Morgunblaðið - 02.06.1988, Side 35

Morgunblaðið - 02.06.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27TJONfí§68 % Reuter Forseti E1 Salvador, Jose Napoleon Duarte, studdur af Rudolfo Castillo, starfandi forseta í landinu, á leið upp í flugvélina sem flaug með hann til Bandaríkjanna. E1 Salvador: EB - Svíþjóð: Viðræður um veiðar í EystrasaM án árangurs Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Undanfarið hafa staðið yfir fyrir veiðiheimildir í Eystrasalti, allt samningaviðræður á milli Svia og þykir því benda til þess að Svíum framkvæmdastjórnar Evrópu- verði boðnar tollaívilnanir til að bandalagsinns um fiskveiði- greiða fyrir samkomulagi. heimldir til handa EB á hinum Báðir aðilar kanna nú stöðu sina og samningaviðræðum verður haldið áfram eftir þær kannanir, annað hvort í Bruccol eða Stokkhólmi eftir því hversu alvarlegan menn meta ágreininginn. svokölluðu gráu svæðum í Eystra- salti. Þessi gráu svæði voru áður alþjóðlegt hafsvæði en tilheyra sænskri lögsögu samkvæmt sam- komulagi á milli Svía og Sovét- manna sem tók gildi 16. mai sl. slainor kynnir: Duarte á herspítala í Bandaríkjunum Waahington, Reuter. Síðastliðinn þriðjudag lagðist Jose Napoleon Duarte, forseti E1 Salvador, inn á hersjúkrahús i Bandaríkjunum. Við komuna til Bandaríkjanna kvaðst forsetinn ætla að leita sér lækninga við magasári en samkvæmt óstað- festum fréttum frá San Salvador þjáist hann af magakrabbameini. I för með Duarte til Banda- ríkjanna var kona hans, Ines Dur- an, og sonur þeirra. Þau flugu frá San Salvador með bandarískri her- flugvél til Andrews-herstöðvarinn- ar, þar sem sendiherra E1 Salvador í Bandaríkjunum, Emesto Rivas Ballont, tók á móti þeim, en þaðan var fjölskyldunni ekið til Walter Reed-hersjúkrahússins í Washing- ton. Duarte vildi ekki gefa út neina yfirlýsingu við komuna til Banda- ríkjanna og talsmaður Walter Reed-sjúkrahússins vildi ekki láta neitt eftir sér hafa um ástand hans. Talsmaður Duartes hefur látið frá sér fara tilkynningu þess efnis að öllum spumingum skuli beint til Rivas sendiherra. Sendiherrann sem dvaldist á sjúkrahúsinu með Duartes langt fram á þriðjudags- kvöld kvaðst aftur á móti ekkert vilja segja um málið í bili. Á milli EB og Svía er þegjandi samkomulag um að fyrri samningur gildi þar til nýr hefur verið gerður. Ljóst er að framkvæmdastjóm EB leggur mikla áherslu á að ná samn- ingum áður en laxveiðitímabilið hefst í Eystrasalti, 15. september í haust. Það eru þýskir og danskir fískimenn sem stunda veiðar á þessum svæðum í Eystrasalti, kolaveiðar fyrrihluta árs og laxveiðar á haustin. Arið 1987 veiddu danskir fískimenn rúmlega 15.000 tonn af kola á gráa svæðinu og 437 tonn af laxi í samanburði við 20.000 tonn af kola og 879 tonn af laxi árið áður. Afli Vestur-Þjóðveija á þessum miðum eru mun minni eða 5500 tonn af kola 1987 og 13,5 tonn af laxi sama ár. Það sem helst tefur fyrir sam- komulagi er skortur framkvæmda- stjómarinnar á nothæfri skiptimynt í samningum við Svfa. Vegna ofveiði í Norðursjó er ekki hægt að bjóða þeim veiðiheimildir þar í skiptum V estur-Þýskaland: Tíundi hver starfsmaður notar áfengi í vinnunni Drukkinn hjólreiðamaður. Bjórinn reynist stundum nokkuð dýr- EINN af hveijum tíu Þjóðveij- um drekkur í vinnunni og hann hefur alltaf einliveija afsökun fyrir því. Skrifstofustúlkan ætl- ar að fara halda afmælisveislu; forstjórinn er í slæmu skapi; þetta hefur verið erfiður og slítandi dagur. Ástæðurnar eru endalausar og áfengissjúkling- unum finnst þeir sialdnast þurfa á hjálp að halda. Afengis- neysla þessara manna kostar hins vegar þjóðarbúið nokkra tugi miRjarða marka á ári hveiju. Á ráðstefnu, sem vestur-þýska mótmælendakirkjan hélt í Miinch- en, sagði Herbert Ziegler, sem vinnur að fíkniefna- og áfengis- vamamálum, að áfengissýkin ætti ekki heima í einni stétt fremur en annarri. Of mikið vinnuálag er varasamt „Drykkjumennimir eru alls staðar. í iðnaðinum og á opin- berum skrifstofum, yfírmenn jafnt sem undirsátar," sagði Zie- gler en það kom fram í máli hans, að þeir, sem væm ekki undir allt of miklu vinnuálagi, freistuðust síður til að leita á náðir flöskunn- ar. Þegar vinnuálagið er jafnaðar- lega úr hófí fínnst hins vegar fjórða hveijum manni nauðsyn- legt að hafa alltaf vín við höndina. Þeir, sem em undir áhrifum, vinna ekki aðeins illa og ráða verr við vinnuálagið, heldur em þeir beinlínis hættulegir sjálfum sér og öðmm. Það kemur vel fram í könnun, sem hafnaryfirvöld í Hamborg gerðu, en hún leiddi í ljós, að 82% allra slysa í iðnaði, þar með taldar ferðir til og frá vinnustað, hentu menn, sem höfðu 150 milligrömm af vínanda eða meira í blóðinu. Við aðra athugun á 132 slysum meðal ríkisstarfs- manna kom fram, að 55% þeirra, keyptur. sem í þeim lentu, vom með 150-300 milligrömm af vínanda í blóðinu og 11% með meira. Karlmaður, sem vegur 75 kg, þarf að drekka fjóra lítra af bjór til að ná þessum mörkum en blóð- sýnin vom aðeins tekin á milli klukkan átta að kveldi og til klukkan sex að morgni. Veikindi og fjarvistir I iðnaðinum lenda áfengissjúkl- ingar þrisvar og hálfu sinni oftar í slysum en aðrir og þeir taka sér veikindafrí tvisvar og hálfu sinni oftar. Hvað varðar fjarvistir al- mennt má margfalda meðaltalið með 16 þegar um áfengissjúkling er að ræða. Áfengissjúklingur er frá vinnu í 65-110 daga á ári. Hvað það kostar vinnuveitandann er auðvelt að ímynda sér: Fyrirtæki, sem hefur 1.000 manns á launaskrá, þar af 5% áfengissjúklingar, tapar allt að 375.000 mörkum, nærri níu og hálfri milljón ísl. kr., á ári vegna greiddra veikindadaga og vegna þess, að verkin em alls ekki unn- in að hluta. Það borgar sig að hjálpa mönn- um að komast í meðferð. Oft ber hún góðan árangur og þeir, sem eiga við drykkjusýki að stríða, em ósjaldan karlar og konur, sem áður vom góðir og jafnvel mjög mikilvægir starfsmenn. í Banda- ríkjunum vom þessi mál könnuð og komist að þeirri niðurstöðu, að hver einn dalur, sem varið væri í meðferð, skilaði af sér níu öðmm. Munaði mest um, að fjar- vistimar minnkuðu um tvo þriðju. Ráðstefnan í Munchen var einkum fyrir vinnuveitendur, verkstjóra, trúnaðarlækna og starfsráðgjafa og tilgangurinn sá að kenna þeim að hjálpa þeim, sem áttu í erfiðleikum vegna áfengissýkinnar. (Heimild: Die WelQ w Ástralskar hljómsveitirhafa á undanförnum árum vakiö mikla og verðskuldaða athygli fyrir sérlega góða og kraftmikla tónlist, enda eru nokkrar vinsælustu hljóm- sveitir heims i dag einmitt frá Ástraliu og nægir að nefna hljómsveitir á borð við INXS - AC/DC - ICEHOUSE og nú siðast MIDNIGHTOIL. STEINAR HF. og STÖÐ 2 bjóða þér nú til ástralskrar rokkveislu þar sem kynntar veröa sjö afbestu rokksveit- um Ástrala um þessar mundir. Á STÖÐ 2 sunnudaginn 5. júni kl. 13. OO verður sýndur þá ttur með þessum sjö hljómsveitum og við skorum á alla unnendur rokktónlist- arað fylgjast velmeð, þviÁSTRALSKA BYLGJANer komin tilað vera! \ LPKR. 599.* AUSTRALIAN ROCKS ’88 Safnplata sem inniheldur 14 lög með þeim sjo hljómsveitum sem sjást hór að neóan. Ailt eru þetta hörkugóðir rokkar- ar sem eiga það sameiginlegt að hafa gist efstu sæti vinsældarlista I Ástraliu og sum eru að ná miklum vinsældum annarsstaðar eins og t.d. „Beds are Burning" með MIDNIGHT OIL, „Sliceof Heaven" með DAVE DOBBYN og „He’s gonna step on you again“ með PARTY BOYS. Pessari frábæru piötu skalt þú ekki missa af hvað sem það kostar! CD KR.999.* NOISEWORKS NOISEWORKS DAVEDOBBYN LOYAL MENTAL AS ANYTHING MOUTH TO MOUTH PÓSTKRÖFUÞJÓNUSTA Hringdu ísíma 11620 eða28316 og við sendumíhvelli. KREDITKORTAÞJÓNUSTA - sparar póstkröfukostnaðinn - , skal ☆ STEINARHF ☆ AUSTURSTRÆT1 - QLÆSiBÆ - RAUÐARÁR STÍQOQSrRANDOÖTV, HAFNARFIRÐi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.