Morgunblaðið - 02.03.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
35
Filippseyjar:
Marcos reiðubúinn til
að snúa heim úr útlegð
Aquino vill að hann greiði skuldir sínar fyrst
Manila, Reuter.
FYRRUM forseti Filippseyja, Ferdinand Marcos, lýsti því yfir í
fyrradag, að hann væri tilbúinn að semja við Corazon Aquino,
forseta Filippseyja, um að hann sneri aftur til Filippseyja úr útlegð
í Hawaii.
Morgunblaðið/KGA
Cockfield lávarður talar á fundi landsnefndar Verslunarráðs íslands
í Átthagasal Hótel Sögu sl. haust.
í yfírlýsingu Marcosar sem tals-
maður hans, Leonnie Tan, las i
útvarpi í Manila, segir að hann sé
reiðubúinn að tilnefna fulltrúa sinn
til að semja við ríkisstjóm Filipps-
eyja um að hann og fjölskylda
Evrópubandalagið:
Cockfield í ónáð hjá
Margaret Thatcher
hans snúi heim til að „bjarga
landinu frá blóðugu valdaráni kom-
múnískra uppreisnarmanna."
Marcos lýsti þessu yfír eftir að
Egmidio Tanjuatco, þingmaður,
hafði sagt fréttamönnum að hann
og annar ættingi Aquinos hefðu
rætt við Marcos í Hawaii og að
forsetinn væri að athuga beiðni
Marcosar um að fá að snúa til
ERLENT
Tillögur hans um óbeina skatta gætu
kostað hann embættið hjá EB
London, Observer.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, hefur orðið
ósátt við manninn sem hún skip-
aði sem aðalfulltrúa Breta í
Framkvæmdastjóm Evrópu-
bandalagsins í Briissel fyrir
þremur árum, Cockfield lávarð.
Hún getur ekki sagt honum upp,
en hún hefur látið í veðri vaka
að hún skipi hann ekki aftur I
þetta embætti þegar kjörtímabili
hans lýkur. Talið er að eftirmað-
ur hans verði Lynda Chalker,
sem nú er aðstoðarráðherra i
breska utanríkisráðuneytinu og
fer með evrópsk málefni.
Mistök Cockfíelds eru þau að
hann hefur verið of ástundarsamur
í starfí sínu og skort lagni. Form-
legt hlutverk aðalfulltrúa í Brússel
er að vinna fyrir Evrópubandalagið,
ekki fyrir ríkisstjómina sem skipaði
hann. Flestir aðalfulltrúanna halda
þó þegar á reynir að minnsta kosti
öðrum fætinum á heimaslóðum og
vara sig á því að móðga ekki ríkis-
stjómina sína.
Það hefur Cockfíeld ekki gert.
Að mati stjómvalda í London gerð-
ist hann „heimamaður" fáum vikum
eftir að hann settist við skrifborðið
í Briissel. Hann breyttist úr upp-
þomuðum skriffínna, sem hafði
starfað á ríkisskattsstofunni og í
breska lyfjafyrirtækinu Boots, í
mann sem fékk skyndilega ástríðu-
fullan áhuga á sameiningu Evrópu.
Hann tókst á við það verkefni,
að framkvæma tillögumar um sam-
ræmdan innri markað Evrópu-
bandalagsins (heimamarkað), sem
eiga að taka gildi 1992, með meiri
krafti en nokkur hafði búist við af
honum.
Þetta er verkefni sem breska
stjómin styður einnig, þannig að
hún ætti að hafa verið þakklát fyr-
ir hversu einarðlega Cockfíeld hefur
reynt að ryðja burt hindmnum, sem
til þessa hafa komið í veg fyrir að
slíkur markaður verði að veruleika.
Vill skatt á matvæli, bækur
og barnafatnað
Cockfíeld komst illu heilli að
þeirri niðurstöðu að til að þetta
markmið næðist þýrftu Evrópu-
bandalagsríkin tólf að samræma
óbeina skattheimtu sína, þar með
virðisaukaskattheimtuna, og leggja
tolla á áfengi og vindlinga. Þessar
álögur em hins vegar mismunandi
í ríkjum Evrópubandalagsins. Til
að mynda er enginn virðisauka-
skattur í Bretlandi á matvæli, ekki
heldur á bækur og bamaklæðnað.
Thatcher lofaði í síðustu kosn-
ingabaráttu að leggja ekki skatt á
slikan vaming, þannig að hún fagn-
aði ekki þeirri niðurstöðu Cockfíelds
að skattleggja ætti matvæli í Evr-
ópu um 4 til 9 prósent, og bækur
um 14 til 20 prósent. Hann bætti
gráu ofan á svart, að mati stjóm-
valda í London, þegar hann for-
dæmdi breska ráðherra í ræðum
sínum fyrir að styðja ekki tillögur
sínar.
Nú er ljóst að Cockfíeld mun
ekki halda starfí sínu, og 4,5 millj-
óna króna árslaunum. Thatcher
hefur leitað að meðfærilegri aðal-
fulltrúa og augu hennar beinast að
Lynda Chalker, sem er aðstoðarráð-
herra í bresku ríkisstjóminni, og
hefur þann kost að tala reiprenn-
andi þýsku og frönsku, þar sem hún
lauk námi í háskólanum í Heidel-
berg. Ef Thatcher leggur hart að
henni gæti hún einskis annars úr-
kosti átt en að gerast fyrsta konan
sem gegnir embætti aðalfulltrúa í
Framkvæmdastjóm Evrópubanda-
lagsins.
ættjarðarinnar.
Marcos hefur til þessa neitað
að viðurkenna ríkisstjóm Aquinós
og haldið því fram að hann sé rétt:
mætur þjóðhöfðingi landsins. í
síðustu jrfirlýsingu Marcosar er
hann hins vegar vinsamlegri í garð
stjómarinnar, og þar segir meðal
annars að stjómin eigi lof skilið
fyrir að hafa lifað af vandamál,
sem hafí „sökkt öðmm löndum,
sérstaklega í þriðja heiminum."
Aquino tilkynnti í gær að Marc-
os skyldi ekki gera sér í hugarlund
að hann gæti snúið til baka til
Filippseyja fyrr en hann hefði skil-
að þvf sem hann skuldaði lands-
mönnum.
Orðrómur er á kreiki um að
Marcos sé haldinn krabbameini og
vilji þess vegna snúa aftur til að
eyða ævikvöldinu á Filippseyjum.
Dagblað f Manila segir að Marcos
sé reiðubúinn að greiða aftur 7
milljarða Bandaríkjadadala.
Opinberir starfsmenn í Kína:
Sjóðir tíl hjálpar fá-
tækum misnotaðir
Peldng, Reuter.
OPINBERIR starfsmenn f afskekktum héruðum í Kina hafa á
undanfömum árum stolið sem nemur 200 mil(jónum fslenskra
króna úr sjóðum sem ætlaðir eru til þjálpar fátækum og hungr-
uðum. Notuðu þeir peningana til að kaupa bíla, fbúðir og sjón-
varpstæki til eigin nota.
Að sögn opinbers dagblaðs f
Kína voru svikaramir uppgötvað-
ir er kannað var bókhald sjóða
sem stofnaðir voru á árunum
1985 og 1986 til hjálpar þeim
mörgu sem sem ekki hafa nóg
að bíta og brenna í Kína. Notuðu
starfsmennimir ýmis meðul til
að svíkja út féð, meðal annars
fóru þeir fram á íjárveitingar
vegna framkvæmda sem ekki
voru unnar, neyddu bændur til
að selja sér kom, baðmull og
aðrar afurðir fyrir lítið og seldu
þær síðan á uppsprengdu verði.
Með margvíslegum hætti tókst
opinberum starfsmönnum í einu
héraði í KSna að svíkja út fé sem
nam allt að 40% af sjóðnum sem
stofnaður var til aðstoðar fátæk-
um í héraðinu. í síðasta mánuði
sýndi sjónvarpið í Kína myndir
frá stjómarbyggingum í bæ í
norðvestur Kína og gaf þar að
líta fyöldi innfluttra bifreiða sem
keyptir höfðu verið fyrir svikið
fé.
AÐ KAUPA BÍL
MEÐ RÉTTRIHJÁLP
KEMUR SKAPINU í GOTT HORF
Hjá T0Y0TA BÍLASÖLUNNI verslaröu viö traust
fyrirtæki. Sölumenn okkar leiöbeina viö valiö á bílunum og
ganga frá sölusamningum. Tengslin viö Toyota eru þar meö
ekki rofin, heldur áttu vísa þjónustu um allt land og við
sendum heim söluskrá notaöra bíla. Verið velkomin í
T0Y0TA BÍLASÖLUNA og skeggræöiö viö sölumenn
okkar, Pétur, Jón Ragnar og Jóhann.
Opiö milli kl.9:00-19:00 virka daga og kl. 10:00-17:00
laugardaga.
TOYOTA
BÍLASALAN
SKEIFUNNI 15.SÍMI 687120