Morgunblaðið - 18.03.1988, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1988
Lýsing sjónarvotts:
„Múgurinn hagaði sér
eins og ú!faflokkur“
LJÓSMYNDARI, sem viðstaddur
var útförina þar sem árásin á
miðvikudag var gerð, sagði að
Belfast og Lundúnum, Reuter.
VÍÐA á Norður-írlandi kom til
óeirða eftir að vopnaður maður
gekk berserksgang við útför
þriggja hryðjuverkamanna írska
lýðveldishersins (IRA), en maður-
inn felldi þijá syrgjendur og sœrði
þijá. Að sögn lögreglu vörpuðu
kaþólsk ungmenni benzín- og
sýrusprengjum að breskum eftir-
litssveitum í Belfast og fimm
borgum öðrum.
Viðbrögð þessi juku á hræðslu
eftir árásina hefði runnið æði á
múginn. Sagði hann fólkið hafa
hagað sér eins og úlfaflokkar, en
manna um að aðskilnaðarsinnar á
Norður-íralandi kynnu að grípa til
hefndarráðstafana fyrir árásina við
útförina.
Fjögurra manna fjölskylda þurfti
að flýja úr húsi sínu þegar brennu-
vargar voru í þann mund að bera
eld að því. Húsið brann til kaldra
kola.
Sprengisérfræðingar gerðu tvær
heimagerðar sprengjuvörpur óvirkar,
en þeim var beint að breskri herstöð.
hann lýsti málsatvikum náið i The
London Evening Standard. Blaðið
vildi ekki nafngreina Ijósmyndar-
ann vegna öryggis hans. Arásar-
maðurinn var hins vegar sagður
mótmælandi og smáglæpamaður.
Ljósmyndarinn, sem kominn er til
Lundúna, sagði að hann hefði aðeins
verið í um 20 m fjarlægð frá byssu-
manninum þegar hann hóf skot-
hríðina og kastaði handsprengjum,
en við jarðarförina voru um 10.000
manns.
Kom fram í máli hans að um 400
manns hefðu hlaupið á eftir árásar-
manninum og að hann hefði ekki
átt nokkum möguleika á undan-
komu. „Múgæsing hafði gripið um
sig og fólkið hagaði sér eins og úlfa-
flokkar. Það hrópaði: „Drepið mann-
andskotann! Náið honum!““
Ljósmyndarinn sagði að hann
Róstur í lgölfar út-
fararárásarinnar
hefði séð framan í manninn meðan
hann stundaði illvirkin. „Ég sá
augnaráð hans. Það var ískalt. Hann
virtist alis óhræddur, en hann var
ekki undir áhrifum lyfja eins og
sumir vildu halda fram.
Þegar maðurinn náðist var hann
barinn til óbóta og reyndi múgurinn
Varnarmálaráðherrar stórvelda austurs og vesturs:
ÁgTeiningnr um stærð
hefðbundins herafla
Engin deilumál leyst í opinskáum og vingjarnlegum viðræðum í Bern
Bem, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara
Vamarmálaráðherrar Banda-
ríkjanna, Frank Carlucci, og Sov-
étríkjanna, Dmítríj Jazov, kvödd-
ust í Bem í Sviss í gær eftir
tveggja daga fund. Þetta var i
fyrsta skipti sem varnarmálaráð-
herrar þessara tveggja stórvelda
austurs og vesturs hittust og báð-
ir vom ánægðir með viðræðurn-
ar. Þær vom opinskáar en vin-
gjarnlegar. „Það var ekkert tíma-
mótaskref stigið á fundinum,"
sagði Carlucci á blaðamanna-
fundi í gærmorgun. „En það er
mikilvægt að hann átti sér stað
þótt engin deilumál hafi verið
leyst. Það er gagnlegt að ræðast
við og þessi fundur mun hafa
Morgfunblaðsins.
áhrif á langvarandi þróun i átt
að breytingum."
Ráðherramir ræddu um hemað-
arstefnu stórveldanna, afvopnunar-
mál, leiðir til að minnka hættu á
að smáatvik leiði til hemaðarátaka
og svæðisbundin ágreiningsefni.
„Eg nefndi einnig mannréttindamál,
eins og við gerum alltaf þegar við
eigum fundi með sovéskum ráða-
mönnum," sagði Carlucci.
Ráðherramir ræddu ástandið í
Afganistan, Angóla, Nicaragua,
Kambódíu og Kóreu. „Jazov gaf í
skyn að Sovétmenn vildu fara frá
Afganistan eins fljótt og þeir gætu
en fyrst þyrfti að ákveða hvaða
stjóm yrði í landinu," sagði Carlucci.
Azerbajdzhan;
Flokksleiðtogi og
borgarstjóri í
Sumgajt settir af
Moskvu. Reuter. Vi ^
bejlí, fyrrum forstjóri álvers borg-
arinnar. Opinberlega hefur verið
staðfest að 32 menn hefðu látið
lífíð í þjóðernisróstunum í
Sumgajt, en sjónarvottar halda því
fram að margfalt fleiri hafi í raun
og veru beðið bana.
Fjölmiðlar í Moskvu hafa aðeins
íjallað lítillega um atburðina í
Azerbajdzhan. Armenar, sem
komið hafa til Moskvu, hafa skýrt
frá því að unglingar hafí gengið
berserksgang og framið alls kyns
hrottaverk gagnvart Armenum,
m.a. myrt og limlest þungaðar
konur.
mmm
ERLENT
FORMAÐUR kommúnista-
flokksins í Sumgajt í
Azerbajdzhan og borgarstjóri
borgarinnar hafa verið settir
af vegna „afdrifaríkra mis-
taka“ í starfi. Miklar þjóðern-
isróstur brutust út í borginni
28. febrúar og voru Armenar
hundeltir og myrtir.
Að sögn útvarpsins í Bakú, höf-
uðborg Azerbajdzhan, hefur D.
M. Muslimzade verið settur af sem
flokksforingi í Sumgajt og Salekh
Gadzhíjev skipaður í hans stað.
Gadzhíjev hefur verið forsætisráð-
herra í Nakhitsjevan, héraði Az-
erbajdzhana irtnan Armeníu, í tvö
ár.
Þá sagði útvarpið að T. Y.
Mamedov hefði verið látinn gjalda
fyrir óeirðimar í Sumgajt og sett-
ur af sem borgarstjóri. í hans stað
hefði verið skipaður R. S. Emin-
Breytt sovésk stefna?
Sovétríkin hafa gefið til kynna á
undanfömum mánuðum að hemað-
arstefna þeirra hafí breyst á þann
veg, að nú sé megináhersla lögð á
vamaraðgerðir í stað sóknaraðgerða
áður. Carlucci sagðist hafa spurt
Jazov í þaula um þetta og bent
honum á að hann sæi engin merki
um þessa nýju stefnu. „Eg spurði
hann hvaða munur væri á vamar-
stefnunni nú og svokallaðri vamar-
stefnu Brezhnevs. Hann sagði að
það myndi taka tíma fyrir stefnu-
breytinguna að koma í Ijós en hún
myndi gera það í heræfíngum og
handbókum."
Jazov var spurður um þetta atriði
á blaðamannafundi sem hann hélt
á eftir Carlucci. „Það er erfitt að
sjá hemaðarstefnu," sagði-
hann.„Hún felst í viðhorfum þjóðar
til flókinna málefna. Ég útskýrði
fyrir Carlucci, þegar hann spurði
af hveiju við hefðum ekki fækkað
hersveitum úr því að við fylgdum
vamarstefnu, að við gætum ekki
fækkað þeim strax vegna þess að
okkur er ógnað af miklum §ölda
herdeilda og vopna. Sovétríkin hafa
ekki yfírburði á neinu sviði nema í
fjölda skriðdreka. Okkur kom saman
um að stuðla að því að leiðrétta
misvægið í herafla okkar." Jazov
sagði að ástandið í Evrópu myndi
batna verulega ef dregið yrði úr flo-
taumsvifum í kringum lönd álfunnar
og bætti við að tímabært væri að
hefja samningaviðræður um her-
skipaflota.
Carlucci sagði að Sovétmenn
hefðu mun fleiri skriðdreka og
stærra stórskotalið í Austur-Evrópu
en NATO-ríkin. „Það er engin
ástæða fyrir Bandaríkin eða NATO
að endurskoða hemaðarstefnu sína
fyrr en við sjáum breytingar í Sov-
étríkjunum," sagði hann.
Ráðherramir tilnefndu tvo full-
trúa til að undirbúa starf nefndar
sem á að hindra og fjalla um hernað-
aratburði. Einnig verður litið nánar
á deilur stórveldanna um jafnvægi
venjulegs herafla og reynt að ná
samkomulagi um hvað og hvernig
á að telja. Jazov bauð Carlucci til
Moskvu en nefndi enga ákveðna
dagsetningu.
Hernaður í Hondúras
Carlucci var spurður um atburð-
Reuter
Dmítrij Jazov, varnarmálaráð-
herra Sovétríkjanna, á blaða-
mannafundi eftir að tveggja
daga viðræðum hans og Franks
Carluccis, vamarmálaráðherra
Bandarikjanna, lauk í gær.
ina í Hondúras á blaðamannafundin-
um. Hann sagðist hafa verið með í
ráðum um að senda bandarískan
herafla þangað á heræfíngar til að
sýna stuðning Bandaríkjamanna við
Hondúras eftir innrás hersveita
sandinista í landið. Hann sagði að
Jazov hefði reynt að verja hemaðar-
stuðning Sovétríkjanna við Nic-
aragua og minnst á hungrið og fá-
tæktina í Nicaragua í viðræðum
þeirra. „Ég sagði honum að við
hefðum ekkert á móti því að Sov-
étríkin sendu matvæli til Nicaragua
en benti honum á að þyrlur og skrið-
drekar myndu ekki seðja hungur
landsmanna."
Svíþjóð;
Sýknudómur í máli
um Spetznaz-greinar
Stokkhólmi. Frá Erík Liden, fréttaritara
HÆSTIRÉTTUR Svfþjóðar sýkn-
aði á miðvikudag Svenaka Dag-
■bladet i máli, sem höfðað var á
hendur því vegna greina, sem birt-
ust árið 1985, um njósnir Sovét-
manna í Svíþjóð. Þess má geta,
að útdráttur úr greinunum birtist
á sínum tima i Morgunblaðinu.
í greinunum kom það meðal ann-
ars fram, að Sovétmenn skráðu hjá
sér upplýsingar um alla lykilmenn í
sænska hemum, til dæmis um alla
herflugmenn, en yfírmaður sænska
Morgunblaðsins.
hersins, sem kærði blaðið, hélt því
fram, að í greinunum væri skýrt frá
ríkisleyndarmálum. Átti hann þá
meðal annars við þá vitneskju, sem
sænska leyniþjónustan hefur um so-
vésku Spetznaz-sveitimar, hermdar-
verkasveitir, sem hafa það hlutverk
að vinna skemmdarverk í ýmsum
löndum ef stríð skyldi bijótast út.
Sakbomingur í málinu var fyrir
hönd blaðsins Lennart Persson, sem
var ritstjóri á árinu 1985, en hann
hafði verið sýknaður á tveimur lægri
dómsstigum. í dómi hæstaréttar seg-
ir, að greinamar í Svenska Dag-
bladet geti ekki talist hættulegar
öryggi sænska ríkisins.
Bráðum verður tekið fyrir í dóms-
málaráðuneytinu annað mál gegn
blaðinu en það varðar fréttir um, að
sænska leyniþjónustan hleri öll fjar-
skipti sumra erlendra sendiráða í
Stokkhólmi, það er að segja sendi-
ráða þeirra ríkja, sem gmnuð eru
um að eiga ókunnu kafbátana í
8ketjagarðinum. Eftir hæstaréttar-
dóminn á miðvikudag er þó búist
við, að ekkert verði af málshöfðun.