Morgunblaðið - 02.03.1988, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
63
UPPBOÐ
Gamlir dýrgi’ipir
seldir í Svíþjóð
Verslun með dýra og sjaldgæfa
gamla muni blómstrar nú í
Svíþjóð. Uppboð á antíkmunum
eru feikivel sótt og hvað sem jafn-
aðarstefnunni sænsku líður virðast
kaupendur á uppboðunum hafa
gnægð íjár handa á milli. Boðnir
eru upp gamlir skartgripir, hús-
gögn, vopn og bollar svo fátt eitt
sé nefnt. Stærsti uppboðshaldar-
inn, Bukowski, seldi gamla stáss-
muni fyrir 720 milljónir íslenskra
króna á haustmánuðum, sem er
tvöföldun frá því í fyrra. Aðrir
aðilar hafa svipaða sögu að segja,
hrósa sér af 25% til 60% söluaukn-
ingu og alþjóðlegum hópi við-
skiptavina.
Á fyrri hluta síðustu aldar settist
rússnesk prinsessa við sauma á
teppi handa bamabami sínu. Hún
prýddi teppið með skjaldarmerki
Gortchakov ættarinnar og hefur
líklega ekki gert sér grein fyrir
hve mjög hún jók á verðgildi grips-
ins með því. Barnabam prinsess-
unnar og eigandi teppisins dýr-
mæta varð síðar skólastjóri
stúlknaskóla í Moskvu. Teppið
seldist á uppboði í Svíþjóð síðast-
liðið haust fyrirtæpar þijár millj-
ónir íslenskra króna.
Hálfri öld eftir að rússneska prins-
essan saumaði teppið vom smíðað-
ar byssur og grafín í þær fanga-
mörk tiginna eigenda. Tvíhleypa
frá þessum tíma seldist fyrir
84.000 krónur, en eldri byssa með
nafni hirðsmiðs Napóleons
greyptu í gull var slegin á fjómm
sinnum hærri upphæð.
Gömul leikföng vekja á stundum
bamslegar tilfinningar og oft em
þau listilega úr garði gerð. En
hætt er við að ekki megi leika sér
mikið með slökkviliðsbíl frá 1922,
sem seldur var fyrir ríflega eina
og hálfa milljón íslenskra króna,
sportbíl fyrir tæpa hálfa milljón
króna eða dúkkuhús sem slegið
Fínindis byssur, best geymdar á
safni.
var á aðeins 70.000 krónur. Þetta
Friðrik og Jóakim, foreldrarnir og höllin.
UR HREIÐRINU
Dönsku prinsarnir
fá eigin íbúðir
Margrét Danadrottníng telur að
þegar fólk sé komið á þrítugs-
aldurinn hafí það ekkert í foreldra-
húsum að gera lengur. Þess vegna
hefur hún látið innrétta 307 fermetra
glæsiíbúð handa krónprinsinum Frið-
rik, sem verður tvítugur í maí. Þang-
að flytur hann á afmælisdaginn. í
nýju íbúðinni eru tíu herbergi og er
henni skipt i tvennt. Annar hluti
hennar er ætlaður fyrir móttökur en
hinn hlutann hefur Frikki út af fyrir
sig.
Prinsinn fær þó ekki að fara langt,
því að íbúðin er í höll sem kennd er
við Kristján VIII og liggur andspæn-
is höllu drottningar í Amalienborg.
Margrét þarf ekki annað en að kíkja
út um gluggann sinn til þess að fylgj-
ast með syni sínum á nýja heimilinu.
íbúðin hefur staðið auð síðan 1952
og mun endumýjun hennar kosta um
það bil 84 milljónir íslenskra króna.
Einhver kynni að spyija hvort þá
séu nokkrir aurar eftir til að yngri
prinsinn, Jóakim, geti flutt að heim-
an. Þeir hljóta að vera til, því að
bráðlega verður lokið við að innrétta
íbúð fyrir hann skammt frá bemsku-
heimilinu. Jóakim er nítján ára gam-
all og að því er danskir prentmiðlar
herma síst stilltari en stóri bróðir
hans.
Gamalt útsaumað teppi frá Rússlandi.
eru leikföng fyrir læst bankahólf.
Svíar kalla unga fólkið í viðskipta-
lífinu gjaman flármálahvolpa, en
svona leikföng eru ekki ætluð
þeim, aðeins fullvöxnum fjármála-
hundum.
Leikfangabíll frá fyrri hluta aldarinnar kostaði dijúgan skilding á
uppboði í Svíþjóð.
Viö stöndum með ykkur i barattunni og komum
aukakílóunum fyrir kattarnef á heilsusamlegan
og skemmtilegan hátt.
Ný námskeið að hefjast. iáttú skrá þig núna í síma 65-22-12.
Opiö alla daga.
Megrunarleikfimi »
Líkafiisrækt (magi, ráSs og lærij
Morgunleikfimi
Leikfimi lyrir barnsbafandi köiáur
I eikfimi i'yrir konur með barn á
brjósti
Mjúk Erobik
Erobik án hopps (low impact)
Old boys
Jazzballelt (5-15 ára)
Róleg kvenhaleikfimi-
• Fitumæling
• Þrekpróf
• Æfingar með lóðum-Hámarksárangur
Fiörug tónlist með öllum æfingum
• 36 peru Ijósabekkir með 3 andlitsljósum.
• Vatnsgufubað.
• Hjá okkur kenna eingöngu lærðir
íþróttákennarar.
• Þú ert 7 mínútur úr Breiðholtinu.
HRESS
1 .IKANISRÆKT (Xi UOS
BÆJARHRAUM 4 IVIÐ KEFLAVKURVEONN / SIMI 65 2212
COSPER
t V//// / '!, ,t 't / f/, , 1 / I 11
—Ég er með tillögu.Við förum aftur heim og verðum þar í sum-
arfríinu án þess að láta nokkurn vita.