Morgunblaðið - 18.03.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1988
35
Frá afhendingn blóðtökubekksins. Frá vinstri eru: Vignir Sveinsson,
skrifstofustjóri FSA, Díana Helgadóttir, Rósa Gunnarsdóttir og Birna
Sigurbjörnsdóttir, hjúkrunarfræðingar, Rafn Benediktsson, formað-
ur Hængs, og Ingólfur Hermannsson fyrrverandi formaður Hængs.
Lionsklúbburinn Hængur:
Fjórðungssjúkrahús-
ið fær blóðtökubekk
Lionsldúbburinn Hængur af-
henti nýlega Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri blóðtökubekk
sem klúbburinn stóð fyrir kaup-
um á. Bekkurinn er stillanlegur
og honum fylgir blóðvigt, sem
mælir nákvæmlega hversu mikið
blóð er tekið úr blóðgjafanum.
Birna Sigurbjömsdóttir hjúkr-
unarfræðingur veitti bekknum við-
töku fyrir hönd blóðbankans á
Fjórðungssjúkrahúsinu. Hún sagði
m.a. við þetta tækifæri að blóðgjöf
væri mjög mikilvægur þáttur og
því væri nauðsynlegt að vel færi
um blóðgjafann við blóðtökuna.
Blóðgjafar em oft kallaðir óvænt
úr vinnu eða að heiman þegar mik-
ið liggur við íai sumar aðgerðir er
ekki hægt að framkvæma á sjúkra-
húsinu nema að hafa blóð til stað-
ar. Það var Rafn Benediktsson,
formaður Hængs, sem afhenti
bekkinn fyrir hönd klúbbsins.
Morgunblaðið/JI
Svanberg Þórðarson með minkinn, sem drepinn var upp við gömlu
Glerárstifluna sl. miðvikudag.
Minkur unninn
í Akureyrarbæ
Fullstálpaður minkur var drep-
inn á Akureyri í fyrradag. íbúi,
sem býr í blokkaríbúð við
Skarðshlíð hringdi í Svanberg
Þórðarson forstöðumann jarð-
eigna og dýraeftirlits hér í bæ
laust fyrir hádegi á þriðjudag og
sagðist hafa séð mink við Glerána.
„Við fórum tveir af stað upp úr
hádeginu og sáum aðeins spor eftir
kauða og slóð hans í snjónum. Við
héldum síðan aftur af stað í gær-
morgun. Samstarfsmaður minn
Baldur Sigurðsson fór út úr bílnum
með byssu fyrir neðan brúna sem
liggur út í þorp og ég fór á bíl upp
með ánni, alla leið upp að gömlu
stíflunni. Þar kom ég fljótlega auga
á gripinn þar sem hann var að forða
sér inn undir og kallaði ég þá strax
í Baldur, sem kom og sat fyrir minkn-
um. Við þurftum að bíða í um það
bil hálftíma þangað til minkurinn lét
sjá sig aftur og var hann þá með
frosið silungsseiði í kjaftinum, greini-
lega komin í bæinn í ætisleit,11 sagði
Svanberg.
Hann álítur að minkurinn hafi
komið upp eftir Gleránni neðan úr
fjöru og hafi verið einn á ferð þó
ómögulegt sé að fullyrða nokkuð um
það. Ólíklegt töldu þeir að minkurinn
hafi sloppið úr einhveiju minkabúinu
þó slíkt hlyti að gerast öðru hvoru.
Þorði aldrei að viður-
kenna leikkonudraumana
— segir Amheiður Ingimundardóttir sem lokið hefur fimm
ára leiklistamámi í Bandaríkjunum
Arnheiður Ingimundardóttir
er 27 ára gömul stúlka sem hefur
í vetur verið að stíga sín fyrstu
spor á fjölunum sem atvinnuleik-
kona. Hún kom heim úr leiklist-
arnámi frá Bandaríkjunum í
fyrravor eftir fimm ára dvöl þar
vestra og fékk fastráðningu sl.
haust hjá Leikfélagi Akureyrar.
Það kallaði Heiða mikla heppni
þar sem reglan væri yfirleitt sú
að ungir leikarar, nýskriðnir úr
skóla, sæju aðeins atvinnuleysið
framundan og barninginn við
hina atvinnuleysingjana. Mark-
aðurinn væri orðinn það mettað-
ur hérlendis. „En það kom aldrei
annað til en að koma sér heim
til Islands aftur. Ég var farin að
þrá það heitast að leika á mínu
eigin tungumáli, já svo sannar-
lega var maður farin að sakna
íslenskunnar.“
Ekkert í sigtinu
Arnheiður er Húsvíkingur í húð
og hár. Hún tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum á Akureyri, las
síðasta veturinn utan skóla þar sem
hún var orðin alvarlega ástfangin
af reykvískum dreng og dreif sig
suður til að vera í návist elsk-
hugans, sem hún er nú gift. Eigin-
maðurinn, Eiríkur Om Pálsson, er
ennþá vestra þar sem hann leggur
stund á nám í trompettleik og
tónsmíðum, en útskrifast þaðan í
vor. Þá er meiningin að setjast að
í höfuðborginni og taka þátt í barn-
ingnum um hlutverkin, eins og
Heiða orðaði það. „Ég ’hef ekkert
í sigtinu enn sem komið er. Ætli
ég verði ekki að sitja heima, bíða
og leita svona fyrstu mánuðina fyr-
ir sunnan, en draumurinn er að
komast að hjá Iðnó. „Vissulega var
það mér mikil lyftistöng að komast
að strax hjá LA enda hefur hér
verið nóg að gera í vetur. Ég lék
fyrst í barnaleikritinu Halló Éinar
Áskell, þá lék ég Sigríði í Tungu í
Pilti og stúlku. Ég fer með lítið
hlutverk í Horft af brúnni og nú
standa yfir æfingar á Fiðlaranum
á þakinu þar sem ég fer með hlut-
verk Tzeitel, elstu dóttur Tevyes."
Heiða lék með leikklúbbi MA þegar
hún var hér í skóla og tók auk
þess þátt í einu stykki hjá LA á
menntaskólaárunum, Puntilla og
Matti. Heiða sagði að framtíðin virt-
ist mun öruggari fyrir Eiríki Erni
sem trompettleikara á íslandi held-
ur en hjá sér sem leikkonu enda
færri um hituna í trompettbransan-
um.
Boston yndisleg borg
Heiða hélt vestur til Banda-
ríkjanna árið 1982 og settist á
skolabekk í University og Massa-
chussets í Boston. Þar lauk hún
BA-prófi eftir þriggja ára nám og
síðan starfaði hún við leikhús í stór-
borginni í eitt ár, með American
Repertory Theatre í Cambridge og
síðari hluta árs með hádegisleik-
húsi. Þá flutti hún sig yfir á vestur-
strönd Bandaríkjanna til Los Angel-
es og fór í eins árs framhaldsnám
í California Institute of the Arts.
„Mér líkaði alltaf miklu betur í
Boston enda var ég orðin nokkuð
heimavön þar. Það er ekki laust við
að ég sakni hennar svolítið. Boston
er yndisleg borg þó stór sé á okkar
mælikvarða. Mannlíf er mjög fjöl-
breytt og af nógu er að taka í
menningarlegu tilliti. Fólkið finnst
mér mjög vingjarnlegt og líkara
Islendingum heldur en íbúar Los
Angeles."
Stórtækur draumur
Amheiður er nú að leikstýra sínu
fyrsta verki hérlendis hjá Leik-
klúbbnum Sögu á Akureyri sem
frumsýndi í gærkvöldi verk Péturs
Gunnarssonar, Grænjaxla. Þó segir
hún að skemmtilegast finnist sér
Tónlistarfélag Akureyrar:
Silesian duo heldur
tónleika á sal MA
FIMMTU tónleikar Tónlistarfé-
lags Akureyrar á þessu starfsári
fara fram á morgun, laugardag,
á sal Menntaskólans. Efnisskráin
samanstendur af verkum fyrir
flautu og píanó og einleiksverk-
um fyrir píanó. Það er Silesian
duo sem leikur, en meðlimir þess
eru þau Waclaw Lazarz flautu-
leikari og Dorota Manczyk píanó-
leikari.
Silesian duo var stofnað árið
1980 og var markmið þess einkum
að flytja pólska tónlist frá 19. og
20. öld. Síðan hefur það fært út
kvíamar og leikur nú fjölbreytta
tónlist frá ýmsum löndum. Arið
1982 hlutu þau sérstök verðlaun
pólska útvarpsins fyrir upptökur af
pólskri tónlist frá fyrri hluta 20.
aldar. Á 8. áratugnum komu þau
fram á fjölda tónleika í Póllandi og
í öðrum löndum, svo sem í Þýska-
landi, Ungveijalandi, Tékkóslóv-
akíu, Ítalíu, Hollandi og á íslandi.
Waclaw Lazarz er fæddur í Pól-
landi 1950. Hann útskrifaðist frá
tónlistarháskólanum í Crakow 1974
og hlaut við það tækifæri sérstök
verðlaun fyrir góðan námsárangur.
1972 hlaut hann stöðu fyrsta
flautuleikara við hljómsveit pólska
ríkisútvarpsins og starfaði þar til
1983. Hann hefur einnig leikið í
barrokktríói pólska ríkisútvarpsins
og starfað sem einleikari með Siles-
ian Philharmonia-hljómsveitinni,
haldið tónleika í Póllandi og víða
um lönd og gert upptökur fyrir
pólska útvarpið. Hann starfar nú
við tónlistarkennslu á Dalvík og
Akureyri.
Dorota Manczyk fæddist í Pól-
landi 1960 og útskrifaðist með ein-
leikarapróf frá Tónlistarháskólan-
um í Katowice 1984 og vann sama
ár keppni um stöðu aðstoðarkenn-
ara við einleikaradeild sama skóla.
Hún hefur haldið tónleika í heima-
landi sínu og erlendis og gert upp-
tökur fyrir pólska ríkisútvarpið.
Dorota kennir píanóleik við Tónlist-
arskólann á Akureyri.
Morgunblaðið/RÞB
Arnheiður Ingimundardóttir
að leika sjálf og það er einmitt léik-
urinn sjálfur sem hún vill leggja
stund á. Leikstjóm gæti hún haft
til hliðar og einnig er hún alvarlega
að hugsa um að ná sér í kennslurétt-
indi ef allt annað þrýtur. „Ég fékk
leiklistarbakteríuna heima á
Húsavík hjá pabba sem lengi hefur
leikið með Leikfélagi Húsavíkur.
Hinsvegar þorði ég aldrei fyrir mitt
litla líf að viðurkenna að mig lang-
aði til að verða leikkona. Mér fannst
það alRof stór draumur til að geta
ræst. Ég fór út með það í huga*oð
læra leikstjóm og annað sem í
kringum leiklistina er, en auðvitað
hvarf þessi skrekkur um leið og út
var komið," sagði Heiða að lokum.
SUNNUDAGINN 20. MARS
RjóCru rs veppasúpa.
Sítrónukryddaöur
lambahryggur.
Verð aðeins kr. -
S7S,-
Munið barnaafsláttinn.
Leikstjórí: Theodór Júlíusson. 4
Leikmynd: Hallmundur Kristinsson.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
5. sýning föstud. 18. mars kl. 20.30.
6. sýning laugard. 19. mars kl. 20.30.
7. sýning sunnud. 20. mars kl. 20.30.
MIÐASALA
IA
Um 96-24073
ISKFéLAG AKUREYRAR
IE
UtyMtfK
ALLTAF A UPPLEIÐ
Londsins bestu Opnunartími
T U OP1* um helgar frá kl 11.30 - 03.00
PIZ^LR Virka daga frá kl. 11.30-01.00