Morgunblaðið - 02.06.1988, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
Yfirburðasigur heims-
meistarans í Amsterdam
Margeir Pétursson
Gary Kasparov sigraði með
gifurlegum yfirburðum á
fjögurra manna mótinu í
Amsterdam í Hollandi, sem
lauk á laugardaginn. Ka-
sparov náði 75% vinningshlut-
falli, hlaut 9 vinninga af tólf
mögulegum. Tveir og hálfur
vinningur skildi hann og Ana-
toly Karpov, sem varð næstur
með sex og hálfan vinning. Jan
Timman varð þriðji með fimm
og hálfan vinning og Van der
Wiel rak lestina með þijá.
Kasparov var óstöðvandi eftir
heppnissigur sinn yfir Karpov
í fimmtu umferð. Hann hlaut
fimm vinninga úr sex síðustu
skákunum, en Karpov fór úr
jafnvægi við áfallið og hlaut
aðeins þijá vinninga I seinni
hluta mótsins.
Þetta er mikill sigur fyrir
heimsmeistarann eftir að aðeins
munaði hársbreidd í Sevilla að
hann missti titilinn til Karpovs.
Nú eins og þá missti Karpov af
gullnu tækifæri til að klekkja á
heimsmeistaranum. Þess er
skammt að bíða að þeir heyi sína
næstu rimmu. Það verður á
heimsbikarmóti, því öðru í röð-
inni, sem hefst í Belfort í Frakk-
landi 14. júní.
Úrslit í viðureignum einstakra
keppenda á flögurra manna mót-
inu urðu þessi:
Kasparov-Karpov 3-1
Kasparov-Timman 2V2-IV2
Kasparov-Van der Wiel 3V2-V2
Karpov-Timman 2-2
Karpov-Van der Wiel 3V2-V2
Timman-Van der Wiel 2-2
Mótið var einnig hugsað sem
nokkurs konar landskeppni Sovét-
manna og Hollendinga, en vegna
þess hve Van der Wiel var í slöku
formi var hún hrein einstefna,
IIV2-4V2.
Einnig voru veitt stig fyrir bar-
áttu eða dirfsku og vann Kasp-
arov þar yfirburðasigur, hlaut 34
stig. Þeir Karpov og Van der
Wiel komu næstir með 29 stig,
en Timman þótti blauðastur og
hlaut aðeins 26 stig.
Eftir glæsilegan sigur sinn í
Linares í febrúar var Timman
reiknaður með yfir 2.700 skák-
stig, en á tveimur mótum eftir
það, Euwe-mótinu í Amsterdam
og heimsbikarmótinu í Brussel,
mátti hann þola mikið mótlæti.
Hann má því vel við þessi úrslit
una, hann náði t.d. jafntefli í öllum
skákunum við Karpov, en lék
klaufalega af sér manni í einu
vinningsskák Van der Wiel.
Það var fyrirtæki sem ber nafn-
ið Evrópski kaupréttarmarkaður-
inn (European Options Exchange)
sem hélt mótið. Fyrirtæki þetta á
10 ára afinæli í ár og hélt mótið
til að halda upp á það og til að
kynna starfsemi sína. Til greina
kemur að það haldi annað mót
að tveimur árum liðnum og samdi
það við þá Kasparov og Timman
að fá forgangsrétt að þeim í febrú-
ar 1990. Nýti fyrirtækið ekki rétt-
inn getur það væntanlega selt
hann einhveijum öðrum móts-
haldara með hagnaði, en slíkt er
einmitt það sem kaupréttarmiðlun
þrífst á.
Stigahækkun Kasparovs á mót-
inu er mikil, á bilinu 15-20 stig.
Á næsta lista verður hann því
annaðhvort með 2.765 eða 2.770
stig. Þar sem hann er aðeins 25
ára gamall eru yfirgnæfandi líkur
á því að hann nái að slá stigamet
Bobby Fischers, sem er 2785.
Það var mikill heppnisbragur á
fyrri sigri Kasparovs yfir Karpov,
en hins vegar var seinni vinning-
urinn fyllilega verðskuldaður og
skákin var sérlega stílhrein og
glæsileg af hálfu heimsmeistar-
ans. Kasparov tefldi nú rólega
gegn Caro-Kann-vöm andstæð-
ings síns, en það virtist sem
Karpov væri of bráður með að
skipta upp á liði. Eftir 21 leik var
staða Karpovs orðin mjög óþægi-
leg og ekki sýnt hvemig hann
gæti jafnað taflið. Þá tók hann
þá ákvörðun að veikja peðastöðu
sína, en það gerði illt verra. í
framhaldinu átti hann ekkert
mótspil, Kasparov þjarmaði stöð-
ugt að honum og uppskar að Iok-
um sigur.
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Caro-Kann-vörn
1. e4 - c6 2. d4 — d5 3. Rd2 —
dxe4 4. Rxe4 — Rd7 5. Rg5
Þetta er tízkuleikurinn, en fyrr
á mótinu lék Kasparov hér 5. Rf3
— Rgf6 6. Rg3 gegn Karpov og
vann heppnissigur.
5. - Rgf6 6. Bd3 - e6 7. Rlf3
- Bd6 8. 0-0 - h6 9. Re4 -
Rxe4 10. Bxe4 — 0-0 11. c3 — e5
Mér þykir líklegt að í næstu
Caro-Kann-skák sinni leiki
Karpov 11. — Rf6 12. Bc2 c5.
12. Bc2! - He8 13. Hel - exd4
Þvingað, því hvítur hótaði að
vinna a.m.k. peð með 14. Dd3.
14. Hxe8+ — Dxe8 15. Dxd4
Línumar hafa skýrst eftir upp-
skiptin. Þótt peðastöðumar séu
næstum samloka stendur hvítur
betur þar sem hann er á undan í
liðsskipan. Það er svarti heldur
ekki til hagsbóta að hafa „loftað
út“ með h6, því það gerir honum
ókleift að leika g7-g6 til að stinga
upp í biskupinn á c2.
15. - De7 16. Bf4! - Bxf4 17.
Dxf4 - Rf8 18. Hel - Be6 19.
Rd4 - Hd8 20. h4! - Dc5 21.
He3 - Dd6
22. Rxe6! - fxe6?!
Karpov var lentur í óþægilegri
aðstöðu og þessi ákvörðun jafn-
gildir viðurkenningu hans á því.
Skýringin á þvi að hann veikir
peðastöðu sína er líklega sú að
hann hefur haft áhyggjur af völd-
un f7-peðsins eftir 22. — Rxe6
23. De4 Rf8. Hvítur getur t.d.
leikið 24. Hd3 - Dc7 25. Hf3!
og h4-h5 og Bc2-b3 eru á leiðinni.
23. Dg4 - Dd2 24. Bb3 - Kh8
25. He2 - Dd6 26. g3 - a6
Karpov vill gjaman létta á
stöðu sinni með því að láta peðið
á e6 af hendi, en heimsmeistarinn
sleppir honum auðvitað ekki svo
ódýrt úr prísundinni.
27. Kg2 - He8 28. He3 - He7
29. Hf3 - Hd7 30. Dh5 - De7
31. De5 - Hd8 32. a4 - b5 33.
De4 - Dc7 34. Hf4 - c5 35.
Df3 - Dd6 36. axb5 - axb5 37.
Hf7 - Hb8 38. Ha7 - b4 39.
Bc2— bxc3 40. bxc3 — De5 41.
Hf7 - Rh7 42. Dg4 - Kg8 43.
He7 - Rf8 44. Df3 - c4
Það er auðvelt að gagnrýna
Karpov fyrir að setja peð sín á
hvíta reiti nú og með 51. — h5.
Vegna þess hversu óvirk staða
hans er, þá er vafasamt að það
hefði breytt nokkru um úrslitin
þótt hann hefði látið þetta eiga
sig.
45. Be4 - Kh8 46. Bc6 - Rh7
47. Df7 - Rf8 48. He8! - Hxe8
49. Bxe8
49. - Rh7 50. Bd7 - Rf6 51.
Bxe6 — h5 52. Bxc4 — De4+
Eftir 52. — Dxc3 vinnur hvítur
með því að leika 53. Df8n— Kh7
54. Dc5! og svartur á engan góð-
an drottningar- eða kóngsleik.
Karpov reynir þvf að tefla taflið
tveimur peðum undir.
53. Kh2 - Kh7 54. De6 - Df3
55. Del - Rg4? 56. Kgl - Dc6
57. Bd3+ - g6 58. De7+ - Kh6
59. Be4 - Db6 60. Df8+ - Kh7
61. Df7+ - Kh6 62. c4
Hér fór skákin í bið, en Karpov
beið með að gefa þessa vonlausu
stöðu þangað til þeir voru setztir
aftur að tafli:
62. — Da6 63. c5 og Karpov
gafst upp.
Það er merkilegt við þessa skák
að endataflið var hálfgerð endur-
tekning á Iokunum ( 24. skákinni
í Sevilla. Við skulum líta á biðstöð-
una þar eftir 41. leik svarts:
Svart: Karpov
Hvítt: Kasparov
Ef við berum þessa stöðu sam-
an við stöðumyndina eftir 49. leik
hvíts sjáum við að það er ýmislegt
líkt með þeim. Svarta peðastaðan
á kóngsvæng er nákvæmlega eins
og Karpov hefur jafnlélegan ridd-
ara í báðum stöðunum. Munurinn
er sá að í Sevilla hafði Kasparov
peð yfír, en í hinni stöðunni er
liðsmunur enginn, en hvítur á
Gary Kasparov
auðvelt með að sækja að svarta
peðinu á c4. í báðum tilvikum
vinnur hvítur með því að koma
biskup sfnum inn í hvítu herbúð-
imar. Við skulum rifja upp fram-
haldið í biðskákinni í Sevilla:
42. Kg2 - g6 43. Da5 - Dg7
44. Dc5 - Df7 45. h4 - h5? 46.
Dc6 — De7 47. Bd3 - Df7 48.
Dd6 - Kg7 49. e4 - Kg8 50.
Bc4 - Kg7 51. De5+ - Kg8
52. Dd6 — Kg7 53. Bb5 - Kg8
54. Bc6 - Da7 55. Db4 - Dc7
56. Db7 - Dd8 57. e5! - Da5
58. Be8 - Dc5 59. Df7+ - Kh8
60. Ba4 - Dd5+ 61. Kh2 - Dc5
62. Bb3 - Dc8 63. Bdl - Dc5
64. Kg2 og svartur gafst upp.
Austurlandsmótið hefst
á mánudaginn
Opna Austurlandsmótið verður
haldið í annað sinn í Hótel Vala-
skjálf, Egilsstöðum, dagana 5.-15.
júní. Fyrsta umferðin hefst mánu-
daginn 6. júní kl. 19. Mótið er
opið öllum og gefst skákmönnum
í öllum styrkleikaflokkum tæki-
færi á að sameina skákíþróttina
og sumarfrí í fögru umhverfí
Egilsstaða, eins og segir í drei-
firiti um mótið. Teflt er I þremur
styrkleikaflokkum og eru verð-
laun mjög vegleg, eða alls u.þ.b.
830.000 kr.
í 1. flokki tefla þeir sem hafa
2.200 stig og meira og em fyrstu
verðlaun þar jafnvirði 220.000 kr.
í 2. flokki tefla skákmenn sem
hafa á bilinu 1.800-2.199 stig og
eru fyrstu verðlaun þar jafnvirði
80.000 kr. í 3. flokki tefla þeir
sem hafa engin stig eða minna
en 1.800 stig og þar eru fyrstu
verðlaunin jafnvirði 50.000 kr.
Verðlaunaupphæðimar era háðar
því að þátttakendur verði a.m.k.
25 í hverjum flokki.
Meðal þeirra sem hafa boðað
þátttöku sína era ungversku Polg-
arsystumar þijár og enski stór-
meistarinn James Plaskett.
Þátttöku ber að tilkynna í síma
97-11500 í Hótel Valaskjálf þar
sem veittar verða frekari upplýs-
ingar.
NÝBÝLAVEGI 16 - P.O.BOX 397 - KÓPAVOGI - SÍMI 641222