Morgunblaðið - 02.03.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
7
Hvað er Greiðsluþjónusta?
Greiðsluþjónustan byggist á því að í stað þess
að þú fáir reikninga senda heim, geturðu búið
svo um hnútana að þeir berist beint til Greiðslu-
þjónustu Verzlunarbankans.
Starfsfólk bankans sér um að greiða þá með
því að skuldfæra greiðslurnar á viðskiptareikning
þinn í bankanum og senda síðan greidda og
stimplaða reikningana heim til þín.
Greiðsluþjónustan tekur að sér tvenns konar
greiðslur:
1. Ýmsir heimilisreikningar s.s. rafmagn,
hiti, sími, húsgjöld, fasteignagjöld, áskriftir
o.fl.
2. Fastar greiðslur án reikninga s.s.
húsaleiga, barnagæsla o.fl.
„Frí“ frá snúningum allt árið!
Þótt hagræðið af því að notfæra sér Greiðslu-
þjónusmna sé ótvírætt þegar frí eru annars vegar
er hún áreiðanlega jafn kærkomin á öllum árs-
tímum.
Nú er nefnilega tækifærið að taka sér „frí“ frá
snúningum í kringum reikninga allt árið.
Komdu í næsta Verzlunarbanka og fáðu
nánari upplýsingar eða hringdu
og fáðu sendan bækling.
GREIÐSLUÞJÓNUSTA
- þjónusta sem gengur
greitt fyrir sig!
V/ERZLUNRRBRNKINN
-viHtuci <4teð fién !
Tvö verk kvikmynd-
uð hjá Sjónvarpinu
Kvikmyndun þriggja annarra í undirbúningi
SJÓNVARPIÐ er nú að kvik-
mynda tvö leikin verk — annars
vegar Glerbrot, sem byggt er á
leikritinu Fjaðrafoki eftir Matt-
hías Johannessen, Kristín Jó-
hannesdóttir leikstýrir verkinu
og gérir jafnframt kvikmynda-
handrit að því. Hins vegar er það
Djákninn á Myrká, sem Egill
Eðvarðsson byggir á þeirri nafn-
kunnu þjóðsögu. Egill er í senn
handritshöfundur og leikstjóri.
í fréttatilkynningu frá innlendri
dagskrárdeild Sjónvarpsins segir að
jafnframt sé hafínn undirbúningur
að upptöku leikritsins Dagur vonar
eftir Birgi Sigurðsson, en Birgir
mun skrifa verkið upp með tilliti til
sjónvarps og mun Lárus Ýmir
Óskarsson leikstýra og stjórna upp-
Fiskvinnsluf ólk
á Akranesi:
töku á þeirri útfærslu.
Þá hefur innlend dagskrárdeild
hlotið úthlutun úr Menningarsjóði
útvarpsstöðva til að taka upp leik-'
ritið Næturgöngu eftir Svövu Jak-
obsdóttur. Stefán Baldursson mun
leikstýra verkinu, en Tage Amm-
endrup stjóma upptökum, og er
stefnt að því að taka það upp með
vorinu. Jafhframt er í bígerð að
Friðrik Þór Friðriksson leikstýri
eigin handriti, sem hann byggir á
gamalli íslenskri sögn um ungan
mann sem reyndi að smíða sér
vængi og fljúga. Þessa mynd kallar
Friðrik Flugþrá.
Björk Guðmundsdóttir í aðalhlutverki ( leikritinu Glerbroti, sem er
í upptökum þessa dagana.
„. . . Nonni, ég held ég hafi
gleymt að borga rafmagnið. .
almáttugur allt kjötið
'i í frystikistunni. . . “ .
Vestmannaeyjar:
Kjaradeila til
sáttasemjara
Kjaradeilu atvinnurekenda í
Vestmannaeyjum og verka-
kvennafélagsins Snótar hefur
verið visað til sáttasemjara. Þá
voru nýgerðir kjarasamningar
felldir á almennum félagsfundi
í Verkalaýðsfélagi Vestmanna-
eyja á sunnudag með 17 atkvæð-
um gegn 6.
Amar Sigurmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samfrosts í Vest-
mannaeyjum, sagði í samtali við
Morgunblaðið að á fundi vinnuveit-
enda og verkakvennafélagsins
Snótar, hefði orðið um það sam-
komulag, að vísa kjaradeilunni til
ríkissáttasemjara. Jafnframt væri
óskað eftir því að vinna við málið
gæti hafizt eins fljótt og unnt væri.
Fullfermi á
hverjum degi
LOÐNUVEIÐI er jöfn og góð um
þessar mundir. Loðnan lónar úti
fyrir suðurströndinni og skipin
fylla sig jafnóðum og þau koma
á miðin. I mörgun tilfellum landa
þau þvi fullfermi á hvetjum degi.
Aflinn dag hvern miðast því aðal-
lega við fjölda skipa á miðunum
hveiju sinni.
Auk þeirra skipa, sem áður er
geti, tilkynntu eftirtalin um afla á
mánudag: Guðmundur VE 90.0,
Helga II RE 530 og Júpíter RE
I. 350. Aflinn á mánudag varð alls
II. 440 tonn.
Síðdegis í gær höfðu eftirtalin
skip tilkynnt um afla, samtals 5.970
tonn: Gígja VE 750, Huginn VE
580 og Kap II VE 700, Svanur RE
750, Gullberg VE 620 og ísleifur
VE 720, Magnús NK 500, Bergur
VE 530, Helga III RE 430 og
Rauðsey AK 620.
Hagsmunir
okkar fót-
um troðn-
ir af VMSÍ
Fiskvinnslufólk á Akranesi tel-
ur að fiskvinnslunefnd sú, sem
sett var á laggirnar í yfirstand-
andi samningahrotu hafi ekki
skilað þeim árangri, sem til var
ætlazt og sér þvi ekki ástæðu
fyrir áframhaldandi tilvist henn-
ar. „Við teljum að hagsmunir
fiskvinnslufólks séu eina ferðina
enn fótum troðnir innan samtaka
VMSÍ.“
Þessi yfírlýsing kemur meðal
annars fram í ályktun, sem um 50
manns úr hópi fískvinnslufólks á
Akranesi hefur undirritað. Fisk-
vinnslufólk á Akranesi er ekki aðili
að nýgerðum kjarasamningum. í
ályktuninni segir ennfremur á þá
leið, að hagsmunir fiskvinnslufólks
og fiskvinnslunnar fari saman og
góður rekstrargrundvöllur físk-
vinnslunnar séu hagsmunir allrar
íslensku þjóðarinnar. Þessa vegna
sé þess krafízt að stjómvöld byiji
strax á þeim aðgerðum, sem tryggi
betri rekstrarafkomu atvinnugrein-
arinnar. A meðan ættu önnur laun-
þegasamtök en fiskvinnslufólk að
ganga strax til samninga við vinnu-
veitendur sína. Þá verði einnig að
tryggja fiskvinnslufólki að það fái
til baka starfsaldurshækkanir, sem
af því voru teknar með samningum
1986. Að þessum aðgerðum loknum
sé fískvinnslufólk á Akranesi tilbúið
til að ræða samninga.
Eyddu ekki vetrarfríinu
í áhyggjur af gjalddögum!
Greiðsluþjónusta Verzlunarbankans sér um snúningana!
„Hafðu engar áhyggjur elskan,
Greiðsluþjónusta Verzlunarbankans
sér um að borga reikningana“ ^