Morgunblaðið - 02.03.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 2. MARZ 1988
17
Málarameistarafélag
Reykjavíkur 60 ára
Málarameistaraf élag
Reykjavíkur varð 60 ára síðast-
liðinn föstudag. Það var stofnað
26 febrúar árið 1928 af 16 mál-
arameisturum og hefur starfað
óslitið siðan. Áður hafði verið
gerð tilraun til stofnunar mál-
arafélags í Reykjavík, en sú til-
raun fór út um þúfur. í tilefni
af þessum tímamótum tók sijórn
félagsins á móti gestum s.l.
fimmtudag og haldin var af-
mælishátíð að kvöldi föstudags.
Helstu forgöngumenn að stofnun
Málarameistarafélags Reykjavíkur
voru Einar Gíslason og Ósvaldur
Knudsen málarameistarar. Upphaf-
lega var félagið nefnt Málarafélag
Reykjavíkur, en nafninu var breytt
stuttu síðar vegna stofnunar félags
málarasveina. Tíu árum áður hafði
verið gerð tilraun til stofnunar fé-
lags málara, en það félag varð ekki
langlíft. 1928 voru menn reynslunni
ríkari og að auki var komin til sög-
unnar ný iðnlöggjöf, sem var félag-
inu til mikils stuðnings.
Eitt fyrsta og helsta baráttumál
félagsins var fyrir viðurkenningu á
taxta , en það mætti mótspymu í
fyrstu. Var sú barátta að mörgu
leyti háð til þess að efla almenna
viðurkenningu á faginu og félaginu.
Síðan hefur hagsmunabarátta verið
eitt helsta verksvið félagsins, en
auk hennar hefur Málarameistara-
félag Reykjavíkur haft forgöngu
um að efla menntun málara, bæði
hvað varðar nýjungar og á síðari
árum einnig til að varðveita fom
Morgunblaðið/Bemhard Jóhannesson
Gestir sem komu til að skoða hitaveituna.
Opið hús hitaveitna
Morgunblaðið/BAR
Stjórnarmenn í Málarameistarafélagi Reykjavíkur tóku á móti gest-
um á skrifstofu félagsins s.l. fimmtudag í tilefni af 60 ára afmæli
félagsins. Á myndinni eru frá vinstri Gísli Agústsson varaformaður,
Ingvar A. Guðmundsson formaður og Hallvarður S. Óskarsson með-
stjómandi.
vinnubrögð og listsköpun. Þá hefur
félagið stuðlað að almennri fræðslu-
starfsemi fyrir málara, m.a. með
útgáfu tímaritsins Málarans og með
samskiptum við fagfélög á hinum
Norðurlöndunum.
Fyrstu stjóm Málarameistarafé-
lags Reykjavíkur skipuðu Einar
Gíslason Formaður, Ágúst Lárus-
son ritari og Helgi Guðmundsson
gjaldkeri.
í stjóm félagsins nú sitja Ingvar
A. Guðmundsson formaður, Gísli
Agústsson varaformaður, Einar
Grmdavík.
METSALA var hjá Fiskmarkaði
Suðurnesja sl. mánudag er seld
voru 299,2 tonn fyrir 8,3 miiyón-
ir króna. Miklir erfiðleikar voru
við uppboðið vegna símatruflana
og varð að fresta sölu úr Eldeyj-
ar-Hjalta þar sem símasamband-
ið rofnaði við Grindavík áður en
uppboðinu lauk.
Að sögn Ólafs Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs
Suðumesja, var þessi dagur sá
stærsti frá því að Fiskmarkaðimir
byrjuðu. „Mestu réð að neta- og
línubátar, sem em í viðskiptum við
okkur, vom allir með þokkalegan
afla, auk þess sem togarinn Haukur
bættist við og hluti af aflanum úr
Aðalvíkinni. Þegar uppboðið byijaði
varð strax símasambandslaust við
Þorlákshöfn svo boðið var upp þar
sérstaklega. Þegar uppboðið var
langt komið rofnaði símasambandið
við Grindavík en þá var eftir að
Gunnarsson ritari, Laurí Henttinen
gjaldkeri og Hallvarður Oskarsson
meðsljómandi. Félagsmenn em nú
107 talsins.
Kleppjámsreybjum.
f SAMBANDI við norrænt tækni-
ár var opið hús hjá hitaveitum
viða um land á dögunum, meðal
annars þjá Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar.
Margir íbúar héraðsins notuðu
tækifærið og litu við í dæluhúsinu
að Deildartungu. Hafði Eyvindur
Ásmundsson eftirlitsmaður í nógu
að snúast við að útskýra hvemig
vatninu væri komið til kaupenda f
allt að sjötíu kílómetra ijarlægð.
Hitaveita Akraness og Borgar-
fjarðar var stofnuð 1979 og var
fyrsta húsið tengt 1981. Starfs-
menn em 12 í 11 stöðugildum.
Dælt vatnsmagn er um Ijórir miiljón
rúmmetrar á ári, notendur em um
6.700. Vatnið er um 100 gráður
þegar það fer af stað og kólnar um
20 til 30 gráður á leiðinni til Akra-
ness. í Deildartunguhver, sem hefur
verið talinn vatnsmesti hver í heimi,
em um 240 sekúndulítrar af 100
gráðu heitu vatni og er það um 45
MW.
Rekstur hitaveitunnar hefur
gengið vel ef fjármálin era undan-
skilin, 17 til 20 bilanir em á ári á
lögninni en viðhald er þar að auki
nokkuð.
— Bemhard
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Ólafur Jóhannsson framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suðumesja að
taka á móti aflanum úr Eldeyjar-Hjalta kátur á svip þar sem við-
skiptin blómstra.
Fiskmarkaður Suðurnesja:
Símasambandið rofnaði
er sölumetið var slegið
bjóða upp afla úr Eldeyjar-Boða og
Eldeyjar-Hjalta. Við tókum þá
ákvörðun að klára Eldeyjar-Boða
þar sem hann var að koma í land
og varð að bjóða þann afla upp í
Njarðvík. Aflinn af Eldeyjar-Hjaltar
var síðan geymdur til næsta dags,“
sagði Ólafur. Uppistaðan í aflanum
þennan dag var karfí af togaranum
Hauki, um 109 tonn, og var heildar-
verðmæti 2,1 milljón króna, meðal-
verð 19,24 krónur. Þá vom 82,7
tonn af þorski að heildarverðmæti
3,5 milljónir, meðalverð 42,34 krón-
ur. 72,7 tonn ufsi að upphæð 1,6
milljónir króna, meðalverð 22,32
krónur, 15,6 tonn ýsa að upphæð
653.931 króna, meðalverð 41,75
krónur. Ólafur sagði að lokum að
salan hefði verið góð daginn eftir
en þá seldi Eldeyjar-Hjalti 30 tonn
af línufíski og fékk 1,2 milljónir
króna fyrir aflann.
— Kr.Ben.
PH
Tveggjatækja
jtórkostleg nýjgng
sparar pláss.
tækið bæði