Morgunblaðið - 02.06.1988, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakið.
Sj ómannadagur
í 50 ár
Sjórinn er gullkistan sem
íslenzkt velferðar- og hag-
sældarþjóðfélag hvílir á. Þannig
kemst Þorsteinn Pálsson for-
sætisráðherra að orði í nýju
Sjómannadagsblaði, sem gefíð
er út í tilefni af 50 ára afmæli
Sjómannadagsins.
Sjómannadagurinn var fyrst
haldinn hátíðlegur 6. júní 1938.
Pétur Sigurðsson formaður Sjó-
mannadagsráðs segir í Sjó-
mannadagsblaðinu: „hugmynd-
in, undirbúningur og stofnun
samtakanna", sem að baki
stóðu sjómannadeginum, „var
að kalla má verk eins manns,
Henrys A. Hálfdanssonar“.
Fyrsta verk samtakanna,
sem sjá má enn stað, var bygg-
ing minnisvarða á leiði óþekkta
sjómannsins í Fossvogskirkju-
garði, sem vígður var 16. nóv-
ember 1938.
Sigutjón Á. Ólafsson er síðan
höfundur þeirrar hugmyndar,
að samtökin helgi sig byggingu
dvalarheimilis fyrir aldraða sjó-
menn. Byggingarframkvæmdir
hófust 1953. Forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, legg-
ur hornstein að Hrafnistu í
Laugarási á sjómannadaginn
1954. Síðar kom Hrafnista í
Hafnarfírði. Á þessum heimil-
um dvelja nú um 600 vistmenn.
Sjómannadagurinn hefur að
auki skipulagt orlofshúsahverfí
sjómanna í Grímsnesi.
Pétur Sigurðsson kemst svo
að orði um fjáröflun til bygging-
ar dvalarheimila fyrir aldraða
sjómenn:
„í sama mund (1954) fengu
samtökin leyfí til happdrættis-
reksturs fyrir tilstilli Ólafs
Thors, þáverandi forsætis- og
atvinnumálaráðherra, og það
varð undirstaða allrar upp-
byggingar síðar". Henry Hálf-
dansson beitti sér fyrir því að
Ólafur Thors var fyrstur manna
sæmdur gullmerki Sjómanna-
dagsins, æðsta heiðursmerki
Sjómannadagssamtakanna.
Sjómannadagurinn er lög-
skipaður frídagur, enda á undir-
stöðugrein í þjóðarbúskapnum
í hlut. Það er málvenja að tala
um íslenzkt samfélag sem þjóð-
arskútu og þjóðartekjur sem
skiptahlut. Þessi orðanotkun
eða samlíking undirstrikar þýð-
ingu sjávarútvegsins í hugum
fólks. En sjómannadagurinn er
meira en hátíðisdagur. Hann
er baráttudagur fyrir auknu
öryggi og hagsmunum sjó-
manna. í þeim efnum hefur
margt áunnizt: betri skip, full-
komnari öryggistæki, slysa-
vamaskóli, átak í lögskráning-
armálum, áhættu- og slysa-
tryggingar, hvíldartími og
lífeyrissjóður, svo eitthvað sé
neftit. En betur má ef duga
skal. Tíðni sjóslysa er allt of
há og hærri en hjá öðrum þjóð-
um við Norður-Atlantshaf.
Sem fyrr segir var Henry
Hálfdansson formaður Sjó-
mannadagssamtakanna fyrstu
23 árin eða fram til 1961. Síðan
hefur Pétur Sigurðssop haft
formennskuna á hendi. Á þessu
tímabili hefur samtökunum
vaxið fískur um hrygg og kom-
ið ýmsum stefnumálum heilum
í höfn. Ekki er ofsagt að þessir
tveir forystumenn sjómanna
hafí skilað samtökum þeirra
miklu og árangursríku starfí.
í tilefni af 50 ára afmælinu
kemur út „Saga Sjómanna-
dagsins í Reykjavík og Hafnar-
fírði“, samin af Ásgeiri Jakobs-
syni, rithöfundi. Þetta er mikið
verk, um 500 blaðsíður, prýdd
á annað hundrað myndum. Inn
í frásögn alla er blandað sjávar-
útvegssögu þessa tímabils. Mik-
ill fengur er að þessu heimilda-
riti, sem er fímmtánda sjó-
mannabók höfundar.
Á morgun, föstudag, hefjast
hátíðahöld í Laugarásbíói. Þar
flytja forseti landsins og for-
sætisráðherra ávörp. Pétur Sig-
urðsson, formaður Sjómanna-
dagsráðs, flytur hátíðarræðu.
Frumflutt verður nýtt tónverk
Sigfúsar Halldórssonar, Arn-
arrím, við texta Amar Amar-
sonar. Mörg dagskráratriði eru
ótalin en vel er vandað til þess-
arar menningardagskrár sjó-
manna.
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, segir í kveðju
til sjómanna:
„Svo samfléttaðir eru at-
vinnuvegir okkar fámenna
þjóðfélags til sjávar og sveita
að einn er hugurinn og ein er
höndin".
Þetta eru sannyrði. Sjó-
mannadagurinn er í hugum
flestra landsmanna eins konar
þjóðhátíð. 0g að þessu sinni
halda sjómenn stórhátíð. Tilefn-
ið er hálfrar aldar afmæli sjó-
mannadagsins og sá árangur
af starfí Sjómannadagsráðs
sem í hendi er. Morgunblaðið
samfagnar sjómönnum á þess-
um tímamótum. Megi framtíðin
færa þeim aukið öryggi við
störf á hafí úti og góðan afla.
Blaðamannafundur Reagans:
Ræddi mannrétt-
indi af varfærni
- til að styggja ekki Gorbatsjov
Gorbatsjov á
Ieiðtogi heldur
Reuter
blaðamannafundinum, sem er sá fyrsti sem sovéskur
í Sovétríkjunum.
Moskvu, Worldnet.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti sagði á blaðamanna-
fundi, sem sendur var beint
út víða um veröld á vegum
W/br7diieí-sjónvarpsstöðvar-
innar bandarísku, að á leið-
togafundi risaveldanna í
Moskvu hefðu hann og Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétleiðtogi náð
umtalsverðum árangri í átt til
svonefnds START-sáttmála,
sem stefnt er að kveði á um
helmingsfækkun langdrægra
kjarnaeldflauga. Bandarískir
blaðamenn saumuðu nokkuð
að forsetanum, sérstaklega
hvað varðaði yfirlýsingar hans
um bætt mannréttindaástand í
Sovétríkjunum og þá skýringu
hans í Moskvuháskóla á þriðju-
dag, að skrifræði væri um
kenna hversu erfiðlega and-
ófsmönnum hefði sóst að fá
fararleyfi frá Sovétríkjunum.
Þrátt fyrir ítrekaðar spumingar
blaðamanna forðaðist forsetinn
það eins og heitan eldinn að kenna
hugmyndafræði kommúnista um
ofsóknir gegn andófsmönnum,
þrátt fyrir að hann segði að hug-
myndir hans um eðli kommúnis-
mans hefðu í engu breyst.
Reagan hélt áfram uppteknum
hætti sínum á Moskvufundinum
og hlóð Gorbatsjov lofí fyrir um-
bótastefnu sína. Þá hrósaði hann
Gorbatsjov fyrir að hafa sýnt ein-
lægni í samningum og kvað hann
hvað eftir annað hafa gengið fram
fyrir skjöldu og höggvið á hnútinn
þegar allt virtist ætla að sigla í
strand.
Sem fyrr sagði lögðu banda-
rískir blaðamenn hart að forsetan-
um að svara því hvort hann gæti
með góðri samvisku sagt að hann
væri ánægður með framfarir í
mannréttindamálum þegar frést
hefði að andófsmenn þeir, er hann
hefði rætt við í Spaso-setri á
mánudag, hefðu á ný verið settir
undir eftirlit sovésku leyniþjón-
ustunnar KGB.
Hömruðu þeir ennfremur á því,
að í erindi sínu við Moskvuhá-
skóla hefði Reagan kennt skrif-
kerum um hömlur á ferðafrelsi
og öðrum mannréttindabrotum og
vildu fá skýr svör hvort hann
væri þeirrar skoðunar að Sovét-
stjóminni sjálfri og kommúnis-
manum væri ekki um ástand
mannréttindamála að kenna.
Reagan svaraði þessu aldrei
beint og varaði sig greinilega á
því að segja ekkert sem styggt
gæti gestgjafa sína, en sagði þess
í stað að tölurnar töluðu sínu
máli; 300 andófsmönnum hefði
að undanförnu verið sleppt úr
fangelsum og þrælkunarbúðum,
tvístraðar fjölskyldur hefðu sam-
einast að nýju fyrir atbeina sjálfs
sín og Gorbatsjovs og fleira í þeim
dúr.
Forsetinn var að lokum spurður
hvað hefði þá breyst frá því að
hann kallaði Sovétríkin „keisara-
dæmi hins illa“ — Sovétríkin eða
skoðanir hans sjálfs á þeim. Sagði
Reagan að þar væri fyrst og
fremst um breytt Sovétríki að
ræða og sagði Gorbatsjov og
umbótastefnu hans fyrst og
fremst valda því.
Blaðamannafundur Gorbatsjovs:
Tel að við hefðum
getað gert betur
- sagði aðalritarinn um niðurstöður leiðtogafundarins
Moskvu, Reuter.
MIKAÍL Gorbatsjov, aðalritari
soéska kommúnistaflokksins,
hélt í gær blaðamannafund í
Moskvu að afloknum fundum
sínum með Reagan Banda-
ríkjaforseta. Þetta er í fyrsta
sinn sem sovéskur leiðtogi
heldur slíkan fund í Sovétríkj-
unum sjálfum. Þótt vel hefði
miðað í umræðum um fækkun
langdrægra kjarnaflauga var
ljóst að Gorbatsjov hafði orðið
fyrir nokkrum vonbrigðum
með árangur fundanna og
kenndi hann Bandaríkjamönn-
um um.
Er fundurinn var að hefjast
varð Gorbatsjov ljóst að sumir
erlendu blaðamannanna skildu
ekki mál hans þar sem þeir höfðu
ekki fengið sæti með tælqabúnaði
til þýðinga á ensku. Ástæðan var
sú að nokkrir forvitnir Sovétmenn
höfðu gerst of frekir til sæta og
þar með þröngvað sumum útlend-
ingunum yfír á „óæðri" bekki án
tækja. Aðalritarinn þóti minna á
stjórnsaman skólameistara er
hann leysti málið með því að vísa
sauðarlegum löndum sínum í önn-
ur sæti. Er þessari „ perestrojku“
sætanna var lokið sagði Gor-
batsjov: „Eins og vinir okkar í
Þýskalandi segja: Ordnung
(regla)!“ Hann bætti við að Qöl-
miðlar gegndu mikilvægu hlut-
verki í samskiptum risaveldanna
og hvassar spumingar frétta-
manna hefðu beint leiðtogunum
inn á nýjar brautir.
Aðalritarinn sagði m.a. að Re-
agan forseti hefði í fyrstu sam-
þykkt tillögu Sovétmanna þess
efnis að í sameiginlegri yfírlýsingu
leiðtoganna að loknum fundunum
yrði tekið fram að bæði risaveldin
væru fylgjandi friðsamlegri sam-
búð. Eftir að hafa ráðfært sig við
aðstoðarmenn sína hefði forsetinn
síðan skipt um skoðun.
„Ég tel því að við höfum misst
af möguleikanum á að taka stóra
stökkið í sambúð okkar ... Þegar
öllu er á botninn hvolft þá viljum
við lifa í sátt og samlyndi eða
hvað?“, sagði Gorbatsjov og fóm-
aði höndum, að því er virtist í
örvæntingu.
Um málefni Miðausturlanda
sagði hann að þokast hefði til
samkomulags en ólík sjónarmið
ríktu varðandi alþjóðlega ráð-
stefnu um máiið og vanda Pa-
lestínumanna. Samkomulag yrði
að tryggja öryggi ísraels og
sjálfsákvörðunarrétt Palestínu-
manna.
„Öryggi eins má ekki tryggja
á kostnað annars", sagði Gor-
batsjov. Hann sagði einnig að
Bandaríkjamenn hefðu reynt að
leysa vandamál Miðausturlanda
einir í mörg ár og komist að raun
um að árangur varð enginn.
Hann hliðraði sér við að svara
er hann var spurður hvers vegna
mikilvægir stuðningsmenn hans
hefðu ekki verið kosnir á ráð-
stefnu kommúnistaflokksins sem
haldin verður í þessum mánuði.
Þar á að marka stefnuna í megin-
málum og sagðist Gorbatsjov telja
víst að ráðstefnan yrði til að hraða
umbótaáætlunum stjómarinnar.
Reuter
Dóms-
dags-
taskan
Hvert sem
Bandaríkjafor-
seti fer fylgir
honum herfor-
ingi, er gætir
sakleysislegrar
tösku sem fest
er við úlnlið
hans með leður-
ól. í töskunni
eru þeir dul-
málslyklar sem
forsetinn þarfn-
ast til að geta
fyrirskipað
kjarnorkuárás.
Ólíklegt má
þó telja að for-
setinn fyrirskipi
árás meðan
hann sjálfur er
á Rauða torg-
inu.
29. maí-2. júní, 1988
MOSKVUFUNDURINN
Reuter
Reagan teygir sig fram yfir púltið til þess að heyra betur spurningu
blaðamanns í gegnum kliðinn á blaðamannafundinum.
Brestir í
vináttu
frúnna
Moskvu, frá önnu Bjamadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
NANCY og Ronald Reagan
snæddu kvöldverð ( sveitahúsi
Gorbatsjov-hjónanna í gærkvöldi
eftir sérstaka hátíðarsýningu i
Bolshoj. Nancy hafði óskað sér-
staklega eftir að fá að sjá nokkra
íkona á Tretjakov-safninu.
Raísa Gorbatsjova kom í safnið
nokkru á undan Nancy og fjallaði um
listaverkin við fréttamenn. Hún sagð-
ist hafa tíma til þess, því að gestinir
væru seinir. Hún fór fögrum orðum
um íkonana, en nefndi ekki að þeir
væru trúarlegs eðlis.
Nancy mætti á réttum tíma sam-
kvæmt upplýsingum talsmanns henn-
ar. Raísa afhenti henni rósir og lista-
verkaskrá og ætlaði svo að drífa hana
strax af stað að skoða verkin. En
Nancy heimtaði að fá að segja nokk-
ur orð. Hún þakkaði fyrir hið ein-
staka tækifæri að fá að sjá verkin
og sagðist ekki vita hvemig hægt
væri að dást að verkunum án þess
að meta trúargildi þeirra.
Jeltsín dregur í lanri:
Segist ekki hafa mælt með
brottvikningu Lígatsjovs
Moskvu og Washington, Reuter.
BORÍS Jeltsín, fyrrum Ieiðtogi Moskvudeildar sovéska kommúnista-
flokksins, dró f gær til baka ummæli sín f útvarpsviðtali við fréttamenn
bresku útvarpsstöðvarinnar BBCá mánudaginn. Þá lýsti hann þvf yfir
að hann teldi rétt að Jegor Lfgatsjov, aðalhugmyndafræðingur sovéska
kommúnistaflokksins, yrði vikið frá þar sem hann ynni gegn umbóta-
stefnu (perestrojku) Gorbatsjovs aðalritara.
A blaðamannafundi sínum, sem
haldinn var snemma dags í gær,
sagði Gorbatsjov að brottvikning
Lígatsjovs væri alls ekki til umræðu.
Sjálfur sagðist hann ekki hafa séð
texta umrædds viðtals en taldi að
flokkurinn ætti að krefjast þess að
Jeltsín gerði hreint fyrir sfnum dyr-
um á næsta miðstjómarfundi. Hann
sagði að það yrði gott að eiga fund
með Jeltsín aftur og bætti við: „Hvað
sem öðru líður er hann félagi í mið-
stjóminni."
Stjómmálaskýrendur telja að með
ummælum sínum hafí Gorbatsjov
gefið í skyn að Jeltsín gæti misst
sæti sitt í miðstjóm kommúnista-
flokksins ef miðstjómin sakaði
Jeltsín um „pólitíska villu“. í október
síðastliðnum missti hann leiðtoga-
stöðu sína í Moskvudeild flokksins
og var gerður að aðstoðarbyggingar-
málaráðherra eftir að hann gerði sig
sekan um „pólitísk mistök".
Talið er mögulegt að Jeltsín hafi
á miðstjómarfundinum í október
einnig nafngreint Lígatsjov sem
þröskuld í vegi umbóta. í viðtalinu
við BBC var hann spurður hvort
hann teldi að Lígatsjov ætti að vílqa
en nú segir hann að ekki hafí verið
minnst á slíkt. Hann neitar einnig
að hafa lýst yfír vonbrigðum með
afstöðu Gorbatsjovs á miðstjómar-
fundinum í október. Hins vegar end-
urtók hann fullyrðingar sínar um að
sumir embættismenn í Moskvu höml-
uðu gegn umbótahugmyndum Gor-
batsjovs.
Yfirlýsing leiðtoganna
Moskvu. Reuter.
LEIÐTOGAR risaveldanna sendu f gær frá sér sameiginlega yfirlýsingu
um viðræður sfnar f Moskvu, sem þeir sögðu hafa verið yfirgripsmildar
og ítarlegar. Þeir hétu þvf að vinna áfram að afvöpnunarmálum á grund-
velli þess árangurs, sem þegar hefði náðst f þeim efnum. Þeir hefðu orð-
ið sammála um næstu skref og myndu á næstu mánuðum vinna saman
að þvf að ná fram sanngjörnum samningum, sem myndu leiða til aukins
stöðugleika og öryggis.
f yfírlýsingunni sögðust leiðtogamir líta á Moskvufundinn sem mikilvægt
skref í þeirri viðleitni að treysta samband risaveldanna og gera það varan-
legra. Þeir sögðust hafa rætt um afvopnunarmál, mannréttindi og mannúðar-
mál, svæðisbundin átök og friðsamlega lausn þeirra og gagnkvæm samskipti
risaveldanna. Alvarlegur ágreiningur væri óútkljáður á vissum sviðum en hinar
opinskáu viðrseður sem risaveldin hefðu tekið upp væru eina leiðin til að yfírstíga
þann ágreining.
„Viðræðumar vom gagnlegar og hreinskiptar og skilningur beggja á afstöðu
hins hefur aukizt. Leiðtogamir fögnuðu árangri, sem náðst hefur á ýmsum
sviðum samskipta risaveldanna frá fundi þeirra i Washington í desember sl.
þrátt fyrir hversu flókin og erfíð úrlausnar þau væru,“ sagði í yfírlýsingunni.
Leiðtogamir hrósuðu fulltrúum risaveldanna, sem reynt hefðu að leysa óleyst
ágreiningsatriði að undanfömu og sögðust sjálfir staðráðnir í að leggja enn
harðar að sér á næstu mánuðum til þess að freista þess að ná samkomulagi
um þau.
Kjarnorkustyrjöld má aldrei brjótast út
Leiðtogamir undirstrikuðu hið sögulega mikilvægi funda þeirra í Genf,
Reykjavík, Washington og Moskvu þar sem lagður hafí verið grundvöllur að
raunhæfum leiðum til að auka stöðugleika í heiminum og draga úr hættu á
átökum. Þeir ítrekuðu þá sannfæringu sína að kjamorkustríð væri ekki hægt
að vinna og mætti aldrei bijótast út.
Leiðtogamir sögðu að uppkast að sáttmála um fækkun og takmörkun lang-
drægra kjamorkuvopna (START). Aðilar væra sammála í veigamiklum atriðum
og jafnframt hefðu þeir gert Itarlega grein fyrir afstöðu sinni til ágreiningsat-
riða. Jafnvel þótt mikið væri ógert áður en samningur yrði tilbúinn til undirrit-
unar væra lykilatriði frágengin f samningsuppkastinu og talin umsamin.
Þá sögðu leiðtogamir að haldið hefði verið áfram tilraunum til að ná sam-
komulagi um gagnflaugasáttmálann á grandvelli yfirlýsingar þeirra við lok
fundar þeirra í Washington. Sögðu þeir að árangur hefði náðst á því sviði.
Ennfremur ítrekuðu leiðtogamir þá afstöðu beggja risaveldanna að halda
sérstakar samningaviðræður um kjamorkutilraunir, þar sem markmiðið væri
að kjamorkutilraunir legðust með öllu af. Yrði það áfangi í kjamorkuafvopn-
un. Fyrsta skref í viðræðum af því tagi væri að ná samkomulagi um virkt
eftirlitskerfi svo að hægt yrði að staðfesta samning risaveldanna frá 1974 um
bann við eldflaugatilraunum og frá 1976 um kjamorkuvopnatilraunir.
f yfírlýsingunni sögðust leiðtogamir hafa rætt um mikilvægi þess að ná fram
banni við framleiðslu og notkun efnavopna. Mikilvægt væri að allar þjóðir, sem
væra í aðstöðu til að framleiða vopn af þessu tagi ættu aðild að slíku samkomu-
legi og að það væri þannig úr garði gert að sannreyna mætti hvort við það
væri staðið.
Hefðbundinn vígbúnaður
Varðandi hefðbundin vopn sögðu leiðtogamir nauðsynlegt að auka stöðug-
leika og öryggi allrar Evrópu og fögnuðu árangri sem náðst hefði í því að koma
á nýjum viðræðum um hefðbundin herafla. Þeir sögðust vona að brátt lyki
framhaldsfundinum í Vínarborg um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) og
að niðurstöður hans yrðu sanngjamar. Einnig sögðu þeir að með því að hrinda
í framkvæmd ákvæðum ályktunar Stokkhólmsráðstefnunnar um öryggi og af-
vopnun ( Evrópu væri stuðlað að hreinskilni og gagnkvæmu trausti.
Mannréttindamál
Leiðtogamir ræddu ítarlega um mannréttinda- og mannúðarmál og urðu
sammála um að halda áfram vaxandi skoðanaskiptum um þau til þess að ná
raunhæfum og varanlegum árangri. í þessum viðræðum skyldi vera haft að
leiðarljósi að tryggja frelsi og reisn einstaklinganna sem bezt, að stuðla að
auknum mannlegum samskiptum, meira gagnkvæmu trausti og virðingu milli
risaveldanna tveggja. Til þess að ná þessu markmiði ræddu leiðtogamir um
hugsanlega samkundu, sem kæmi reglulega saman og á sætu fulltrúar sem
flestra þjóðfélagshópa. Þeir lögðu áherzlu á aukin samskipti bjóðþinga risaveld-
anna, sameiginlega fundi lögmanna, lækna og fulltrúa annarra starfsstétta,
sem fjölluðu um mannréttindi, og samskipti stofnana sem að nafninu til era ekki
á vegum ríkisvaldsins.