Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 67

Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 67 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 _ FRÁ MÁNUDEGI m, TIL FÖSTUDAGS Drögnm verulega úr saltdreifingu Til Velvakanda. Mikil umræða hefur verið í fjölmiðlum um nagladekk síðustu mánuði, eða eftir að gatnamála- stjórinn í Reykjavík skar upp herör gegn notkun þeirra nú í haust hér í Reykjavík. Eftir alla þessa umfjöllun er það þó álit flestra sem um þessi mál hafa fjallað, að nagladekkin séu það öruggasta í dag til að komast leiðar sinnar og stöðva bifreið örugglega í hálku, miðað við íslenskar aðstæð- ur, ef undan eru skildar snjókeðjur. Þetta kemur fram í nær allri um- flöllun um þessi mál bæði í ræðu og riti. Allir hljóta þó að vera sammála um það að nagladekk slíta malbiki meira en ónegld dekk. Eru ekki nagladekkin aðalorsökin? Um það snýst málið. Nær allir sem um þessi mál hafa fjallað eru sammála um, að saltið, sem ausið er á gatnakerfi borgar- innar, sé ein aðalorsökin fyrir því hvað malbikið spænist upp af göt- unum. En margt fróðlegt hefur komið fram í þessari umræðu allri. í erindi sem Erling Hansen, yfir- verkfræðingur norsku vegagerðar- innar.flutti á ráðstefnu, sem haldin var á Hótel Sögu, 2. október sl. kom m.a. fram, að í Noregi aka 97% allra fólksbíla og 63% allra vörubíla og sendibíla á nagladekkjum og þar er hraðinn miklu meiri en hér á landi. Af þessum sökum ætti slit á malbiki að vera meira í Noregi en hér á landi, en það hefur ekki kom- ið fram í þessari umræðu. Hér á landi er mjög sjaldgæft að vörubif- reiðar aki á nagladekkjum og mér skilst að aðeins 65% allra fólksbíla aki á nagladekkjum hér á landi. Hinn norski sérfræðingur segir, að erfítt sé að bera saman aðstæð- ur hér og í Noregi, en aðstæður séu þó líklega svipaðar hér og í Berg- en. Þar sé reiknað með að malbik endist í 15 ár en aðalumferðargötur þurfi að malbika á 2ja til þriggja ára fresti. Hér í Reykjavík er nán- ast allt aðalgatnakerfíð í rúst eftir veturinn. Þegar hinn norski sérfræðingur var spurður um áhrif saltsins á malbikið, vildi hann ekki móðga neinn en sagði, að líklega væri malbikið hér lélegra en í Noregi, en taldi þó, að í bleytu slitnaði það meira en í þurrki. í sjónvarpsþætti um þessi mál, sem Ómar Ragnarsson stjórnaði, eða réttara sagt skemmtiþætti, kom fátt nýtt fram. Þó fraus brosið á mörgum Reykvíkingnum, þegar Ingi Ú. Magnússon tilkynnti, að keyptur hefði verið fímmti saltaust- ursbfllinn og hann lofaði okkur Reykvíkingum því, að með honum ætti að salta íbúðargötur og inn- keyrslur. Hefði nú ekki verið nær að nota þessar milljónir til merkinga á gatnakerfí borgarinnar, sem nær allar eru í megnasta ólestri? Ég er einn þeirra mörgu, sem oft hef skrifað um og gagnrýnt saltaustur gatnamálastjóra á akbrautir og gangstéttir hér í Reykjavík og bent á alla þá eyðileggingu og óþrifnað, sem saltið veldur. Nú síðustu mán- uði hafa margir tjáð sig um þennan saltaustur og hef ég engan séð eða heyrt mæla honum bót. Má m.a. nefna ágætar greinar í Tímanum eftir Kristin Snæland, margreyndan ökumann, og athyglisverða grein í DV eftir Alfreð Þorsteinsson. Þá ritar Þorvaldur Örn Ámason athyglisverða grein í DV þann 11.11. sl. Hann vill að visu banna notkun negldra hjólbarða og færir rök fyrir. En hvað segir hann um saltið? Hann vill líka banna notkun þess eða takmarka mjög. Hann seg- ir: „Ég sé ekki að það þurfi að salta öllu meira jafnvel þótt hætt yrði að aka á nagladekkjum, mér fínnst þessi saltaustur reyndar hafa verið langt úr hófí fram og það finnst fleirum. Sjálfsagt þarf að salta brekkur þegr hált er, en hvers vegna er verið að salta hallalausar götur í tíma og ótíma? Nagladekk og söltun gatna fer ákaflega illa saman, nagladekkin spæna götum- ar enn hraðar upp, ef þær em salt- bomar." Starfsmenn gatnamálastjóra hafa lítið getað dmllumallað í vetur vegna snjóleysis, sem betur fer, fyrr en nú síðustu vikur. Fyrsti snjórinn féll hér í Reykjavík að morgni 6. janúar sl. Þá var 9 stiga frost hér kl. 6. Strax hófst söltun. Þann 7. janúar var 6 stiga frost kl. 6 og enn var saltað. Þó held ég að saltgleði þessara manna hafi slegið öll met dagana 17., 18. og 19. jan- úar sl. Þessa daga var frost á bilinu 3 til 4 stig hér í Reykjavík. Þó hef- ur Ingi U. Magnússon marg stað- hæft í blöðum að aldrei væri saltað í 5 stiga frosti. Fyrir nokkru var spurt um vísu- helminginn „Þar sem grasið grær að dyrum/gestristnin á ekki heima“. Margir höfðu sam- band. Vísan er eftir Jóhannes Sigfússon, sem bjó á Skjögastöð- um í Fljótsdalshéraði, en honum varð að orði um bæ þar sem lítil gestrisni var sýnd: Siði manna síst ég spyr um sannleiksgögnin að mér streyma. Þar sem grasið grær að dymm gestrisnin á ekki heima. Vísuhelmingurinn minnti marga á aðra vísu. Hún er úr Bæjarímum eftir Jónantan Þorsteinsson. Vísan er kveðin um Jakob Jónsson bónda á Varmalæk en hann dó 1913. Þótti ómaklega vegið að Jakobi í vísunni, því hann var vinsæll af sveitungum sínum og gestrisinn. En vísan er svona: Drögum verulega úr saltdreif- ingu og söltum alls ekki í frosti. Látum snjóinn vernda gatna- kerfið fyrir nöglunum, ef hann kemur. Það er besta vörnin fyrir malbikið. Okumenn! Búið bíla ykkar til vetraraksturs eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um. Ég trúi því ekki að Reykvíkingar séu eins lélegir ökumenn og af er látið í fjölmiðlum, ef snjó festir á jörðu hér á höfuðborgarsvæðinu. Hættum að láta landsbyggðar- fólk gera grín að okkur fyrir að komast ekki á milli húsa nema salt- að sé, áður en við leggjum af stað. En fólk úti á landsbyggðinni verður að búa við snjó og ís og í mörgum tilfellum ófærð mikinn hluta vetrar, en fer samt allra sinna ferða. Birkir Skarphéðinsson Varmalækjar fijógast fær féð hjá Jakob vænum. Auðrinn vex en grasið grær í götunni heim að bænum. Fjarlægj- um draslið Til Velvakanda. Snjó hefír nú að mestu tekið upp á höfuðborgarsvæðinu, og hefir þá komið í ljós mikið af alls konar drasli, pappír, plasti o.fl., sem dreifst hefír um byggðina. Er æskilegt, að lóðaeigendur eða íbúar á hveijum stað grípi nú tæki- færið og hreinsi burt þetta drasl, sem að öðrum kosti liggur sem auglýsing um vanrækslu og sóða- skap. G.T. Þar sem grasið grær að dyrum í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI lVVWP Hljóöeinangrandi loftplötur til límingar í loft. ÍSLENZKA VERZLUMARFELAGIÐ HF UMBOÐS- & HEILDVERZLUN Bíldshöfða 16, sími 687550. Virðisaukaskattur Kostir — ókostir Miðvikudaginn 2. mars verður fundur um virðisaukaskatt kl. 12.00á Gauk á Stöng, efri hæð. RæðumaðurverðurGeirH. Haarde, alþingismaður, og mun hann einnig svara fyrirspurnum. Allirsem áhuga hafa eru hvattir til að mæta. Hvöt, fólag sjálfstæðiskvenna, Landssamband sjálfstæðiskvenna. SJÓNVARPSBINGÓ Á STÖÐ 2 mánudagskvöldið 29. febrúar 1988. Vinningar í fyrri umferð þegar spilað var um eina lárétta línu. Spilað var um 10 aukavinninga, hver að verðmæti kr. 50.000,00., frá HLJÓMBÆ, TEGUNDXZ1: 23, 61,49, 1 3, 8, 84, 33, 59, 44, 1 1,24, 30,81,58,43, 19,63. SPJALD NR. 18825. Þegar talan 63 kom upp var HÆTT að spila á aukavinningana. Þegar spilað var um BÍLINN komu eftirfar- andi tölur upp. Spilað var um þrjár láréttar línur, (eitt spjald): 2, 25, 31,66, 42, 83, 1 5, 60, 29, 55, 67, 36, 76, 65, 37, 90, 45, 74, 20, 69, 16, 32 79 SPJALDNR. 12467. OGUR STYRKTARFELAG SÍMAR 673560 OG 673561

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.