Morgunblaðið - 02.03.1988, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 02.03.1988, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 27 Vatn — besti svaladrykkurinn eftirJón Gíslason Vinsældir gosdrykkja og ann- arra bragðbættra svaladrykkja eru miklar meðal bama og ungl- inga, en þess ber einnig að geta að það sama á við um margt full- orðið fólk. Það er því nauðsynlegt að hvetja fullorðna til að breyta sínum neysluvenjum, ekki síður en þá sem yngri eru. Vatn hefur marga kosti um- fram aðra svaladrykki. Sem dæmi má nefna að vatnið er ódýrt, það gefur ekki orku og inniheldur engin aukefni. Það er því ekki að ástæðulausu að heilbrigðisyfirvöld hvetja nú landsmenn til aiikinnar vatnsdrykkju á kostnað gos- drykkja og annarra svaladrykkja. Þar sem nokkurs misskilnings virðist gæta hjá fólki um samsetn- ingu algengra drykkja sem á boð- stólum eru, er ekki úr vegi að skoða innihaldslýsinguna sem fram kemur á umbúðum. í inni- haldslýsingu eru hráefni og auk- efni skráð eftir minnkandi magni, þannig að fyrst kemur það hrá- efni sem mest er af og síðast það hráefni eða aukefni sem er í minnstu magni. Þykkni og „djúsar“ Neytendur eiga oft erfitt með að skilja hver munurinn er á hin- um ýmsu drykkjarvörum, og á þetta ekki síst við um samsetn- ingu þeirrar vöru sem við þekkjum undir heitinu „djús“. Slíkir drykk- ir eru blandaðir með vatni fyrir neyslu, og er magn af hreinum safa í blönduðum drykk yfirleitt lítið og í sumum tilvikum ekkert. Réttast væri að nefna þessa drykki þykkni (t.d. með appelsínu- bragði) eða hreinlega „drykkur með appelsínubragði". Algeng innihaldslýsing er: Vatn, sykur (eða sætuefni), appelsinu- þykkni, sýrur, rotvarnarefni. Sumar tegundir innihalda auk þess bindiefni og litarefni. Þá eru til hreinar eftirlíkingar sem framleiddar eru með bragðefnum í stað appelsínuþykknis og getur innihaldslýsingin þá litið þannig út: Sykur, vatn, sýrur, bragð- efni, bindiefni, rotvarnarefni, litarefni. „Ávaxtadrykkir" Mikið er selt af svaladrykkjum í litlum femum (250 ml) og inni- halda þeir á bilinu 10 til 16% af hreinum safa. Á umbúðum eru þessir drykkir merktir sem ávaxtadrykkir, en algeng inni- haldslýsing er: Vatn, appelsínu- safi, sykur (eða sætuefni), sýr- ur (þ.m.t. C-vítamín), bragð- efni. Auk þess sem hér er talið, innihalda sumir þessara drykkja einnig rotvarnarefni og litar- efni. Megin uppistaðan í þessum drykkjum er því vatn sem er blandað nokkrum ávaxtasafa, sykri eða gervisætuefni ogýmsum aukefnum. Þó svo í drykkina sé notað C-vítamín, bæði sem nær- ingarefni og sem tæknilegt hjálp- arefni, er ekki hægt að kalla þá hollustudrykki. Gosdrykkir Gosdrykkir hafa lítið gildi sem neysluvara, en em vinsælir jafnt hjá bömum sem fullorðnu fólki. Algeng innihaldslýsing er: Vatn (kolsýrt), sykur (eða sætuefni), iitarefni, sýra, bragðefni. Hrá- efnin em því vatn og sykur og auk þess em í vömnni ýmis auk- efni. Gosdrykkir gefa því „tómar hitaeiningar", þar sem sykurinn gefur orku en engin bætiefni. Það Jón Gíslason er ekki lítið magn sykurs sem við neytum á hveiju ári vegna neyslu gosdrykkja. Mjólkurdrykkir og hreinn safi Megin hráefni í bragðbættum mjólkurdryklqum er ýmist ný- mjólk, léttmjólk eða mysa. Drykk- imir innihalda því þau næringar- efni sem þessi hráefni gefa, en gallinn er sá að auk náttúmlegs mjólkursykurs innihalda þeir við- bættan sykur. Innihald sykurs í bragðbættum mjólkurdrykkjum er því svipað og í gosdrykkjum. Magn sykurs í bragðbættum mjólkurdrykkjum er hins vegar ekki meira en í hreinum söfum, en þeir innihalda náttúmlegan ávaxtasykur. í hreinum safa er ekki bætt sykri eða aukefnum og er því um hreina náttúmafurð að ræða, sem m.a. gefur bætiefni og treQar. Vatn Besti svaladrykkurinn er sá sem ekki inniheldur sykur eða sætuefni, sem ekki er litaður eða framleiddur með öðmm aukefn- um, heldur hin hreina náttúmaf- urð sem alltaf er við hendina, þ.e. vatn. Vatn er svalandi drykkur, sem einnig er gott að hafa með öllum mat. Höfundur er næringnrfræðing- ur. 7'1/C-tilvalin tilbreyting Ljúffengt gæðakex í þremur bragðtegund- um. Frábært með osti og ídýfum eða eitt sér. TUC - eitt það besta. Láttu það ekki vanta. Pað nálgast stórmál. . . þegar tvö rtý SMÁMÁL koma upp samtímis. Súkkulaðifrauð og Dalafrauð. / ffr W'. ' nmr AUGLÝSINGASTOFA ES
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.