Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Garðabær
Blaðbera vantar í Mýrar.
Upplýsingar í síma 656146.
Hótel Norðurljós,
Raufarhöfn
Hafnarfjörður
-blaðberar
Blaðbera vantar á Hvaleyrarholtið.
Upplýsingar í síma 51880.
Skrifstofustarf
Vantar starfskrafta til matreiðslu- og annarra
hótelstarfa í sumar.
Upplýsingar gefa Dísa Pálsdóttir eða Gunnar
Hilmarsson í síma 96-51151.
Hótel Norðurljós.
Útkeyrslu-
og lagerstarf
Öflugt innflutningsfyrirtæki vill ráða strax
röskan starfsmann í lager-, útkeyrslustörf
o.fl. Framtíðarvinna og góð starfskjör.
Umsóknum sé skilað á auglýsingadeild Mbl.
eigi síðar en 6. júní merktum: „E - 8728“.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKIIREYRI
Staða bókasafnsfræðings við bókasafn
sjúkrahússins í tengslum við Háskóla á Akur-
eyri er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. júní nk.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins, Halldóri Jónssyni, en nánari upplýs-
ingar veitir bókavörður safnsins, Björg Þórð-
ardóttir, í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Eldhús
Óskum að ráða duglegan starfskraft til að-
stoðar í eldhúsi. Unnið á vöktum. Góð vinnu-
aðstaða.
Upplýsingar á staðnum.
Á Hótel íslandi vinnur hresst og skemmtilegt
fólk sem er tilbúið að bæta við sig eftirtöldum
samstarfsmönnum:
- Faglærðum framreiðslumönnum.
- Aðstoðarfólki í sali.
- Aðstoðarfólki í eldhús.
Upplýsingar veitir Hörður Sigurjónsson, að-
stoðarhótelstjóri, á hótelinu eftir kl. 14 í dag
og á morgun.
Lítið útflutningsfyrirtæki vill ráða skrifstofu-
mann til starfa í hálfsdagsvinnu. Almenn
skrifstofustörf.
Upplýsingar í síma 689118.
Afgreiðslustarf
Óskum að ráða starfsmann á kassa í versl-
un. Vinnutími eftir hádegi.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmanna-
stjóra, sem veitir upplýsingar í síma 698320.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALO
SAMBANDSHÚSINU
Ritari á stjórnstöð
Securitas óskar að ráða ritara á stærstu
öryggismiðstöð landsins. Leitað er að dug-
legri og samviskusamri manneskju sem get-
ur unnið sjálfstætt.
Vinnutími er frá kl. 15.00 til kl. 20.00 virka
daga.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu fyrirtækisins í Síðu-
múla 23, 2. hæð.
rmSECURITAS HF
SECTIRII VS
Sölumenn
Bókaútgáfan Iðunn óskar að ráða nokkra
reynda og kraftmikla sölumenn til starfa nú
þegar. Söluhæfni skilyrði. Starfssvæðið er
innan Reykjavíkur og utan. Dagvinna eða
kvöld- og helgarvinna. Um fjölbreytta og
vandaða söluvöru er að ræða. Tekjumögu-
leikar mjög góðir.
Allar nánari upplýsingar í síma 28787 frá kl.
10.00-12.00 virka daga.
IÐUNN
Bókaútgáfan Iðunn,
sölustjórn,
Bræðraborgarstíg 7, 2. hæð.
Aðstoðarfólk
í prentsmiðju
Aðstoðarfólk óskast til starfa í prentsmiðju
í Austurbænum. Vaktavinna.
Góð heildarlaun eru í boði.
Lágmarksaldur 24 ára.
Umsóknir og allar nánari upplýsingar veittar
á skrifstofu okkar.
Qjðnt Tónsson
RÁÐCjÖF & RÁÐN I NCARÞjÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SlMl 621322
REYKJMJÍKURBORG
Aou&vi Stödun
Arkitekt
Laus er til umsóknar staða arkitekts við
borgarskipulag Reykjavíkur.
Upplýsingar hjá forstöðumanni eða Bjarna
Reynarssyni, símar: 26102 og 27355.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki er laus
til umsóknar kennarastaða í þýsku og einnig
kennarastaða í stærðfræði og eðlisfræði.
Við Fjölbrautaskólann við Ármúla er laus
1/2 kennarastaða í vélritun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 20.
júní næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið.
Ritari
- félagasamtök
Stór félagasamtök í Austurborginni vilja ráða
starfskraft til léttra skrifstofustarfa.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Verslunar- eða stúdentspróf æskilegt.
Starfsreynsla á skrifstofu þarf ekki að vera
fyrir hendi.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Ritari - 2797“ fyrir helgi.
Herradeild
Óskum eftir starfsmanni í herradeild, þó
ekki yngri en 20 ára. Starfsreynsla æskileg.
Upplýsingar í síma 21881 milli kl. 16.00-
18.00 fimmtudag og 9.00-11.00 föstudag.
Markaðsfræði
Nemi í markaðsfræði í Bandaríkjunum óskar
eftir góðri sumarvinnu sem tengist náminu.
Hefur reynslu af sölustörfum. Getur þyrjað
strax. Upplýsingar í síma 34941.
Röntgentæknar
- meinatæknar
Störf hjá Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs.
Vanti þig góðan vinnustað með góðum vinnu-
anda og góðum launum þá höfum við starf
fyrir þig.
Hafðu samband sem allra fyrst við okkur í
síma 92-14000.
Framkvæmdastjóri.
Organistastarf
Organista vantar í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn.
Upplýsingar í síma 99-3661 fyrir kl. 12.00
og eftir kl. 17.00.
Sóknarnefnd.