Morgunblaðið - 02.03.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
21
TJÓNST1LKYNNING
VEGNA ÖKUTÆKJA
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN
Hvenœr á að nota tjónstilkynninguna?
Tjónstilkynningin er að evrópskri fyrirmynd og eru tilkynningar af þessu tagi notaðar
í flestum ríkjum Vestur-Evrópu. Tjónstilkynninguna á að nota vegna tjóna á ökutækj-
um eða tjóna sem rakin verða til ökutækja. Kveðja ber til lögreglu verði slys á
fólki.
Árekstur
Við árekstur milli tveggja ökutækja ber að nota eitt sett tjónstilkynningarinnar. Hafi
fleiri en tvö ökutæki lent í árekstri verður að nota fleiri sett en eitt. Skulu þá upplýs-
ingar varðandi öll hlutaðeigandi ökutæki koma fram eins og unnt er á hverju setti til-
kynningar sem notað er og þau undirrituð af öllum ökumönnunum. Afstaða allra öku-
tækjanna (merkt A, B, C, D o.s.frv.) skal þannig gefin til kynna með afstöðumynd af
vettvangi (13. liður tjónstilkynningarinnar).
Útafakstur, ekið á gangandi vegfaranda o.þ.h.
Eigi aðeins eitt ökutæki hlut að máli, t.d. við útafakstur, þegar ekið er á gangandi veg-
faranda, ökutæki brennur eða því stolið, ber einungis að fylia út framhlið tilkynning-
arinnar vinstra megin (A) auk bakhliðar.
Á vettvangi
Ökumaður A og ökumaður B útfylla báðir framhlið tilkynningarinncu- vegna ökutækja
sinna. Getið um nafn og heimili hugsanlegra vitna (5. liður), en það er afar brýnt ef
ökumenn eru ósammála um málsatvik. í 12. lið ber að merkja með x í viðeigandi reiti.
Reitir vinstra megin eiga við ökutæki A en hægra megin eiga við ökutæki B. Mikilsvert
er að fjöldi merktra reita sé tilgreindur fyrir hvort ökutæki um sig. Munið að merkja
ökutækin A og B á afstöðumynd cif vettvangi (13. liður). Tjónstilkynningin skal undir-
rituð af báðum ökumönnum og tekur hvor sitt eintak.
Við heimkomu
Þegar heim er komið fylla aðilar sjálfir út bcikhlið tilkynningcu-inncu-. Alis ekki má breyta
nokkru atriði eða bæta við á framhlið tilkynningarinnar eftir að aðilar hafa undirrtitað
hana. Aðilum ber síðan að koma tjónstilkynningunni til vátiyggingarfélaga sinna hið
allra fyrsta.
Árekstur við erlent ökutœki
Verði árekstur við ökutæki sem skráð er erlendis og ökumaður þess hefur þessa
evrópsku tjónstilkynningu á erlendu máli mega báðir aðilcu- nota framhlið þeirrar til-
kynningar og eftir atvikum undirrita hana. Einstakir liðir tjónstilkynningarinnar og
númer þeirra eru eins þótt tilkynningin sé prentuð á öðru máli.
Athugið vel!
Notið kúlupenna eða vefyddan blýant við útfyllingu tilkynningarinnar þannig að bæði
frumrit og afrit verði læsileg. Skrifið ekki á bakhlið tilkynningarinnar fyrr en ein-
tökin, þ.e. frumrit og afrit, hafa verið skilin að. Hafi tjónstilkynning verið notuð,
hún skemmst eða týnst ber mönnum að fá nýtt eintak hjá vátryggingarfélagi sínu.
i
»
»
(SJÓNVARPINU f KVÖLD
verður sýndur leiðbeiningar- og kynningarþáttur
um notkun tjónstilkynningarinnar.
RÚV kt. 20.35
STÖÐ 2 í 19:19
VERTU MEÐ
- ÞVÍ ÞETTA ÞARFTU AÐ VITA!
BIFREIÐATRYGGINGAFÉLÖGIN
Frumvarp um kaupleiguíbúðir:
Vísa allri gagnrýni
á störf mín á bug
annarleg sjónarmið liggja að baki
henni segir félagsmálaráðherra
„ÞAÐ er auðvitað kafli út af
fyrir sig hvernig einstaka stjóm-
arliðar reyna í hveiju málinu á
fætur öðm, sem kemur frá fé-
lagsmaálaráðuneytinu, að draga
upp þá mynd af mér og störfum
minum, að það sé allt illa unnið,
sem þaðan kemur og þurfi sér-
stakrar skoðunar við. Þar liggja
einhver annarleg sjónarmið að
baki. Ég vísa því allri gagnrýni
á störf mín á bug, hún er ekki
byggð á faglegum grunni," sagði
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, í samtali við
Morgunblaðið.
Jóhanna var innt álits á gagnrýni
ýmissa stjómarliða á framlagningu
frumvarps um kaupleiguíbúðir, en
þeir hafa meðal annars sakað hana
um að hafa brotið samkomulag
milli stjómarflokkanna með því að
leggja það fram: „Ég vísa auðvitað
allri gagnrýni á vinnubrögð mín við
framlagningu frumvarps um kaup-
leiguíbúðir á bug. Það er alveg ljóst
að þetta mál hefur legið fyrir stjóm-
arflokkunum í talsverðan tíma, eða
frá því 7. desember á síðasta ári
eða í nær þijá mánuði. í raun fékk
það ekki neina umfjöllun fyrr en
fyrir um þremur til fjómm vikum
síðan. Þá vom ágreiningsmál vegna
þess sett í nefnd, sem falið var að
leysa þau. Samkomulag um þetta
náðist síðan í nefndinni fyrir um
hálfum mánuði síðan og ég stóð í
einu og öllu við allt sem um var
samið á milli stjómarflokkanna í
þessu efni.
Því vísa ég alfarið á bug öllum
fulyTðingum um brot á samkomu-
lagi af minni hálfu. Mér finnst það
með ólíkindum hvemig einstaka
stjómarliðar hafa leyft sér að blása
þetta mál upp og reyna að koma
þeirri mjmd að í fjölmiðlum að ég
hafi ekki staðið við mitt mál. Það
er auðvitað hvimleitt til lengdar
hvemig reynt er að gera störf mín
sem ráðherra tortryggileg í augum
fólksins, en þegar með þessu er
reynt að koma höggi á mig með
því að tala í síbilju um illa unnin
mál, er ljóst til dæmis hvað varða
kaupleigumálið, að þetta hittir líka
þá fyrir, sem sízt skyldn Ég þá við
það fólk, sem af stakri samvizku-
semi hefur lagt ómælda vinnu í
marga mánuði við að skila af sér
vönduðu verki,“ sagði félagsmála-
ráðherra.
Vegið að saklausu
starfsfólki mínu
- segir félagsmálaráðherra um
ástæðu kæru sinnar til siðanefndar
BÍ á hendur Þjóðviljanum
„ÉG tel að í umræddri grein
hafi blaðamaður Þjóðviljans svo
haldið á málum gagnvart starfs-
fólki félagsmálaráðuneytins að
brotið sé gegn ákvæðum þriðju
greinar siðareglna BÍ. Þetta olli
mikilli reiði meðal starfsfólks
mins og þess vegna ákvað ég að
visa málinu til siðanefndar
Blaðamannafélagsins. Ástæðan
er ekki sú, að Þjóðviljinn hafi
neitað að gefa upp heimildar-
mann eins og sumir fjölmiðlar
hafa reynt að halda fram,“ sagði
félagsmálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, i samtali við
Morgunblaðið.
Félagsmálaráðherra kærði fyrir
nokkru til siðanefndar BÍ frétt í
Þjóðviljanum, þar sem fjallað var
um afstöðu ráðherrans til Kvosar-
skipulagsins og byggingar ráðhúss
borgarinnar. Fréttin var byggð á
nafnlausum heimildarmanni innan
félagsmálaráðuneytisins.
„Það kom fram í bréfí mínu til
Þjóðviljans, hvers vegna ég tel
nauðsynlegt að kæra fréttaflutmng
blaðsins til siðanefndar Blaða-
mannafélags íslands. í frétt af svo-
kölluðu ráðhúsmáli var vísað í nafn-
lausan heimildarmann innan félags-
málaráðuneytisins. Að geta um
heimildarmann innan ráðuneytisins
án þess að skýra frá því hver hann
er, er óviðunandi fyrir það starfs-
fólk þess, sem engan hlut á þar að
máli. Þessi framsetning blaða-
mannsins á heimildarmanni hefur
vakið mikla reiði meðal starfsfólks-
ins. Á opinberum starfsmönnum
hvílir rík trúnaðarskylda og liggur
refsing við broti þar á.
Ég vísa ennfremur til þriðju
greinar siðareglna Blaðamannafé-
lagsins. Þar er sagt að blaðamaður
eigi að vanda upplýsingaöflun sína
sem kostur er og sýna fyllstu tillits-
semi í vandasömum málum; Eigi
að forðast allt, sem geti valdið sak-
lausu fólki óþarfa sársauka eða
vanvirðu. Svo var ekki gert að þessu
sinni. Það var vegið að saklausu
starfsfólki ráðuneytisins," sagði
Jóhanna Sigurðardóttir.
FUS á Vesturlandi
heimsækir Alþingi
FÉLÖG ungra sjálfstæðismanna
á Vesturlandi heimsóttu nýlega
Alþingi og Stjórnarráðið . Rúm-
lega 30 manns tóku þátt i ferð-
inni úr félögunum Agli í Mýrar-
sýslu, Þór á Akranesi, Félagi
ungra sjálfstæðismanna Snæ-
fells- og hnappadalssýslu og Fé-
iags ungra sjálfstæðismanna í
Dalasýslu. Að sögn Guðlaugs
Þórðarssonar, formanns Egils og
ritara SUS, sem var fyrir hópn-
um, tókst ferðin í alla staði mjög
vel.
Um morguninn var farið í Stjóm-
arráðið og tóku þar á móti gestum
þeir Friðrik Sophusson, iðnaðarráð-
herra og varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, og Guðmundur Bene-
diktsson, ráðuneytisstjóri. Guð-
mundur sagði frá sögu hússins og
Friðrik ræddi stjómmálaástandið
og stjómmálahorfur.
Síðan hélt hópurinn til Alþingis-
hússins við Austurvöll og tók þar
Friðjón Þórðarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi
á móti. Friðjón sýndi hópnum húsið
og var síðan farið í þingflokks-
herbergi sjálfstæðismanna og málin
rædd. Spjallað var um málefni Vest-
urlandskjördæmis og viðruð hug-
mynd Guðlaugs Þórðarsonar um
klúbb landsbyggðarmanna.
Um kvöldið var loks haldið opið
hús í Félagsheimili _ Karlakórs
Reykjavíkur þar sem Ámi Sigfús-
son, formaður SUS, tók á móti
gestum.