Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
47
Samstaða námsmanna
Hugleiðingar um baráttuaðferðir
eftir ÓlafDarra
Andrason
Þann 18. febrúar sl. stingnr Val-
borg Snævarr, háskólaráðsliði
Vöku, niður penna hér á síðum
Morgunblaðsins og er mikið niðri
fyrir. Eins og títt er um fólk sem
er reitt er þar ýmislegt sett fram
sem ekki er vel rökstutt og stór orð
eru látin falla. Undirrituðum er
gefið margt að sök; svo sem að
bera fram órökstuddar tillögur á
stjómarfundum Lánasjóðs ísl.
námsmanna og reyna síðan á kæn-
an hátt að fá eigin tillögur felldar.
Þar fyrir utan; að vera dónalegur
á fundum, stunda hryðjuverk á
málstað stúdenta, misnota einstæð-
ar mæður, stunda kafbátahemað
og síðast en ekki síst, vera ekki
einstæð móðir!!
Ekki er það ætlun mín að fara
að deila við Valborgu Snævarr á
síðum þessa blaðs, heldur einungis
að upplýsa Valborgu og fleiri fróð-
leiksfúsa lesendur um gang þess
máls sem varð kveikjan að skrifum
háskólaráðsliðans, þ.e. hins svokall-
aða meðlagsmáls.
Forsaga meðlagsmálsins
Sl. vor ákvað meirihluti stjórnar
LÍN að telja bamsmeðlög til tekna
foreldris. Þessu mótmæltu allir full-
trúar námsmanna í sjóðsstjóminni.
Töldu þeir slíkt ákvæði siðferðilega
rangt og bentu einnig á að það
gæti stangast á við lög. Ekki var
þá hlustað á vamarorð námsmanna.
Sl. haust, þegar skólar voru að
hefjast, lögðu fulltrúar námsmanna
fram tillögu þess efnis að umrætt
ákvæði yrði fellt burt, og rökstuddu
tillöguna með því að vísa í dóma
Hæstaréttar þess efnis, að meðlag
væri eign bams en ekki foreldris.
Þessari tillögu var vísað frá án efn-
islegrar umræðu. Þá var þess óskað
af fulltrúum námsmanna að lög-
fræðingur sjóðsstjómar yrði feng-
inn til að gefa lögfræðilega umsögn
um málið. A þá málsmeðferð gat
meirihluti sjóðsstjómar ekki heldur
fallist. Námsmenn sáu þá að frekar
varð ekki aðhafst innan stjómar
LÍN. Stúdentaráð leitaði því álits
Lagastofnunar Háskóla íslands.
Álit Lagastofnunar barst í lok nóv-
ember og var ótvírætt: Stjóm sjóðs-
ins skorti lagaheimildir til að setja
umrætt skerðingarákvæði í úthlut-
unarreglur.
Stjóm Stúdentaráðs, í samráði
við hinar námsmannahreyfingam-
ar, sendi hæstvirtum menntamála-
ráðherra bréf þann 16. desember
og kynnti honum lagaálitið og ósk-
aði jafnframt eftir því að hann gripi
inn í og beitti sér fyrir leiðréttingu.
í framhaldi af þessu ritaði ráðherra
stjóm LÍN bréf og óskaði, með til-
vísan í álitsgerð Lagastofnunar,
eftir því að sjóðsstjómin félli frá
því að telja meðlög til tekna foreldr-
is frá og með næsta skólaári. Á
fyrsta fundi stjómar LÍN eftir ára-
mót var bréfi ráðherra dreift, en
formaður sjóðsstjómar óskaði eftir
því að bréfíð yrði ekki rætt efnis-
lega.
IMiIHnUBIX
UOSRITUNARVELAR
Tillaga námsmanna-
hreyfinganna
Fulltrúar námsmanna í stjóminni
fluttu þá tillögu þess efnis að um-
rætt ákvæði yrði þegar fellt út úr
úthlutunarreglum og skerðingin
sem af því hefði hlotist, leiðrétt
með afturvirkum hætti við útgáfu
næstu skuldabréfa eða með sér
skuldabréfí ef nauðsyn krefði. Þessi
tillaga byggðist að því að telja yrði
umrætt ákvæði mistök, þar sem það
ætti sér ekki stoð í lögum og skv.
eðlilegum starfsháttum LÍN bæri
að leiðrétta mmistök við fyrsta
tækifæri eftir að þau hefðu sannast.
Undirritaður hafði kynnt þessa
tillögu efnislega á fundi í Stúdenta-
ráði og höfðu þar engar athuga-
semdir komið fram frá fulltrúum
Vöku. Það var ekki fyrr en á næsta
fundi Stúdentaráðs (eftir að tillaga
námsmanna var felld í stjóm LÍN)
að Valborg Snævarr hóf sinn reiði-
lestur, sem síðan náði hámarki í
umræddri Morgunblaðsgrein þann
Ólafur Darri Andrason
„Stjórn sjóðsins skorti
lagaheimildir til að
setja umrætt skerðing-
arákvæði í úthlutunar-
refflur.“
Eðlileg málsmeðf erð
Eftir að undirritaður hafði rýnt
í gegnum reiðilestur Valborgar og
síað út efnislega gagnrýni þá stóð
aðeins eitt eftir: Valborg Snævarr
var ekki sátt við að tillagan, sem
allir fulltrúar námsmanna stóðu að,
hefði falið í sér afturvirka leiðrétt-
ingu. Að hennar mati hefði slíkt
átt að bíða, þar sem ráðherra hefði
ekki mælst til slíks með beinum
hætti, né heldur hefði álit Laga-
stofnunar tekið á því atriði. Hér
gætir verulegs misskilnings hjá
Valborgu. Fulltrúar námsmanna í
stjóm LÍN litu svo á að þar sem
Lagastofnun teldi hér um skýlaus
lögbrot að ræða og ráðherra hefði
efnislega fallist á umrætt lagaálit,
með bréfi sínu til stjómar, væri hér
um mistök LIN að ræða og eins
og áður hefyr verið rakið er það
venja hjá LÍN að leiðrétta mistök
þegar þau verða uppvís. Þessi til-
laga var því fullkomlega eðlileg.
Pólitík Vöku gegu
hagsmunum stúdenta
Það er sýnu alvarlegra, þegar
einn af málssvömm okkar náms-
manna í hagsmunabaráttunni, Val-
borg Snævarr, skuli fagna því að
tillagan frá öllum fulltrúum náms-
manna í stjóm LÍN var felld. Tillag-
an, sem fól í sér farsæla lausn á
þessu leiðindamáli. Það er sorglegt
þegar einstaklingur, sem Valborg
Snævarr, tapar sér í pólitískum
hráskinnaleik og ræðst með offorsi
á sameiginlega vinnu námsmanna-
hreyfínganna. Með þessu brambolti
sínu hefur Valborg stillt sér upp
við hliðina á fulltrúum ríkisvaldsins
í stjóm LÍN (sem þó settu umrætt
ákvæði í úthlutunarreglur), og berst
nú hatrammri baráttu gegn samein-
uðum námsmannahreyfíngum, þ.e.
meirihlutanum í SHÍ, SÍNE og
BÍSN, gegn hagsmunum náms-
manna. Það er skrýtið hvemig
pólitík getur farið með sumt fólk.
Það skyldi þó aldrei spila inn í að
Valborg Snævarr er með þessu að
verja tvo pólitíska samheija í stjóm
LÍN, fyrmm Vökuformennina Sig-
urbjöm Magnússon, stjómarfor-
mann, og Steingrím Ara Arason,
fulltrúa fjármálaráðherra í stjóm-
innj.
Ég segi nú bara eins og kerling-
in, skrýtin tík þessi pólitík.
Höfundur er fulltrúi SHÍ í stjóm
LÍN.
'-ý'SÍ'jf-tÍ'i'.
;v.
'l','s,
' - "v' - " \ •
l "
" 'I
. 1 N <
\'\. v /
urJ';
t
m /\
N/-\/
- I ' -\n*\ , - /
x \ - x V 7 i N / .
\ N / V-, - _
7
^\/ \ — ~ /
HUSMUNAVERSLUN
-; - ',\
ENGJATEIG I 9
REYKJAVlK
S f M I 68 91 55
- \-\v»;v'-v*»vn'-. ffói-i//
., /\ ;< ;/, —. — — 'i ' .. x j\ i .' /\ /\ t "/' _
V r/J \/'0" ^ /Y- V/ y>Z\; > \
\/ .n" 'y , ■>> V «_ Q/ -V T'L'\ - >/n"/