Morgunblaðið - 02.06.1988, Síða 59
8861 IVSÚL .S HUOAdUTMMn .OKlAjaMUOflOM
8c
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
59
Harmon rúllar í gegnum Sumarskólann, geðþekkur en átakalítill
leikari.
Það er leikur að læra
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Sumarskólinn („Summer
School"). Sýnd í Háskólabíói.
Bandarísk. Leikstjóri: Carl
Reiner. Handrit: Jeff Franklin.
Framleiðendur: George Shapiro
og Howard West. Kvikmynda-
taka: David M. Walsh. Helstu
hlutverk: Mark Harmon og
Kristie Alley.
Leikfimiskennarinn Shoop (Mark
Harmon) er u.þ.b. að smella sér í
sumarfríið niðrá Hawaií með skvís-
unni sinni þegar hann fær nýtt og
spennandi verkefni. Sjáðu til Shoop,
okkur vantar kennara til að kenna
nokkrum tossum enska málfræði í
sumar og þú ert sá eini sem er eft-
ir fyrir utan húsvörðinn og ef þú
gerir það ekki fyrir okkur ertu rek-
inn! Aumingja Shoop, sem kann
eins mikið í enskri málfræði og
reyktur lundi, getur auðvitað ekki
neitað þvílíku kostaboði og slær til.
Það getur ekki verið svo slæmt.
En auðvitað er það svo slæmt
og jafnvel helmingi verra í þessari
bandarísku sólarsömbu sem kallast
Sumarskólinn („Summer School")
og sýnd er í Háskólabíói. Það er
nýjasta mynd leikstjórans Carl
Reiners („All Of Me“), sem gert
hefur bæði góðar og slæmar mynd-
ir með Steve Martin, en hún er
mestanpart hvorki fugl né fiskur
og stundum óttalega kjánaleg. Við
hveiju er að búast af sumarmynd
fyrir krakka á aldrinum 14 til 14
ára?
Gamanmál Reiners hafa yfírleitt
einkennst mjög af fáránleikafyndni
sérstaklega þegar hann hefur verið
í slagtogi með Martin. Stundum
hefur hann bara verið fáránlegur
en Sumarskólinn er næstum alveg
laus við fýrri vörumerki Reiners,
því miður. Það hefði verið hress-
andi ef eitthvað hefði komið á
óvart.
Eina vottinn af frumlegri hugsun
er að finna í tveimur tossum bekkj-
arins, vinum sem dýrka og dá hryll-
ingsmyndina Keðjusagarmorðing-
inn í Texas og eiga sína persónu-
legu hryllingsbúð heima hjá sér.
Það er einu skemmtilegu persónur
myndarinnar, einu persónumar sem
lausar eru við klisjur.
Sjónvarpsleikarinn Mark Harm-
on er með eindæmum geðþekkur
leikari, en átakalítill, um leið og
rúllar þokkalega í gegnum mynd-
ina. Mótleikari hans er Kirstie Al-
ley, sem tekið hefur við af Shelley
Long í Staupasteini vestra, en hlut-
verkið hennar er svo ómerkilegt að
það hefði mátt sleppa því alfarið.
Tossamir í bekknum eru auðvitað
allt hin bestu skinn.
Sumarskólinn ber það með sér
að lítið hefur verið lagt í hana af
hugsun eða metnaði. Það er eins
og Reiner hafi gert hana frekar en
að gera ekki neitt.
Aftur um atlög-
una að Reykhólum
Miðvikudaginn 25. maí 1988
birtist í Mbl. á bls. 42 og 43 grein
mín um fjárbúið og tilraunastöðina
á Reykhólum. Kom greinin öll rétt,
nema niðurstöðutölumar í töflu II.
Þær koma þar á skjön og verða því
allar rangar eins og þær standa.
Samtölur fyrir Reykhóla lenda
hjá Möðmvöllum, Möðmvallatölur
hjá Skriðuklaustri, Skriðuklaust-
urstölur hjá Sámsstöðum, en Sáms-
staðatölurnar í dálki fyrir saman-
lagt.
Hér fer á eftir viðkomandi kafli
ásamt töflunni leiðréttri:
Næst er að bera saman við aðrar
tilraunastöðvar, þar sem búið er að
koma réttri skipan á hlutina, „að-
skilja búrekstur og rannsóknastarf-
serni", tiltekið á Möðmvöllum og
Skriðuklaustri.
Fjárveitingar 1985—1988: Tst.
1985, þús. kr.
1986, þús. kr.
1987, þús. kr.
1988, þús. kr. óskipt
Samt. þús. f. hv. st:
viðhalds- og stofnkostnaðar, einir
stöðva á þessu ári.
Á 3 ámm (85—87) er rekstrarfé
til Reykhóla:
1,7 mkr. minna en til Skriðuklausturs,
1,9 mkr. minna en til Möðmvalla og
2,5 mkr. minna en til Sámsstaða.
Þetta segir ekki allt, hvað Reyk-
hólabúið hefír orðið að bera uppi.
Á sömu 4 ámm (85—88) hefir ekk-
ert verið veitt til viðhalds- eða stofn-
kostnaðar á Reykhólum. Tilrauna-
búið á Hesti fékk til viðhalds 0,5
mkr. (87).
Möðmvellir fengu til viðh. 0,3
mkr. (86) og stofnk. 5,9 mkr. (öll
árin). Skriðuklaustur fékk til viðh.
0,95 mkr. (85 og 86 fyrir hús Gunn-
ars Gunnarssonar á Skriðuklaustri)
+ annað viðhald 0,8 mkr. (87).
Reyk- Möðruv- Skriðu- Sámsst. :Samanl.
hól.: «.: kl.:
609 984 838 1.103 3.534
1.236 1.755 1.820 1.940 6.751
1.414 2.435 2.271 2.724 8.844
8.000
3.259 5.174 4.929 5.767
Óskipta fjárveitingin 1988, 8.0
mkr., er einnig fýrir Tilraunabúið á
Hesti, sem fékk 1987 2.117 mkr.
Hún kemur í stað samsvarandi fjár-
veitinga 1987, 8.237 mkr., hvar
sem sú lækkun á að koma harðast
niður.
Sámsstaðir einir og sér fá úrskipt
rekstrarfé 1988, 3.801m mkr., auk
Sámsstaðir fengu til viðhalds 1,0
mkr. (86—88) og stofnk. 2,2 mkr.,
þ.e. til tækjakaupa, (85, 86 og 88).
Það er í skjannabirtu þessara
staðreynda, sem raunhæft er að
skoða ummælin um að „aðskilja
búrekstur og rannsóknastarfsemi"
á Reykhólum.
Játvarður Jökull Júliusson.
HugniÁ/nd að næstu
HÁDEGIS
VEISLU
„Hálf ‘ dós af
rjómaskyri.
Nóg pláss fyrir
mjólk út á.
Njóttu vel!
I
AUK/SlA K3U1-573