Morgunblaðið - 02.06.1988, Page 2
tvntx (* <mntrr'TTMVUf w* Tfwrn<mM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
Á fimmta tug
laxa úr Norð-
urá og Þverá
LAXVEIÐI á stöng hófst í
þremur fyrstu laxveiðiánum í
gær, Norðurá, Þverá í Borgar-
firði og Laxá í Ásum. Óhætt
er að segja að byrjunin hafi
verið góð, lax var genginn í
allar ámar í nokkrum mæli og
veiði var góð.
Fyrsti stangarveiddi lax sum-
arsins kom úr Hólmataglinu í
Þverá. Þorgeir Jónsson veiddi
hann klukkan 7.15 á flugu sem
heitir Ofsaboom. Þetta var 9
punda hrygna. Alls veiddust 11
laxar í Þverá fyrir hádegið og
undir kvðldið voru þeir orðnir að
minnsta kosti 20 talsins, allir mjög
vænir, en meðalþunginn reyndist
10,5 pund, stærstu laxamir 12
pund. Að sögn Jóns Óiafssonar,
sem var að veiðum í Þverá, var
talsvert af laxi á þeim stöðum sem
reikna má með honum á þessum
tíma sumars, þó áin væri nokkuð
skoluð. Veitt er á sjö stangir í
Þverá.
Stjóm Stangveiðifélags
Reykjavíkur opnaði Norðurá að
vanda og veiddust 15 laxar fyrir
hádegi, 8 til 12 punda fískar, en
þó nokkrir með slæmum netaför-
um. Síðast er fréttist vom að
minnsta kosti 20 laxar komnir á
land og er mál manna að áin
væri með líflegasta móti. Laxam-
ir veiddust bæði á flugu og maðk
og flestir vom teknir á Eyrinni, í
Brotinu og Stokkhylsbroti. í
Norðurá er veitt á 10 stangir.
í Laxá í Ásum sáu menn tals-
vert líf, sérstaklega í Dulsum og
Klapparfljóti, og nokkrir fískar
veiddust, m.a. einn 16 punda, sem
Haukur Garðarsson veiddi á Black
Sheep nr. 6 í neðsta Dulsanum.
Ekki hafði Morgunblaðið spumir
af stærri laxi í gær.
Guðmundur Guðjónsson
Feðgamir Garðar H. Svavarsson (t.h) og Haukur Garðarsson,
sem veiddi fyrsta laxinn í Laxá í Ásum á þessu sumri, 16 punda
hrygnu.
Landbúnaður:
Samdráttur í
fjárfestingum
FJARFESTING og vöruinnflutn-
ingur í hefðbundnum landbúnaði
hefur dregist verulega saman á
siðustu árum, að þvi er fram
kemur i nýútkominni skýrslu
Framkvæmdanefndar búvöru-
samninga.
Fjárfestingar vegna ræktunar og
girðinga, Qárhúsa og flósa numu
um 1 milljarði króna á ári að meðal-
tali á árunum 1975-’80, rúmlega
700 milljónum árið 1984, og aðeins
tæpum 300 milljónum árið 1987.
Þetta var undir 10% af heildarfjár-
festingu atvinnuveganna.
Notkun á innlendum aðföngum
til landbúnaðarins hefur aukist
verulega, að því er segir í skýrsl-
unni, en notkun á erlendum að-
föngum minnkað að sama skapi.
Arnarflug íhugar kaup
á nýrri og stærri þotu
ARNARFLUG skoðar nú þann
möguleika að selja aðra Boeing
737 þotu félagsins og kaupa nýja
og afkastameiri vél í staðinn. Áð
öðrum kosti þyrfti að endurnýja
innréttingu flugvélarinnar í
haust að sögn Þorsteins Þor-
steinssonar flugrekstrarstjóra.
Þá gætu tillögur bandarísku
flugmálastjórnarinnar að nýjum
skoðunarreglum fyrir gamlar
farþegaþotur gert viðhald þeirra
viðameira og tímafrekara.
Að sögn Þorsteins kemur til
greina að kaupa þotu af gerðinni
Boeing 737-300 eða Boeing 757
sérsniðnar fyrir vöru- og farþega-
flutning?. Sú síðamefnda er stærri
en 737 þotan og yki því umsvif
félagsins til muna.
Notuð Boeing 737-300 þota kost-
ar á bilinu 800-960 milljónir króna
samkvæmt upplýsingum frá ráð-
gjafarfyrirtækinu Avmark-services
í Miami. Verð notaðrar Boeing
757-200 þotu getur á hinn bóginn
.legið á bilinu 1360-1440 milljónir
króna. Afgreiðslutími nýrra flug-
véla frá Boeing-verksmiðjunum er
að jafnaði 2 ár en getur orðið mun
lengri á 757-vélunum sem hafa selst
í tugatali undanfamar vikur. Lengri
Þota af gerðinni Boeing 757.
afgreiðslufrestur gæti hækkað not-
aðar vélar í verði.
Amarflugsmenn telja að skjótir
og ömggir vöruflutningar til lands-
ins verði einn helsti vaxtarbroddur-
inn í flugi á næstu árum. Nefna
þeir sem dæmi hraðan vöxt flugfé-
laga í Bandaríkjunum sem sérhæfa
sig í hraðflugi með böggla.
Boeing 737-300 hefur verið
framleidd í fjögur ár en flugfélög
hafa ekki óskað eftir þotum sniðn-
um fyrir fragt og farþega af þess-
ari gerð að sögn blaðafulltrúa
Boeing. Enn sem komið er hefur
aðeins ein Boeing 757 flugvél verið
pöntuð með slíka flutninga í huga.
„Það blæs byrlega fyrir Amar-
flugi og eftirspumin hefur farið
vaxandi. Sem kunnugt er hefur
komið nýtt hlutafé inn í fyrirtækið.
Erlendis er í boði hagstæð ijár-
mögnun á flugvélum til langs tíma
þannig að menn em famir að skoða
þennan möguleika af fullri alvöm,"
ði Þorsteinn.
kjölfar skyndiprófunar á eldri
gerðum Boeing 737 véla sem fram
fór í síðasta mánuði lögðu bandarísk
flugmálayfírvöld til að breytt yrði
um aðferð við skoðun eldri þota.
Þær fælu í sér mjög viðamikla skoð-
un á 4-5 ára fresti sem næði til
beggja þota Amarflugs. Viðhald
yrði flóknara og tímafrekara fyrir
bragðið en Þorsteinn kvað ekki víst
að það myndi auka kostnað við
rekstur félagsins.
Amarflug tók 19 ára gamla
Boeing 737 þotu á leigu í vor en
fyrir hafði félagið 17 ára gamla
737-vél á kaupleigusamningi. Fé-
lagið á forkaupsrétt að henni þegar
samningnum lýkur og gæti nýtt sér
hann til að selja þotuna með hagn-
aði.
Meginkostimir erU tveir, að end-
umýja innréttingu þotunnar sem
farin er að láta á sjá og skoða vél-
ina í haust eða selja hana í skiptum
fyrir í nýja og afkastameiri flugvél.
„Það er ljóst að við þurfum að
bæta þjónustu við farþega. Tilgang-
urinn með því að leigja aðra þotu
í sumar er sá að kanna hvaða mark-
aður er fyrir hendi. í samræmi við
niðurstöðu þess munum við fá þá
þotu til flutninga sem hentar best,“
sagði Þorsteinn Þorsteinsson.
Fimmtíu
fyrirlestrar
á krabba-
meinsþingi
ÁRSÞING krabbameinsfélaga á
Norðurlöndum hófst í gær á
Hótel Holiday Inn í Reykjavík.
Á opnum fundi fyrir hádegi í
dag verður fjallað um hlutverk
félaganna í baráttunni gegn
krabbameini.
Guðmundur Bjamason, heilbrigð-
isráðherra, setur morgunfundinn
og Jan Stjemswárd, yfírmaður
krabbameinsdeildar Álþjóða heil-
brigðisstofnunarinnar, flytur
ávarp. Eftir hádegi í dag verða
fluttir ellefu fyrirlestrar af þeim
fímmtíu sem þátttakendur á þing-
inu geta hlýtt á en að því Ioknu
býður borgarstjórinn í Reykjavík,
Davíð Oddsson, til móttöku í
Höfða.
Þinginu lýkur á morgun, föstu-
dag, en þá segja fulltrúar land-
anna frá spám um fjölda krabba-
meinstilfella á næstu áratugum.
Helgi Sigvaldason fjallar um alda-
mótaspá íslenska krabbameins-
félagsins, sem sagt er frá á bak-
síðu.
Tveir Bandaríkjamenn
í gæsluvarðhaldi
Sakaðir um að hafa haft kynmök við lSárastúlku
Norður- og austurmið:
Ástand sjávar mikið
verra en síðustu ár
Hafrannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson kom í gær úr ár-
legum vorleiðangri sínum til
rannsókna á ástandi sjávar,
gróðri, hitastigi og átu. Athug-
arnir voru gerðar á 105 stöðum
á landgrunninu og utan þess.
Samkvæmt niðurstöðum leið-
angursins hefur ástand sjávar
og lífríkis á norður- og austur-
miðum breyst mjög til hins
verra frá því sem verið hefur
undanfarin fjögur ár og er sjáv-
arhiti tvær til fjórar gráður
undir meðallagi. Ágætt ástand
er hins vegar f sjónum fyrir
Suður- og Vesturlandi.
í tilkynningu Hafrannsókna-
stofnunar um niðurstöður leiðang-
ursins segir að mælingar á norð-
ur- og austurmiðum sýni aðstæð-
ur, sem séu sams konar og á „köld-
um árum“ á borð við árin 1981-
1983, en jafnist þó ekki á við hafís-
árin 1965-1971. Leiðangurinn var
farinn tveimur vikum fyrr en
venjulega, en hafrannsóknamenn
segja að það breýti þó niðurstöð-
unum að engu ráði.
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, sagði að al-
mennt talað væru viss tengsl milli
ástands sjávar og afla; slæmt
ástand Iífrikisins drægi auðvitað
úr vexti fískistofna. Þó væru dæmi
þess að góðir árgangar kæmu í
köldum árum og slæmir í hlýjum.
Keflavík.
TVEIR bandarískir hermenn í
varnarliðinu á Keflavíkurflug-
velli voru úrskurðaðir f 7 daga
gæsluvarðhald í sakadómi
Keflavíkurflugvallar á sunnu-
daginn. Þeim er gefið að sök
að hafa haft kynmök við 13 ára
stúlku úr Njarðvík aðfaranótt
24. maí sl.
Samkvæmt kærunni átti at-
burðurinn sér stað í heimahúsi í
Keflavík og voru bandarísku her-
mennimir þar gestkomandi. Húsr-
áðandi var 19 ára stúlka og var
stúlkan úr Njarðvík einnig gest-
komandi, ásamt þriðju stúlkunni,
sem er 15 ára. í yfírheyrslum hef-
ur komið fram að vín var haft um
hönd og að gleðskapurinn hafí
staðið fram undir morgun. Menn-
imir bera af sér allar sakir og
hafa réttargæslumenn þeirra kært
gæsluvarðhaldsúrskurðinn til
hæstaréttar.
Móðir stúlkunnar úr Njarðvík
komst á snoðir um hinn meinta
atburð og hafði samband við
bamavemdamefnd og félagsmála-
fulltrúa Njarðvíkur, sem kærðu
atburðinn þegar í stað til rann-
sóknarlögreglunnar í Keflavík,
sem hefur málið til meðferðar.
- BB
Laxveiði:
Maðkurinn
á 17 krónur
Laxamaðkurinn mun al-
mennt kosta 17-18 krónur og
silungsmaðkar, sem eru
smærri, 10-15 krónur stykkið.
Nú er fremur lítið um maðka
í Reykjavík vegna þurra veð-
ursins að undanfömu, en eft-
irspumin er næg, að sögn
þeirra maðkasala sem Morg-
unblaðið ræddi við, en lax-
veiðitími stangveiðimanna
hófst f gær.
„Verðið fer eftir framboðinu
og framboðið eftir rigningunni,"
sagði Hallgrímur Marinósson hjá
Veiðihúsinu. Hann sagðist hafa
samband við maðkatínslumenn
á Norðurlandi og Austurlandi til
að fá maðka þaðan á meðan
þurrt væri í höfuðborginni.