Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 65
;)oni íi/rji _o qfrr>« mrmurirro iiu%t in í/.i L-’ikí irA
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
Minning:
Gísli Björnsson
rafveitustfóri, Höfn
Fæddur 18. mara 1896
Dáinn 25. maí 1988
Þó að fornu björgin brotni,
bili himinn og sökkvi í mar
- allar sortni sólimar.
Aldrei deyr þó allt um þrotni
endurminning þess sem var.
(Gr. Th.)
Þó afi, Gísli Bjömsson, hafi verið
orðinn 92 ára, þá var dauðinn svo
fjarlægur þegar maður talaði við
afa. Það var alltaf sami hugurinn
í honum og hann var alltaf að ráð-
gera eitthvað fram í tímann. Okkur
þótti afar vænt um afa en því mið-
ur gátum við ekki hitt hann eins
oft og við hefðum viljað þar sem
hann átti heima á Höfn í Homa-
firði en við í Reykjavík. Það var
alltaf mikið tilhlökkunarefni að fara
austur til afa og ömmu. Afi var
alltaf eitthvað að aðhafast, hann
var svo duglegur og atorkusamur.
Hann byggði t.d. húsið sitt á Vest-
urbrautinni þegar hann var að verða
áttræður og hann keyrði bíl þar til
hann var kominn vel á níræðisald-
ur. Hann var mjög raunsær en gat
verið fastur fyrir og hafði ákveðnar
skoðanir. Við eigum margar góðar
minningar um afa, bæði þegar við
komum austur og eins þegar afi
og amma komu suður og vom hjá
okkur. Ein af fyrstu minningum
okkar um hann em hlýju hendumar
hans. Hann var alltaf tilbúinn að
hlýja okkur þegar við komum inn
úr kuldanum og það var gott að
stinga köldum höndum í lófana á
afa. En afi hafði líka hlýtt hjarta
og það fundum við oft.
Afi var tvíkvæntur, fyrri konu
sína Arnbjörgu Amgrímsdóttur
missti hann. Með henni átti hann
fjögur böm, þau em Amgrímur
vélstjóri kvæntur Hrafnhildi Gísla-
dóttur skrifstofumanni, Katrín hús-
móðir kvænt Guðmundi Pálssyni
símvirkja, Borghildur húsmóðir
kvænt Jóni Kristjánssyni sjómanni,
Bjöm rafvirkjameistari kvæntur
Auði Jónasdóttur kennara. Síðari
kona afa er amma okkar Regína
Stefánsdóttir. Þeirra böm em
Kristín skólastjóri gift Hreini
Eiríkssyni húsasmíðameistara og
Baldur rafiðnaðarkennari, faðir
okkar, kvæntur Elísabetu J. Svein-
bjömsdóttur fóstm.
Afí og amma vom alveg sérlega
samhent í öllu og aðdáunarvert hve
tillitsöm þau vom hvort við annað
og miklir félagar. Samhent vom
þau í allri ræktun bæði í garðinum
sínum á Höfn og í sumarbústaðnum
upp í Lóni. Aldrei komum við svo
austur að ekki væri farið upp í Lón
í sumarbústaðinn. Afa þótti mjög
vænt um þann stað og var óþreyt-
andi að sýna okkur allar plöntumar
sínar og segja okkur heiti þeirra
KIENZLE
TIFANDI
TÍMANNA
TÁKN
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
og hvenær þær vom gróðursettar.
Þetta vom alltaf mjög ánægjulegar
stundir. En nú kemur afí ekki oftar
með okkur upp í bústað en við trú-
um því að hann fylgist með bústaðn-
um sínum og okkur öllum en bara
á annan hátt.
Elsku amma, söknuður þinn hlýt-
ur að vera mikill nú þegar afí er
ekki lengur á meðal okkar. Við
vonum að minningamar um alla þá
góðu daga sem þið áttuð saman
ylji þér og mildi sorgina. En þú
getur sannarlega glaðst yfir því að
hafa gefið afa jafn mikið og þú
gerðir og gert alltaf allt fyrir hann
sem þú gast. Við biðjum góðan guð
um að blessa minningu afa og
styrkja ömmu og styðja.
Stefanía Baldursdóttir,
Gísli Marteinn Baldursson.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
Ijósmóðir
fró Pótursey,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 3. júní kl.
10.30.
Jóhann Guðmundsson,
Ragnar Jóhannsson,
Sigurlfn Jóhannsdóttir, Sigurður Guðmundsson,
Ragnhildur Jóhannsdóttir, Guðmundur Sigurjónsson
og barnabörn.
t
Fósturfaðir minn og afi,
ÁSÓLFUR BJARNASON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu, föstudaginn 3. júní kl.
15.00.
t '
Ása Gunnarsdóttir og fjölskylda.
t
Faðir okkar, ,
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
frá Nýjubúð f Eyrarsveit,
verður jarðsunginn frá Setbergskirkju laugardaginn 4. júní kl.
14.00.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Slysavarnafélagið.
Dætur og fóstursynir hins látna.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
Esjubraut 30,
sem lést í Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 31. maí, verður jarð-
sunginn frá Akranesskirkju miðvikudaginn 8. júní kl. 11.30 f.h.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Hildur Jónsdóttir,
Jóna Björk Guðmundsdóttir, Jóhannes Sigurbjörnsson
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN MAGNÚSSON
bóndl, Seljalandi,
Hörðudal,
sem lést mánudaginn 30. maí f Sjúkrahúsinu á Akranesi, verður
jarðsunginn frá Snóksdalskirkju laugardaginn 4. júní kl. 14.00.
Svanhildur Kristjánsdóttir, Gfsli Jónsson,
Magnús Kristjánsson,
Hólmfrfður Kristjánsdóttir,
Guðlaug Kristjánsdóttir, Kristján Finnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför sonar okkar, bróður og mágs,
VALDIMARS UNNARS VALDIMARSSONAR,
Skeljagranda 2,
fer fram frá Neskirkju föstudaginn 3. júnf kl. 13.30.
Alda Hanna Grfmólfsdóttlr, Valdimar Guðlaugsson,
Grfmólfur Sævar Valdimarsson,
Jóhann Elfar Valdimarsson, Anna Marfa Jónasdóttir,
Elfsabet Solstað Valdlmarsdóttir, Karl Ásbjörn Hjartarson,
Guðlaugur Viðar Valdlmarsson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HELGI EINARSSON
frá Geitagili,
síðast Glaumbæ, Staðarsveit,
verður jarösunginn frá Staöarstað föstudaginn 3. júní kl. 14.00.
Jarðsett veröur f Sauðlauksdal 4. júní.
Einar Helgason, Ingirfður Kristmundsdóttir,
Helga Helgadóttir, Ari Gfslason,
Davfð Helgason, Brynja Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
INGIBERGUR SVEINSSON,
Efstasundi 66,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. júní kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á björgunarsveit Ingólfs.
Gústav Ingibergsson,
Björgvin Ingibergsson, Sólveig Guðmundsdóttir,
Margrót Ingibergsdóttir, Hörður Reynísson,
Sólveig Ólafsdóttir, Trausti Hermannsson
og barnabörn.
t Bróðir okkar,
KARL JÓNSSON
frá Helgadal, Kleppsvegi 6,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 2. júní, kl. 15.00,
ekki kl. 13.30 eins og misritaðist í Mbl. gær.
Systkini hins látna.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR SIGURÐSSON,
Skammadal f Mýrdal,
verður jarðsunginn frá Víkurkirkju laugardaginn 4. júní kl. 14.00.
Vilborg Árnadóttir,
Árni Sigurðsson, Guðgeir Sigurðsson,
Kristfn S. Sigurðardóttir, Aðalsteinn Guðmundsson,
Sigurður og Ármann Jón Garðarssynir.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem vottað hafa okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
BERGS HELGA ÓLAFSSONAR
fró Ánastöðum,
Neshaga 14, Reykjavfk,
sem lést 21. maí sl. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Múla-
lundar og starfsfólki Landspítalans.
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra Kristinsdóttir, Ólafur Þórhallsson,
Þorbjörg Ólafsdóttir, Jón M. Benediktsson,
Þórhildur Óiafsdóttir, Necmi Ergúm,
Júlfus Ólafsson,
Gunnhildur Hlöðversdóttir
og litlu systkinabörnin.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðar-
för eiginmanns míns, föður og tengdafööur,
MAGNÚSAR GEIRSSONAR,
Skúlagötu 56.
Hansína Hannesdóttir,
Jónfna Magnúsdóttir, Jens Karlsson.
t
Þökkum innilega veittan stuðning og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður og afa,
VILHJÁLMS GUÐMUNDSSONAR
fró Stóra Nýjabæ,
Krfsuvfk.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki sjúkrahússins í Keflavík.
Ragnheiður Sigurðardóttir,
Sigurður Kristinn Vllhjálmsson,
Gunnar Vilhjálmsson,
Ásta Vllhjálmsdóttir,
Ragnheiður Asta og Berglind Elva Jóhannsdætur.
Lokað
föstudaginn 3. júní vegna jarðarfarar.
Vökvaleiðslur og Tengi hf.,
Sigtúni 3.