Morgunblaðið - 02.06.1988, Page 61
08
61
»«pr Tvrfn. s smnArnrrMMrq aiaAjaMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
Jón G. Oddsson
— Minningarorð
Jón G. Oddsson fæddist í Ráða-
gerði á Seltjamarnesi þann 23. des-
ember 1908. Foreldrar hans voru
Guðríður Þórðardóttir og Oddur
Jónsson, hafnsögumaður.
Margir kannast við Jón vegna
starfs hans fyrir Vélsmiðjuna Héðin
hf., en því fyrirtæki helgaði hann
starfskrafta sína í yfir hálfa öld.
Ég kynntist Jóni fyrir tæpum
tveim áratugum, þegar ég varð
tengdadóttir hans, og er þakklát
fyrir þann tíma, sem hans naut við.
Það var gott að eiga hann að og
engum manni hef ég kynnst, sem
er jafn óeigingjam og hann var.
Hann var alltaf boðinn og búinn
að rétta hjálparhönd og þá var sama
hvert verkefnið var, allt frá bama-
gæslu til erfiðrar útivinnu, alltaf
lagði hann sig allan fram við að
leysa það verkefni, sem hann tók
að sér.
Jón var sérstaklega handlaginn
og smíðaði bæði úr tré og málmi.
Margir gripir, sem hann gerði eru
hrein listaverk. Ljósmyndun var eitt
af hans áhugamálum og var hann
oft beðinn að taka myndir við ýmis
tækifæri. Hann vann myndir sínar
að öllu leyti sjálfur, framkallaði og
stækkaði og var einnig farinn að
mála ljósmyndir sér til gamans.
Það var mikið áfall, þegar sjón
hans tók að hraka fyrir nokkrum
árum. Hann átti erfitt með að sætta
sig við það, en tókst á við vandamál-
ið af æðruleysi og reyndi að bjarga
sér eins og kostur var. Þegar hann
gat ekki ekið lengur, seldi hann
bílinn og fór eftir það allra sinna
ferða í strætisvögnum. Síðustu árin
notaði hann hvíta stafinn, hjálpar-
tæki blindra og sjónskertra, og
veitti það honum öryggi í umferð-
inni. Jón missti mikið, þegar hann
hætti að geta lesið, því hann hafði
ánægju af góðum bókum. Hann
notfærði sér þó hljóðbókasafn
Blindrafélagsins og var ánægður
með þá þjónustu, sem það veitti.
Ég vil þakka tengdaföður mínum
samfylgdina. Það var mér mikil
gæaf að eiga hann að. Ég mun
minnast hans í hvert sinn, er ég
heyri góðs manns getið.
Björg Kofoed-Hansen
rOSIUR FYRIR ÞIG
gastbOM 9""
gAstbom '
fjHKol*0 lbsJS ,bS
Royal0at<9"
KartðtW'W0' 100 9'
Kr. 157°'
Kr. 1470.
Kr.275/I50'
Kr.73.50-'
maabud
Kr-
33.-
daueb
bjór
45 cl.
KAUPFELÖGIN UM LAND ALLT!
NÚ ER RÉTTI
TÍMINN
til að kaupa húsgögn í sumarbústaðinn
eða garðhúsið.
Landsins mesta úrval af massívum
furuhúsgögnum á einum stað.
húsgagna-höllin
reykjavIk