Morgunblaðið - 02.03.1988, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
Virðisaukaskattur EB:
Barist fyr-
ir skatt-
frelsi bóka
BHlssel, frá Kristófer M& Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
UMBERTO Eco, höfundur Nafns
rósarinnar, sem er forseti sam-
taka er beijast fyrir niðurfelling-
ar virðisaukaskatts af bókum
innan Evrópubandalagsins, hef-
ur nú sent erindi þess efnis til
leiðtoga aðildarríkjanna og með-
lima framkvæmdastjórnar EB.
í erindinu er því beint til leið-
toganna og framkvæmdastjómar-
manna, að í tillögum um samræm-
ingu óbeinna skatta innan bandalæ-
agsins verði gert ráð fyrir niðurfell-
ingu virðisaukaskatts af bókum.
Jafnframt er því beint til leiðtog-
anna að ríkisstjómir þeirra taki
þegar upp skattfrelsi á bókum.
Mið-Afríkulýðveldið:
Lífi Bokassa
verður þyrmt
Bangui. Reuter.
ANDRE Kolingba, forseti í Mið-
Afríkulýðveldinu, hefur breytt
dauðadómi yfir Jean-Bedel Bok-
assa, fymun keisara, í lífstíðar-
þrælkunarvinnu. Útvarpið í
Bangui, höfuðborg ríkisins, skýrði
frá þessu í fyrradag.
Bokassa, liðþjálfinn, sem krýndi
sjálfan sig til keisara, var dæmdur
til dauða 12. júní sl. fyrir marga og
mikla glæpi, sem hann framdi á 13
ára valdatíma sínum. í nóvember
hafnaði hæstiréttur landsins beiðni
Bokassa um ný réttarhöld og var það
þá undir forsetanum komið hvort
dómnum yrði framfylgt eða honum
breytt.
Bokassa var steypt af stóli árið
1979 og settist hann þá að i Fyakk-
landi. í október árið 1986 sneri hánn
aftur til síns heimalands öllum að
óvörum og var umsvifalaust hand-
tekinn og dreginn fyrir rétt.
Pólskir friðarsinnar handteknir
Reuter
Norðursjór:
Sænskt
flutninga-
skip sökk
í fárviðri
Amsterdam. Reuter.
SÆNSKA vöruflutningaskipið
Vinca Gorthon sökk í Norður-
sjónum á mánudag, 12 sjómílur
undan strönd Hollands.
Skipið var á siglingu frá borginni
Oskarshamn í Svíþjóð til Antwerpen
í Belgíu er það varð skyndilega
stjómlaust í fárviðri á sunnudag.
Lagðist það á hliðina og rak að-
faranótt mánudags rétt framhjá
nokkrum olíuborpöllum og vita-
skipi. Skipveijar sendu út neyðar-
kall og hífðu björgunarþyrlur alla
áhöfnina, 17 menn, skömmu síðar
frá borði.
Skipið sökk við mjög fjölfarna
siglingaleið og stóð kjölur þess upp
úr sjó. Hollenzkt varðskip hefur
haldið sig í nágrenni flaksins til að
vara skip við því.
Lögregluþjónar sjást hér handtaka félaga í frelsis- pg friðarhreyfingu í Póllandi. Þeir voru að
mótmæla fangelsisdómi yfir manni sem hafði neitað að gegna herþjónustu. Fanginn er nú í hungur-
verkfalli. ' ■
Bretland:
Vinstrimenn náðu völdum í
stærsta verkalýðssambandinu
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunbiaðsins.
NIÐURSTÖÐUR kosningar til framkvæmdanefndar Sambands flutn-
ingaverkamanna (Transport and General Workers Union), TGWU,
voru tilkynntar um síðustu helgi. Vinstriöfgamenn náðu meirihluta
af stuðningsmönnum Kinnocks. Kosningin getur haft alvarlegar
afleiðingar fyrir endurskoðun stefnumála Verkamannaflokksins.
Nýrbíll
frá Toyota
Genf. Reuter.
TOYOTA, japönsku bílaframleið-
endurnir, tilkynntu í gær um fram-
leiðslu nýs bíls, sem hlotið hefur
tegundarheitið Carina II. Er þar
um að ræða meðalstóran fjöl-
skyldubfl.
Að sögn talsmanns Toyota vonast
verksmiðjan til þess að selja 55.000
Camry II bíla í Evrópu á árinu, en
sala bílsins hefst í aprfl. Verður bfllinn
framhjóladrifinn og fáanlegur ýmist
með 1,6 eða tveggja lítra vél. Þá
sagði talsmaður Toyota að gerðar
hefðu verið umfangsmiklar endur-
bætur á Camry-bflnum og verður
hann m.a. fáanlegur með tveggja lítra
vél og drifi á öllum hjólum. Sömuleið-
is verður á þessu ári boðið upp á
Corolla með drifi á öllum.
TGWU getur haft
úrslitaáhrif
Bresk verkalýðshreyfing styður
Verkamannaflokkinn og fer með
meirihluta atkvæða á flokksþing-
um. Samband flutningaverka-
manna er stærsta sambandið innan
verkalýðshreyfingarinnar með um
1,4 milljónir félaga. Það getur haft
úrslitaáhrif á atkvæðagreiðslur á
þingum Verkamannaflokksins. Það
studdi til dæmis breytingar við val
á frambjóðendum til þings, sem
Neil Kinnock og stuðningsmenn
hans fengu samþykktar á síðasta
þingi flokksins gegn vilja vinstri
armsins.
Ásakanir um
kosningasvik
Miðjumenn og þeir, sem eru til
hægri innan flokksins, hafa verið í
meirihluta í framkvæmdanefnd
Sambands flutningaverkamanna,
22 gegn 18. Eftir kosninguna er
talið, að vinstriöfgamenn séu í
meirihluta, 23 gegn 16. Brian Nic-
holson, sem verið hefur helsti stuðn-
ingsmaður Kinnocks í fram-
kvæmdanefndinni, fékk fæst at-
kvæði allra frambjóðenda. Ásakanir
hafa komið fram um víðtæk kosn-
ingasvik, en Ron Todd, forseti sam-
bandsins, hefur vísað þeim á bug.
Hann sagði á laugardag, eftir rúm-
lega sjö klukkustunda langan fund
þeirrar nefndar, sem sá um kosn-
inguna, að komið hefði fram ein
slík kvörtun, en hún gæti engan
veginn staðist. Hann sagði, að kjör-
gögnin yrðu geymd í sex mánuði
og allar kvartanir eða kærur yrðu
athugaðar. ^
Tony Benn ánægður
»
Endurskoðun stefnumála Verka-
mannaflokksins á að ljúka á næsta
ári og koma fyrir flokksþingið þá.
Vinstriarmur flokksins hefur lagst
af öllu afli gegn þessari endurskoð-
un. Uppi hafa verið hugmyndir um
róttækar breytingar á þjóðnýting-
arstefnu flokksins, stefnunni í vam-
armálum og skattamálum. En verði
Samband flutningaverkamanna
mótfallið þessum breytingum, er
óiíklegt, að þær nái fram á flokks-
þinginu. Það fer með um fimmtung
atkvæða á þingum flokksins.
Tony Benn, þingmaður Verka-
mannaflokksins og einn helsti leið-
togi vinstriarmsins, sagðist vera
ánægður með niðurstöður þessarar
kosningar í meginatriðum. Dennis
Skinner, þingmaður og fulltrúi í
framkvæmdanefnd Verkamanna-
flokksins, sagði: „Allir sósíalistar
ættu að- fagna þessum úrslitum.
Það hafa verið mögur ár að undan-
fömu fyrir vinstriarminn, en nú
lítur þetta betur út.“
Erfitt val fyr-
ir Kinnock
Verkalýðsfélög styðja tiltekna
þingmenn Verkamannaflokksins
með fjárframlögum. Samband
flutningaverkamanna hefur stutt
Kinnock. Búist er við því, að sögn
The Observer á sunnudag, að
vinstrimeirihlutinn kalli á Kinnock
mjög bráðlega og krefjist þess, að
þrennt verði ótvírætt í stefnu
fTokksins: Einhliða afvopnun kjam-
orkuvopna, þjóðnýting iðnaðar og
engin tekjustefna komi til greina.
Kinnock á mjög erfitt með að hafna
slíku boði vegna stuðnings sam-
bandsins við hann. En fallist hann
á ^iessar kröfur, kemur það í veg
fyrir, að stefna flokksins samaræm-
ist betur skoðunum almennings í
landinu.
Talsmenn Kinnocks viðurkenna,
að úrslit kosningarinnar séu áfall,
en segjast ótrauðir munu halda
áfram endurskoðun á stefnumálum
flokksins.
Evrópubandalagið:
Fiskveiðisamningur
við Marokkómenn
Brusgel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara MorgunblaÖsins.
Samningar hafa tekist á miili
f ramkvæmdastjómar Evrópu-
bandalagsins og ríkisstjómar
Marokkós um fiskveiðisamning
til fjögurra ára. Samkvæmt hon-
um fá allt að 700 spænsk fiski-
skip og 30 portúgölsk aðgang að
marokkönskum fiskimiðum.
Heimilaður ársafli er 97.800 tonn
og er hann 10% minni en um kvað
í samningnum, sem rann út 31.
desember sl. Gert er ráð fyrir, að
Evrópubandalagið greiði árlega fyr-
ir samninginn þijá milljarða ísl. kr.
og skal því fé varið til rannsókna
á fiskstofnum við strendur Marokk-
ós og til þróunarverkefna í fiskiðn-
aði og útgerð.
Auk þessa verður tollfijáls inn-
flutningur Marokkómanna á niður-
soðnum sardínum aukinn úr 14.000
tonnum í 17.500 tonn á ári. Voru
Portúgalir óánægðir með þetta at-
riði en samkvæmt aðiögunarsamn-
ingi þeirra sjálfra við EB mega
þeir flytja 6.000 tonn af sardínum
tii tíu EB-landa. Samt er talið
líklegt, að samningurinn verði stað-
festur að bragði.
Vegir
merktir
Vestur-þýzkir
hermenn
merkja vegi
nærri Dachau
til þess að auð-
velda öku-
mönnum að
áttasigáþví
hvarþeimberi
aðakaí fann-
ferginu, sem
nú setur mark
sitt á mannlif
í sunnanverðu
Þýzkalandi.
Þar hefur of-
ankoma verið
í meiralagiog
valdið miklum
samgönguerf-
iðleikum.
Reuter