Morgunblaðið - 18.03.1988, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.03.1988, Qupperneq 1
88 SIÐUR B ttgmiHiiMfr STOFNAÐ 1913 65. tbl. 76. árg. FOSTUDAGUR 18. MARZ 1988 Prentsmiája Morgunblaðsins Panama Stjórnar- herinn herðir tökin Panamaborg, Reuter. HERMENN eru nú hvarvetna á verði í Panamaborg og virðist Manuel Antonio Noriega hers- höfðingi enn vera fastur í sessi en í fyrradag var gerð árang- urslaus tilraun til að steypa hon- um af stóli. Manuel Solis Palma, sem nú gegnir forsetaembættinu, gaf í gær út tilskipun um að opinber þjónustufyrirtæki, vatns- og raf- magnsveitur, samgöngumál, fjar- skipti og sjúkrahús, skyldu lúta stjórn hersins en vegna verkfalla hefur starfsemi þeirra verið lömuð að miklu leyti. Bankar í Panama hafa verið lokaðir frá 4. mars og innstæður stjómarinnar í Banda- ríkjunum hafa verið frystar. Stjómin er í raun gjaldþrota og hefur enga peninga til að greiða laun 150.000 ríkisstarfsmanna. 1 gær var þó kennurum greiddur hluti launa sinna en það var með ávísun, sem hvergi er hægt að skipta. Utvarpið í Panama, sem herinn stjómar, fór í gær hörðum orðum um „svikarana", sem reyndu að bylta Noriega, en foringi þeirra var Leonidas Macias ofursti og fjórir ónefndir yfírmenn aðrir. Flestum ber saman um, að það ástand, sem nú er í Panama, geti ekki varað lengi og ekki endað með öðru en falli Noriega. Margir Panamabúar virðast einnig ætlast til þess, að Bandaríkjamenn fínni lausn á pólitískum og efnahagsleg- um þrengingum landsmanna. „Bandaríkjastjóm ól þessa nöðru við bijóst sér og nú verður hún að losa okkur við hana,“ var haft eftir kennara einum. Reuter Bandarísku hermennirnir, sem sendir hafa verið til Hondúras, eru úr úrvalssveitum hersins og hafa flestir einhverja reynslu af stríðsátökum. Myndin var tekin þegar þeir fyrstu fóru um borð í flugvélam- ar, sem fluttu þá til Hondúras. Viðbrögð Bandaríkjasljórnar við innrás sandinista: Sérþjálfað herlið komið til Hondúras Flugslys í Kólombíu: Ottast um afdrif 136 manna Bogota. Reuter. ÓTTAST er um afdrif 136 manna, farþega og áhafnar Boeing 727-þotu frá kólombiska flugfélaginu Avianca, en hún hrapaði í gær til jarðar nokkr- um mínútum eftir flugtak frá borginni Cucuta. Flugvélin, sem var í innanlands- flugi, hrapaði til jarðar í 20 km fjarlægð frá Cucuta og sagði tals- maður Avianca, að um borð hefði verið 131 farþegi og fimm manna áhöfn. Björgunarmenn vom ekki komnir á slysstað þegar síðast fréttist og því ekki vitað hvort ein- hverjir lifðu af. Meðal farþeganna voru tvö knattspymulið frá ríki- solíufyrirtækinu í Kólombíu. Karíbahaf Tcgucigalpa, Managua, Washinjfton, Reuter. BANDARÍSKIR hermenn vom í gær sendir til Hondúras til styrktar stjórnarhernum en i fyrradag sakaði Bandaríkja- stjóra sandinistastjórnina í Nic- Reuter Við dauðans dyr Michel Delepine, 35 ára gamall Belgi, brosti í gær til blaðamanna og annarra, sem komu til að heimsækja hann á sjúkrahúsið, og ekki að ástæðulausu því að hann hafði verið talinn látinn en er nú lifandi. Svo langt var raunar komið, að útfararstjórinn ætlaði að fara að kistu- leggja Delepine þegar hann veitti því athygli, að líkaminn var allur miklu mýkri og liðugri en vant er að vera með lík. Tókst læknum síðan að vekja Delepine af dáinu en sem betur fer man hann ekkert eftir „dauða“ sínum og útför, sem næstum varð. aragua um að hafa sent 2.000 hermenn inn yfir landamærin til Hondúras. Hondúrasstjórn hóf í gær liðsflutninga til landamær- anna en stjórnin í Managua þver- tekur fyrir, að hermenn hennar hafi farið yfir landamærin og hefur krafist skyndifundar í ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna. Hondúrasstjórn skýrði frá því í fyrrakvöld, að herlið sandinista, stutt stórskotaliði og flugvélum, hefði ráðist inn yfír landamærin í Olancho-héraði og í framhaldi af því ákvað Bandaríkjastjórn að senda 3.200 sérþjálfaða hermenn til Hondúras. Komu þeir fyrstu í gærmorgun og átti liðsflutningnum að vera lokið á sólarhring. Verða þeir ekki sendir til landamæranna, heldur verða þeir við æfíngar í 200 km fjarlægð. Stjórn sandinista hefur neitað að hafa sent hermenn inn yfir landa- mærin til Hondúras og í gær fór Daniel Ortega, forseti landsins, fram á, að öryggisráð SÞ krefðist tafarlauss brottflutnings banda- ríska herliðsins frá Hondúras. Sagði hann einnig, að ekki yrði hvikað frá stórsókn á hendur skæruliðum í Nicaragua en það hefur vakið nokkra furðu, að til hennar er efnt á sama tíma og fyrir dyrum stend- ur ný lota í friðarviðræðunum við þá. Miguel D’Escoto, utanríkisráð- herra Nicaragua, hafði í gær sam- band við Jim Wright, forseta banda- rísku fulltrúadeildarinnar, og full- vissaði hann um, að sandinista^ stjómin hefði skipað hernum að „fara burt frá alþjóðlegum marka- línum". Þótt Ortega neiti ásökunum um innrás í Hondúras þykir ekki unnt að skilja þessi ummæli á ann- an veg en þann, að sandinistaherinn hafi í raun farið yfir landamærin í sókninni gegn skæruliðum. Síðustu atburðir í Mið-Ameríku hafa valdið miklum áhyggjum þar og viða annars staðar. Þykir sum- um, að Bandaríkjastjórn sé að gera úlfalda úr mýflugu í því skyni að Bandarísk herstöö Palmerola '-Tegucigalpa Sandínistar ráöast gegn kontraskæru- liöum uppi í fjöllum nicaraSua STÆKKAÐ SVÆÐI tryggja meiri stuðning við skæru- liða í Nicaragua og kom það m.a. fram í yfírlýsingu mexíkönsku ríkis- stjómarinnar. Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, for- dæmdi hins vegar innrás sandinista í Hondúras. Grænlensku rækjutogararnir: Sparnaður við að landa í Hafnarfirði Nuuk. Frá N.J. Bruun, fréttarítara Morgunblaðsins. FORSTJÓRI grænlenska útgerðarfélagsins AAK, Karl Olsen, sagði í gær í viðtali við grænlenska útvarpið, að fjárhagslegur sparaaður væri aðalástæðan fyrir því, að grænlenskir rækjutogar- ar tækju nú Hafnarfjörð fram yfir Isafjörð sem löndunarstað. Olsen sagði, að löndunargjöld væru nokkm lægri í Hafnarfirði en fsafírði en meira máli skipti þó, að frá Hafnarfírði er örstutt til Reykjavíkur. Þegar græn- lensku rækjutogararnir landa í íslenskum höfnum er oft skipt um áhafnir og það munar því miklu fjárhagslega fyrir útgerðina að þurfa ekki að kosta ferðir til og frá ísafírði. Landanir grænlensku togaranna hafa verið mikil tekju- lind fyrir Isafjarðarbæ og hefur bæjarstjórnin beðið íslensk stjórn- völd um að skerast í leikinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.