Morgunblaðið - 02.06.1988, Síða 51
05
5r
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hœfileikar Nautsins
í dag ætla ég að flalla um
hæfíleika hins dæmigerða
Nauts (20. apríl—20. maí) og
aðra jákvæða eiginleika þess.
Úthald og uppbygging
Einn helsti hæfíleiki Nautsins
er fólginn í úthaldi og því að
geta byggt upp, skref fyrir
skref. Nautið byijar ógjaman
á nýju verki fyrr en það hefur
lokið gömlum verkum og hefur
fullvissað sig um að grunnur-
inn sé öruggur. Það undirbýr
hvert mál af kostgæfni. Það
er þvi sjaldgæft að Nautið
flani að einu eða neinu og
geri alvarleg mistök. Það
spjarar sig því yfirleitt vel í
lífínu. Það má líkja Nautinu
við byggingameistara, fyrst
er húsið teiknað, síðan er tek-
inn grunnur og loks-er hver
hæð af annarri steypt upp.
Samfara þessu er seigla, það
að gefast ekki upp þó á móti
blási heldur halda stöðug
áfram, svo framarlega sem
áhugi er fyrir hendi. Það
sfðastnefnda visar til þess að
nautið getur gefíst upp eins
og aðrir ef það hefur ekki
fundið réttan farveg fyrir orku
sína.
Raunsœi
Annar hæfíleiki Nautsins er
fólginn í raunsæi og jarð-
bundnu eðli þess. Nautið sér
heiminn eins og hann er, ekki
eins og það hefði óskað sér
að hann væri. Nautið býr yfír
sterkri heilbrigöri skynsemi.
Það kemur málum í verk, orði
verður að fylgja athöfn. Naut-
ið er því ekki persóna sem
talar um þetta og hitt, heldur
sú sem framkvæmir.
Fjármálahœfileiki
Þó ekki hafí öll Naut áhuga á
viðskiptum og fjármálavafstri
þá hafa þau samt sem áður
hæfíleika á þessu sviði. Naut
fara t.d. yfírleitt vel með pen-
inga og eru útsjónarsöm á þvi
sviði. Nautið ber oft gott skyn-
bragð á tölur og á auðvelt
með að hafa yfírsýn yfír stór
fjármáladæmi. Þrátt fyrir
þetta eru Naut oft eyðslusöm.
Ef Naut hefur ekki áhuga á
fjármálavafstri og velur sér
t.d. sagnfræði sem fag, getur
þesBÍ hæfíleiki birst í sérstök-
um hæfíleika hvað varðar hag-
sögu.
Ást ogsöngur
Annar hæfileiki Nautsins er
næmt snertiskyn sem táknar
að Nautið hefur ágæta hæfí-
leika sem elskhugi eða t.d.
sem nuddarí. öll svið sem
hafa með jörðina að gera ættu
einnig að liggja vel fyrir
Nauti, s.s. garðyrkja, blóma-
rækt og landbúnaður. Ef
Nautið er i listum, þá er hæfí-
leikinnn oft jarðbundinn eða
beinist að vinnu með þung
efni og notkun handa. Mynd-
höggvarar eru t.d. margir í
Nauti. Það sama er upp á ten-
ingnum í tónlist, enda er ptanó
hljóöfæri Nautsins. Einnig er
sagt að það hafi sönghæfíleika
eða sérstakan áhuga á söngv-
urum.
ÞolinmceÖi ogfriður
Af öðrum jákvæðum eiginleik-
um má nefna þolinmæði, sem
reyndar er nátengd því að
hafa gott úthald. Nautið er
einnig góðlegt og friðsamt í
eðli sfnu og leitar sjaldan eftir
deilum. Það á þvi að öllu jöfnu
auðvelt með að umgangast
annað fólk. Af öðrum hæfi-
leikum má nefna skipulags-
hæfíleika eða hæfíleika til
markvissra framkvæmda. Þó
við segjum hér að Nautið hafí
þessa og hina hæfíleika er
ekki þar með sagt að þeir
komi sjálfkrafa til Nautsins.
Það verður eins og önnur
merki að vinna með sig og
rækta hæfíleika sina, samfara
þvi sem það tekur á og yfir-
vinnur veikleikana.
88ei IVIÚI ,S HUOAaUTMMl'a ,ai<lAJgMUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
GARPUR
TTTTTTTT
!!!!!!i!!ii!!!!!!l!?i!!!!!!?.l!!l!!!iii!!!!!!!i!!i!!iii!i!i:i!!!!!i!i!‘!!!!!!!!!!!!i!!H!!!!!!!!
DYRAGLENS
T!T!T!118!!!!!8!
::::::::::::::::
!!!8!!!!!!!!!!!!!}!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?!!!!!l!!!!!!!!!!!!!l!!!!!!!!!?!!!!!!!!l!!!!!!!!T!!!!!!!!!!l!!8!!!!!!!!f!!!T!!!T!!!!!!!!!!!!
FERDINAND
VOU CAN ALWAVS TELL
IT’S TNE LAST 6AME 0F
TWE SEASON UIHENTNE
LEAVE5 5TART TO FALL..
Maður veit alltaf að
það er síðasti leikur sum-
arsins þegar laufin taka
að falla...
SMÁFÓLK
og sokkarnir ...
ANP TNE
50CK5..
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
í mörgum spilum ræður það
úrslitum hvor vamarspilarinn
fær þá slagi, sem gefa þarf. f
spilinu hér að neðan lagði sagn-
hafí sig fram um að hleypa ekki
hættulega mótheijanum inn.
Norður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ G92
VD82
♦ K5
♦ ÁK654
Vcstur
♦ 74
¥106
♦ D108762
♦ DG9
Austur
♦ 83
¥ ÁKG9754
♦ ÁG
♦ 102
Suður
♦ ÁKD1065
¥3
♦ 943
♦ 543
Votur Norður Austur Suður
1 lauf X hjarta 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: Hjartatfa.
Eftir innákomu austurs m&tti
teljast líklegt að hann ætti tfgul-
ásinn, svo sagnhafí ákvað að
binda vonir sínar við lauflitinn.
Til að koma í veg fyrir að
vestur gæti spilað í gegnum
tígulkónginn, stakk hann upp
drottningu blinds. Austur drap
á kónginn og spilaði ásnum.
Og nú sýndi sagnhafi þá fyrir-
hyggju að henda laufi. Þannig
færði hann taparann í lauflitnum
yfir á hjartað og tryggði þar
með að vestur kæmist ekki inn.
Hann stakk sfðan þriðja þjart-
að hátt, tók tvisvar tromp (-g
frfaði laufið með trompun. Fór
svo inn á spaðagosa blinds og
tók tvo fríslagi á lauf.
V'
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Zalakaros í Ung-
veijalandi f aprfl kom þessi staða
upp f skák Ungveijanna Radnoti
og Szell, sem hafði svart og átti
leik.
23. - Rxf2I, 24. Hxf2 - Re2+!,
26. Kfl (svartur verður mát eftir
26. Dxe2 - Hxdl+)) 26. - Hxdl,
26. Hxf8+ - Dxf8+, 27. Kxe2 f
— Hxel+ og með drottningu und- * '
ir gaf hvftur skömmu sfðar. Sigur-
vegari á mótinu varð ungverski
stórmeistarinn Farago, sem hlaut
8 v. af 11 mögulegum. Öðru sæt-
inu með 7'/2 vinninga deildi hin
13 ára gamla Zsofía Polgar með
sex alþjóðlegum meisturum. Hún
verður því vafalaust skæð á al-
þjóðlega Austurlandsmótinu sem
hefst á sunnudaginn og er opið
öllum.