Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 24
24
QQot tum. c PTT-'tffprruvT^ íTO}Aít0VU£}3OXI
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JUNI 1988
Er þeim allt leyfilegt?
eftirJón Magnússon
Sjónvarpsstöðin Stöð 2 auglýsir
nú iðulega heilsíðuauglýsingar í
dagblöðum, þar sem látið er í veðri
vaka að tilteknir starfsmenn Stöðv-
ar 2, aðallega þeir sem vinna á
fréttastofu Stöðvarinnar séu vanir
menn og viðhafi vönduð vinnu-
brögð. Eg er áskrifandi að Stöð 2
og fínnst hún sem sjónvarpsstöð
um margt góð og hafa á ýmsum
sviðum tekið upp nýjungar, sem
ríkissjónvarpið hefði fyrir löngu átt
að vera búið að taka upp. Eg er
líka eindregið fylgjandi sem mestu
frelsi í ijölmiðlun.
Stöð 2 setti sér metnaðarfullt
viðfangsefiii í upphafí enda ekki við
öðru að búast af manni eins og
Jóni Óttari Ragnarssyni, sem ég
þekki að því að vera mikill eldhugi
og hamhleypa til verka ef honum
býður svo við að horfa. Kynni mín
af Páli Magnússyni fréttastjóra
Stöðvar 2 eru líka þess eðlis, að ég
hef ekki verið í vafa um að þar
færi hæfur maður. Þegar ítrekuð
mistök eiga sér síðan stað á frétta-
stofu Stöðvar 2 fínnst manni það
þeim mun verra sem væntingar
stóðu til alls annars. Mér fannst
því nokkuð óvarlega farið af Páli
Magnússyni í svari við ábendingum
Víkveija í Morgunblaðinu fyrir
nokkrum dögum, en þar voru settar
fram ábendingar um mistök í frétta-
mennsku. Af þessum sökum fínnst
mér eðlilegt, ekki síst þar sem ég
hef orðið fyrir barðinu á mistökum
í fréttamennsku Stöðvar 2, að Qalla
iítillega um þessi mál.
Afbrotamaðurinn
Jóhannes Nordal
í fréttatíma Stöðvar 2 fyrir
nokkru var frá því skýrt, að Lands-
virkjun hefði tekið út mikinn gjald-
eyri skömmu fyrir lokun gjaldeyris-
deilda bankanna. Frá því var skýrt
í sömu frétt, að æðsti yfírmaður
gjaldeyrismála Jóhannes Nordal
væri stjómarformaður Landsvirkj-
unar. Eftir að hafa heyrt fréttina
og talið að eitthvert sannleiksgildi
hljrti að vera í henni, þar sem vand-
virkir menn að eigin sögn stóðu að
henni, velti ég því fyrir mér hvort
þetta þýddi ekki að Jóhannes Nor-
dal yriði látinn hætta. Allir hljóta
að sjá að það er gjörsamlega frá-
leitt, að æðsti yfírmaður gjaldeyris-
mála þjóðarinnar yfirfæri gjaldeyri
fyrirtæki til hagsbóta sem hann
hefur með að gera, daginn áður en
hann fer fram á það við ríkisstjóm-
ina að gjaldeyrisdeildum verði lokað
vegna útstrejmiis gjaldeyris. Ég
átti hinsvegar bágt með að trúa
þessu um Jóhannes, en fréttin sagði
það nú samt.
Daginn eftir skýrði fram-
kvæmdastjóri Landsvirkjunar frá
því, að frétt Stöðvar 2 væri upp-
spuni frá rótum. Stöð 2 baðst afsök-
unar. Vitlaus frétt. Og hvað svo?
Það geta allir gert mistök. En mis-
tök em einfaldlega misalvarleg. í
þessu tilviki var ekkert vandamál
að staðreyna hvort sögusögnin um
gjaldeyriskaup Landsvirkjunar ætti
við rök að styðjast. Það þurfti að
lyfta síma. Símanum var ekki lyft
og þess vegna fór sem fór og ákveð-
inn hópur manna hafður fyrir rangri
sök. Ég reikna með, að vegna frétt-
ar Stöðvar 2 hafí ýmsir látið miður
falleg orð falla um Jóhannes Nor-
dal og Landsvirkjun. Þama hafa
ýmsir fundið eina af rótum spilling-
arinnar í landinu. Það er nú einu
sinni svo, að afsökunarbeiðni dugar
ekki til að bæta tjón sem hlýst af
rangri frétt og það þurfa fjölmiðla-
menn alltaf að hafa hugfast. Mistök
þeirra em því ætíð alvarleg og gera
verður mjög strangar kröfur til
vinnubragða og sjálfsgagnrýni
þeirra sem við fréttamiðlun vinna
Sláturfélagið selur Nýjabæ
í fréttum StÖðvar 2 þetta sama
kvöld var frá því skýrt, að ákveðn-
ir aðilar hefðu keypt rekstur Slátur-
félags Suðurlands I Nýjabæ á Sel-
tjamamesi og hygðust leigja Hag-
kaup. Þessi frétt reyndist líka röng
að því leyti, að Sláturfélagið leigði
Hagkaup umrædda aðstöðu. Það
var enginn þriðji aðili í spilinu. Þetta
var annað dæmið um gmndvall-
armistök í fréttamennsku, sama
kvöldið. Hlaupið var eftir sögusögn-
um.
Ég gæti nefnt fleiri dæmi um
mistök í fréttamennsku Stöðvar 2,
en fínnst eðlilegt að minnast á það
dæmi sem snýr að mér sjálfum.
Nokkmm dögum fyrir jól á sunnu-
dagskvöldi birtist sem aðalfrétt á
Stöð 2, að Jón Magnússon vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Jón Magnússon
„Það er nú einu sinni
svo, að afsökunarbeiðni
dugar ekki til að bæta
tjón sem hlýst af rangri
frétt og það þurfa fjöl-
miðlamenn alltaf að
hafa hugfast. Mistök
þeirra eru því ætíð al-
varleg og gera verður
mjög strangar kröfur
til vinnubragða og
sjálfsgagnrýni þeirra
sem við fréttamiðlun
vinna.“
hefði verið kærður fyrir að ganga
hart fram í starfí sínu. Ég horfði á
þessa frétt og var satt að segja
undrandi. Ég hafði ekki heyrt af
þessari kæm áður. Ekkert samband
var haft við mig og þó var ég að-
gengilegur í sfma fyrir fréttamann
allan þann dag sem fréttin var í
vinnslu. Hann gerði hinsvegar enga
tilraun til að ná í mig. í þessu til-
viki hefði því verið hægt að afstýra
mistökum með því að lyfta upp síma
en það var ekki gert. Daginn eftir
var viðtal við mig á Stöð 2, en það
var klippt til af fréttamanninum
með þeim hætti að gagnrýni á
fréttamennskuna var klippt burt og
ýmis atriði sem vom til þess fallin
að skýra málið. Með fréttinni vom
sýndar myndir af mér að ganga inn
og út úr Sakadómi Reykjavíkur.
Sjónvarpsáhorfandi hlaut því að
álykta að þama væri verið að rétta
I hinu merka kæmmáli, en svo var
ekki. Þessar myndir sýndu mig að
störfum við að veija skjólstæðing.
Ekki kom fram að myndimar væm
úr myndasafni. Ég nefni þetta dæmi
án alls biturleika þó að mér hafí
blöskrað vinnubrögðin og gæti látið
stór orð falla vegna þeirra. Hver
og einn sem þetta les getur velt
því fyrir sér hvemig honum fyndust
svona vinnubrögð ef þau beindust
að honum.
Mergurinn málsins í þessu tilviki
er nú samt sá, að þetta var engin
frétt. Hefði ég verið kærður hefði
það verið frétt, en þetta var engin
frétt og það sjá allir sem hafa kom-
ið nálægt fréttamennsku, enda birti
enginn fyölmiðill eitt eða neitt um
málið, annar en Stöð 2.
Nomaveiðar
Þó að ég hafi orðið fyrir von-
brigðum með fréttamennsku Stöðv-
ar 2 í nokkmm tilvikum eins og
að framan er lýst, þá ofbauð mér
sviðsetning og fréttamennska
Stöðvar 2 vegna fundar stjómar
Granda hf. fyrir nokkm. Mér og
mörgum fleirum ofbauð að sjá með
hvaða hætti sjónvarpsmenn Stöðvar
2 eltu Ragnar Júlíusson eins og
þeim væri ekkert heilagt, engar
mannlegar tilfínningar, enginn
snefíll af kurteisi. Helgi Pétursson
hreinlega lagði umræddan einstakl-
ing í einelti fyrir framan sjónvarps-
myndavélamar í framhaldi af
ómerkilegri upptöku og óviður-
kvæmilegri sviðsetningu á skepnu-
skap áður en Ragnar birtist á skján-
um.
Þessi framkoma er það ljótasta
og ómanneskjulegasta sem ég hef
séð í íslenskri fréttamennsku og
þeim til skammar sem að stóð.
Hversu vel eða illa sem fréttamanni
er við einhveija persónu eða mál-
stað, þá getur hann aldrei leyft sér
að sýna viðkomandi ókurteisi, lltils-
virðingu og ruddaskap.
Hvaða kröfur gerum við?
Ég sagði I upphafí þessarar
greinar að ég þekkti það til forráða-
manna Stöðvar 2, að ég vissi að
þeir væru metnaðarfullir og kapps-
fullir. Þeir vita það vel að kapp er
best með forsjá og I fréttamennsku
er það aðalsmerki að hafa það sem
sannara reynist. Þrátt fyrir það að
hægt sé að nefna dæmi um alvarleg
grundvallarmistök I fréttamennsku
Stöðvar 2, þá treysti ég mönnum á
þeim bæ til að taka sér tak og gera
nauðsynlegar lagfæringar. Mér
dettur I hug og vil koma þeirri
ábendingu á framfæri, að Jón Óttar
Ragnarsson sjónvarpsstjóri stjómi
I lok hvers mánaðar umræðuþætti,
þar sem Ijallað yrði um frétta-
mennsku helstu flölmiðla, rakin þau
mistök sem gerð hefðu verið og því
hrósað sem vel hefði verið gert.
Jafnframt kæmi til greina að veita
mánaðarlega viðurkenningu þeim
ljósvakamiðli, sem þætti standa sig
best sem vandaður fréttamiðill I
mánuði hveijum. Það er oft talað
um að ákveðna aðila, aðallega
stjómmálamenn, skorti aðhald.
Slíkar staðhæfíngar eiga oft rétt á
sér, en það þurfa allir aðhald, ekk-
ert síður fjölmiðlamenn en aðrir.
Af þeim sökum skora ég á þá Jón
Óttar og Pál Magnússon að bregð-
ast við þessari gagnrýni með því
að strengja þess heit að standa sig
betur I framtíðinni og veita sjálfum
sér aðhald t.d. með þeim hætti sem
ég nefndi hér að framan,
Höfuadur er lögmaður.
Skóverksmiðjan Iðunn:
LOKAÚTSALA
í Iðnaðarmannahúsinu,
Hallveigarstíg 1.
Stórfelld verðlækkun.
Opið virka daga frá
kl. 12 til 18.