Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
Fjórðungssamband Norðlendinga:
300% verðmunur á
milli hitaveitna
á Norðurlandi
Frá Akureyri
*
Viðræður Sovétmaiuia og Alafoss-
manna hefjast í dag á Akureyri
Samningamenn Sovéska samvinnusambandsins eru væntanlegir
til Akureyrar í dag til viðræðna við forráðamenn Álafoss um kaup
á ullarvörum. Viðræðurnar munu standa út vikuna og halda sov-
ésku fulltrúarnir aftur heim á leið um helgina. Óvist er með öllu
hvort samningar munu takast að þessu sinni, en að sögn Aðal-
steins Helgasonar, aðstoðarforstjóra, hafa samningamálin lítið sem
ekkert þokast áfram frá því að upp úr slitnaði í Moskvu í janúar-
mánuði.
Hitunarkostnaður hjá Hita-
veitu Húsavíkur er áberandi
lægstur miðað við önnur bæjar-
félög á Norðurlandi. Miðað við
32.000 kWst á ári, sem meðalhús
gjaman nota, var hitunarkostn-
aður á Húsavík í janúar 1987
1.097 krónur á mánuði og þvi
næst 1.332 krónur á Sauðár-
króki. Hitunarkostnaður var
hæstur á Akureyri, 4.454 krón-
ur, en þvi næst kom Siglufjörður
með 3.786 kr. og Blönduós með
3.753 kr. Á sama tíma að ári
liðnu, eða í janúar 1988, var
hitunarkostnaðurinn áfram
lægstur á Húsavik, 1.207 krón-
ur. Akureyri, Sigíufjörður og
Blönduós voru áfram með hæst-
an hitunarkostnað á Norður-
landi, en Blönduós fór nú fram
fyrir Akureyri, eða upp í 4.725
krónur og er því hátt i 300%
dýrara að hita upp á Blönduósi
en á Húsavík. Fjórðungssam-
band Norðlendinga hefur tekið
saman þessar upplýsingar.
Húshitunarkostnaður fyrir með-
alhús hefur hækkað mjög misjafn-
lega á tímabilinu á Norðurlandi.
Mest er hækkunin hjá RARIK eða
um 46,9%. Næst kemur hitaveitan
á Dalvík með um 40,7% hækkun
og hitaveitan á Sauðárkróki með
um 38,1% hækkun. Hinsvegar
lækkaði hitunarkostnaður hjá
Hitaveitu Akureyrar um 2,3% á
tímabilinu, sem má rekja til opin-
berra aðgerða. Hjá Hitaveitu
Húsavíkur og Hitaveitu Hríseyjar
hækkaði hitunarkostnaður um 10%
og hjá Hitaveitu Siglufjarðar um
13%. Kyndikostnaður með olíu
hækkaði um 24,6%, sem er nærri
helmingi minni hækkun en hjá
RARIK.
Við samanburð á kostnaði við
húshitun með rafmagni og olíu á
árunum 1985 til 1988 kemur í ljós
að mikil umskipti hafa orðið. í jan-
úar 1985 kostaði um 2.579 krónur
á mánuði að hita upp meðalhús
með rafmagni á orkusvæði RA-
RIK. Aftur á móti kostaði um
3.224 krónur að kynda með olíu
þá. Milli áranna 1986 og 1987
lækkaði olíuverð úr 11,90 kr./lítra
í 6,90 kr./lítra, sem er um 42%
lækkun. Þá var jafnframt hætt að
greiða svonefnda "olíustyrki. Ra-
forkuverð stóð sem næst í stað
milli áranna 1986 og 1987 og í
fyrra var því orðjð hagkvæmara
að kynda með olíu, en hita með
raftnagni.
Milli áranna 1987 og 1988
hækkaði gjaldskrá RARIK langt
umfram verðhækkanir á olíu á
sama tíma þannig að í janúar 1988
kostar um 4.802 krónur á mánuði
að hita meðalhús með rafmagni,
en 3.569 með olíukyndingu. Mun-
urinn þama nemur 34,5%, en hafa
ber í huga að ekki er tekinn með
rekstrar- né Qármagnskostnaður
af hitunarbúnaði eða tengibúnaði.
Gjaldskrá Landsvirkjunar
hækkaði tvisvar í fyrra, í ágúst
um 9,5% og aftur í desember um
9% og leiðir hækkun Landsvirkjun-
ar til hækkunar hjá RARIK. Áætl-
að er að við hvert 1% sem gjald-
skrá Landsvirkjunar hækkar um
þurfi RARIK að hækka sína gjald-
skrá um 0,5%. Hækkun Lands-
virkjunar á síðasta ári skýrir því
aðeins um 10% af hækkun gjald-
skrár RARIK. Margt bendir til
þess að niðurfelling jöfnunargjalds
á raforku, sem RARIK og Orkubú
Vestfjarða fengu áður í sinn hlut
til þess að bæta þeim upp það
óhagræði sem dreifing og sala á
raforku til lítilla þéttbýlisstaða og
stjálbýlla sveita landsins hefur í för
með sér, hafí leitt til hærra orku-
verðs hjá RARIK. Ljóst er að þær
skuldbindingar sem áttu að jafna
þennan mun hafa ekki náð tilgangi
sínum, það er að koma í stað jöfn-
unargjaldsins, segir meðal annars
í athugunum Fjórðungssambands
Norðlendinga.
Það sem menn deila hvað mest
um er verðlagningin á ullarvörun-
um, en stefna Álafoss er að hækka
útflutningsverð sitt um 20- 40%.
„Okkur greinir auðvitað líka á um
magnið, en við komumst ekki í að
ræða það fyrr en við erum orðnir
sammála um verðið.“ Fulltrúar
Álafoss ræddu við forráðamenn
sovéska ríkisfyrirtækisins Razno í
10% hækkun
dagvistargjalda
Dagvistargjöld á Akureyri
hækkuðu um 10% frá og með 1.
mars. Dagvistargjöld hafa því
hækkað um samtals 25% frá ára-
mótum, en síðast hækkuðu þau
um áramót um 15%.
Dagheimilisrými allan daginn
kostar nú fyrir einstæða foreldra
5.600 krónur og 8.350 fyrir aðra.
Fjórir tímar á leikskóla kosta 3.575
krónur og fímm tímar 4.400 krón-
ur. Fyrir svokölluð hádegisböm
þarf nú eftir hækkun að greiða
5.400 krónur.
Moskvu fyrr á árinu, en eins og
komið hefur fram haldast báðir
þessir samningar í hendur. Gangur
viðræðna nú fer því mikið til eftir
því hvort rætt verður við ríkis-
fyrirtækið á ný. „Hinsvegar ef
hvorki rekur né gengur nú í vik-
unni geri ég ráð fyrir að við verð-
um að taka viðeigandi ákvarðanir
strax upp úr næstu helgi,“ sagði
Aðalsteinn.
Hjá Álafossi starfa um það bil
400 manns. Þá hafa fímm pijóna-
og saumastofur á Iandinu unnið
hvað mest fyrir fyrirtækið og feng-
ið vilyrði fyrir áframhaldandi verk-
efnum, takist samningar við
Rússa. Hinsvegar má búast við
verkefnaskorti hjá þeim ef samn-
ingar nást ekki. Stofur þessar eru
Prýði á Húsavík, Pólarpijón á
Blönduósi, Pijónastofan Auð-
brekku 21-23 í Kópavogi, Dyngjan
á Egilsstöðum og Saumastofan
Hrund á Vopnafírði. Aðalsteinn
sagði að samningamir við Sovét-
menn gætu numið allt frá 15% og
upp í 35% af heildarveltu fyrirtæk-
isins.
Rammasamningur þjóðanna
gerir ráð fyrir samningum við
ríkisfyrirtækið upp á fímm til sex
og hálfa milljón dollara. Hinsvegar
hafa Sovétmenn eingöngu verið
að ræða um 1,2 milljónir dollara
hingað til, eða Ve hluta þess sem
viðræðumar ættu að snúast um.
Þeir samningar, sem nú standa
fyrir dyrum við sovéska samvinnu-
sambandið, eru heldur minni og
gera ráð fyrir ullarkaupum uþp á
þijár milljónir dollara.
Trefladeild fyrirtækisins í Mos-
fellsbæ var lokað um miðjan febr-
úar um óákveðinn tíma. Þeim
þijátíu starfsmönnum, sem þar
vinna, var þó ekki sagt upp störfum
heldur var það að samkomulagi
að þeir færa á atvinnuleysisbætur
auk þess sem Álafoss greiðir
starfsfólki uppbót á þær. í sauma-
deild Álafoss á Akureyri var vinnu-
dögum fækkað úr fímm í þijá á
viku um miðjan febrúar og kemur
það beint við 60 starfsmenn. í
pijónadeild fyrirtækisins er hins-
vegar full vinnsla.
I sameiningarsampingi ullariðn-
aðardeildar SlS og Álafoss hf. var
gert ráð fyrir að eigið hlutafé fyrir-
tækisins yrði 700 milljónir króna,
eða að minnsta kosti 35% af heild-
arfiármagni þess, sem var 2.000
milljónir króna við sameiningu. Nú
stefnir í það að efnahagsreikningur
fyrirtækisins verði nálægt 2.400
milljónum króna þannig að sa.m-
kvæmt 35% reglunni hefur eigið
hlutafé þess hækkað um 140 millj-
ónir króna og stendur nú í 840
millj. kr. Þá hefur Landsbanki Is-
lands lánað fyrirtækinu 70 milljón-
ir króna til viðbótar til að skuld-
breyta stuttum lánum í lengri lán.
Ekki hefur þó verið gengið frá
lánstímanum, að sögn Aðalsteins.
Golfklúbbur Akureyrar:
Fær baktrygg-
ingu bæjarins
BÆJARRAÐ Akureyrar hefur
samþykkt að veita Golfklúbbi
Akureyrar baktryggingu gegn
hugsanlegu tapi á því að halda
eitt af Evrópumeistaramótum
kvenna i golfi að Jaðri í sumar.
Gert er ráð fyrir að mótið kosti
klúbbinn 5,5 milljónir króna og
hefur bæjarráð ákveðið að gefa
út baktryggingu fyrir helmingi
þess fjárhæðar. Leitað verður
eftir sams konar baktryggingu
af hálfu ríkisins.
Eins og fram hefur komið hefur
Golfklúbbi Akureyrar verið boðið
að halda eitt af opnu mótum WPG A,
Women’s Professional Golfers
Association, dagana 4.-7. ágúst nk.
Bæjarráð lýsir yfír stuðningi við
mótshaldið og heitir klúbbnum að-
stoð, verði veralegt tap á móts-
haldinu, segir í bókun ráðsin's.
NÝOG
BETRISÓSA
v kórónu J,
Dreifingaraðili:
Heildverslun
Valdimars Baldvinssonar h/f,
Akureyri. Sími 96-21344.
Fæst íöllurn betri
matvöruverslunum.
Beltanotkun góð, en ljósin
vildu gleymast er birta tók
„Við höfum stöðvað hátt í
600 bíla frá kl. 7 til 16 í gær.
Mönnum gekk nokkuð vel að
muna eftir öryggisbeltunum,
en halla fór á ljósanotkunina
þegar birta tók,“ sagði Matt-
hías Einarsson varðstjóri á
Akureyri í samtali við Morgun-
blaðið í gær, en þá tóku ný
umferðarlög gOdi.
Matthías sagði að frá 7 til 8
í gærmorgun hefðu 168 ökumenn
verið stöðvaðir, átján hefðu verið
beltislausir og aðeins þrír höfðu
ekki ökuljósin kveikt. „Við tökum
auðvitað létt á þessu svona fyrstu
dagana á meðan fólk er að átta
sig, en síðar má búast við sékt-
um,“ sagði Matthías, en hann
vildi ekki tiltaka tímamörkin nán-
ar sem ökumenn hefðu til aðlög-
unar. Hann sagði að ökumenn
hefðu tekið áminningum lögregl-
unnar mjög vel.
Síðasta helgi var nokkuð anna-
söm hjá lögreglunni á Akureyri.
Þrettán ökumenn vora teknir
fyrir of hraðan akstur, sjö gistu
fangageymslur iögreglunnar fyr-
ir ölvun og fjórir árekstrar urðu
um helgina. Þá vora þrír öku-
menn teknir fyrir meinta ölvun
við akstur. Tveir þeirra lentu inni
í húsagörðum, annar á Brekk-
unni og hinn í Glerárþorpi. Ekki
munu þeir hafa lent á íbúðar-
húsunum sjálfum, en töluvert
tjón varð í görðunum.