Morgunblaðið - 18.03.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1988
Umferðin í Reykjavík:
••
Okumenn að venj-
ast nýjum lögum
Þingmenn íLondon
MYND þessi var tekin í fyrradag fyrir utan brezka þinghúsið við ána Thames í London, en þennan dag
voru fulltrúar utanríkismálanefndar Alþingis á fundi í þinghúsinu með utanríkismálanefnd brezka þingsins.
Á myndinni eru: Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, David Howell, formað-
úr utanríkismálanefndar neðri deildar brezka þingsins, Kristín Einarsdóttir, alþingismaður, Guðmundúr G
Þórarinsson, alþingismaður, og Ólafur Egilsson sendiherra. Sjá frásögn af viðræðunum í miðopnu.
„ÖKUMENN eru nú almennt
farnir að temja sér ljósanotkun
og notkun bílbelta og lögreglan
hefur undantekningalaust átt
gott samstarf við þá þessa daga
sem liðnir eru frá því að ný
umferðarlög gengu i gildi,“ sagði
Ómar Smári Ármannsson, aðal-
varðstjóri umferðardeildar lög-
reglunnar í Reykjavik.
Þegar lögin gengu í gildi, þann
1. mars, lýsti lögreglan því yfir, að
ekki yrði gengið hart fram í því að
refsa þeim sem fylgdu ekki lögum
um ljósa- og beltanotkun fyrstu
dagana. „Við tókum þann kostinn
að stöðva þá ökumenn, sem ekki
fóru að þessum reglum, og áminna
þá, en ekki sekta," sagði Ómar
Grindvíkingur:
Aflaverðmæti 6 millj-
ónir á fiórum dögum
Grindavík.
Loðnuskipið Grindvíkingur
GK kom inn til Grindavíkur á
miðvikudag með 63 tonn af fryst-
um loðnuhrognum til löndunar,
Fljót í Skagafirði:
Fljótahrepp-
ar sameinaðir
eftir 90 ára aðskilnað
Haganes- og Holtshreppar
sameinast væntanlega í einn
hrepp hinn 1. apríl næst kom-
andi, að því frá er greint í Sveit-
arstjórnarmálum (1/1988). Fljót
í A-Skagafirði vóru einn hrepp-
ur fram til ársins 1897, er þáver-
andi Holtshreppi var skipt í tvo
hreppa. Fljótin verða því einn
hreppur eftir um 90 ára tviskipt-
ingu.
Atkvæðagreiðsla um samein-
ingu hreppanna fór fram 27. des-
ember síðast liðinn. í Haganes-
hreppi vóru 37 íbúar meðmæltir
sameiningu en 5 andvígir. í Holts-
hreppi voru einnig 37 meðmæltir
en 13 andvígir. I Haganeshreppi
eru 77 íbúar en í Holtshreppi 99.
Báðar hreppsnefndimar hafa
samþykkt — að viðhöfðum tveimur
umræðum í hvorri — að sameina
hreppana.
sem unnin eru um borð i skipinu.
Lætur nærri að aflaverðmæti
farmsins sé um 6 milljónir króna.
Að sögn Rúnars Björgvinssonar,
skipstjóra á Grindvíkingi, byijuðu
þeir að frysta hrogn út af
Þykkvabæ, en síðan færðust þeir
með loðnugöngunni vestur undir
Reykjanes, áður en komið var inn
til löndunar. Mikil loðna er á miðun-
um og gekk því mjög greiðlega að
kasta og vinna síðan hrognin um
borð. Tók túrinn fjóra daga. Skipið
fór strax út aftur, þegar búið var
að landa og losna við loðnuúrgang-
inn að auki.
Kr.Ben.
BAR
Á aðalfundi Granda hf., sem
haldinn var i gær, kom m.a.
fram að hagnaður fyrirtækis-
ins, fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað, var 188,6 millj-
ónir króna. Afskriftir og fjár-
magnskostnaður námu 26,8
milljónum króna, þannig að
hagnaður á reglulegri starfsemi
fyrir skatta varð 30 milljónir
Alþjóðlega skákmótið á Akureyri:
107 leikir búnir í maraþon-
biðskák Margeirs og Helga
króna. Önnur gjöld námu 26,8
milljónum króna en þar er um
að ræða tap á eignarhluta í
dótturfélagi og sölu eigna. Fyr-
irtækið greiðir 1,5 milljónir í
eignaskatt og hagnaður ársins
varð því 1,7 miHjónir króna. í
fyrra störfuðu að meðaltali 373
menn hjá Granda og launa-
greiðslur voru samtals 485,9
milljónir króna.
Árið 1987 var annað rekstarár
félagsins en það var stofnað í árs-
lok 1985. í fyrra var heildarafli
togara fyrirtækisins 26.209 tonn
og aflaverðmæti 741,7 milljónir
króna. Árið 1986 var heildaraflinn
hins vegar 24.453 tonn. Innvegið
hráefni til vinnslu var 18.786 tonn.
Smári. „Undantekningalaust tók
fólk okkur vel og enginn þijóskað-
ist við að spenna beltin eða kveikja
ljósin. Við gerðum okkur grejn fyr-
ir að það tæki fólk nokkum tíma
að venja sig á ljósa- og beltanotk-
un. Nú er ástandið komið í nokkuð
gott horf, en við munum áfram
reyna að eiga góða samvinnu við
ökumenn, því það er vænlegast til
árangurs. Áð nokkrum tíma liðnum
verðum við hins vegar að hasta á
þá ökumenn, sem ekki fara að rétt-
um leikreglum."
Fyrstu dagana, eftir að reglur
um ljósanotkun allan sólarhringinn
gengu í gildi, var nokkuð um að
ökumenn hringdu til lögreglunnar
og óskuðu eftir aðstoð við að koma
bifreiðum sínum í gang, en þær
voru þá rafmagnslausar þar sem
leymst hafði að slökkva ljósin.
mar Smári sagði, að nú væru
slfkar hjálparbeiðnir að mestu úr
sögunni, því ökumenn væru óðum
að venjast því að nota ljósin í björtu.
Umferðarráð vinnur nú að könn-
un um land allt á ljósa- og belta-
notkun. Niðurstaða þeirrar könnun-
ar ætti að liggja fyrir á næstu dög-
Frá aðalfundi Granda hf. í gær. Brynjólfur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, er í ræðustól.
Hagiiaður hjá Granda
188,6 milljónir króna
Karfí var 48,7% aflans, þorskur
20,3% og ufsi 19,0%. Framleitt
magn var 8.130 tonn og söluverð-
mæti framleiðslunnar nam 818,1
milljón króna. Heildarvelta fyrir-
tækisins var 1.587,4 milljónir
króna en árið 1986 var hún 1.206,5
milljónir króna.
Samkvæmt efnahagsreikningi
var eigið fé Granda í lok sl. árs
623,6 milljónir króna að meðtöldu
205,5 milljóna króna hlutafé. Á
aðalfundinum var ákveðin útgáfa
jöfnunarhlutabréfa um rúmar 100
milljónir króna. Einnig var ákveðið
að auka hlutafé um 150 milljónir
króna, þannig að heildarhlutafé
verður tæpar 460 milljónir króna,
segir í fréttatilkynningu.
Akureyri.
MARGEIR Pétursson og Jóhann
Hjartarson eru enn efstir á al-
þjóðlega skákmótinu á Akureyri
með 5 vinninga eftir áttundu
umferðina sem tefld var í gær.
Margeir er með biðskák við
Helga, sem farið hefur þrisvar
sinnum í bið. Þeir hafa lokið 107
leilgum og setjast aftur við skák-
borðið klukkan 11 í dag. Jóhann
á einnig eftir að tefla við Helga,
frá því í fyrstu umferð. Þeir tefla
klukkan 16.30 í dag.
í þriðja til fimmta sæti eru Poluga-
evsky, Tisdal og Gurevich með 5
vinninga hver. Dolmatov, Karl, Ad-
orjan og Jón L. eru með 4 vinninga.
Helgi er í tíunda sæti með 3V2 og 2
skákum ólokið. Jón Garðar er með 1
vinning og Ólafur V2 vinning.
Úrslit í 8. umferðinni í gær urðu
þau að Ólafur Kristjánsson tapaði
fyrir Jóni L. Ámasyni, Dolmatov tap-
aði fyrir Tisdal, Helgi vann Karl
Þorsteins, Margeir og Polugaevsky
gerðu jafntefli og einnig Gurevich
og Jóhann og Jón Garðar og Adoij-
an, en Adoijan bauð jafntefli eftir
aðeins 19 leiki og hafði Jón Garðar
þá heldur betra tafl.
Skákmennimir eiga M í dag, nema
þeir Margeir, Jóhann og Helgi sem
tefla biðskák og frestaða skák, en á
morgun, laugardag, verður 9. um-
ferðin tefld klukkan 14 í Alþýðuhús-
inu. Þá teflir Polugaevsky við
Gurevich, Karl við Margeir, Tisdal
við Helga, Jón L. við Dolmatov,
Adoijan við Ólaf og Jóhann við Jón
Garðar. Sævar Bjamason alþjóðlegur
meistari kemur norður og verður
með skákskýringar í hliðarsal um
helgina.
Stytta Einars
Jónssonar:
Viðunandi
tilboð bár-
ustekki
FRESTUR sem gefinn hafði
verið til að skila kauptilboð-
um í styttu Einars Jónssonar,
af konu i skautbúningi, rann
út í gær. Að sögn Gunnars
Jóhanns Birgissonar hdl, sem
annast söluna fyrir hönd eig-
enda, hafa ekki borist tilboð
sem talist geta viðunandi.
Hann sagði að viðræður væru
nú í gangi við ákveðna aðila um
kaup á styttunni en óljóst hvort
samningar tækjust. Hugmyndir
manna um verð á verkinu væru
óljósar enda nánast einsdæmi
að verk eins og þetta byðist á
almennum markaði hérlendis.
Gunnar Jóhann sagði að Lög-
mannastofan sf hefði vátryggt
styttuna fyrir 5 milljónir króna
meðan styttan væri þar í sölu-
meðferð. Vátryggirigaupphæðin
hefði verið fundin út með því
að framreikna tilboð sem gert
var í styttuna 1958 tii núvirðis.
Um aðrar viðmiðanir hefði ekki
verið að ræða og útilokað væri
að svo komnu að segja til um
hvort tryggingaupphæðin gæfi
vísbendingu um markaðsverðið.
Verðkönnun Verðlagsstofnunar:
Rúmlega tvöfaldur verðmunur
á fermingarmyndatökunni
MIKILL verðmunur er á ljós-
myndaþjónustu þjá ljósmynda-
stofum samkvæmt verðkönnun
sem Verðlagsstofnun hefur gert
á þessari þjónustu. Sem dæmi
má nefna að fermingarmyndir
hjá Ljámyndastofu Kópavogs
kosta 13.000 krónur, en 5.200
krónur hjá Ljósmyndastofu
Kristjáns í Hafnarfirði. Hjá báð-
um stofunum er stækkun á
tveimur myndum innifalin i verði
þjónustunnar.
Hjá 10 ijósmyndastofum, þar
sem stækkun á myndum er ekki
innifalin í verði fermingarmynda-
töku er verðið á myndatökunni
lægst 4.000 krónur en hæst 8.000
krónur-Á helmingi stofanna er tek-
ið aukagjald vegna myndatöku á
fermingardaginn, utan venjulegs
vinnutíma, og er það á bilinu 470
til 1.200 krónur. Verðmunur á ljós-
myndastækkun var allt að 74% á
milli stofa og á skyndimyndatöku
í vegabréf og ökuskírteini munaði
allt að 38%.
Sjá verðkönnun
unar á bls.25
Verðlagsstof n-