Morgunblaðið - 02.03.1988, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 2. MARZ 1988
55
Þorvaldur Þorvaldsson sem keppti á Tvífara frá
Gerðum í yngri flokki unglinga var einn af þeim
heppnu sem komst inn á sýninguna og tók hann
þátt í æfingunni á sunnudagskvöldið.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Reynir Aðalsteinsson á brúnni hryssu frá Sveinat-
ungu sem tekur þátt í kynbótasýningunni.
Fánareið Félags tamningamanna þykir ómissandi á sýningum sem
„Hestadögum" og hér fara tamningamenniroir mikinn.
Hestadagar í Reiðhöllínm um næstu helgi:
Glæsilegasta
hestasýning
framtflþessa
- segir framkvæmdastjóri Reið-
hallarinnar, Gylfi Geirsson
________Hestar_______________
Valdimar Kristinsson
„ÞETTA verður glæsilegasta
hestasýning sem sett hefur verið
upp til þessa,“ sagði Gylfi Geirs-
son framkvæmdastjóri Reiðhallar-
innar þegar umsjónarmaður þátt-
arins spjallaði við hann vegna
„Hestadaga*1, sem haldnir verða i
Reiðhöllinni 5. og 6. mars nk.
Það er Reiðhöllin hf. sem stendur
fyrir þessari sýningu ásamt Félagi
hrossabænda, Félagi tamninga-
manna, Búnaðarfélagi Islands, Stétt-
arsambandi bænda, Landsambandi
hestamannafélaga og íþróttaráði .H.
Er þetta fyrstu „Hestadagar" af
þremur sem ákveðið hefur verið að
halda í byijun mars, apríl og maí.
Alls verða fjórar sýningar haldnar
fyrstu sýningarhelgina, tvær hvom
daginn og hefjast fyrri sýningamar
klukkan 15.00 ogþærseinni klukkan
21.00 báða dagana.
Unnið er nú dag og nótt við að
ganga frá áhorfendastæðum svo
mögulegt verði að bjóða öllum gest-
um upp á sæti meðan á sýningum
stendur. Gylfí sagði að aldrei fyrr
hafí jafn mikið verið lagt í nokkra
hestasýningu hérlendis svo telja
mætti víst að þetta verði besta sýn-
ingin til þessa. Einnig sagði hann
að aðstandendur hafí gert miklar
kröfur til sýningaratriða og hafí þeir
verið óragir við að kippa út atriðum
sem ekki hafa staðist ýtmstu kröfur.
Æfíngar hófust fyrir mánuði og
þegar blaðamann bar að garði á
sunnudag vom unglingar frá sex
hestamannafélögum á höfuðborgar-
svæðinu að keppa um það sín á milli
hveijir fá að taka þátt í sýningunum.
Keppt var í tveimur aldursflokkum
og fá sex krakkar í hvomm flokki
að koma fram á sýningunum. Ríkti
þar mikil eftirvænting og greinilegt
að alla þá 36 unglinga sem þama
kepptu langaði til að komast á sýn-
inguna. Mikill fjöldi fólks safnaðist
þama til að fylgjast með prúðbúnum
og vel ríðandi krökkunum. Um kvöld-
ið var fyrsta sameiginlega æfíngin
hjá þeim sem taka þátt í sýningunni
og mátti þar sjá marga góða hluti
svo sem þegar Benedikt Þorbjöms-
son sýndi gangskiptingar hests í
taumi og lýsti á þá með svokölluðu
eltiljósi (spotlight). Við sömu aðstæð-
ur mun Reynir Aðalsteinsson leggja
hryssu eina og er þá ekki átt við að
hann leggi hryssuna á skeið heldur
mun hann leggja hana á hliðina og
hefur slíkt aldrei verið framkvæmt á
sýningu hérlendis fyrr. Ýmislegt mun
verða gert fyrir bömin því þama
munu mæta Andrés önd og félagar,
Bakkabræður koma og að sögn munu
þeir væntanlega leita sér kvonfangs,
því heyrst hefur að tvær yngismeyjar
úr „Tungunum" sem gerðu garðinn
frægan fyrir nokkrum árum ætli sér
að mæta.
Af öðrum atriðum má nefna sýn-
ingu Félags tamningamanna sem
hefur notið mikilla vinsælda í gegn-
um tíðina og verða þeir með bæði
töltsýningu og fánareið. Skeiðsýning
verður og tólf til sextán úrvals kyn-
bótahross, eins og það er orðað á
auglýsingaplakati, munu koma fram,
bæði stóðhestar og hryssur. Hindran-
arstökk og kerraakstur mætti einnig
nefna og sölusýningu þar sem ein-
göngu verða sýnd valin góðhross.
Búast má við að á „Hestadögum í
Reiðhöllinni" verði eitthvað fyrir alla
jaftit almenning sem hestamenn og
óhætt að hvetja sem flesta til að
mæta á þessa framraun „Reiðhallar-
innar".
Brúna hryssan hans Reynis kemur víðar við en i kynbótasýningunni
þvi Reynir og sonur hans leggja þá brúnu & hliðina i sérstöku atriði
og sá stutti bregður sér á bak og hryssan stendur á fætur. Þetta
atriði tókst með miklum ágætum á æfingunni á sunnudag.
iTJÓRNUNAR
wii
STOFNUN NYRRA FYRIRIÆKJA 9.3.
INNRITUNTIL
7.MARS
SIMI:
621066
HVERNIG VELUR PÚ HAGSTÆÐASTA
REKSTRARFORMIÐ
OG SNEIÐIR HJÁ FALLGRYFJUM
Á MÓTUNARTÍMANUM?
HELSTU EFNISÞÆTTIR:
• Mismunandi rekstrarform. • Fjárhagsleg ábyrgö
stofnenda. • Fjárhagsleg áhætta. • Möguleikar á öflun fjár. • Væntanleg
arösemi. • Stefnumótun. • Áætlanagerð. • Opinber skráning fyrirtækja.
Rekstrarhagfræöingur mun halda fyrirlestur um einstaka þætti og
taka þátt í umræöum og fyrirspurnum.
LEIÐBEINANDI: Pétur Þ. Sigurðsson, héraðsdómslögmaður.
TÍMI OG STAÐUR: 9.-11. mars kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15.
10.3.
INNRITUN TIL
8.MARS
SÍMh.
621066
MATA SKOÐANA- 06
MARKAÐSKÖNNUNUM
HVERT ER AUT VIÐSKIPTAMANN-
ANNA Á ÞÉR OG ÞINNI VÖRU?
Getur bætt þekking á þörfum neytenda og áformum
þeirra fært þér forskot í samkeþþninni og aukið
hagnaðinn? Þátttakendur semja spurningalista, taka
úrtök og vinna úr niðurstöðum.
LEIÐBEINANDI: Dr. Benedikt Jóhannesson, tölfræðingur.
TÍMI OG STAÐUR: 10.-11. mars kl. 13.30-17.30 að Ánanaustum 15.
TIME MANAGER I 7.3.
NOKKUR SATI ERU LAUS A NAMSKEIÐINU 7.-8. MARS
NYTTU HUGANN BETUR
ÍBRAIN MANAGER)
INNRITUN TIL
4. MARS
SÍMI:
621066
HÆFNl HUGA PÍN EYKST, LÆRIR PÚ
AÐ BEITA HONUM SKYNSAMLEGA
Afkastageta vex, sem og álagshæfni, lestrarhraði og
skilningur, svo nokkuð sé nefnt.
LEIÐBEINANDI: Anne Bogelund-Jensen, aðalleið-
beinandi hjá Time Manager International.
TlMI OG STAÐUR: 7.-8. mars kl. 9.00-17.00 að Hótel Loftleiðum,
Víkingasal
7.3.
STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKIR FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í ÞESSUM NÁMSKEIÐUM.
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 Sími; 6210 66