Morgunblaðið - 02.06.1988, Side 32
Fundað
um f isk-
verð í dag
NÝTT fiskverð átti að taka gildi
í gær, 1. júní. Fundur í yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins
var haldinn í gær og annar fund-
ur hefur verið boðaður í dag
klukkan 11.
Sjómenn krefjast um 10% fís-
kverðshækkunar, sem er mesta
hækkun sem leyfð er innan ramma
bráðabirgðalaga ríkisstjómarinnar,
en fulltrúar kaupenda vilja óbreytt
fiskverð í ljósi slæmrar rekstrar-
stöðu frystingarinnar. Verðlagsráð
sjávarútvegsins ákvað þann 5. mars
síðastliðinn að verð skyldi vera
óbreytt til maíloka.
Nýr formað-
ur Hins ís-
lenska þjóð-
vinafélags
AÐALFUNDUR Hins íslenska
þjóðvinafélags var haldinn í Al-
þingishúsinu 9. maí siðastliðinn.
Jóhannes Halldórsson cand. mag.
var kjörinn forseti félagsins en
Bjarni Vilhjálmsson fyrrverandi
þjóðskjalavörður sem kosinn var
til þess embættis fyrir tveimur
árum andaðist í mars 1987.
Aðrir stjómarmenn eru dr. Jónas
Kristjánsson forstöðumaður Áma-
stofnunar sem er varaforseti, dr.
Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri,
Heimir Þorleifsson menntaskóla-
kennari og Ólafur Ásgeirsson þjóð-
skjalavörður. Endurskoðendur voru
kjömir Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra og Ólafur Ólafsson
deildarstjóri. Einar Laxness fram-
kvæmdastjóri Menningarsjóðs og
dr. Guðrún P. Helgadóttir fyrrver-
andi skólastjóri báðust undan end-
urkjöri.
Guðrún Helgadóttir alþingismað-
ur tók til máls á fundinum og
hvatti til að Alþingi sinnti félaginu
meir en verið hefði. Þorvaldur Garð-
ar tók undir þau orð og gat þess
að forsetar þingsins hefðu í hyggju
að taka málið til meðferðar.
Trillursetja
aflann um
borðí
hjólaskip
Litla-Hvammi.
Vestmannaeyjatrillur hafa
undanfarið landað fiski tíl
vinnslu í Vik i Mýrdal til að spara
sér siglingu heim til Eyja. Aflan-
um hefur verið skipað um borð
i hjólaskip Mýrdælinga og hann
síðan verkaður í gamla stórbýl-
inu i Suðurvík.
Talsvert hefur verið farið á sjó á
hjólaskipunum og var afli sæmileg-
ur fram eftir maí, en hefur tregast
upp á síðkastið.
Austan- og norðaustanátt hefur
verið ríkjandi hér undanfarið og
fremur lítil væta. Gróðri hefur samt
farið vel fram og er hann alveg í
meðallagi eftir árstíma. Sauðburði
er víðast að ljúka og sums staðar
lokið. Hefur hann gengið fremur
vel en margir tala þó um minna af
tvílembdu en oftast.
Sigþór
Hafnarfjarðarkaupstaður 80 ára
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Frá hátíðardagskránni i Hafnarborg. Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri, ávarpar gesti, en meðal viðstaddra var forseti ís-
lands, Vigís Finnbogadótir.
Hátíðaliöld í
Hafnarfirði
um helgina
Gestir fylgjast með athöfninni í Hellisgerði. Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri, og Inga Dóra Karlsdóttir, eiginkona hans, eru
fyrir miðri mynd. Til hægri er m.a. Kjartan Jóhannsson, alþingismaður.
H AFNFIRÐINGAR minnast þess
nú að áttatíu ár eru liðin frá því
að Hafnarfjörður öðlaðist kaup-
staðarréttindi, hinn 1. júní 1908.
í tilefni þessara tímamóta er
margt um dýrðir í Firðinum
þessa dagana.
í Hellisgerði, lystigarði Hafnar-
íjarðar, afhenti málfundafélagið
Magni bænum garðinn til eignar.
Á sínum tíma gaf bæjarfélagið
málfundafélaginu svæðið þar sem
garðurinn er nú gegn því að félags-
menn ræktuðu garðinn og hann
stæði almenningi til nota. Það
gerðu þeir og nú, 65 árum seinna,
afhenda þeir bæjarbúum Hellis-
gerði, bæjarpiýði Hafnarfjarðar, til
eignar. Ellert Borgar Þorvaldsson,
formaður Málfundafélagsins
Magna, afhenti Hafnfírðingum
Hellisgerði og veitti Jóna Ósk Guð-
jónsdóttir, forseti bæjarstjómar,
honum móttöku.
Um kvöldið var síðan hátíðar-
dagskrá í nýrri, stórglæsilegri
menningarmiðstöð Hafnfirðinga,
Hafharborgum. Forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, heiðurs-
gestur hátíðarinnar, flutti Hafn-
fírðingum ámaðaróskir og Guð-
mundur Ámi Stefánsson bæjar-
stjóri ávarpaði samkomuna. Hann
sagði að margt hefði breyst á 80
árum, svo mikið að næstum væri
hægt að tala um byltingu. En eitt
breyttist ekki, sagði bæjarstjórinn,
og það er tryggð þeirra sem búið
hafa um lengri eða skemmri tíma
í Hafnarfirði til bæjar síns. Þá
flutti Magnús Jon Bergsson, form-
aður bæjarráðs, erindi um aðdrag-
andann að því að Hafnarfjörður
öðlaðist kaupstaðarréttindi.
Fyrst á hátíðardagskránni var
sýning brúðuleikhússins Sögu-
svuntunnar á bókasafninu og
skemmtu yngri bæjarbúar sér hið
besta. Þá bauð bæjarstjóm öllum
bæjarstarfsmönnum til kaffí-
drykkju síðdegis á veitingahúsinu
A. Hansen.
Bæjarstjórn bauð starfsmönnum bæjarins til kaffisamsætis
síðdegis í gær.
Ungir Hafnfirðingar taka til hendinni í Hellisgerði á þriðjudag.