Morgunblaðið - 02.03.1988, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
fclk í
fréttum
TISKA
Tískan er duttlungafúllur og
harður herra. Þeir sem fylgja
tískusveiflum hvað fastast eftir
þurfa að eyða í það miklum tíma
og vangaveltum. Sumir segja að
nú sé allt í tísku, en samkvæmt
ströngustu fyrirmælum hönnuða
Erfitt að ákveða sig
frá París, Mílanó og New York eiga
konur annað hvort að klæðast stutt-
um pilsum eða dragsíðum við hátí-
ðleg tækifæri. Setur þetta ýmsar
mektarmeyjar í vanda, því að erfítt
getur reynst að ákveða hve nálægt
gólfí pilsfaldurinn skuli vera.
Lausn vandans er þó ekki langt
undan. Eins og sjá má á myndunum
hafa ýmsir tískuhönnuðir fallist á
þá málamiðlun að piisin séu bæði
síð og stutt, en ekki einungis annað
tveggja.
Breska leikkonan Jane Seymore
kom til frumsýningarveislu í
Hollywood í hvítum kjói með
slöri.
Kari Qviberg frá Stokkhólmi
gifti sig í knallrauðum kjól, stutt-
um að framan og síðum að aftan.
Kjóll Díönu vakti athygli í Munc-
hen fyrir skömmu.
Hljómsveitin
Síðan skein sól
lætur í sér heyra
Siðan skein sól á tónleikum í Árseli um síðustu helgi. Hljómsveitin spilar í Feliahelli 18. mars.
Hljómsveitin Síðan skein sól
mun á næstunni halda tón-
leika í félagsmiðstöðvum og fram-
haldsskólum, þar sem myndasýning
og tónlist mynda eina heild. Helgi
Bjömsson söngvari hljómsveitar-
innar útskýrði málið fyrir Fólki. í
fréttum. Kvað hann hljómsveitina
hafa verið stofnaða fyrir rúmu ári
og eftir örlítið spilerí síðasta vetur
hafí starfsemi hennar legið niðri.
“Við tókum svo upp þráðinn um
síðustu áramót og höfum unnið að
því síðustu tvo mánuðina að setja
saman dagskrá, semja efni.“
“Við höfðum það að leiðarljósi
að byggja dagskrána þannig upp
að úr yrði heilleg sýning," sagði
Helgi. “Þótt ekki sé sögð saga með
ákveðnum efnisþræði er um að
ræða tilfínningastef sem tengjast á
einn eða annan hátt. Á meðan við
spilum fer fram myndasýning á
tjaldi fyrir aftan okkur. Við í hljóm-
sveitinni erum að þróa þetta form,
viljum búa til farandsýningu sem
höfðar til fleiri skilningarvita en
vant er á rokktónleikum hér. Svona
tónleikar rúma nefnilega fleiri en
eina listgrein. Leiklist, myndlist,
tónlist, gjömingur - allt getur þetta
átt heima á rokkkonsert. Eflaust
eigum við eftir að kippa fleiri ele-
mentum inn í þegar fram í sækir."
Hljómsveitina Síðan skein sól
skipa þeir Jakob Magnússon bassa-
leikari, Eyjólfur Jóhannsson gítar-
leikari og Ingólfur Sigurðsson
trommuleikari auk Helga Bjöms-
sonar. Að sögn Helga semja þeir
félagar lögin í sameiningu, þannig
að heildarsvipurinn verður sterkari.
Eftir að lag verður til semur Helgi
texta sem honum finnst endur-
spegla tilfínninguna í því. “Tilfínn-
ingin í laginu er líka það sem öllu
máli skiptir..."