Morgunblaðið - 02.03.1988, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
57
PáU Gústafsson, framkvæmdarstjóri með laxeldinu og slátrun-
inni hjá ÍSNO, og Eyjólfur Marteinsson, skoða fisk úr laxeldinu
í Klettsvik.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sprettharður og spriklandi lax, spordaköst og gfusugangur viÖ kvíar ÍSNO í Klettsvík í Vestmanna-
eyjum.
Met vaxtarhraði á
laxaseiðum í Eyjum
Stefnt aö því að slátra tíu tonnum af laxi á viku
í mynni innsiglingarinnar í
Vestmannaeyjahöfn, hafa verið
síðan í fyrravor 12 flotkvíar,
þar sem ræktaður er lax til
manneldis. Og þarna má dag-
lega sjá menn siglandi með
hlaða af fóðurpokum á leiðinni
í fiskabúrin. Þar er laxinum
gefið að éta ekki ólíkt því sem
gerist þegar fólk í heimahúsum
gefur skrautfiskunum sínum.
Munurinn er þó sá að á meðan
skrautfiskarnir fá nokkur kom
í matinn á dag fara þeir laxeld-
ismenn með hundrað og þús-
undir kílóa af fóðri á dag. Laxa-
rækt þessi er í eigu ÍSNO, en
það fyrirtæki á norska fyrir-
tækið MOWI að 49 hundraðs-
hlutum á móti innlendum eig-
endum sem meðal annars era,
ísfélag Vestmannaeyja, Norð-
urtanginn á ísafirði, Kristinn í
Björgun, Eyjólfur Konráð Jóns-
son og fleiri.
Sláturtíð
Nú stendur yfir sláturtíð hjá
ÍSNO. Seiðin sem sett voru í búr-
in í fyrravor eru nú orðin að væn-
um laxi. Slátrunin gengur þannig
fyrir sig að laxinn er háfaður
beint úr úr búrinu og settur í ker
sem í er vatn og kolsýra sem deyf-
ir laxinn. Hann er síðan blóðgaður
og fluttur í land.
Hjá ísfélaginu er tekið á móti
laxinum þar sem farið er innan í
hann og hann snyrtur. Laxinn er
síðan flokkaður og honum pakk-
í laxi á vetrarvertíð, hálf ótrúlegt en samt satt, og ekki er ann-
að að sjá en stelpunum lítist vel á laxinn.
Gert að laxinum hjá ísfélaginu i Eyjum.
I^xinn kominn að bryggju.
að, 8-10 stykki, í frauðplastkassa
og ísað yfir. Undir laxinn er sett
svokölluð „bleyja" sem tekur við
vatninu sem rennur úr fiski og ís.
Á þessu má sjá að mikið er við
haft endá markaðurinn kröfu-
harður og samkeppnin mikil.
Met vaxtarhraði
Til að leita nánari frétta var
rætt við Erlend Bogason, nema í
fískeldi og sjávarútvegsfræðum í
Tromsö, en hann er einn af fjórum
föstum starfsmönnum hjá ÍSNO
í Eyjum.
Sagði Erlendur að nú væru í
búrunum um 100 tonn af laxi í
sláturstærð, en auk þess væru í
búrunum um 90.000 seiði sem
væru 650-1.150 grömm að þyngd.
Laxinn, sem nú hefur verið slátr-
að, fór til Boston í Bandaríkjunum
og fengust um 10 dalir fyrir kíló-
ið. Verðið hefur þó farið lækkandi
upp á síðkastið vegna mikils fram-
boðs, einkum frá Noregi. Laxinum
er slátrað á miðvikudögum og
fimmtudögum, hann sendur til
Reykjavíkur með Heijólfí á föstu-
dögum og flogið með hann út um
helgar. Laxinn er því tilbúinn á
matborðið í Bandaríkjunum á
mánudögum.
Erlendur sagði að í vor ætti að
bæta við 12 búrum og síðar 10.
í fullri stærð ættu búrin að rúma
um 250.000 fiska eða allt að 500
tonnum. Hugmyndin væri sú að
hægt væri að slátra árið um hring.
Síðastliðið vor voru 60-70
gramma laxaseiði sett í búrin og
eru þessi seiði nú tilbúin til slátr-
unar. Erlendur sagði að þetta
væri met vaxtarhraði, allt að
helmingi styttri en annarstaðar á
landinu og jafnvel enn meiri en
best gerðist í Noregi. Ástæðan
fyrir þessum mikla vaxtarhraða
væri sjávarhitinn við Eyjar. Hitinn
væri nú um 6 gráður en færi upp
í rúmlega 12 gráður yfír sumait-
ímann. Hann sagði því nokkuð
bjart vera framundan hjá ÍSNO
en þó mun framboð annarra þjóða
ráða miklu hversu mikið fæst fyr-
ir framleiðsluna.
Að lokum sagði Erlendur, að
helstu vandræðin hjá þeim þessa
stundina væri sá að þá vantaði
fólk í vinnu við hreinsun og pökk-
un.
— Bjarai
Hveragerði:
Foreldrar önnuðust kennsluna
Hveragferði.
í Gagnfræðaskóla Hveragerðis
vora kennsluhættir með all-
óvenjulegu sniði þann 23. febrúar
sl. Foreldrar skólabarnanna tóku
að sér kennsluna i forföllum
kennaranna sem höfðu farið í
kynnisför til Akranesbæjar.
Má segja að kennslan hafí verið
flölþætt og spannaði yfir mörg svið
sem ekki eru til umfjöllunar dag-
lega. Skiptu foreldramir með sér
verkum og miðluðu af reynslu sinni.
Fyrst var farið með nemendur í
fyrirtæki í bænum, Gróðrarstöðina
Snæfell og Gúmmísteypu Karls Sig-
urðssonar í Austurmörk 11, og starf-
semi þeirra könnuð.
Snyrtifræðingur kom frá
Reykjavík og hafði sýninámskeið í
húðhreinsun og fleiru, kennd var
skyndihjálp, fram fór kynning um
Grænland, um skiptinema, sýnd
mynd frá fsrael, sýnd fræðslumynd
um einelti og unnin verkefni út frá
henni, póst- og bankastarfsemi var
kynnt, hitaveita Hveragerðis var
kynnt bæði bóklega og áþreifanlega,
þá fór fram fræðsla um sjúkdóminri
sykursýki, stærðfræðin var tekin til
meðferðar, einnig var föndurkennsla
og margt fleira.
Foreldrar bökuðu vöfflur og hit-
uðu súkkulaði og veittu öllum leið-
beinendum, sem voru milli 30 og 40,
og nemendunum, 130 að tölu.
Aðspurðir sögðu foreldramir að
félagslífið í skólanum hefði verið
gott í vetur. Mætti t.d. nefna þtjár
kvöldvökur sem nemendur, kennarar
og foreldrar önnuðust í sameiningu
og haldnar vom á Hótel Örk. Undir-
búningur er hafinn að leiksýningu
9. bekkjar, sem sýnd verður á árs-
hátíð skólans sem haldin verður í
Hótel Ljósbrá í marsmánuði.
Famar hafa verið leikhúsferðir
og fyrirhuguð er skíðaferð. Sem
sagt — alltaf eitthvað skemmtilegt
að gerast í Gagnfiæðaskóla Hvera-
gerðis.
- Sigrún
Morgunblaðið/Sigrún Sigfusdóttir
Hluti þess hóps sem sá um kennslu i forföllum kennara sem höfðu
farið i kynnisför til Akraness.