Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988 Herdís Hákonar- dóttir - Minning Fædd 17. júlí 1924 Dáin 23. maí 1988 í dag verður til grafar borin syst- ir mín, Herdís, sem lést 23. þ.m. á Landspítalanum eftir hetjulega bar- áttu við skæðan sjúkdóm. Mér koma í hug ljóðlínur sem Sigurjón Narfason, móðurbróðir okkar, orti á fermingardegi hennar: Við biðjum þér Dísa, vorið að vísa og lýsa þér leið um hin ónumdu lönd þar áttu að byggja sem ljósgeislar liggja og lauga þinn dal og strönd. Hver árgeisli fagur, hver ókominn dagur þér heilsi með blóm í hönd. Ég trúi að umhverfí hennar nú sé í þá veru sem fermingaróskin var. Dísa, en svo var hún nefnd í daglegu tali, var dóttir hjónanna Petrínu Narfadóttur frá Kalastaða- koti, Hvalfl' arðarströnd og Hákonar Halldórssonar, skipstjóra frá Akra- nesi. Þau bjuggu allan sinn búskap á Kárastíg 14 hér í bæ. Hákon lést 13. mars 1951 en Petrína lifir í hárri elli. Er hún til heimilis á Dval- arheimilinu Höfða á Akranesi. Dísa var næstelst fjögurra barna þeirra, en Ninna dóttir Hákonar af fyrra hjónabandi, lést þ. 11. þ.m. Éftirlifandi systkini eru Haraldur, f. 1923, búsettur á Fiskilæk, Þóra Níelsína Helga, f. 1926, búsett á Kárastíg 14, og Anna Soffía, f. 1927, búsett á Akranesi. Eigum við systkinin ljúfar minn- ingar frá bemskuárum á Kárastígn- um. Dísa var aðeins þriggja ára er hún fór til sumardvalar að Valda- stöðum í Kjós til föðursystur okkar, Halldóru, sem bjó þar ásamt böm- um sínum í sambýli við mág sinn, Steina Guðmundsson og konu hans, Elínu, en Halldóra missti mann sinn, Þorkel Guðmundsson 1918. Var þetta mjög myndarlegt heimili og dvaldi Dísa þar hvert sumar uppfrá því fram undir fermingu. Einnig dvöldu þar á sumrin systkini okkar, Haraldur og Þóra. Var þetta ómetanleg hjálp fyrir foreldra okk- ar. Átti Dísa ákaflega ljúfar minn- ingar þaðan. Hún rann upp eins og fífíll í túni; varð falleg ung stúlka með ríka fegurðartilfínningu. Þessi reisn og glæsileiki fylgdi henni alla tíð. Hún fór fljótt að taka til hend- inni heima enda hamhleyhpa til allra verka og kom þá fram hennar góði vilji og tilhneiging til að fegra og færa til betri vegar eftir því sem efnin leyfðu. Eins og títt var í þá daga fór Dísa ung að árum í „vist“, eins og þá var kallað; að passa böm og hjálpa við heimilisstörf. Kom hún sér hvarvetna vel. Snemma kom í ljós hvað hún hafði mikið yndi af söng og tónlist, söng ósjaldan við verk sín, enda hafði hún góða söngrödd. Hún var ákaf- lega glaðlynd og félagslynd, fylgd- ist vel með því sem var efst á baugi hveiju sinni með ákveðnar skoðanir á hveiju máli. Dísa giftist 10. janúar 1948 Guð- mundi Jónssyni frá Vola í Hraun- gerðishreppi, syni hjónanna Jó- hönnu Jónsdóttur og Jóns Þorkels- sonar. Guðmundur keyrði um langt árabil hjá nafna sínum Jónassymi, var ákaflega traustur og gætinn bflstjóri og með afbrigðum fróður. Þau bjuggu á ýmsum stöðum hér í borginni og víðar þar til 1952 að þau flytja í Kópavoginn, fyrst í leiguhúsnæði en síðan byggðu þau' sér hús að Þinghólsbraut 12 og fluttu í það 1958 og hefur heimili þeirra staðið þar upp frá því. Þau eignuðust fjögur böm, sem eru: Jóhanna f. 1947, gift Jóhanni Magnússyni; Hafsteinn f. 1948; Haraldur Heimir f. 1955 og Hlynur f. 1959. Fyrir hjónaband eignaðist Dísa eina dóttur, Petrínu Konný, gifta Kristni Benediktssyni. Bama- bömin eru 9 og bamabamabam eitt. Hafa þau öll mikið misst því Dísas var mikið fyrir fjölskyldu sína, vakin og sofín í umhyggju fyrir henni. Marga stund átti hún í garðinum sínum því hún unni blómum og öllu því sem fagurt var. Ég sem þetta rita flutti í Kópavog- inn 1956. Var þá stutt á milli heim- ila okkar og ósjaldan kom Dísa og tók til hendinni hjá mér, þegar ég átti við veikindi að stríða og studdi mig ef eitthvað bjátaði á. Verður það seint fullþakkað. Síðastliðið sumar fór hún ásamt okkur hjónun- um til Kanada og heimsóttum við frændfólk okkar í Alberta. Var það með ólíkindum hversu hún var dug- leg og hress. En svo þyrmdi yfír aftur í haust og þurfti hún að fara í ítrekaðar aðgerðir, en allt kom fyrir ekki. En hún barðist til þraut- ar þar til yfír lauk. Um leið og ég færi systur minni innilegar þakkir fyrir veitta hjálp mér og mínu heimili, votta ég aldr- aðri móður, eiginmanni, bömum og bamabömum og öðmm aðastand- + Móðir okkar, ELfSABET EYJÓLFSDÓTTIR, lést á Borgarspítalanum 31. maí 1988. Pétur Eiríksson, Eyjólfur Eiríksson, Grétar Eirfksson, Hulda Eirfksdóttlr, Ólafur Eirfksson. t Tengdamóðir mín og amma okkar, INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR, Austurbrún 6, andaöist í Landspítalanum 31. maí. Birgir Finnsson, Kristfn Birgisdóttir, Knútur Birglsson. + Móðir mfn, KETILFRÍÐUR DAGBJARTSDÓTTIR, Seljahlfö, andaðist í Borgarspítalanum þriðjudaginn 31. maí. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurbjörg Guðjónsdóttir. + Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir og afi GUÐMUNDUR JÓNSSON fyrrv. garðyrkjuréöunautur, Esjubraut 30, Akranesl, lóst í Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 30. maí. Hildur Jónsdóttir, Jóna Björk Guðmundsdóttir, Jóhannes Sigurbjörnsson, og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, ÁSTRÓS GUÐMUNDSDÓTTIR Vatnskoti 1, Þykkvabæ, verður jarðsungin frá Hábæjarkirkju laugardaginn 4. júníkl. 14.00. Sigurður G. Ólafsson, Óli Ágúst Ólafsson, Guðmundur Ólafsson, Ágústfna Ólafsdóttir, Hugrún Ólafsdóttir, Ásmundur Þór Ólafsson, barnabörn Jóhanna Bjarnadóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Agúst Karl Sigmundsson, Helgi Hauksson, Súsanna Torfadóttir, barnabarnabörn. + Eiginkona mín og móðir okkar, LOVfSA DAGMAR HARALDSDÓTTIR, Birkiteigi 6, Keflavfk, lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 1. júní. Gfsti Halldórsson og börn. Móðir okkar, + SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Sólvangi, áður Bröttuklnn 6, lést 28. maí. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 3. maí kl. 10.30. Bragi Jafetsson, Viktorfa Jafetsdóttlr, Halldóra Jafetsdóttir. + Útför móður okkar, GUÐMUNDU KATARÍNUSDÓTTUR, Neðri-Engidal, er andaöist föstudaginn 26. maf, fer fram frá fsafjaröarkapellu föstudaginn 3. júní kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlegast láti Sjúkrahús ísafjarðar njóta þess. Fyrir hönd vina og vandamanna, Katrfn, Gerða og Kristfn Pétursdætur. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SOFFÍA MAGNÚSDÓTTIR, Lokastfg 21, verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. júní kl. 10.30. Þórarinn Gíslason, Áslaug Þórarinsdóttir, Anna Marfa Þórarinsdóttir, Konréð Jóhannsson, barnabörn. endum einlæga samúð. Guð styrki ykkur öll. Anna Þann 23. maí sl. andaðist á Borg- arspítalanum æskuvinkona mín, Herdís Hákonardóttir, sem alltaf var kölluð Dísa. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar við vorum smástelpur á Kára- stígnum. Á Kárastíg 14 var ég sem heimagangur og lékum við okkur saman ásamt systkinum Dísu, sem voru þijú. Þar var alltaf mikið líf og flör. Þegar veður var vont lékum við okkur oft á háaloftinu þar sem Hákon, faðir Dísu, var við að laga netin sín. Aldrei man ég eftir að amast hafí verið við ærslunum í okkur svo umburðarlyndur var hann. Þannig var heimilislífíð á Kárastíg 14, samheldin fjölskylda, sem heillaði mig. Þar var alltaf mikill gestagangur, frænkur og frændur úr sveitinni og oft var glatt á hjalla, spilað á orgel og sungið. Dísa hafði mjög fallega söngrödd og hafði gaman af að syngja bæði sem bam og eftir að hún varð full- orðin. Þannig liðu árin í gleði og leik. Sem unglingur fluttist ég af landi brott og skildu þá leiðir okkar Dísu þar sem stríðið hamlaði eðlilegum samböndum. En þegar ég fluttist aftur heim lágu leiðir okkar aftur saman. í Kópavogi bjuggum við með okkar fjölskyldum og urðum nágrannar. Bömin okkar, sem öll vom á líku reki, léku sér saman og ófá vom þau skiptin sem við lit- um inn hvor hjá annarri. Dísa hafði yndi af öllu fallegu. Sjálf var hún glæsileg kona og hafði gaman af að hafa fallegt í kringum sig, bæði úti og inni. Hún hafði yndi af að fara i leikhús og á ópemr og fylgdist þannig vel með öllum menningarmálum. Dísa var alltaf boðin og búin að rétta öðmm hjálparhönd og jákvæð- ari manneskju hef ég varla þekkt. Þrátt fyrir þann sjúkdóm sem hún átti við að stríða síðustu tvö árin var hún alltaf bjartsýn og ákveðin í að sigra. En vilji manns má sín lítils í baráttunni við þennan sjúk- dóm. Guðmundi, Petrínu og bömum vótta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu minnar elskulegu vinkonu. Áslaug Hún amma Dísa er dáin, dáin eftir langa og erfíða baráttu við veiki sem svo margir hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir, nefnilega krabbameini. Mér þótti svo vænt um hana. Minning hennar mun lifa og skína á tilvemna það sem eftir er. Þegar ég var 6 ára fluttist ég ásamt Qölskyldu minni til útlanda þar sem ég bjó í tæp 12 ár. Alltaf var fögnuðurinn mikill að koma heim til íslands í fríum og auðvitað var maður í hlýjunni á Þinghóls- brautinni hjá henni ömmu Dísu. Þá leið manni alltaf vel. Það má með sanni segja að amma hafí verið kjami heimilisins sem hún hélt mjög vel um. Hún veitti mér mikla örygg- istilfinningu. Krafturinn og dugn- aðurinn í henni var mjög mikill og það hjálpaði henni mikið í barátt- unni við dauðann. Hún amma Dísa var sko ekki tilbúin til að fara og við ekki tilbúin til að missa hana og söknuðurinn er því mikill. Mér fínnst það skrítið að manneskja, eins og hún amma mín, sem aldrei reykti eða drakk og var líkamlega hraust skyldi endilega þurfa að deyja úr krabbameini, en svona er þetta nú í lífinu. Eitt af því sem stendur upp úr í minningu hennar er hversu ákveðin hún var og það að yfirleitt fékk hún sínu fram- gengt, en ekki í þetta skipti, enda við ofurefli að etja. Það þótti öllum vænt um ömmu, enda lífsgleði og orka mikil, sem vafalaust hefur smitað út frá sér. Það væri hægt að hafa þessa grein miklu lengri og fyllri af góðum minningum af ömmu minni, en ég ætla að láta þetta gott heita. Ég hef misst mik- inn ástvin og votta ég öllum sam- úð, sem þótti vænt um hana. Guð blessi minningu hennar. Benni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.