Morgunblaðið - 02.03.1988, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 02.03.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 39 Ráðstefna Jafnréttisráðs: Konur og- atvinnulíf Ein af myndum Jörundar Jóhannssonar, sem hefur sýnt teikningar í Jónshúsi undanfarið. Teikningar Jörundar Jóhannessonar í Jónshúsi Jafnréttisráð heldur ráðstefnu um konur og atvinnulíf laugar- daginn 5. mars í Borgartúni 6 og stendur hún frá kl. 10 - 17. Flutt verða erindi þar sem hlutur kvenna í atvinnulífi er tekinn til umfjöllunar frá ýmsum sjónar- hornum. Einnig verður fluttur stuttur leikþáttur. Ráðstefnan er öllum opin en tilkynningar um þátttöku þurfa að berast Jafn- réttisráði i síðasta lagi í dag, miðvikudaginn 2. mars í síma 27877. Fyrsta erindi ráðstefnunnar er yfírlitserindi Sigríðar Dúnu Krist- mundsdóttur, mannfræðings, um verkaskiptingu kynjanna í ýmsum þjóðfélögum með ólíka atvinnu- hætti. Stefanía Traustadóttir, félags- fræðingur, flytur erindið „Konur og vinna". Þar fjallar hún um að- greininguna í karla- og kvennastörf ALÞJÓÐLEGUR bænadagur kvenna verður að þessu sinni föstudaginn 4. mars og verður samkoma í Fríkirlqunni í Reykjavík kl. 8.30 þann dag. A síðastliðnu ári voru 100 ár lið- in síðan bænadagur kvenna var fyrst haldinn og var það bandarísk kona sem gekkst fyrir því að safna konum saman til bæna fyrir ákveðnu verkefni. Þessi dagur var haldinn árlega og bættust sífellt fleiri þjóðir í hópinn. Árið 1919 var starfið sameinað og nú taka yfír 170 þjóðir þátt í alþjóðlegum bæna- degi kvenna og var fyrsti föstudag- ur í mars valinn sem samkomudag- ur um allan heim. Eins og allir dagar byijar alþjóðlegur bænadag- ur kvenna við dagmörkin í Kyrra- hafí, og eftir þvi sem dagurinn færist umhverfís hnöttinn, taka nýir hópar í borgum, sveitum og þorpum undir lofgjörð og bæn uns deginum lýkur og sólin sest yfir St. Lawrence-eyjunum v!ð strendur Alaska, um 50 km frá heimskauts- baugnum. Dagskráin er sú sama um allan heim og skiptast löndin á um að senda hana. í þetta sinn kemur dagskráin frá Brasilíu, sem er stærsta ríki í Suður-Ameríku, og hafa konumar þar valið efnið og tekur fyrir muninn á launaðri og ólaunaðri vinnu. „Menntun kvenna og starfsval. Er þörf á breyttri menntastefnu?", nefnist erindi dr. Guðnýjar Guð- bjömsdóttur, dósents. Þar verður reynt að skýra hvers vegna starfs- val kvenna breytist mjög hægt þrátt fyrir síaukna menntun. Hun mun ræða um áhrifamátt skólans og um nauðsyn breyttrar menntastefnu. Gerður Óskarsdóttir, kennslu- stjóri í uppeldis- og kennslufræðum H.Í., segir frá því um hvað náms- og starfsfræðsla og ráðgjöf snýst, í erindi sem hún nefnir „Getur náms- og starfsfræðsla og ráðgjöf bætt stöðu kvenna á vinnumark- aðnum?" Hún mun reifa hugmyndir sínar um aðgerðir sem kæmu kon- um til góða í atvinnulífínu. Dr. Sigrún Stefánsdóttir gerði nýlega rannsókn á hlut kvenna í íslenskum sjónvarpsfréttum, sem „Opnar dyr“. Guð hefur opnað dyr. Þær dyr sem lokuðust, þegar synd- in kom í heiminn, opnaði Jesús þeg- ar hann gekk í dauðann fyrir okk- ur. í trúnni á hann göngum við inn um dymar, fáum aðgang að föðurn- um og hlutdeild í eilífu lífi. Allir, jafnt karlar sem konur, em velkomnir á samkomur bændags kvenna um allt land föstudaginn EFASEMDIR um Stöð 2 hafi greitt það sem henni ber i Menn- ingarsjóð útvarpsstöðva komu fram í umræðum um sjóðinn á Alþingi í síðustu viku. Frá því að lög um Menningarsjóð út- varpsstöðva tók gildi, frá 1. jan- úar 1986 og fram til loka októ- bermánaðar 1987 hafa verið greiddar 76.787.155 krónur í sjóðinn. Þar af hefur Ríkisút- varpið greitt 60.528.429 kr.f Stöð 2 5.395.028 kr. og íslenska út- varpsfélagið 10.310.593 kr. Aðrir hafa greitt til samans 553.105 krónur Indriði G. Þorsteinsson, formaður nefndarinnar sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki telja ástæðu til að vera með læti vegna þessara greiðslna fyrr en tölur fyrir allt árið 1987 lægju fyrir. „Greiðsla fyrir nóvember og desember em ekki á eindaga fyrr en 15. mars, svo Stöð 2 hefur hreinlega ekki haft tækifæri til að gera hreint fyr- ir sínum dymm. Árið 1987 er ein- faldlega ekki uppgert. Stöð 2 fer af stað í lok árs 1986 og er að auka við sig.“ Vömskipti sagði Ind- riði ekki hafa komið til kasta sjóðs- ins og kvaðst hann telja þau honum óviðkomandi. „Ég vil ekki vera með neinar getgátur í sambandi við lágar greiðslur Stöðvar 2 en verð þó að segja að miðað við fullyrðingar Jóns Óttars Ragnarssonar, um það hlut- fall sem hann telur að Stöð 2 hafí í sjónvarpsauglýsingum, þá er upp- gefið menningarsjóðsgjald ótrúlega leiddi í ljós að þáttur þeirra er afar rýr borið saman við þátt karla. Nið- urstöður sínar kynnir hún í erindinu „Ekkert er helst að frétta af konum í atvinnulífínu". Fiðrik Sóphusson, iðnaðarráð- herra flytur erindið „Fara hags- munir kvenna og hagsmunir at- vinnulífsins saman?" og í framhaldi af því hvort og hvar hagsmunaá- rekstur sé að fínna. Þá mun hann ræða hvemig megi sameina hags- muni fjölskyldunnar heildarhags- munum atvinnulífsins. Valgerður H. Bjamadóttir, fé- lagsráðgjafí og verkefnisstjóri í Bijótum múrana á íslandi, ræðir um konur í tækni og iðngreinum og hvað letji þær til að sækja nám og störf á tæknisviðinu. Gunnar Hansson, forstjóri IBM segir frá tilraunum IBM í Frakkl- andi til að fá konur til að taka á sig ábyrgðarmeiri störf innan fyrir- tækisins í erindinu „Hvað geta fyr- irtæki gert til að fjölga konum í ábyrgðarstöðum?". I 3. grein Jafnréttislaganna er fjallaður sérstaka tímabundnar að- gerðir í þágu kvenna í því augnam- iði að gera hlut þeirra jafnari í at- vinnulífinu. Vilborg Harðardóttir, útgáfustóri mun ræða um greinina og þá möguleika sem hún gefur. Á ráðstefnunni verður einnig fluttur stuttur leikþáttur um sam- skipti kvenna og atvinnurekenda. Flutt verða atriði úr Saumastofunni eftir Kjartan Ragnarsson og Sölku Völku eftir Halldór Laxness. Leik- stjóri er Ragnheiður Tryggvadóttir en leikendur Jón Hjartarson og Ólöf Sverrisdóttir. í lok ráðstefnunnar verða al- mennar umræður um efni fyrirlest- ranna og umræður í smærri hópum. lágt,“ sagði Hörður Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri fjármáladeildar Ríkisútvarpsins. „Einnig er spum- < ingin um hvaða tímabil hann er að tala. Þetta tvennt virðist ekki stand- ast, snemma á árinu 1987 talar hann um að Stöð 2 hafí helming sjónvarpsauglýsinga. Það er staðreynd að vegna greiðslu- erfíðleika hefur Ríkisútvarpið átt í erfíðleikum með að standa í skilum með greiðslur við sjóðinn. En Ríkisútvarpið er nú í skilum með sitt framlag. Árið 1986 greiddum við 32,7 milljónir í sjóðinn og 30,3 allt árið 1987. Dráttarvextir era , 6,1 milljón, sem er að mestu leyti fyrir árið 1986. Af þessu nema greiðslur sjónvarpsins tæpum 13,9 milljónum árið 1986 og um 10 millj- ónum fyrstu 10 mánuði ársins 1987. Vöraskipti hafa aldrei komið til hjá Ríkisútvarpinu, við höldum al- veg aðskildum auglýsingum og öðr- um viðskiptum og teljum okkur komna út á hálan ís ef við blöndum þessu saman. En það er ein athugasemd sem ég vil koma á framfæri og það er sá misskilningur sjóðsstjómar að láta Ríkisútvarpið eitt bera 25% rekstrarkostnaðar sinfóníuhljóm- sveitarinnar. Hlutverk Menningar- sjóðsins er tvíþætt; af honum greið- ist áð óskiptu fyrram framlag Ríkisútvarpsins til rekstrar sin- fóníuhljómsveitarinnar og úr hon- um er úthlutað til menningarlegrar dagskrárgerðar. Það er rangtúlkun sjóðsstjómar að láta Ríkisútvarpið eitt bera rekstur hljómsveitarinnar. Kaupmannahtíf n. NÚ STENDUR yfir sýning á blý- antsteikningum Jörundar Jó- hannessonar í félagsheimilinu í Jónshúsi. Hefur hann teiknað myndir sínar úti í skóginum milli Nivá og Humlebæk á Norður-Sjá- landi undanfarin sumur, 1985—87, og eru þær 30 talsins. Þá era einnig á sýningunni 4 teikningar af ballettdönsuram unn- ar með blýanti og pastel og sýnir Jörandur enn sem fyrr hve drátt- hagur hann er. Nokkrar teikning- anna era seldar en þær era seldar á 250 dkr. 12. mars nk. opnar Tryggvi Ól- afsson myndlistarsýningu í Jóns- húsi. Daginn eftir mun Thor Vil- hjálmsson lesa upp úr verðlaunabók sinni Grámosinn glóir, en Thor skrifaði sem kunnugt er æviþáttinn um Tryggva Ólafsson í nýútkominni listaverkabók um hann í ritröðinni íslenzk myndlist og les Thor Vil- hjálmsson hér upp í tilefni af opnun Framlag í sjóðinn er 10% og ætlast er til að af Menningarsjóði renni óskipt það framlag til sinfóníu- hljómsveitarinnar sem áður var framlag Ríkisútvarpsins. Sjóðs- stjóm hefur gefið frá sér yfirlýsingu um að þetta muni breytast héðan í frá en þetta hefði átt að vera sam- kvæmt reglum frá upphafi sjóðs- ins.“ „Allar getgátur um að við borg- um of lítið í sjóðinn era náttúralega alveg út í hött, vegna þess að auð- vitað er hér fylgst með hverri ein- ustu örðu sem inn kemur vegna auglýsinga," sagði Jón Ottar Ragn- arsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. „Ennþá fáránlegra er að bera fram þessar efasemdir á Alþingi þegar það kostar aðeins eitt símtal að kynna sér sannleikann. Okkar aug- lýsingatekjur á öllu árinu 1987 vora 107 milljónir og er þá ekki frádreg- inn söluskattur. í Menningarsjóð rannu um 7,9 milljónir. Skýringin á hversu lágar upphæðir era fyrri hluta ársins era einfaldlega þær að auglýsingavertíðin lendir aðallega á síðustu mánuðum ársins og þar með jólum. Einnig það að þegar við byij- uðum náðum við aðeins til rúmlega 60% landsmanna og voram auk þess með mun lægra auglýsinga- verð en Ríkissjónvarpið. Á miðju síðasta ári vorum við með álíka margar birtar auglýsingar en verðið var enn miklu lægra. Núna eram við komnir með mun fleiri birtar auglýsingar en Ríkissjónvarpið og okkar taxtar era orðnir svipaðir þeirra enda náum við nú til um 93% sýningarinnar. Mikil dagskrá er framundan í félagsheimilinu, íslenzkur matur á boðstólum, kvikmynda- og mynd- bandasýningar á íslenzku efni, dag- skrá Finnska félagsins að kvöldi 3. marz, félagsvist FÍNK 4. marz, konukvöld 8. marz, þar sem Ragn- hildur Ólafsdóttir rithöfundur mun lesa smásögu sína, og tónlistar- kvöld 18. marz. Þá heldur Náms- mannafélagið dansleik í Christians- havns Beboerhus þann 19. mars. Þá má nefna, að vaskur flokkur verkfræðinema málaði húsnæði fé- lagsheimilisins í sjálfboðavinnu fyr- ir helgina. Var það þeim öllum til sóma og stjómuðu ftilltrúar FÍNK í félagsheimilisnefnd; verkfræði- nemamir Vilhjálmur Ásgeirsson og Ólafur Hjálmarsson, verkinu með prýði, með aðstoð Guðrúnar Eiríks- dóttur, sem setið hefur f félags- heimilisnefnd um árabil. — G.L.Ásg. landsmanna. í janúar voram við með um 65% af birtum auglýsingupi og ég reikna með að við séum komn- ir yfír þá í tekjum. Það tekur að sjálfsögðu tíma að byggja upp auglýsingasjónvarp. í byijun urðum við að hafa verðið lágt til að fá auglýsendur, en eftir því sem okkur vex fískur um hrygg og dreifikerfið batnar færast okkar taxtar nær töxtum Ríkissjónvarps- ins Skýringuna á helmingi hærri greiðslum Bylgjunnar til Menning- arsjóðs, segir Jón Óttar vera að auglýsingamarkaður í útvarpi sé mun stærri en í sjónvarpi. Það sé orsökin fyrir því að Stöð 2 sé áskriftarsjónvarp. Obbinn af okkar tekjum kemur úr áskriftum. En Bylgjan, eins og reyndar aðrar út- varpsstöðvar fær allar sínar tekjur af auglýsingum. Við gefum allar okkar tekjur upp til Menningarsjóðs og til söluskatts en það er ekki fyrr en reiknað er upp úr kössunum sem menn vita nákvæmlega hvemig tekjurnar hafa verið. Svo er aftur spuming hvort við höfum haft aug- lýsingataxtana of lága í byijun, reynslan hefur verið sú að auglýs- endur hafa haldið áfram að auglýsa þrátt fyrir hækkanir. Jón Óttar sagði það ekkert laun- ungarmál að hluti tekna stöðvarinn- ar væri í formi vöraskipta, sér í lagi framan af. „Það er allt talið fram. Það væri út í hött að draga vöraskipti frá auglýsingatekjum því þetta era auðvitað tekjur og þá er reiknað með fullu verðgildi þeirrar vöra sem við fáum. Alþjóðlegnr bæna- dagur kvenna 4. mars. (Fréttatilkynning) Lágar greiðslur Stöðvar 2 í Menningarsjóð útvarpsstöðva: Stöð 2 hefur ekki haft tækifæri til að gera hreint fyrir sínum dyrum - segir Indriði G. Þorsteinsson, formaður sjóðsins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.