Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
45-
Ó, þú borg mín,
Jerúsalem
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Larry Collins og Dominique
Lapierre
Útg. Grafton Boooks 1986
Atök og illindi eni áfram á her-
teknu svæðunum í ísrael, það þarf
ekki að fjölyrða um. ísraelskir her-
menn sæta ámæli og gagnrýni fyr-
ir harðneskju sem þeir sýna vopn-
lausum Palestínumönnum, hvort
sem ungviði eða kvenfólk á í hlut.
Það hefur verið hörmulegt að fylgj-
ast með hvað er að gerast á þessu
svæði og ekki er að sjá að neinn
geti fundið þá lausn, sem báðir
aðilar teldu sig geta unað við.
Þessir atburðir eiga sér langan
aðdraganda, rekja má hann að
minnsta kosti aftur til loka heims-
styijaldarinnar fyrri, þegar hin
fræga Balfour-yfirlýsing var gefin
út. Sú yfirlýsing var þó afskaplega
óljós í orðalagi og mátti túlka hana
á ýmsa vegu. Varla er ástæða til
gera því skóna að Balfour lávarður,
utanríkisráðherra Breta, hafi ætlað
sér að láta nota hana til þess að
hrekja Palestínumenn úr því landi,
sem þeir höfðu búið í um aldir. Það
er þvert á móti sennilegt að hann
hafí haldið að með henni væru tvær
flugur slegnar í einu höggi; gyðing-
um veitt land, en þó án þess að
þeim liðist að ganga á rétt þeirra
íbúa sem fyrir voru í landinu. En
gyðingar hafa eins og alkunna er
alltaf túlkað Balfour-yfirlýsinguna
eftir sínu höfði og þeir töldu sig
eiga sögulegan rétt til þessa lands,
sem guð hafði gefið þeim fyrir æði
löngu að vísu.
Þessi bók Collins og Lapierre
virðist ákaflega vandlega unnin.
Hún gerist á viðkvæmum tíma,
þegar líður að stofnun ísraelsríkis
og hún lýsir á eftirminnilegan hátt
viðhorfi þeirra beggja, arabanna og
gyðinganna. Við sögu koma ýmsir
forsvarsmenn ísraelsríkis og raunar
margir kunnir arabar á þeim tíma.
Ég held að það hljóti að vera
nokkum veginn sjálfgefið, að höf-
undamir hafa notið aðstoðar
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Reykjavikur
Nú er lokið tvímenningskeppn-
inni sem' staðið hefír frá því sl.
haust. Raðað var í fjóra riðla eftir
undankeppni.
Lokastaðan í A-riðli:
Guðlaugur R. Jóhannsson —
Öm Amþórsson 519
Sigurður Sverrisson —
Bjöm Halldórsson 513
Jón Baldursson —
Valur Sigurðsson 506
Ragnar Magnússon —
Aðalsteinn Jörgensen 490
Lokastaðan í B-riðli:
Jaquie McGreal —
Þorlákur Jónsson 508
Valgarð Blöndal —
Kristján Blöndal 508
Símon Símonarson —
Guðmundur Páll Amarson 508
Jón Ingi Bjömsson —
Hermann Tómasson 505
0
JERUSALEM!
■A SUPERCHARGED, SPELLBINDING TALE
OF ISRAEL'S BATTLE FORIDENTITY’
LARRY OQLLINS
DOMINIQUE LAPIERRE
AUTHOftS OFTHE FIFTH H0RSEMAN
Kápumynd.
margra þessara manna við skrif
bókarinnar, því að þama er að finna
upplýsingar, sem hvunndags liggja
áreiðanlega ekki á lausu og ótrúlegt
að þau treysti sér til að fara með
þetta efni á bók á þennan hátt,
nema með samvinnu við margt
þetta fólk.
Bókin eykur út af fyrir sig ekki
hvorki samúð með gyðingunum eða
aröbunum í sjálfu sér. Fyrst og
fremst virðist ætlun höfundanna að
draga upp sannferðuga mynd af
atburðum og skýra hvers vegna
sumir þeirra urðu. Hvers vegna
menn brugðu við eða bmgðu ekki
við, eins og þeir gerðu.
Mér þykir það einn helzti kostur
„Ó Jerúsalem" að höfundar taka
ekki afstöðu og þótt kannski ein-
mitt það ergi mann dálítið framan
af; manni finnst nánast óhugsandi
að segja frá þessum atburðum á
hlutlægan hátt, verður það líklega
ekki sízt til að halda huga lesanda
föngnum. Hér er sannarlega ekki á
ferðinni afþreyingabók, hún er
fremur seinlesin og krefst töluverðs
af lesanda sínum. En það gerir líka
allt þetta mál.
En þó að ekki sé bein afstaða
tekin, heldur reynt að sjá skoðanir
beggja og jafnvel skilja þær má
einnig skilja hvílfkt tilfínningamál
þetta er og hve einlæg trú beggja
er á réttmæti málstaðarins.
Maður verður margs fróðari af
að lesa hana og hún sýnir ýmsa
atburði þessara tíma í nýju ljósi.
Hún er því holl lesning, því að það
sem gerðist fyrir fjörutíu ámm á
sér sögulegar forsendur og hlið-
stæður í því sem er að gerast nú.
Lokastaðan í C-riðli:
Jón Þorvarðarson —
Guðni Sigurbjamarson 541
Bragi Erlendsson —
Ríkarður Steinbergsson 525
Ester Jakobsdóttir —
ValgerðurKristjónsdóttir 503
Páll Bergsson —
Guðjón Sigurðsson 501
Lokastaðan í D-riðli:
Björgvin Þorsteinsson —
Guðmundur Eiríksson 540
Lúðvík Wdowiak —
Eyþór 503
Bjöm Theodórsson —
Jón Steinar Gunnlaugsson 498
Hallgrímur Hallgrímsson —
Þorsteinn Ólafsson 494
í kvöld lýkur sveitakeppninni en
ekkert verður spilað 9. marz. Að-
altvímenningur BR hefst svo 16.
marz og verður spilað 23. marz,
6., 13., 20. og 27. apríl og 4. maí
ef mikil þátttaka verður í mótinu.
Skráning er hafin hjá Sævari í
síma 75420 eða Hauki í síma
671442. Hámarksfjöldi paraer 50.
Bridsfélag Kópavogs
Síðastliðinn fimmtudag var 11.
og 12. umferð í sveitakeppni félags-
ins spiluð. Spilin em tölvugefín og
allir spila sömu spilin. Jafnframt
er keppnin Butlertvímenningur og
er þetta spilaflesti Butler sem spil-
aður hefur verið hér á landi, 240
spil alls.
Keppnin er líka firmakeppni og
var fyrsta umferð spiluð þetta
kvöld. Alls em því 3 keppnir í gangi
samtímis.
Staða í sveitakeppninni er þessi:
Grímur Thorarensen 237
Ármann J. Lámsson 226
Jón Andrésson 223
Ingólfur Böðvarsson 217
Ragnar Jónsson 204
IngimarValdimarsson 192
Staða í öðmm keppnum verður
birt síðar. Keppnisstjóri er Her-
mann Lámsson.
Þá er þessi keppni einnig firma-
keppni með þátttöku um 70 fírma.
Staðan eftir fyrsta kvöldið er
þessi:
Þinghóll hf.
(Sigurður Gunnlaugsson —
Guðmundur Gunnlaugsson) 79
Pétur Stefánsson
(Ármann J. Lámsson —
HelgiViborg) 70
Morgunblaðið 55
(Bernharður Guðmundsson —
Ingólfur Böðvarsson) 55
Efnalaugin Björk 47
Þýzk-íslenzka 47
Málning hf. 42
Marbakki hf. 38
Bridsfélag Hornafjarðar
Gestur Halldórsson og Sverrir
Guðmundsson em í forystu í
tvímenningskeppninni sem nú
stendur yfír. Hafa þeir félagar hlot-
ið 538 stig. Fast á hæla þeirra
fylgja Þorsteinn Siguijónsson og
Éinar Jensson með 536 stig.
Næstu pör:
Ámi — Hlynur 527
Baldur — Skeggi 523
Gísli — Guðbrandur 520
Svava — Auður 498
Magnús — Gunnar 483
Meðalskor 495
Næsta umferð er í kvöld.
f
■ I
Við eigum ennþá nokkra Citroén bíla á
Dæmi um verð:
Citroén BX frá 533.000 kr.
Citroén AX, 5 dyra frá 377.000 kr.
Citroén AX, 3ja dyra frá 358.000 kr.
Citroén braggi frá 349.000 kr.
Nú gildir að vera fljótur að ákveða sig!
Citroén - bíll sem sameinar kraft og þægindi.
G/obus/
CITR0EN
GAMLA
VERÐINU
Lágmúla 5, sími 681555