Morgunblaðið - 02.06.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
23
Gróðursetn-
ingar í Úti-
vistarferðum
SÚ NÝJUNG var tekin upp í
strandgöngu Útivistar um Hafnir
sunnudaginn 29. mai sl. að hverj-
um þátttakanda var boðið upp á
að gróðursetja eina birkiplöntu.
Gróðursett var á tveimur stöðum:
Nálægt Helluvík, sögulegum stað
við Ósa, og við svokölluð Vötn á
Hafnaheiði sem eru örstutt frá þjóð-
veginum og eru gamall áningar-
staður.
í fréttatilkynningu frá Útivist
segir, að ráðgert sé að gróðursetja
á sama hátt birkiplöntur í flestum
ferðum Útivistar í sumar. Staðimir
verða valdir í samráði við heima-
menn, Skógrækt ríkisins o.fl.
Vorhefti Mál-
fregna komið út
VORHEFTI Málfregna, tímarits
íslenskrar málnefndar, er komið
út.
Meðal efnis má nefna greinamar
„Hefð og hneigð í íslenskri orð-
myndun" eftir Jón Hilmar Jónsson,
„Málfar og stjómarfar“ eftir Sigurð
Líndal og „Egiptaland og Kípur"
eftir Baldur Jónsson. Aðrir höfund-
ar efnis í þessu hefti em Páll Berg-
þórsson og Sigurður Konráðsson.
(Fréttatilkynning)
Ný rækjuverk-
smiðja á Siglufirði
FEÐGARNIR Marteinn Haralds-
son, Ólafur, Rúnar og Haraldur
Marteinssynir á Siglufirði hafa
fest kaup á rækjuverksmiðju og
munu hefja vinnslu um miðja
næstu viku. Þeir feðgar hafa
rekið saltfiskverkun á Siglufirði
um árabil. Rækjuverksmiðjan er
keypt notuð og koma hlutar í
hana víða að. Hún hefur hiotið
heitið Hafnarfell.
Ólafur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Hafnarfells, sagði
verksmiðjuna fremur smáa í snið-
um, ein vél er í rækjuvinnsluni og
bjóst Ólafur að við hana myndu
vinna um 10 manns. Hafnarfell
gerir út einn bát en mun auk þess
kaupa rælq'u til vinnslunnar af fleir-
um að sögn Ólafs.
Rækjuafli hefur verið sæmilegur
það sem af er og rækjan stór og
góð, að sögn Guðmundar Skarphéð-
inssonar, framkvæmdastjóra Sigló
hf. á Siglufírði. Sigló hf. er eirihig
með rækjuvinnslu og gerir út 6
báta á rækju, en fjórir bátar munu
bætast við í næstu viku. Verð á
rækjunni taldi Guðmundur ekki
nógu gott og sagði það svipað og
verið hefði frá áramótum.
Fjölbreytt úrval garðhúsgagna
Einstaklega falleg og á frábæru \/erði
SMIÐJUVEGI 6, KÓPAVOGI, S; 45670 - 44544
Fólk horfist í
augu við ellina
Tvær bækur eftir Þórir S. Guðbergsson
ÞEGAR ég eldist og Lifsstíll og
leiðir eru nöfn tveggja bóka eft-
ir Þóri S. Guðbergsson, sem ný-
lega komu út. Bækurnar fjalla
um ýmis mál er snerta aldraða
og eru, að sögn Þóris, liður í þvi
að fá fólk til að horfast i augu
við ellina.
Þegar ég eldist kom áður út á
ári aldraðra, 1982, en hefur verið
ófáanleg um nokkurt skeið. í henni
segist Þórir fjalla almennt um öldr-
un, áhættusjúkdóma og forvamir
gegn þeim, breytingar á lífí fólks
við að hætta í vinnu, slysahættu,
lyf o.fl.f Lífsstíll og leiðir er lögð
áhersla á að hver og einn reyni að
fínna sinn eigin lífsstíl, geri sér
grein fyrir því að enginn getur sagt
öðrum fyrir um það hvemig eigi
að haga líflnu. Einnig er fjallað um
húsnæðis- og vistunarmál aldraðra,
tekin dæmi frá öldruðum og að-
standendum um það hvemig þau
mál eru leyst. Auk þess eru í bók-
inni birt bréf sem Þóri bárust með-
an hann sá um útvarpsþætti um
málefni aldraðra, fyrir rúmum
tveimur árum.
Þórir sagði ýmsar hræringar í
umræðum og áætlunum um hús-
næðismál aldraðra, og væri verið
að ræða það innan borgarkerfísins,
að breyta fyrirkomulagi heimilis-
þjónustu m.a. með því að flytja
aðalstöðvar út í mismunandi hverfi
borgarinnar. Þórir kvað það sína
persónulegu skoðun að innan fárra
ára færu aldraðir að gera meiri
kröfur í húsnæðismálum, vildu fá
að búa áfram í eigin húsnæði eða
eiga kost á því að skipta um íbúð
á almennum markaði. Fólk vildi
ekki láta loka sig af á sérstökum
svæðum þótt árin færðust yfír.
Markmiðið hlyti því að vera að
efla heimahjúkrun og heimilisþjón-
ustu, og meðal þess sem kæmi fram
í bréfum aldraðra i Lífstfll og leið-
ir, væri ánægja fólks og þakklæti
vegna þjónustu sem gerði því kleift
að búa í eigin húsnæði. Ástandið í
heimahjúkrun væri skaplegt og all-
ar stöður mannaðar, en mikil mann-
ekla væri í heimilisþjónustunni, sem
gerði forráðamönnum erfítt fyrir
að veita þá þjónustu sem þörf væri
á.
Þórir sagðist vilja gera allt, sem
í sínu valdi stæði til að fólk fengi
að vita um þá þjónustu sem í boði
væri og horfði ekki til ellinnar með
ótta. „Það er númer eitt að einstakl-
ingurinn geri sér grein fyrir því
hvað hann sjálfur er fær um að
gera til að lifa góðu lífí og þá geta
lang flestir aldraðir átt góðan tíma
í vændum og æviskeið með sínum
sjarma", sagði Þórir að lokum.
aföllum stærðum
Kanadísku útigrillin sem alltafslá í
gegn. Wait-grillin hafa reynst einstak-
lega vel vetur, sumar vor og haust.
Þórir S. Guðbergsson