Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
19
til þess. Hvemig ættu múhameðs-
trúarmenn í Azerbajdzhan, sem
skera armenskar konur á háls, að
geta starfað með kaþólikkum í Lit-
háen?
Blm: Önnur rök vestrænna
fréttaskýrenda vega þyngra.
Flokksvélin í Sovétríkjunum vinnur
enn í anda Stalíns, skrifstofubáknið
er þungt í vöfum og þjóðin er að-
gerðarlaus. Hún er orðin vön úthlut-
unum og fyrirskipunum. Nýjungar
vekja hjá henni vantrú í stað for-
vitni.
Mlynar: Það er rétt. Flokkshópar
eins og flokksstjómir eru yfírleitt
íhaldssamir og þungir í vöfúm. En
ég er þó ekki eins svartsýnn og
aðrir. Eg tel að skilyrðin séu góð
fyrir umbótastefnu Gorbatsjovs. Ég
held að það sé lítfl hætta á að hann
verði settur af stóli og flæmdur í
burtu eins og Khrústsjov.
Blm: Af hverju?
Mlynar: Af því að margt hefur
breyst í sovéska þjóðfélaginu síðan
Khrústsjov missti völdin 1964. Það
hafa ekki aðeins orðið kynslóða-
skipti meðal stjómendanna heldur
í þjóðfélaginu almennt. Hlutfall
kvenna og karla með háskóla-
menntun hefur aukist verulega. Að
minnsta kosti tveir þrifjuhlutar íbúa
landsins búa í borgum — á tímum
Khrústsjovs gerðu það ekki nema
fímmtán prósent. Auk þess er meiri-
hluti þjóðarinnar fæddur eftir
hörmungamar á þriðja og fjórða
áratugnum. Stalín heyrir fortíðinni
til fyrir þetta fólk, hann er bara
sögupersóna...
Blm: .. . sem vekur ekki lengur
ótta...
Mlynar: ... sem mætti jafnvel
reisa minnismerki um. Að þessu
leyti ér hin nýja sovéska kynslóð
eins og óskrifað blað. Hún hefur
svo til enga reynslu af lýðræði og
enga af ofstjóm alræðissinna. Hún
þekkir ekki heldur óttann sem
hijáði mæður hennar og feður. Hún
ólst upp á Brezhnev-tímabilinu, á
tímum kyrrstöðu, í einræði sem var
laust við ógn og sýndardómstóla.
Hún er þess vegna ekki hrædd við
að gagmýna og krefjast ákveðins
frelsis.
Blm: Hvaða frelsis getur þjóð
sem hefur aldrei upplifað frelsi
krafíst?
Mlynar: Kína er ágætt dæmi.
Þar ríkti jafnvel minna frelsi en í
Rússlandi. Kínveijar hafa sfðan
gagniýnt ógnarstjómina í menning-
arbyltingunni. Auðvitað skiptir það
alla miklu máli hvort þeir lifa við
frelsi eða kúgun. Það skiptir mennt-
að fólk sem er vant lifnaðarháttum
og neytendaþörfum iðnaðarríkj-
anna sérstaklega miklu máli. Þar
er litið á visst frelsi sem helstu
þarfír fólks.
Blm: Segjum sem svo að bjart-
sýni yðar eigi rétt á sér og Gor-
batsjov komi með pálmann í hönd-
unum af flokksráðstefnunni í lok
júní. Hvenær mun umbótastefna
hans fara að bera árangur?
Mlynar: Það er erfítt að segja.
Hér er um mjög langa þróun að
ræða sem er rétt að hefjast.
Blm: Tíu ár? Tuttugu?
Mlynar: Já, að minnsta kosti
það. Gorbatsjov talaði sjálfur í upp-
hafí um verkefni fyrir margar kyn-
slóðir.
Blm: Búa Sovétmenn virkilega
yfír svo mikilli þolinmæði? Júgó-
slavneskur frammámaður fullyrti
nýlega að umbótasinnar í Austur-
Evrópu hefðu nauman tíma. Hann
sagði að kommúnistaflokkamir
væru ekki lengur nógu öflugir til
að gera byltingu ofan frá. Það
skipti meginmáli að byltingameist-
inn bærist hratt frá flokksforyst-
unni út í þjóðfélagið svo þrýstingur-
inn kæmi líka neðan frá. Emð þér
sammála þessari kenningu?
Mlynar: Já, eiginlega. Það er
alltaf auðveldara að koma á umbót-
um ef hægt er að benda á jákvæð-
ar afleiðingar. Tóm hugmynda-
fræðileg loforð hafa ekki lengur
nein áhrif. Fólkið hefur fengið nóg
af þeim. Eldmóður þess hefur of
oft verið misnotaður.
Blm: Þar komum við að kjama
málsins. Umbótastefna Gorbatsjovs
er orðin þriggja ára. Samt hefur
sovéska þjóðin það ekkert betra en
áður.
Mlynar: Það er rétt. Það er vem-
legt vandamál. Auðvitað væri betra
fyir umbótasinna að geta sýnt ár-
angur strax frá upphafí og uppfylla
neysluþarfír fólksins með leiftur-
hraða. En þjóðin, og það er ég sann-
færður um, veit að það er ekki
hægt. Hún skilur að efnahagslífíð,
sem átti við gífurlega erfíðleika að
etja, er aðeins unnt að bæta smátt
og smátt. Fleira skiptir verkamenn
máli en hvort þeir geta keypt meira
fyrir launin sín eftir tvö eða þijú ár.
Blm: Eins og hvað?
Mlynar: Hvort félagslegri stefnu
stjómarinnar er treystandi. Hvort
hún er fær um að endurbæta að-
stæðumar í landinu hægt og
sígandi.
Blm: Teljið þér að Gorbatsjov
hafí þetta traust þjóðarinnar?
Mlynar: Nei, ekki enn. En ég
held að traustið fari vaxandi. Fólk-
ið sér að honum er alvara með
glasnost. Að hann er á móti skrif-
stofubákninu.
Blm: Ef litið er á hlutina af raun-
sæi þá er glasnost — hreinskilni,
gagnrýni, umburðarlyndi, — vafa-
laust jákvætt fyrir blaðamenn, rit-
höfunda og menningarvita. En fyrir
almúgann skiptir perestrojka miklu
meira máli. Og hún er enn illa á
sig komin.
Mlynar: Perestrojka er óná-
kvæmt hugtak. Það nær til endur-
skipulags á öllu kerfinu, hinu efna-
hagslega og pólitíska. Og á þessu
sviði gerist ömgglega of lítið. Það
vantar enn aðferð til að hraða þró-
uninni á sviði tækni, félagsmála og
menningu. Það verður viðfangsefni
næsta áratugar. Þeir sem nú eru
tuttugu og fímm tii fjörutíu ára
munu fást við það. Þeir hugsa allt
öðru vísi en þeir sem eru fæddir
1931 eins og Gorbatsjov.
Blm: Eru þá miklar deilur fyrir-
sjáanlegar?
Mlynar: Líklega. Þeir sem hafa
hæst á tíunda áratugnum munu
ekki fara leynt með skoðanir sinar.
Þeir munu gagnrýna takmarkaðan
árangur perestrojku heiftarlega. En
þeir munu geraþað á lýðræðislegan
hátt, vona ég. Ymsir uppbyggilegir
möguleikar verða reyndir í stað
þess að hverfa aftur til kyrrstöð-
utímabilsins fyrir Gorbatsjov. Það
verður tekið tillit til skoðanna full-
trúa minnihlutahópa. Þeir sem bera
ábyrgð á mistökum verða hvorki
lokaðir inni né settir af stóli.
Blm: Með öðrum orðum, þér álít-
ið að glasnost beri svo mikinn ár-
angur á næstu fimm árum að op-
inská umræða um erfiðleika per-
estrojku fari fram og komi í veg
fyrir að umbótastefnan sigli í
strand.
Mlynar: Já, ég vona það.
Blm: Mun aukið traust fólksins
á Gorbatsjov nægja honum í valda-
stóli ef efnahagsástandið batnar
ekki og stefna hans veldur því von-
brigðum?
Mlynar: Ekki það eitt. Þróunin
í utanríkismálum kemur honum
einnig til góða.
Blm: Hafa utanríkismál svo
veigamikil áhrif á ástandið í
landinu?
Mlynar: Já, svo sannarlega.
Rússar eru mjög stoltir af því að
Sovétríkin eru heimsveldi. Þeir
munu sætta sig við fómir og von-
brigði svo framarlega sem Gor-
batsjov tryggir virðingu Sovétríkj-
anna á alþjóðavettvangi. Mikill
fjöldi Sovétmanna trúir því enn að
lífsafkoma þeirra sé svona slæm
af því að Sovétríkin verði að rétta
heimsbyggðinni hjálparhönd, þró-
unarríkjunum og litlu alþýðulýð-
veldunum í Evrópu. Þessi misskiln-
ingur gefur slæmri lífsafkomu
þeirra gildi. Hann staðfestir að þeir
skipta máli í heiminum.
Blm: Og leiðtogafundurinn í
Moskvu?
Mlynar: Rússnesk alþýða er upp-
veðruð yfír því að leiðtogafundur
stórveldanna sé haldinn þar. Heim-
sókn Bandaríkjaforseta skiptir þá
miklu máli. Hún ýtir undir þá já-
kvæðu skoðun þeirra að Sovétríkin
stefni stöðugt hærra og hærra und-
ir stjóm Gorbatsjovs.
með okkur
um helgina ?
Amór, IngóogJói
IM >AI
WM
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
fllatgiittiftlttftift
^ VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
Unglingar
- KEILUIMÁMSKEIÐ
Keilunámskeið
verðaísumará
iaugardögum frá
kl. 11-13.
Öll ungmenni á aldrinum 10-16 ára eru velkomin til þátttöku. Nám-
skeiðið kostar aðeins kr. 330,- hvert sinn (með skóm). Frekari upplýs-
ingar veittar í sima 621599, Keilusalnum, Öskjuhlíð.
í framhaldi af námskeiðinu verður Flugleiðamótið haldið síðsumars.
Þeir, sem standa sig vel á þvi móti, fá ferðaverðlaun til Englands í
keilukeppni o.fl. verðlaun.
LEIÐBEINENDUR VERÐA:
Kelluunglingar efftir slgurför tll Englands
Guðmundur G.
GuðmundurH. Guðný
Jón