Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 43
ÁÍÖRGÍntfBLA£ÍÍÐ, FÍMMTUI)AGUR 2. JÍJNÍ"Í988
Morgunblaðið/Þorkell
Frystiklefinn sem eldurinn kom upp í er ónýtur eftir brunann og tjónið í húsinu nemur tugum milljóna.
Bruni í Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur:
Reyksprenging og mökk-
urinn skyggði á sólu
Morgunblaðið/KGA
Signrður Emilsson, formaður rafveitunefndar Hafnarfjarðar, tekur fyrstu skóflustunguna að nýju að-
veitustöðinni.
Rafveita Hafnarfjarðar 50 ára:
Fyrsta skóflustungan að
nýrri aðveitustöð tekin
FYRSTA skóflustungan að nýrri
aðveitustöð, sem risa á við Öldu-
götu 39 í Hafnarfirði, var tekin i
gær. Aðveitustöðin kemur til með
að þjóna öllu orkusvæði Hafnar-
fjarðar. Hingað til hafa Hafnfirð-
ingar fengið sina raforku i gegn-
um 33 kw linu frá Elliðaárstöðinni
en sú lína og fleiri linur sem Uggja
til Suðurnesja eru nú fyrir i skipu-
lagi þess svæðis.
Ráðgert er að hin nýja aðveitustöð
tengist nýrri rafstöð sem nú er á
undirbúningsstigi í Hamranesi,
skammt sunnan við Hafnarfjörð. Sú
stöð mun sjá Suðumesjum, Hafnar-
firði og Reykjavík fyrir raforku.
Að sögn Jonasar Guðlaugssonar,
rafveitustjóra Hafnarfjarðar, verður
lögð strengjalína frá aðveitustöðinni
og loftlína yfir hraunið að aðal-
spennistöð Landsvirkjunar, sem
byggð verður í Hamranesi í lok næsta
árs.
Fyrsta skóflustungan að nýrri að- •
veitustöð Hafnfírðinga var tekin á
afmælisdegi Rafveitu Hafnarfjarðar.
Á fundi Rafveitunefndar i gær var
eftirfarandi samþykkt gerð: í tilefni
50 ára afruælis Rafveitu Hafnar-
fjarðar verði reistur minnisvarði við
Hörðuvallastíflu og unnið verði að
varðveislu stíflunnar og þeirra minja
sem þar eru og tengjast sögu Raf-
veitunnar.
TUGMILLJÓNA króna tjón varð er eldur kviknaði í Hraðfrystihús-
inu á Ólafsvík með þeim afleiðingum að framleiðsla þess stöðvast
næstu þrjár vikurnar. Eldsins varð vart skömmu eftir ld. 11 í gær-
morgun er starfsmaður i tækjaklefa hússins opnaði hann. Gaus þá
mikill eldur og reykur á móti honum og átti hann fótum fjör að
launa. Honum tókst að setja brunaboða hússins í gang og starfsfólk
frystihússins tók að streyma út úr því enda fylltist húsið af reyk
og sóti á örsskömmum tíma. Sjónarvottar sem stóðu fyrir utan hú-
sið lýstu atburðinum þannig að heyrst hefði mikil reyksprenging
og hefði mökkurinn sem fylgdi í kjölfarið verið svo mikill að skyggði
á sólu.
Tómas Sigurðsson slökkviliðs-
stjóri á Ólafsvík sagði í samtali við
Morgunblaðið að hið fyrsta sem
þeir hefðu gert var að senda fjóra
reykkafara inn í húsið til að athuga
hvort eitthvert fólk væri enn til
staðar þar en síðan hófst slökkvi-
starfið og gekk það mjög greiðlega.
Kom þar í góðar þaríir nýr og full-
kominn dælubíll sem slökkviliðið
fékk í fyrra.
“Við teljum að eldurinn hafi fyrst
komið upp í frystiklefanum og það-
an hafi hann borist ytir í tækjaklef-
ann sem liggur samhliða. Við vitum
hinsvegar ekki ekki enn hver elds-
upptökin voru,“ sagði Tómas.
Á milli 50 og 60 manns voru í
húsinu er eldsins varð vart og ekki
náðu allir að koma sér út í tíma.
Ólafur Kristjánsson yfirverkstjóri
vann það afrek að bjarga ungri
stúlku úr húsinu en hún var nýbyij-
uð að vinna þar og rataði ekki út
er húsið fylltist af reyk.
“Óð inn í reykinn
og dró hana út“
“Ég var ekki í húsinu sjálfu er
eldurinn gaus upp heldur í salt-
fiskverkuninni sem er næsta hús
við. Ég hljóp að frystiháinu og rak
fólkið af neðri hæðinni út. Síðan
heyrði ég í stúlkunni og óð þá inn
í reykinn, náði í hana og dró hana
út,“ sagði Ólafur Kristjánsson.
En var nokkuð hægt að sjá til í
húsinu?
“Nei, maður sá ekki handa sinna
skil. Hinsvegar kallaði ég fyrst til
stúlkunnar og bað hana að ganga
á hljóðið. Er hún gat það ekki var
ekki um annað að ræða en ná í
hana. Ég passaði mig á því að halda
höfðinu sem næst gólfínu og þetta
blessaðist allt. Þegar svona kemur
upp á hugsar maður fyrst og fremst
um að bjarga fólki út, annað kemst
ekki að á meðan“
Framleiðslan stöðvast
í þijár vikur
Aðaleigandi og framkvæmda-
stjóri frystihússins er Ólafur Gunn-
arsson. Hann sagði að enn væri of
snemmt að meta tjónið af þessum
bruna, en sagði ljóst að það næmi
tugmilljónum króna og að fram-
leiðsla hússins myndi stöðvast
næstu þijár vikurnar.
“Fyrir utan brunatjónið í frysti-
og tækjaklefunum er stór hluti
hússins illa farinn af reyk og sóti
en loftræstikerfið bar reykinn um
Kristleifur Kolbeinsson, slökkviliðsstjóri á Hellissandi, Ólafur Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri, reykkafari og starfsmenn ganga út úr
húsinu eftir hafa kannað tjónið.
allt," sagði Ólafur Gunnarsson. “í
frystiklefanum voru á milli 300-400
tonn af unnum fiski sem telja verð-
ur ónýta vöru.“
Framleiðsla í frystihúsinu hefur
verið nokkuð jöfn og góð undan-
famar vikur eftir léleg aflabrögð í
vetur og er eldurinn kom upp var
verið að landa 160 tonna afla úr
togaranum Má. Ólafur sagði að
þessi afli yrði sennilega sendur á
fiskmarkaðinn í Hafnarfirði í dag.
“Því er ekki að neita að við höf-
um orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni
en nú' er ekki annað framundan en
byggja upp á nýtt og koma fram-
leiðslunni í gang sem fyrst,“ sagði
Olafur.
“Mikil áfall“
“Það er ljóst að það er alvarlegur
atburður fyrir bæjarfélagið og mik-
ið áfall er stærsta fyrirtækið verður
úr leik með þessum hætti." sagði
Kristján Pálsson bæjarstjóri. “Hins-
vegar er duglegt fólk sem vinnur
hjá þessu fyrirtæki og ég á von á
að allt verði sett á fullt strax við
að koma framleiðslunni aftur í
gang. Því býst ég ekki við að fram-
leiðslan stöðvist í langan tíma.“
Kristján reiknaði með að þau
skip og bátar sem lagt hafa upp
afla sinn hjá hraðfrystihúsinu
myndu leggja öðrum fiskverkunúm
í bænum til hráefni meðan að vinna
í frystihúsinu liggur niðri.
Utanríkisráð-
herra afhent skjöl
SAMTÖK herstöðvaandstæðinga afhentu í gærmorgun utanríkisráð-
herra afrit af öllum þeim skjölum sem þau hafa í fórum sínum og
nefnd hafa verið „bandarisk leyniskjöl", en þau hafa verið leyst úr
leyndarböndum { bandariskum skjalasöfnum á undanfömum árum.
Að sögn Ingibjargar Haraldsdóttur, formanns samtakanna, var af-
hending þessara skjala liður i að gera öll sköl af þessu tagi aðgengileg
íslendingum.
Skjölin eru 143 talsins ogeru aðal-
lega frá árunum 1948-1951. Fjalla
þau fyrst og fremst um íslensk vam-
armál en einnig eru þar skýrslur um
almenna upplýsingaöflun bandarfska
sendiráðsins í Reykjavík.
Ingibjörg Haraldsdóttir sagði I
samtali við Morgunblaðið að skjöl
þessi hefðu verið I vörslu Þjóðskjala-
safns Bandaríkjanna, og hefðu þau
komist í hendur samtakanna fyrir
milligöngu Elfars Loftssonar, sagn-
fræðings.
Morgunblaðið/KGA
Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra tekur við skjölunum
úr hendi Ingibjargar Haraldsdóttur, formanns Samtaka herstöðva-
andstæðinga. A milli þeirra stendur Arni Hjartarson.