Morgunblaðið - 18.03.1988, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1988
9
Forróttur:
Trjónukrabbasúpa Nauslsips
Aöalróttur:
Hreindýrahnetusteik meö villibráöarsósu
og Waldorfsalati
Eftl rróttu r:
Glóaldinís ogferskir ávextir
restaurant
S I M I 1 7 7 5 9
CONSENSO
og
NewRoads®
NÝ MERKI
i formaður íalenaku Bendinef nda.Tnnar:
Tmstri flokkamir vildu ræða^
[utanríkismál annarra landé
_*•«» — ■— — **
jDeiItuin
I farsíma.
Norðurlandaráðsþing
og farsímar
Norðurlandaráðsþing var haldið í Osló í
síðustu viku og sóttu það 7 íslenskir þing-
menn og 6 ráðherrar ásamt fríðu föru-
neyti. Margt var þar rætt þá fimm daga
sem þingið stóð, m.a. annars tillaga frá
Guðrúnu Helgadóttur o.fl. um bann við
farsímum. Sú tillaga hlaut þó litlar undir-
tektir annarra en flutningsmanna enda
vandséð hvernig eigi að framkvæma slíkt
bann.
Norðurlönd
og umheimur-
inn
í viðtali sem Morgun-
blaðið átti við Ólaf G.
Einarsson, formann
íslensku sendinefndar-
innar á Norðurlandar-
áðsþinginu, kemur fram
að eitt af því sem ein-
kenndi hina almennu
umræðu á þinginu var sú
árátta vinstri manna að
ræða þar utanríkismál
annarra landa en Norð-
urlanda. Visaði hann til
þess að Anker Jörgens-
en, formaður danska
Jafnaðarmannaflokks-
ins, hefði hafið umræðu
um málefni ísraels og
herteknu svæðanna á
Vesturbakkanum. Vildi
jafnaðarmannaforinginn
að Norðurlandaráðsþing
tæki að sér frumkvæðið
til þess að leysa deilur á
Su viðkvæma svæði.
'ur G. sagði að hann
teldi ekki rétt að fara út
i umræðu um slík mál á
þessum vettvangi. Norð-
urlandaráð ætti að vera
vettvangur landanna til
að vinna saman að þvi
að draga úr ýmsu sem
sldldi þjóðimar að og
reyna að styrkja sam-
vinnu og ná árangri.
Undir þessi orð skal tek-
ið. Það er sist til þess
fallið að styrkja sam-
vinnu að nota Norður-
landaráðsþing sem vett-
vang utanríkismálaum-
ræðu. Um það hefur ver-
ið samkomulag milli
landanna að um utanrík-
ismál skuli ekki rætt á
þingunum, enda hafa
Norðurlöndin kosið að
taka mismunandi afstöðu
i slíkum málum á alþjóða-
vettvangi. Frumhlaup
Jörgensens er því ein-
kennilegt og erfitt að sjá
hvaða hvatir lágu þar að
baki aðrar en ósk um
athygli. Ef málefni her-
numdu svæðanna eiga
erindi inn á þennan vett-
vang má allt eins færa
rök fyrir þvi að þar skuli
ræða málefni Afganist-
an, Mið-Ameríku, sam-
skipti stórveldanna og
ástandið á Persaflóa.
Erfitt er að sjá hvaða
gagn ibúar á Norðurl-
öndum hefðu af slíkum
umræðum á þessum stað.
Guðrún og
farsímarnir
Það eru vissulega
skiptar skoðanir um það
hvers konar vettvangur
Norðurlandaráðsþing
eigi að vera. Forsjár-
hyggjusinnar á vinstri
kantinum telja til dæmis
að þama sé kominn einn
vettvangurinn til þess að
láta misvitra stjómmála-
iuenn taka ákvarðanir
um daglegt líf fólks og
setja reglur um alla
mögulega og ómögulega
hluti. Ein skondnasta til-
raunin i þá áttina á Norð-
urlandaráðsþinginu var
gerð af nokkrum só-
sialískum þingmönnum,
m.a. Guðrúnu Helgadótt-
ur og Margarete Auken,
sem aðallega er þekkt
hér á landi fyrir margar
árásir á íslendinga vegna
hvalveiða okkar. Þær
stöllur, ásamt fleiri þing-
mönnum, höfðu lagt
fram þá tillögu að öku-
mönnum yrði bannað að
tala í farsima á meðan á
akstri stæði. Töldu þær
það hafa neikvæð áhrif
á aksturshæfni manna.
Hætt er við að
eftirlit með svona banni
gæti reynst erfitt á
islenskum þjóðvegum og
upp til heiða og raunar
furðulegt að þingmönn-
unum skuli hafa látið sér
detta þetta í hug. Vissu-
lega má færa rök fyrir
því að farsímar geti í
sumum tilvikum dregið
athyglina frá akstri en
það sama má segja um
reykingar, útvarpshlust-
un og spjall við aðra far-
þega. Má búast við til-
löguflutningi um þau at-
riði frá stöllunum á
næsta Norðurlandaráðs-
þingi?
Ami og grát-
kórinn
Tíminn víkur i rit-
stjórnargrein í gær að
sunnudagspistli Ama
Bergmanns, ristjóra
Þjóðviljans, þar sem
hann skammaðist út í
Bryndisi Schram fyrir að
hafa látið hafa eftir sér
í blaðaviðtali að hún
hefði tekið eftir þvi „að
þrátt fyrir allt talið um
hátt vöruverð, þá lækkar
ekkert i matarkörfunni
hjá fólki. Fólk virðist
ekki reiðubúið að neita
sér um neitt.“ Ami brást
reiður við þessum um-
mælum og spurði meðal
annars: „Hvað veit
Bryndis Schram og aðrir
sem svipað hugsa um
innihald matarkarfa hjá
fólki? Hvað veit hún hvað
þar var fyrir matarskatt?
Hvað veit þetta fólk um
það hvað þeir auralitlu
neita sér um?“
Gæti argasta karlrem-
busvin gengið öllu lengra
í að opinbera kvenfyrir-
litningu sina, illgimi og
dulbúna öfund?, spyr
Tíminn i framhaldi af
þessum sunnudagspistli.
Út á það eitt að Bryndís
hafi verið ráðherrafrú í
nokkra mánuði virðist
sem ritstjórinn tejji sig
þess umkominn að gera
25-30 ára húsmóður-
reynslu hennar alls
ómarktæka.
Siðan segir í Tíman-
um: „En hvemig kemur
hins vegar álit Áma á
fávisi hennar i matarinn-
kaupum heim og saman
við t.d. stuðning ritstjór-
ans við þá kröfu, að hús-
móðursstörf eigi að met-
ast til starfsaldurs og
launa þegar konur ráða
sig út á vinnumarkaðinn
að loknu bamauppeldi?
Á það kannski bara að
gilda fyrir aðrar konur
en ráðherrafrúr?
Þjóðvi^jinn hefur lika
leikið undir með „kenn-
aragrátkómum" að und-
anförau. Spumingin er
hvort ekki kann að vera
hugsanlegt að Bryndísi
hafi lærst að tenya sér
hagsýni og spamað öll
þau ár sem Jón Baldvin
var „bara“ réttur og
sléttur kennari i Haga-
skólanum."
L Auslurslræli 22
FÁST HJÁ
^KARNABÆR
r Laugavegi 66 - Austurstræti 22 - <
Laugavegi
Simi frá skiptiborði 45800
- Glæsibæ
í EVRÓPSKUM FATNAÐI
Mjólkursamsalan
Góðar stundir
með MS sam-
lokum -hvar
og hvenær
sem er.