Morgunblaðið - 02.06.1988, Page 28
28
•MORGÚNÉLXflÍS, PrMtó'fÚDAÖ&k W f(M(í&8
Auglýsing frá stuðningsmönnum
Vigdísar Finnbogadóttur,
forseta íslands
Erum í Garðastræti 17, 3. hæð. Verðum til
aðstoðar um kjörskráratriði og aðrar
upplýsingar varðandi forsetakosningarnar.
Opið frá kl. 10 til 19“alla daga.
Símar: 17765 - 17823 - 17985 - 18829 -
18874-11651
Ef þið verðið að heiman á kjördag, 25. júní,
þá munið að greiða atkvæði utankjörfundar.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Stórholt
Meðalholt
Skipholt 40-50 o.fl.
Háteigsvegur
Laufásvegur 58-79
KÓPAVOGUR
Grenigrund
UTHVERFI
Laugarásvegur21-37
GRAFARVOGUR
Dverghamrar
Alþjóðleg sýninga- og
íþróttamiðstöð í Fífuhvammi
eftirSigiirð Grétar
Guðmundsson
Glæsileg frammistaða íslenskra
handknattleiksmanna mun vart
hafa farið framhjá nokkrum lands-
manni.
HSÍ hefur stigið það djarfa skref
að sækja um að halda Heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik 1993
(eða 1994?) á íslandi.
Ekkert boðlegt keppnishús fyrir
helstu leiki keppninnar er til hér á
landi. Boðað er að byggð verði veg-
leg íþróttahöll í Laugardal í
Reykjavík sem rúmi allt að 8.000
áhorfendur. Til að nýta húsið betur
er það ætlað til fleiri hluta en íþrótta
og eru þá hverskyns vörusýningar
og kaupstefnur efstar á blaði.
Þó slegið sé föstu að höllin skuli
rísa f Laugardal er það ekki
Reykjavíkurborg sem fjármagnar
og byggir höllina. Það er ríkið með
sjálfan samgönguráðherrann og 1.
þingmann _ Reykjaneskjördæmis,
Matthías Á. Mathiesen, í broddi
fylkingar. Síst skal það lastað.
Þetta er átak allrar þjóðarinnar og
vel treysti ég Matthíasi til að drífa
málið áfram.
En er ekki rasað um ráð fram?
Eru þetta ekki hin dæmigerðu
íslensku vinnubrögð í fjárfestingar-
og framkvæmdamálum? Eru þetta
ekki Kröfluvinnubrögð?
„Karnival“ fyrir börnin
Núverandi íþróttahöll í Laugar-
dal hefur á undanförnum árum ver-
ið notuð fyrir sýningar og kaup-
stefnur öðrum þræði. Æ meiri
þreytumerki hafa þó sést á þeim
samkomum en samt hafa þær sópað
til sín ótrúlegum flölda gesta.
Ýmsum brögðum hefur þó verið
beitt; tívolí sett á laggimar, trúðar
fluttir inn, fólki skotið úr fallbyssum
o.s.frv. Þessi herlegheit hafa gestir
ekki fengið að sjá nema þeir kaupi
aðgang að sýningunum og jafnvel
kíki á það sem þar er á boðstólum.
Til þess er jú leikurinn gerður. og
þeir sem ráða ferðinni eru að sjálf-
sögðu bömin sem draga þá eldri
með sér.
íslenskar vörusýningar em meir
og meir að breytast í „kamival"
fyrir böm. Böm á öllum aldri. Enda
er rými Laugardalshallarinnar svo
takmarkað að um það má komast
á innan við klukkustund.
Alþjóðlegar sýningar
í sjávarútegi
En jafnvel í hinni „litlu“ Laugar-
dalshöll hafa verið haldnar vöm-
og kaupstefnur sem standa undir
MAÐURINN í íslenskri mynd-
list er yfirskrift sýningar sem
opnuð verður á Kjarvalsstöðum
5. júní kl. 14.00, á vegum Lista-
hátfðar. Eins og nafnið gefur
til kynna er viðfangsefni sýn-
ingarinnar maðurinn f verkum
fslenskra myndlistarmanna, sl.
tvo áratugi.
í fréttatilkynningu frá Kjarvals-
stöðum segir að ákveðið hafi verið
að miða við að verkin væm frá
ámnum 1965 — 85, en við undir-
búning hafí komið í ljós að ógjöm-
ingur væri að halda sig innan
þeirra tímamarka. Hafi því verið
tekin með nokkur eldri verk, til
Sigurður Grétar Guðmundsson
„Þessa höll og allar þær
byggingar sem rísa
munu hjá „Islandskaup-
stefnunni hfá að fjár-
magna af einkafram-
takinu. Hér er um að
ræða fyrirtæki sem á
að skila arði. “
nafni og gefa sterka vísbendingu
um þá möguleika sem ísland á sem
staður fyrir alþjóðlegar vömsýning-
ar og kaupstefnur.
Hvarvetna, austanhafs og vest-
an, em haldnar alþjóðlegar sýning-
ar í ýmsum greinum viðskipta og
iðnaðar.
Það em einmitt þær alþjóðlegu
sýningar í sjávarútvegi, sem hér
hafa verið haldnar, sem sýna að
ísland getur haslað sér völl á þess-
um vettvangi. Ef aðstaða er fyrir
hendi, samgöngur til landsins tíðar
og vel skipulagðar, gistiaðstaða
næg og frambærileg, verðlag stöð-
ugt og sambærilegt við nágranna-
lönd, ætti ekkert að vera því til
fyrirstöðu að Evrópumenn, jafnt
austurs sem vesturs, Ameríku-
menn; Japanir og Kínveijar leggi
leið sína hingað ef áhugaverðar al-
þjóðlegar vöm- og kaupstefnur em
hérlendis.
Má ekki ætla að ísland sé kjörið
að sýna samhengið í “fígúratífri"
myndlist á íslandi.
Um 130 verk eftir 47 listamenn
era á sýningunni og sagðist Eirík-
ur Þorláksson, listfræðingur, sem
sá um uppsetningu hennar, telja
að hér væri á ferðinni stærsta
samsýning íslenskra listamanna á
þessu ári. Einnig mætti vekja at-
hygli á því að mörg verkanna
væm í einkaeign og hefðu ekki
sést á sýningum síðan þau vom
seld.
Meðal þeirra sem verk eiga á
sýningunni má nefna Jóhannes
Kjarval, Gunnlaug Scheving og
Jóhann Briem.
land fyrir alþjóðlegar sýningar og
ráðstefnur í sjávarútvegi?
Þetta er einmitt leiðin sem marg-
ar stórborgir hafa farið; að sérhæfa
sig í ákveðnum málaflokkum.
Auk sjávarútvegs, sem innifelur
úrvinnslu afla og hverskyns tækni
til veiða og vinnslu, má nefna um-
hverfisvemd sem mun verða vax-
andi „iðnaður" í framtíðinni og
orkutækni varðandi jarðhita og fall-
vötn.
Staðsetning og undirbún-
ingur
Lengi býr að fyrstu gerð. Undir-
búning þarf að vanda. Staðarval
fyrir sýninga- og íþróttamiðstöð er
geysi mikilvæg. Augljóst er að hún
verður staðsett á höfuðborgarsvæð-
inu. Hér er þjónustan svo sem hótel-
in, veitingastaðimir, flutningatæk-
in, skemmtanaiðnaðurinn. Allt em
þetta ómissandi hlekkir til að þjóna
þeim fíölmörgu erlendu gestum sem
hingað mundu leggja leið sína og
skilja eftir marga skildinga sem
verða að dijúgum sjóði.
En að ijúka til og byggja veg-
lega iþróttahöll í Laugardal sem
fýrsta vísi að „íslandskaupstefn-
unni hf.“ væri hrikalegt slys.
Vegna þess að í Laugardal er
hvorki landrými né samgöngu-
legar forsendur til að slikt stór-
fyrirtæki geti þróast og dafnað.
Fifuhvammur í Kópavogi er
kjörinn staður. Eini staðurinn á
höfuðborgarsvæðinu sem hefur
allt að bjóða; nægjanlegt land-
rými, ákjósanlegar samgöngur,
skammt í tvær bestu hafnir
landsins, öll nauðsynleg þjónusta
i næsta nágrenni.
Þetta staðarval þyrfti á engan
hátt að tefja fyrirætlanir hand-
knattleiksmanna. Frekar hið gagn-
stæða.
Hveijir skulu byggja
og borga
Svo virðist af þeim fregnum sem
borist hafa frá þeim forystumönn-
um sem hmndið hafa áætlunum um
byggingu íþróttahallarinnar af stað
að byggingarkostnað verði að taka
af skattborgumm.
En er sjálfgert að svo verði að
vera?
Aldeilis ekki. Við höfum nóg við
þau hundmð milljóna að gera sem
rætt er um að íþróttahöllin muni
kosta.
Þessa höll og allar þær bygging-
ar sem rísa munu hjá „íslandskaup-
stefnunni hf.“ á að fjármagna af
einkaframtakinu. Hér er um að
ræða fyrirtæki sem á að skila arði.
Ekki aðeins til eigenda sinna heldur
til allra þeirra sem fyrr hafa verið
nefndir og veita munu hinum fíöl-
mörgu erlendu gestum þjónustu.
Ríkið mun hafa af því dágóðar tekj-
ur. Og að sjálfsögðu það sveitarfé-
lag sem hýsir fyrirtækið.
„íslandskaupstefnan hf.“ verður
reist fyrir innlent og erlent fíár-
magn. Mun þetta ekki verða hags-
munamál sjávarútvegs og þeirra
stórfyrirtækja sem annast útflutn-
ing sjávarafúrða? Hvað um stórfyr-
irtækin á flutningasviðinu, Flug-
leiðir, Eimskip, Skipadeild SÍS,
Amarflug?
Að lokum
Þetta fyrirtæki á að skila arði
og skapa mörg störf. Fleiri þurfa
og verða að komast út á vinnumark-
aðinn. Veijum þeim 300 millj. sem
ríkið ætlaði til að byggja íþrótta-
höllina í Laugardal til að byggja
dagheimili og leikskóla.
Hvað segja bæjarstjómarmenn í
mínu heimabæ, Kópavogi, um þess-
ar hugmyndir. Em þær umhugsun-
ar verðar?
Höfundur er pípulagningameist-
ari og fyrrverandi bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins ÍKópavogi.
Listahátíð:
Maðurinn í ís-
lenskri myndlist
Sýning á Kjarvalsstöðum 5. júní --10. júlí