Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 60

Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 60 Minning: Einvarður Hallvarðsson fv. starfsmannasljóri Fæddur 20. ágúst 1901 Dáinn 22. febrúar 1988 í dag fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, útför Einvarðar Hall- varðssonar, fyrrum starfsmanna- stjóra Landsbanka íslands og Seðlabanka íslands. Hann andaðist í Landakotsspítal- ^anum í Reykjavík, mánudaginn 22. fyrri mánaðar eftir allöng og þrálát veikindi, á áttugasta og sjöunda aldursári. Einvarður Hallvarðsson fæddist í Skutulsey í Hraunhreppi í Mýra- sýsiu, 20. ágúst 1901. Foreldrar hans voru Sigríður Gunnhildur Jónsdóttir og Hallvarður Einvarðs- son, búendur þar. Skutulsey var ekki stór eyja en kostajörð á þeim tíma með góðum hlunnindum. Skut- ulsey hefír í mörg ár að undanfömu verið í eyði. Einvarður var næstelstur sjö systkina sinna, aðeins 11 ára gam- all er faðir hans andaðist, þá 41 árs að aldri. Það gefur auga leið að hart hafí verið í þá daga í búi ekkjunnar í Skutulsey, með stóran bamahóp í ómegð. Bömin þurftu því ung að hefja daglega lífsbaráttu og þræða menntabrautina, en það var einlægur ásetningur þeirra allra. Ég kynntist síðar meir persónu- lega þremur bræðmm Einvarðar, Jónatani, fyrrverandi hæstaréttar- dómara, Jóni, fyrram sýslumanni Snæfellinga og Siguijóni, skrif- stofustjóra lögreglustjórans í Reykjavík. Þeir eru aliir látnir. Bræður Einvarðar vora honum líkir að gerð, bráðgreindir og ákveðnir að afla sér með skólagöngu árang- urs á menntabraut. Þeir urðu allir þjóðkunnir athafna- og dugnaðar- menn. Einvarður hleypti heimdraganum 18 ára gamall 1919, og settist í 1. bekk Flensborgarskólans í Hafn- arfírði, sem í þá tíð og ávallt síðar hefír verið talinn fyrirmyndarskóli, úrvals kennara og nemenda. Ein- varður lauk lokaprófi úr Flens- borgarskóla 1921. Sama haust settist hann í fjórða bekk Menntaskólans í Reykjavík og lauk þaðan prófí með lofsverðum vitnisburði vorið 1922. Fátækt og féleysi aftraði Ein- varði áframhaldandi sókn á náms- brautinni á þessum áram. Hann hvarf til starfa á sjó og réðst í hásetastörf á togaranum Ými hjá Ágústi Flygenring í Hafnarfírði. Skipstjóri var Siguijón Mýrdal. Síðar var hann í skipsrúmi hjá al- kunnum ágætismanni, Ingvari Ein- arssyni, skipstjóra á Glað, skipi Magnúsar Blöndal í Reykjavík. Ing- var var síðar skipstjóri á ísafírði, faðir Einars Ingvarssonar, fyrram bankastjóri á ísafirði. Á áram Einvarðar í togararúmi vora engin sældarkjör að sækjast eftir slíkri vinnu. Vinnustundir vora 18 í hveijum sólarhring, aldrei helg- arfrí eða laugardagslokun. Með samansafnaða hásetahýr- una í vasanum ákvað Einvarður að hefja undirbúning að stúdentsprófi, er hann lauk utanskóla vorið 1925. Næstu þijú árin vann hann ýms störf, er til féllu á sjó og í landi. Sveitastörf á heimili móður sinnar á sumram og einnig við heimilis- kennslu austanfjalls á sveitabæjum milli þess að hann sótti sjóinn jafn- fast og áður. Árið 1928 réðst Einvarður í þjón- ustu Landsbanka íslands í afleys- ingavinnu að sumarlagi, en 6. júní 1929 réðst hann fastur starfsmaður í þjónustu Landsbanka íslands og starfaði þar til ársloka 1971, eða í rúm 42 ár. Einvarður Hallvarðsson hafði með höndum margþætt starf innan bankans og á vegum hans innan annarra stofnana. Eftir að gjaldeyrisnefndin tók til starfa 1931, réðst Einvarður skrifstofu- stjóri nefndarinnar og fulltrúi Landsbanka íslands í nefndinni. Þegar þáverandi formaður nefndar- innar, Skúli Guðmundsson, alþing- ismaður, lét af formennsku 1937, tók Einvarður við störfum formanns nefndarinnar og allt til þess að nefndin hætti störfum 1942. Á kreppuáranum var það vanda- samt starf og oftast vanþakklátt að deila með landsins börnum hin- um eftirsótta og takmarkaða gjald- eyri, er þá aflaðist með afrakstri atvinnuveganna, sem á þessum áram fór síminnkandi. Mér er kunnugt að þrátt fyrir oft á tíðum háværar óánægjuraddir í garð nefndarinnar og starfsemi hennar, vora Einvarði aldrei bornar þær sakir, að hann beitti hlut- drægni í starfí. Þvert á móti varð ég þess var, að allir, er til mála þekktu bára á hann lof fyrir lipurð og góða fyrirgreiðslu. Einvarður hóf aftur störf innan veggja Landsbanka íslands eftir að gjaldeyrisnefnd var lögð niður og var deildarstjóri til ársins 1956. Á sama tíma var hann ráðinn for- stöðumaður gjaldeyriseftirlits bankanna til 1. maí 1956. Frá þeim tíma var hann ráðinn starfsmannastjóri Landsbankans til 31. desember 1971. Einnig Seðla- bankans um skeið. Einvarður Hallvarðsson tók mik- inn og óeigingjaman þátt í félags- störfum starfsmanna Landsbanka íslands öli þau ár, er hann starfaði á þeirra vettvangi. Hann var fyrsta sinni kjörinn í stjóm félagsins 1931 tii ársins 1937 og formaður félags- ins frá 1943 til ársins 1949. Félagsstörf vora Einvarði mjög hugleikin og hefir að mínu mati starfað meira að frama félagsmála bankamanna en aðrir, er ég þekki til. Hann vann ótrauður að stofnun Sambands íslenzkra bankamanna. 30. janúar 1935 og átti sæti í fyrstu stjóm samtakanna. Alls var hann sex ár formaður samtakanna og átti sæti í stjóm þeirra í fímm ár. Einvarður Hallvarðsson átti sæti í fyrstu stjóm Norræna banka- mannasambandsins. Ýmis önnur félagsmál hefír Ein- varður látið sig máli skipta af sömu atorku og áhuga og honum er lagið þegar hann leggur góðu máli ötult lið. Eigi skal sá liður tæmdur í þessu greinarkomi. Hinsvegar er mér kunnugt að í 15 ár var hann í sóknamefnd Nes- kirkju og vann öflugt og fómfúst starf að hinni glæsilegu kirkjubygg- ingu á Melunum. Einvarður var einn af stofnend- um fyrsta Lionsklúbbs Reykjavikur, hins fyrsta á íslandi, stofnaður 1951. Umdæmisstjóri reglunnar á íslandi 1957-58 og 1969-70. Kjörinn heiðursfélagi samtakanna 1965. Hann var sæmdur hinni íslenzku Fálkaorðu 1981. Öll störf að vexti og framgangi félagsmála bankamanna vann Ein- varður af einlægri trúmennsku og vandvirkni. Hann skráði sögu Sam- bands íslenzkra bankamanna 1935—45, Qöratíu ára sögu sam- takanna, er út kom 1983. Var hann sæmdur æðsta heiðursmerki sam- takanna, gullmerki SÍB. Leiðir okkar Einvarðar lágu sam- an um farveg félagsmála banka- manna í nær hálfa öld og kann ég aðeins frá góðu einu að segja í sam- skiptum við jafn heilsteyptan sam- starfsmann. Hann var góðmenni að upplagi og vildi öllum vel gera. Sjálfum sér gleymdi hann frekar. Fyrir rúmum 40 áram 1946 fór- um við Einvarður saman í fyrsta sinn á þing Norrænna bankamanna, sem þá var haldið í Helsinki, höfuð- borg Finnlands. Síðar urðum við oft ferðafélagar á slík mót í höfuð- borgum hinna Norðurlandanna. Með honum var ávallt ánægjulegt að ferðast. Sjálfur sagðist hann hafa aflað sér á langri lífsbraut mikilsverðrar reynslu og þroska við margþætt störf og eiga aðeins góðar minning- ar um yfírboðara sína í bankanum og samstarfsmenn auk fjölda ann- arra, er hann hafí mætt við skyldu- störf og tómstundaiðju. Einvarður Hallvarðsson kvæntist 4. maí 1929, Vigdísi Jóhannsdótt- ur, trésmíðameistara, Hafliðasonar. Hún lifir mann sinn, ásamt þremur bömum þeirra, Hallvarði ríkissak- sóknara, sem er kvæntur Erlu Magnúsdóttur. Jóhanni alþingis- manni, kvæntur Guðnýju Gunnars- dóttur og Sigríði, gift Gunnari Bimi Jónssyni, rekstrarhagfræðingi. Ég votta eiginkonu, bömum og öllum ættingjum Einvarðar Hall- varðssonar innilega hluttekningu og samúð á tregastundu. Ég kveð með þakkarhug góðan og sannan vin. Adolf Björnsson Leiðrétting í minningargrein um Martin Chr. Frederiksen vélstjóra hér í blaðinu í gær féll niður fæðingardagur hans og dánardægur. Hann var fæddur 25. maí 1910. Hann lést 24. febrú- ar síðastliðinn. Beðist er velvirðing- ar á þessum mistökum. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, GÍSLI BLÖNDAL fyrrv. hagsýslustjóri ríkisins, sem lést í Bandaríkjunum 19. febrúar, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 2. mars kl. 13.30. Ragnhelöur J. Blöndal, Jón Ragnar Blöndal, Sveinbjörn Blöndal. t ARNVIÐUR ÆVAR BALDURSSON garðyrkjubóndi, Hvoli II, Ölfusi, lést 29. febrúar. Sigrfður Ellertsdóttir, Gunnar Baldursson, Rúnar Baldursson, Geröur Baldursdóttir, Haukur Baldursson, Óttar Ægir Baldursson. t Eiginkona mín,- móöir og dóttir, UNNUR RAGNHILDUR LEIFSDÓTTIR, Kambaseli 53, Reykjavík, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarkort Heilaverndar sem fást í Holtsapóteki, Hafnarfjarðarapóteki, Runna, Hrisateig og Dögg, Álfheimum. Þóröur Höskuldsson, Leifur Orri, Leifur Steinarsson, Ingibjörg Brynjólfsdóttir. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför, SÍMONAR JÓHANNS HELGASONAR, Túngötu12, isafiröi. Elfsa Elfasdóttir, Kristfn Sfmonardóttir, Jóhann Hauksson, Sigrfður Sfmonardóttir, Jón Guðbjartsson, Elfsa Sfmonardóttir, Árni Helgason, Stefán Sfmonarson, Steinunn Sölvadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Þökkum öllum sem vottuöu okkur samúð og aðstoöuöu okkur við útför bróöur okkar, STEFÁNS STEFÁNSSONAR, Vfk f Mýrdal. Guö blessi ykkur. Málfrfður Helgadóttir, Eyrún Helgadóttir, Einar Helgason. t Föðursystir mín, INGILEIF HELGA GUNNLAUGSDÓTTIR, lést í Elliheimilinu Grund 25. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 14.15. Fyrir hönd ættingja, Leifur H. Magnússon. t Faöir minn, GÍSLI HÓLMBERGSSON, Isafiröi, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á fsafirði mánudaginn 29. febrúar. Fyrir mína hönd, systkina minna og annarra aöstandenda, Kristmundur Gíslason. t Bróðir okkar og mágur, GUÐMUNDUR JÓNSSON (MUGGUR), Lækjarkinn 4, Hafnarfirði, andaöist að morgni þriöjudags 1. mars í Sólvangi, Hafnarfiröi. Systkin og tengdasystkin. Faðir okkar, t RAGNARKONRÁÐSSON frá Hellissandi, andaðist í Dvalarheimilinu Hrafnistu Reykjavík, þann 29. febrúar. Börnin. t GUNNAR ÓLAFSSON, blfrelðarstjóri, Frakkastfg 6a, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 15.00. Hulda Gunnarsdóttir, Ólafur Gunnarsson, Elsa Benjamfnsdóttir, Elfsabet Gunnarsdóttir, Júlfus P. Guðjónsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Bragi Hannesson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Björn R. Einarsson. t Innilegar þakkir sendi ég þeim er sýndu mér samúð og vinarhug við andlát og útför systur minnar SVÖVU JÓN ASDÓTTUR, Mánagötu 12. Klara Jónasdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.