Morgunblaðið - 02.06.1988, Page 4
886X IWÚt, .2 HUOAaUTMMH .OIOAJaMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
4~
Áfengi og tóbak:
Meðaltalshækk-
un er um 6,5%
Opið var í áfengisverzlununum í Kringlunni og í Ólafsvík í gær, en
lokað annars staðar.
ÁFENGI OG TÓBAK hækkaði
að meðaltali um 6,5% í gær og
voru flestar áfengisútsölur lok-
aðar vegna vörutalningar. Tvær
útsöiur voru þó opnar, í Kringl-
nnni og á Ólafsvik, og sagði
Höskuldur Jónsson forstjóri
ÁTVR að í þessum verslunum
væri birgðarbókhald tölvuvætt
og þvi hefði ekki þurft að loka
þeim.
Höskuldur sagði að hækkunin
væri til að vega á móti áhrifum
tveggja síðustu gengisfellinga sem
hefðu aukið allan erlendan kostnað.
Hækkunin væri nokkuð misjöfn og
hefðu dýrari vínin hækkað meira
en þau ódýrari. Brennivínsflaskan
hækkaði um 4,5%, kostaði 940
krónur fyrir hækkun en kostar nú
1000 krónur. Ein flaska af Smim-
off-vodka kostar nú 1430 krónur,
en kostaði 1370 sem er 4,5% hækk-
un. Dýrari tegundir, svo sem
koníak, hækka meira og nú kostar
ein flaska af Camus VSOP 2010
krónur, en hefði kostað 1820 krón-
ur sem er 10,4% hækkun. Flaska
af algengu rauðvíni, sem kostaði
560 krónur, kostar nú 610 krónur
sem er 8,9 % hækkun og önnur
tegund, sem kostar 740 krónur
kostar nú 780 krónur. Flaska af
algengu hvítvíni kostaði fyrir hækk-
unina 550 krónur en kostar nú 580
krónur og dýrari tegund sem kost-
aði 920 krónur kostar nú 1030
krónur sem er 12% hækkun.
Pakki af Winston King Size, sem
er algeng vindlingategund, 145
krónur en kostaði fyrir hækkunina
136 krónur og hefur hækkað um
6,6%. Pakki af algengum smávindl-
um svo sem London Docs hækkar
hinsvegar um 9,7%, fyrir hækkun
kostaði pakkinn 210 krónur en
kostar nú 230 krónur. Nú kostar
ein dós af neftóbaki 108 krónur.
kostaði 101 krónu og er það 6,9%
hækkun.
Síðasta hækkun hjá ÁTVR var
12. janúar og þá hækkaði áfengi
og tóbak um 5,4% að meðaltali.
Hafnarfjörður:
*
Afengis-
útsala í
húsiRafha
ÁFENGIS- OG tóbaksverslun
ríkisins hefur gert samkomulag
um leigu á hluta af Lækjargötu
22 í Hafnarfirði af Raftækja-
verksmiðjunni Rafha og er ætl-
nnin að opna þar áfengisútsölu.
Höskuldur Jónsson fram-
kvæmdastjóri ÁTVR sagði að nú
væri unnið að undirbúningi að inn-
rétta húsið og stefnt væri að því
að opna útsöluna í ágúst.
Ingvi I. Ingvason framkvæmda-
stjóri Rafha sagði að starfsemi
fyrirtækisins raskaðist ekki á
neinn hátt þrátt fyrir tilkomu
áfengisútsölunnar. Húsnæði
Rafha við Lækjargötu væri um
750 fermetrar og af því fengi
ÁTVR rúma 100 fermetra sem
hefðu lítið verið notaðir.
I VEÐURHORFUR í DAG, 2. JÚNÍ 1988
YFIRUT I GÆR: Um 1000 km suðsuövestur í hafi er 996 mb
víðáttumikil lægð sem þokast austnorðaustur, en 1026 mb hæð
norður og norðvestur af landinu. Svalt verður éfram í þokunni norð-
an- og austanlands, en víða 10-12 stig f öðrum landshlutum yfir
| daginn.
SPÁ: Austlæg eða norðaustlæg ótt, yfírleitt gola eða kaldi. Lftils-
hóttar súld ó Austurlandi en öllu bjartara verður f öðrum lands-
hlutum, einkum inn til landsins. Hiti vfða 9-13 stig, þó öllu svalara
við norður- og austurströndina.
I ! .
I ------------—---------------------------------------
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Hæg norðlæg eða
breytileg átt og bjart veður víða um land. Svalt við norður- og
austurströndina en sæmilega hlýtt í öðrum landshlutum að degin-
um.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus
Heióskirt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * V Skúrir Él Þoka
-Qr Léttskýjað / / / / / / / Rigning
/ / / * / * 9 5 Þokumóða Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
# * * 4 Skafrenningur
ÉlÉk Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að fsl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti 10 10 veöur skýjað akýjað
Bergen 13 akýjað
Helsinki 14 akýjað
Jan Mayan -1 snjókoma
Kaupmannah. 14 þrumuveður
Narssarsauaq 9 akýjað
Nuuk 4 þoka
Osló 17 skýjað
Stokkhólmur 7 rigning
Þórshöfn 7 alakýjað
Algarva vantar
Amstardam 16 léttskýjað
Aþena vantar
Barcelona 22 Wttskýjað
Chicago 16 mlstur
Fenayjar 16 rlgning
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 14 skúr
Hamborg 10 þrumuvsður
Las Palmas vantar
London 19 skýjað
Los Angeles vantar
Lúxamborg 14 lóttakýjað
Madrfd 24 láMolrúioA iOTIBKyjQG
Malaga 22 þokumóða
Mallorca 23 lóttskýjað
Montraal 11 lóttskýjað
New York 22 léttskýjað
Parfs 15 skýjsð
Róm 23 skýjað
San Diego 14 lóttskýað
Wlnnlpeg 22 Mttskýjað
Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins:
Innstæðan 1100 millj-
ónir í árslok 1987
NEFND sem sjávarútvegsráðherra skipaði í janúar síðastliðnum leggur
til að Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins verði lagður niður. Skýrsla
nefndarinnar var kynnt á ríkisstjómarfundi á þriðjudag. Innstæður
Verðjöfnunarsjóðs við Seðlabankann vora tæpar 1100 milfjónir króna
um siðustu áramót.
Neftidin leggur tii að þeim inn-
stæðum sem nú eru í sjóðnum verði
ráðstafað til greiðslu verðbóta eftir
hliðstæðum reglum og nú gilda og
skuli útgreiðslum iokið innan 24
mánaða. Þá leggur nefndin til að
fyrirtækjum í sjávarútvegi verði
heimilað að mynda sveiflujöfnunar-
sjóði til aðjafna afkomu á milli ára.
í áliti nefndarinnar segir að breytt-
ar aðstæður hin sfðari ár hafi valdið
því að starfsemi Verðjöfnunarsjóðs
sé ekki lengur jafn sjálfsögð og við
stofnun sjóðsins árið 1969, og svo
sé nú komið að nær öll þau samtök
sem eiga aðild að sjóðstjóm hafi lagt
tii að sjóðurinn verði lagður niður
eða að verulegar breytingar verði
gerðar á starfsemi hans.
Rfkisstjómin hefur ekki tekið af-
stöðu til tillagna nefndarinnar, en
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra,
sagði í ræðu á framhaldsársþingi
Félags íslenskra iðnrekenda á
ftmmtudag í sfðustu viku að leggja
Þórður Harðarson, nýkjörinn
forseti Læknadeildar.
ætti Verðjöfnunarsjóð niður og jafna
ætti sveiflur í sjávarútvegi út með
breyttum skattareglum.
Laumufarþeginn:
Enn í vörslu út-
lendingaeftírlits
MAROKKÓBUINN sem gerðist
laumufarþegi með ms. Saltnesi er
enn í vörslu útlendingaeftirlitsins.
Beðið er eftir skilríkjum frá sendi-
ráði Marokkó í Danmörku svo
hægt verði að flytja manninn til
slns heima.
Samkvæmt upplýsingum frá út-
lendingaeftirlitinu er von á skilríkj-
unum í dag og þá verður maðurinn
sendur úr landi með fyrstu heppi-
legri ferð. Hann hefur verið lokaður
inni í fangageymslu lögreglunnar á
Hverflsgötu á nóttunni, en verið und-
ir eftirliti á daginn.
Ásmundur Brekkan, fráfarandi
forseti.
Þórður Harðarson kjör-
inn forseti læknadeildar
Á FUNDI Læknadeildar Háskóla
íslands í gær urðu forsetaskipti í
deildinni. Þórður Harðarson var
einróma kjörinn forseti i stað Ás-
mundar Brekkan, sem verið hefur
deildarforseti undanfarin ár.
Þórður tekur formlega við stöð-
unni í haust.
Á fundinum var Helgi Valdimars-
son kosinn varadeildarforseti. Þá
voru greidd atkvæði um tvær dós-
entsstöður í deildinni. Guðmundur
Vikar Einarsson og Þorsteinn Gísla-
son sóttu um dósentsstöðu I þvag-
færaskurðlækningum og var Guð-
mundur Vikar kjörinn. Hannes Pét-
ursson var kjörinn dósent í geðlækn-
isfræði, en auk hans sótti um stöð-
una Lárus Helgason.
i