Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 20
20
Utflutningsbönn á fersk-
fisk skaða markaðina
- segir Pétur Björnsson, forstjóri Isbergs í Hull
„Ég held að menn séu sammála
um að það sé slæmt fyrir alla að
fá yfir okkur þessar holskeflur
af ferskfiski á Bretlandsmarkað,
og menn þurfa að koma sér saman
um að takmarka þetta á einhvern
hátt. Það versta sem hægt er að
gera er hins vegar að setja bann,
eins og sett var i eina viku um
daginn," sagði Pétur Björnsson,
forstjóri umboðs- og sölufyrirtæk-
isins ísbergs i Hull i Bretlandi, er
borin voru undir hann ummæli
Kristjáns Ragnarssonar, form-
anns LÍU, i Morgunblaðinu ný-
lega, þar sem hann sagði að ráð-
stafa þyrfti aflanum öðruvísi en
að flytja hann út ferskan vegna
offramboðs og verðfalls á fersk-
físki.
„Við höfum ákveðnum skyldum
að gegna við þessa kaupendur okk-
ar, alveg á sama hátt og við höfum
skyldum að gegna við kaupendur á
freðfiski," sagði Pétur. Hann sagði
að ferski fiskurinn skilaði þjóðarbú-
inu sambærílegum telq'um og frystur
og saltaður fiskur, þó að það virtist
vera í tísku að líta niður á fersk-
fiskútflutning og þá sem stæðu í
honum. Viðskiptavinurinn tæki
ferskan fisk fram yfir frystan og það
yrði að taka tillit til þeirra óska. Ef
bönn á útflutningi yrðu reglulegar
uppákomur myndu menn glata
trausti kaupenda og skemma mark-
aðinn.
Pétur sagði að offramboð af fersk-
um fiski værí vandamál í kannski
um 10 vikur á ári og oft væri það
þá vegna þess að vinnslan á íslandi
annaði ekki aflanum. Ef koma eigi
í veg fyrir offramboð væri það fyrst
og fremst spuming um að stjóma
sókninni.
Hlutfall ferskfisks sem fer í fryst-
ingu í Bretlandi fer varla yfir 30%,
að sögn Péturs og hann sagðist ef-
ast um að það færi nokkum tíma
yfir 40%, þó að tölur eins og 70-90%
hefðu sést í íslenskum íjölmiðlum.
Lítill hluti þessa frysta fisks væri í
beinni samkeppni við íslenskan freð-
fisk, til dæmis væri inni í fyrr-
nefndri tölu frystur koli, sem væri
ekki í samkeppni við neinn annan
íslenskan fisk. Um 60.000 tonn af
ferskum fiski vom flutt út í fyrra til
Bretlands, þar af 36.000 tonn af
þorski, sem er um 10% af heildar-
þorskaflanum, að sögn Péturs.
Dr. Birgir Jakobsson bamalæknir.
Ari Halldórsson, fiskumboðsmaður:
Stjórn á ferskfiskút-
flutningi nauðsynleg
„VIÐ þurfum að hámarka verð á
ferskfiskinum og það gerum við
ekki nema með stýringu," sagði Ari
Halldórsson, fiskumboðsmaður i
Bremerhaven, i samtali við Morg-
unblaðið um hugmyndir Kristjáns
Ragnarssonar og fleiri um tak-
mörkun á framboði á ferskfiski
vegna verðfalls á honum. Hann
sagði að þau tvö bönn sem hefðu
verið sett á ferskfisksölu á Þýska-
landsmarkað hefðu örugglega ekki
skaðað og slík timabundin bönn
væru skynsamleg ef rétt væri að
þeim staðið.
Ari sagði að við væmm nú að horfa
upp á almenna verðlækkun á öllum
sjávarafurðum, en sú lækkun sem
varð á ferskfiski á Þýskalandsmarkaði
í maímánuði hefði verið óeðlilega mik-
il. Spumingin væri hvemig væri best
að stjóma framboðinu, heima á ís-
landi eða erlendis. Báðir kostimir
væm framkvæmanlegir, en menn
þyrftu að koma sér saman um hvaða
hátt þeir vildu hafa á stýringunni.
Tvö sölukerfi á ferskum fiski em í
gangi í Þýskalandi, að sögn Ara; ann-
ars vegar fastur markaður, þar sem
varan er seld fyrirfram á ákveðnu
verði, og hins vegar uppboðsmarkað-
ur, þar sem verð sveiflast eftir fram-
boði og eftirspum. Uppboðsmarkaður-
inn réðist að hluta eftir ástandinu á
fasta markaðinum.
Ari taldi að íslendingar hefðu
einblínt um of á uppboðsmarkaðinn
án þess að taka tillit til ástandsins á
fasta markaðinum, en það væri vert
að athuga hvort við ættum að beina
viðskiptum okkar meira þangað. Norð-
menn og fleiri þjóðir hefðu selt mikið
inn á fasta markaðinn, og reyndar
nokkrir íslenskir aðilar líka og það
virtist gefa góða raun.
Einn af kostum fasta markaðinn
væri að nokkur kostnaður sparaðist
við að selja í hinu beina kerfi. Menn
mættu ekki hafna slíkum möguleikum
fyrirfram. íslendingar réðu um helm-
ingi uppboðsmarkaðarins og um íjórð-
ungi heildarmarkaðarins, þannig að
með skynsamlegri stýringu ættum við
að geta náð betri verðum.
Ari sagði að lítill hluti islenska
ferskfisksins sem færi á Þýskalands-
markað væri í beinni samkeppni við
aðrar íslenskar fiskafurðir. Það skorti
stefnumörkun um nýtingu aflans, en
það væri firra að ætla að hætta skyndi-
lega öllum útflutningi á ferskfiski.
Doktorsvöm
í Stokkhólmí
Frá Pétri Hafstein Lárussyni fréttaritara
Morgunblaðsins í Stokkhólmi.
BIRGIR Jakobsson bamalæknir
varði doktorsritgerð við Karol-
inska institutet i Stokkhólmi mið-
vikudaginn 25. maí. Ritgerðin
fjallar um áhrif eggjahvítu-
neyslu á nýmastarfsemi baraa,
einkum að tveggja ára aldri en
þá ná nýrun fullum þroska.
Dr. Birgir hefur unnið að rann-
sóknum varðandi þetta efni undan-
farin fjögur ár. í stuttu samtali sem
fréttaritari Morgunblaðsins í Stokk-
hólmi átti við hann kom fram að
vitað er að of mikil neysla eggja-
hvítuefna getur skaðað nýmastarf-
semi í fullorðnu fólki. Hugsanlegt
er einnig að hún valdi of háum blóð-
þrýstingi. Minna hefur verið vitað
um áhrif hennar á böm. Þó hafa
sænsk heilbrigðisyfírvöld látið
hækka eggjahvítumagn í bamamat
sem seldur er í landinu.
Dr. Birgir Jakobsson er fæddur
í Reykjavík 1948, sonur hjónanna
Ragnheiðar Jónsdóttur fulltrúa á
Kleppsspítala og Jakobs Tryggva-
sonar umdæmisfulltrúa hjá Pósti
og síma. Hann tók stúdentspróf frá
MR árið 1968 en kandídatsnámi í
læknisfræði við Háskóla íslands
lauk hann 1975. Eftir það starfaði
hann í tvö ár sem héraðslæknir á
Patreksfirði. Hélt hann þá til
Svíþjóðar og starfaði í fimm ár í
Eskilstuna þar sem hann sérhæfði
sig í bamalækningum.
Dr. Birgir er kvæntur Ástu Am-
þórsdóttur sem vinnur á skrifstofu
Flugleiða í Stokkhólmi og eiga þau
þijú böm.
Þess skal að lokum getið að í
næsta mánuði mun dr. Birgir Jak-
obsson hefja störf við bamadeild
Landakotsspítala.
3.1-UEÐ
Ungbarnadeild
Jogginggallar frá 590.-
Buxur frá 490.-
Bolir frá 480.-
Peysur frá 450-
Dömudeild
Buxur___________frá 690,-
Joggingfainaður frá650.-
Peysur _________frá 750.
Pils frá 590.
Bamadeild
Joggingfalnaður frá450,-
Peysur_________frá 650.-
Buxur frá 490.-
Herradeild
Buxur_________
Skyrlur_______
Peysur
Bórnullarbolir
frá 690.-
frá 590,-
frá 890.- /J
frá 595.- !
Mkill afsláttur
Sumarhúsgögn, gott verð.
Skór á alla flölsMduna.
Leikföng. Búsáhöld.
Gjafavara o.fl. o.fl.
Nýjar vörur daglega
&
œ j