Morgunblaðið - 02.06.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
,27
Toronto Sun:
Getum lært margt
af íslenskum konum
Þórhildur Þorleifsdóttir hyllt
á kvennaráðstefnu í Kanada
„HVERS vegna hafði Þjóðar-
hreyfingin fyrir kvenréttindum
fyrir þvi að bjóða ÞórhUdi Þor-
leifsdóttur frá íslandi að halda
aðalræðuna en virti svo allt að
vettugi sem hún hafði að segja?“
spyr Sandy Naiman þjá dag-
blaðinu Toronto Sun í Kanada
eftir að 16. ársþing þessarar
stærstu kvenréttindahreyfingar
landsins fór út um þúfur fyrr f
mánuðinum vegna „eiginhags-
munadeilna og gamaldags
pólitíkur".
Blaðið fer lofsamlegum orðum
um Kvennalistann (slenska í grein
sem ber yfírskriftina „Konur í
stjómmálum: ísland þráir breyting-
ar“ og segir að kvennasamtök í
Kanada gætu lært margt af íslensk-
um konum. „Þórhildur er einn af
stofnendum Kvennalistans, sem er
lausbundin og mjög áhrifamikil
grasrótarhreyfíng kvenna. Á
síðasta ári kom listinn 6 konum á
þing og varð þannig fyrsta kvenna-
hreyfíngin í heiminum til að ná
slíkum árangri. Eftir kosningamar
var þeim boðið að taka þátt í mynd-
un samsteypustjómar. Á Alþingi
em 63 þingmenn og sex flokkar
og þær hefðu getað riðið bagga-
muninn. En þegar þeim tókst ekki
að semja um hækkun lágmarks-
launa þá ákváðu þær að halda höfði
og setjast í stjómarandstöðu," segir
í blaðinu.
Ráðstefnugestir stóðu upp og
hylltu Þórhildi að lokinni ræðu
hennar, að sögn blaðsins. Margir
sögðu þann boðskap hennar upp-
örvandi, að leggja feðraveldið niður
jiiaperstorpf0!!!!}.
Plastskúffur
RUMGOÐ
LAUSN
HF.0FNASM1BJAN
SÖLUDEILD ---
HÁTEIGSVEGI7 S: 21220
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
og taka upp nýtt kerfi í staðinn.
„Hún [Þórhildur] var á ráðstefn-
unni allan tímann en samt var ekki
tekið tillit til mikilsverðrar reynslu
hennar og heillandi viðhorfa. Ráð-
stefnan rann út I tilgerðarlegar ser-
emóníur og umfjöllun um það sem
þegar hafði unnist. Enginn naut því
umræðnanna sem vom langdregnar
og snemst meir um skæmhemað
en kvennamál."
Bullið uppspretta
bestu hugmyndanna
Vitnað er í ræðu Þórhildar þar
sem hún rekur sögu kvennahreyf-
ingar á Islandi. Hún spáir því m.a.
að ef nú yrði kosið þá fengi kvenna-
listinn 25 þingmenn. En undir lokin
viðurkennir hún (eins og það er
orðað): „Við emm eina stjórnmála-
hreyfingin í heiminum sem stefnir
að því að hennar verði ekki lengur
þörf. Við höfum skemmt okkur
konunglega og við emm að þessu
skemmtunarinnar vegna. Ef þetta
væri ekki gaman þá væmm við
ekki að þessu. Það er hlegið og
grínast á fundum okkar. Bestu
hugrnyndimar kvikna út frá bulli." “
Toronto Sun segir Þórhildi ekki
hafa hugmynd um hversu margir
séu í Kvennalistanum. „Hundmð,
gmnar mig. Við köllum konur til
þegar þess gerist þörf og ef þær
geta lært þá starfa þær með okkur.“
FALLEG FOT FRA BELGIU
ADAffl#
LAUGAVEGUR47