENPEACE-samtökin í Bretlandi hafa ákveðið að grípa til aðgerða
gagnvart tveimur fyrirtækjum sem lýst hafa yfir því að þau muni ekki
hætta sölu íslensks fisks.
Fyrirtæki þessi nefnast Tesco og Birds Eye og hefur Greenpeace
skorað á breskan almenning að kaupa ekki fiskafurðir af þeim. Þessa
dagana er verið að hrinda af stað mikilli herferð um allt Bretland
gegn hvalveiðum tslendinga og miðar baráttan að þvi að hvetja almenn-
ing til að hætta að kaupa íslenskan fisk.
Hert barátta Greenpeace
Sú ákvörðun Greenpeace að beita
sér fyrir því að almenningur kaupi
ekki fiskafurðir af Tesco og Birds
Eye var eitt aðalfréttaefni bresku
útvarpsstöðvanna í morgun. Isabel
McCray, talsmaður Greenpeace,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
vitað væri um eitt fyrirtæki sem fyr-
ir víst hefði tekið ákvörðun um að
hafa ekki íslenskan fisk á boðstólum
svo lengi sem íslendingar stunda
hvalveiðar. Hún sagði að fyrirtækið
hefði sjálft óskað þess að nafn þess
kæmi ekki fram fyrst um sinn að
minnsta kosti.
Að undanfömu hefur borið nokkuð
á baráttu Greenpeace gegn hvalveið-
um íslendinga. I Lundúnum hafa t.d.
verið sett upp veggspjöld og öðru
hveiju birtast í bresku dagblöðunum
auglýsingar frá samtökunum í þessu
skyni. Þannig birtist t.d. í hinu út-
breidda blaði Independent í morgun
auglýsing af þessu tagi á forsíðu.
Þar er breskur almenningur m.a.
beðinn um flárstuðning í baráttunni
gegn hvalveiðum íslendinga sem
fyrstir þjóða hafi farið í kringum al-
þjóðlegt bann við hvalveiðum. í aug-
lýsingunni segir að til að láta íslend-
inga gjalda fyrir hvaladráp sitt standi
Greenpeace nú fyrir herferð gegn
kaupum á íslenskum fiski í Bretlandi.
Isabel McCray hjá Greenpeace
sagðist vita til þess að nokkur þeirra
fyrirtælqa sem samtökin hefðu leitað
til hefðu þegar snúið sér til fslenska
sendiráðsins f Lundúnum, lýst
áhyggjum vegna framvindu mála og
komið til skila óskum um að íslend-
ingar hætti hvalveiðum. Morgun-
blaðið hafði samband við sendiráð
íslands í Lundúnum og spurðist fyrir
um hvort þessi ummæli væru á rökum
reist. Tómas Karlsson varð fyrir svör-
um og sagði að sendiráðinu hefði
borist bréf frá einum slíkum aðila,
verslunarkeðjunni Safeway. Það fyr-
irtæki hefði einfaldlega spurst fýrir
um hvort rétt væri að Islendingar
væru að bijóta alþjóðalög með hval-
veiðum sfnum. „í svari okkar röktum
við gang þessa máls eins og hann
hefur verið frá því Alþjóðahvalveiði-
ráðið samþykkti bann við hvalveiðum
í ágóðaskyni. Við greindum frá eðli
þeirra hvalveiða sem nú eru stundað-
ar við ísland, lögðum áherslu á að
þetta væru vísindaveiðar til þess ætl-
aðar fyrst og fremst að fylgjast með
ástandi hvalastofna. Aðrar formlegar
fyrirspumir hafa sendiráðinu hér í
borg ekki borist vegna þessa rnáls,"
sagði Tómas Karlsson í íslenska
sendiráðinu í Lundúnum.
Tesco og Birds Eye
Fyrirtæki þau sem Greenpeace
hefur ákveðið að láta skríða til skar-
ar gegn vegna sölu á íslenskum fisk-
afurðum eru Tesco og Birds Eye.
Hið fyrmefhda er verslunarkeðja sem
hefur fjölmarga stórmarkaði á sfnum
snærum vftt og breitt um Bretland.
Birds Eye er hins vegar framleiðslu-
fyrirtæki sem m.a. hefur viðamikla
fiskréttaframleiðslu á sinni könnu.
Bæði em fyrirtækin stór í sniðum og
líklegast kunnug flestum Bretum sem
á annað borð eru komnir til vits og
ára.
íslenskur fiskur skiptir engum
sköpum fyrir Tesco eða Birds Eye,
t.d. reiknast þeim hjá Birds Eye svo
til að íslenskur fiskur nemi innan við
10 af hundraði fiskréttaframleiðslu
fyrirtækisins. Lítil hlutdeild fslenska
fisksins kemur þó ekki í veg fyrir að
fyrirtæki þessi hafí vísað á bug kröf-
um Greenpeace um að hætta fisk-
kaupum af íslendingum. í báðum
fyrirtækjum segjast menn halda í
heiðri það sjónarmið að láta ekki ut-
anaðkomandi aðila, pólitíska þrýsti-
hópa eða aðra segja sér fyrir verkum.
Theresa Collingrich, blaðafulltrúi
Tesco, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að fyrirtæki sitt hefði fyrst og
fremst í huga hagsmuni neytenda.
„Það er stefna okkar að hafa ávallt
bestu fáanlegu vöm á boðstólum.
Hvort sú vara er komin frá íslandi i
eða öðmm stað skiptir okkur ekki
máli og við látum ekki segja okkur
fyrir verkum varðandi innkaup okk-
ar.“ Aðspurð hvort aðgerðir Greenpe-
ace gagnvart fyrirtækinu kynnu að
breyta þessari afstöðu sagði Theresa
Collingrich að sér sýndist fátt benda
til þess.
Líkt og Tesco leggur Birds Eye
áherslu á að hagsmunir neytenda
verði að sitja í fyrirrúmi, fyrirtækið
sé ekki skuldbundið neinum öðmm
en viðskiptavinum sínum og allra síst
utanaðkomandi þfystihópum á borð
við Greenpeace. A þetta sjónarmið
er lögð áhersla í yfirlýsingu sem Birds
Eye hefur látið fara frá sér vegna
sfðustu aðgerða Greenpeace. Linda
Bell, blaðafulltrúi fyrirtækisins, vildi
fáu bæta við þá yfirlýsingu en lagði
þó áherslu á þá hættu sem stafaði
af því ef pólitfskir þrýstihópar, hveiju
nafni sem þeir neftiast, tækju sér það
bessaleyfi að segja atvinnufyrirtækj-
um fyrir verkum.
Áhyggjur íslensku
fisksölufyrirtækjanna
Morgunblaðið leitaði álits fulitrúa
fslensku fisksölufyrirtækjanna í Bret-
landi, SH og SÍS, á sfðustu aðgerðum
Greenpeace-samtakanna gegn !
fslenskum fiskafurðum. Sigurður Á.
Sigurðsson hjá Sambandi fslenskra
samvinnufélaga f Hull sagði að full
ástæða væri til að taka alvarlega
þessa sfðustu þróun mála. „Við feng-
um f síðustu viku sent bréf fré Gre-
enpeace þar sem þeir skomðu á okk-
ur að leggja lið baráttunni gegn hval-
veiðum, setja þrýsting á fslensk
stjómvöld. Við höfum hins vegar
rætt við þetta fólk og höfum kannski
í sjálfu sér lftið við það að tala. Þó
verður það að segjast alveg eins og
er að þetta uppistand núna, hótanir
þeirra gagnvart breskum fyrirtælq'-
um sem versla með fslenskan fisk og
auglýsingaherferð f breskum flölmiðl-
um, kallar á ákveðin viðbrögð af
hálfu íslendinga. Ég hef raunar verið
að reyna að ná sambandi við Ólaf
Egilsson sendiherra til að ráðgast við
hann í hveiju slík viðbrögð ættu að
felast. Alla vega er full ástæða fyrir
okkur til að vera vel á verði. Næsta
fímmtudag verður til dæmis sýndur
hjá BBC sjónvarpsþáttur sem fjallar
um hvalveiðar íslendinga og verður
fróðlegt að sjá hvemig þar verður
tekið á málunum. Aðstoðarsjávarút-
vegsráðherra Breta, John Gummer,
mun þar leggja eitthvað til málanna
og yrði það auðvitað hnekkir íslend-
ingum ef maður f slíkri stöðu tæki
hvalveiðar þeirra í gegn.“
Hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna í Grimsby varð Jón Jóhannesson
fyrir svömm. Líkt og Sigurður Á.
Sigurðsson hjá Sambandinu lét hann
i ljós þá skoðun að fyllsta ástæða
væri til að hafa áhyggjur af stór-
hertri baráttu Greenpeace-samtak-
anna gegn fslenskum fískafurðum.
„Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hef-
ur raunar þegar komið slfkum
áhyggjum á framfæri á íslandi og
þetta nýja upphlaup Greenpeace
verður auðvitað ekki til að bæta úr
skák. Við vitum að samtökin hafa
undanfarið verið að róa í verslunar-
fyrirtækjum sem hafa haft íslenskan
fisk á boðstólum og sum þessara fyr-
irtækja hafa leitað almennra upplýs-
inga hjá okkur um hvalamálin, t.d.
spurst fyrir um hvort við þjá SH
höfum eitthvað með hvalaafuiðir að
gera. Og svo koma þessar aðgerðir
Greenpeace gegn Tesco og Birds
Eye. Þótt við höfum í sjálfu sér eng-
in óskapleg viðskipti við þau fyrir-
tæki er þetta nú ekki beint skemmti-
legasta andrúmsloftið til að selja
fslenskan fisk í,“ sagði Jón Jóhannes-
son hjá Sölumiðstöð hraðfrystihú-
sanna í Grimsby.